Alþýðublaðið - 11.11.1989, Síða 12
Laugardagur 11. nóv. 1989
Alaskamidin heilla:
27 milljarða fjár-
festing Norðmanna
— og bankarnir grœöa
Norðmenn hafa lagt nær 27
milljarða íslenskra króna í fisk-
veiðar og fiskeldi í Norður Am-
eríku. Einkum hafa fjárfestingar
Norðmanna beinst að norðvest-
ur Bandaríkjunum og hefur
ásókn þeirra í þetta svæði verið
líkt við gullæðið í Alaska um
aldamótin.
Fiskeldisævintýri Norðmanna á
þessum slóðum hefur hins vegar
komið út með umtalsverðu tapi,
eirikum vegna nýrra tolla, um 50%
verðfalls og fisksjúkdóma.
Fiskveiðarnar hafa á hinn bóginn
fært hinum norsku fjárfestingaraðil-
um, sem eru bankar aðallega, tals-
verðan gróða. Kredidkassen hefur
þannig lánað um 18 milljarða og
engu tapað. Nú ræða Norðmenn um
að skipta um frá Kyrrahafslaxi yfir í
Atlantshafslax.
Veiðar út af ströndum Alaska
verða æ meir freistandi, sérstaklega
í Ijósi stækkunar fiskveiðilögsög-
unnar þar í 200 mílur og efldra fisk-
stofnanna. Um leið aukast mögu-
leikarnir á því að selja þangað skip
og fiskveiðibúnað.
Ríkisbákniö bólgnar og bólgnar:
Stœrstu fyrirtœki landsins:
Yfirburðir SÍS ó enda
Velta SIS hefur dregist saman um 9 milljaröa á tveimur árum.
Samband íslenskra sam-
vinnufélaga (SIS) ber ekki leng-
ur ægishjálm yfir önnur ís-
len.sk fyrirtæki. A síðasta ári
velti SIS 16,3 milljörðum króna
á verðlagi þess árs, en Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna (SH)
tæplega 14 milljörðum og
Landsbanki íslands rúmlega
12 milljörðum. Velta SÍS milli
ára minnkaði að raungildi um
22%.
Þegar veltutölur stærstu fyrir-
tækja landsins á nýjum lista
Frjálsrar verslunar eru framreikn-
aðar til núvirðis og bornar saman
við framreiknaðar veltutölur fyrri
ára kemur í ljós að velta SÍS
minnkaði úr 29,7 milljörðum
króna árið 1986 í 20,8 milljarða ár-
ið 1988 eða um 9 milljarða króna
á tveimur árum- eða um 30% að
raungildi. Velta SÍS hefur ekki ver-
ið minni um árabil.
Um all langt skeið hafa önnur ís-
lensk fyrirtæki ekki komist með
tærnar þar sem SÍS hefur haft hæl-
ana. Á timabilinu 1979—1988
náðu yfirburðir SÍS lengst árin
1981 og 1984 þegar velta SÍS var
71—72% meiri en velta næsta fyr-
irtækis, SH. Síðan hafa hlutfalls-
legir yfirburðir minnkað stöðugt,
en mest þó á síðasta ári. Þá var
velta SÍS „aðeins" 17,4% meiri en
hjá næsta fyrirtæki, SH.
Af öðrum fyrirtækjum má nefna
að Hagkaup héldu 1988 áfram
sókn sinni og hefur á síðastliðnum
áratug eða meira breyst úr hóf-
sömu fyrirtæki í áttunda stærsta
fyrirtæki landsins, sé dótturfyrir-
tækið Miklatorg talið með (IKEA).
Önnur fyrirtæki í mikilli sókn voru
íslenska Járnblendifélagið, Síldar-
verksmiðjur ríkisins og Andri hf.
Fyrirtæki sem lækkuðu áberandi í
veltu frá 1987 voru t.d. íslenskir
aðalverktakar, Mjólkursamsalan,
SS, Grandi, Hagvirki, Áburðar-
verksmiðjan og Bílaborg.
43% f jölgun á I jórum árum
Á fjögurra ára tímabili hefur
ríkisstarfsmönnum innan vé-
band BHMR fjölgað um 43%. Á
sama tíma fjölgaði ríkisstarfs-
mönnum innan BSRB um 2% og
innan Kennarasambands Is-
lands um 6%. Ríkisstarfsmönn-
um hefur í heild fjölgað um
1.707 á tímabilin 1. apríl 1985 —
mars 1989. Það er 13% fjölgun i
heild hjá ríkinu.
Innan vébanda BHMR er fjöldi
smærri félaga, af þeim hefur félög-
um í Félagi háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga fjölgað hlutfalls-
lega mest, um 170%. í Matvæla- og
næringarfræðifélagi Islands hefur
fjölgað um 148%. I HÍK hefur fjölg-
að um 60% svo dæmi séu tekin.
Þegar þessar tölur eru fundnar er
tekið mið af þeim fjölda starfs-
manna sem fá föst mánaðarlaun
greidd hjá Launaskrifstofu ríkisins
og í því sambandi veröur að hafa í
huga að töluvert er um það að
launagreiðslur sem áður hafa verið
hjá sveitarfélögum, hafi færst yfir til
launaskrifstofu ríkisins. Áætlað er
að fjórðungur fjölgunarinnar stafi af
þessu.
Berlínarmúrinn illrœmdi hruninn:
Vonandi endaiok skiptingar Evrepu
— segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra.
A-Þýsk yfirvöld hafa ákveðið
að opna Berlínarmúrinn ill-
ræmda og telja menn að þar með
sé grundvöllur hans hruninn. I
fjölmiðlum hefur Svavar Gests-
son menntamálaráðherra geng-
ið lengra og sagt að kalda striðið
sé nú hrunið.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra fagnar þessari
ákvörðun austurþýskra yfirvalda
um að aflétta ferðafrelsi yfir til
V-Þýskalands. „Ákvörðunin markar
enn einn mikilvægan áfanga í við-
leitni ríkja austurs og vesturs til að
eyða þeirri tortryggni sem einkennt
hefur samskipti þeirra á árunum eft-
ir stríð og stuðla þannig að endalok-
um skiptingar Evrópu" segir utan-
ríkisráðherra.
Umhverfismálamenn ræddu nýja ráðuneytið
í gær var haldin ráðstefna um umhverfismálaráðuneyti að frumkvæði samtakanna Landvernd, í tengslum við að-
alfund félagsins. Sérstakur gestur ráðstefnunnar var Oddmund Graham, ráðuneytisstjóri norska umhverfismála-
ráðuneytisins, en hann lýsti uppbyggingu síns ráðuneytis, sem starfað hefur um 17 ára skeið. Júlíus Sólnes, vænt-
anlegur umhverfismálaráöherra Islands, lýsti fyrirætlunum islenskra ráðamanna um nýtt umhverfismálaráðu-
neyti hér á landi og sjást þeir Oddmund og Júlíus saman á fundinum á mynd E./ÓI.
Stojö*