Tíminn - 29.03.1968, Síða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið i síma 12323
Auglýsing i Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
63. tbl. — Föstudagur 29. mari 1968. — 52. árg.
Til vinstri er mynd af Gagarín, er hann hafði lokið fyrstu geiniferð, sem farin hefur verið. Þetta
er jafnframt fyrsta símsenda mynd Tímans. Hún bitist í blaðinu 13. apríl 1961, og var send hing
að frá Kaupmannahöfn að kvöldi 12. apríl. Þetta var eina myndin sem íslenzk blöð fengu af
gcimfaranum þann dag. Hér að neðan er svo mynd af Gagarín, er hann kom til íslands.
JURI GAGARIN FÓRST í FLUGSLYSI í FÝRRADAG
FYRSTUR ÖT í GEIMINN
FER UNDIR MÖRA KREML
NTB-Moskvu, fimmtudag.
Gervöll Sovétríkin syrgðu
Juri Gagarin í dag, smiðsson-
inn sem varð fyrsti geimfari
heims og brautryðjandi mann^
kynsins á leiðinni til stjam-
anna. Allt er hljótt um hvernig
dauða hans bar að höndum,
Sjónvarpið sést norð an Holtavörðuheiðar
TÆKI KOMIN Á
HVAMMSTANGA
BS-Hvammstanga og EJ-Reykja
vík, fimmtudag. — Frá því nóv
ember s. 1. hafa farið fram á veg
um áhugamanna athuganir á að
ná sjónvarpi á Hvammstanga frá
Búðardal í Dalasýslu. Þrjú sjón
9.5?
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
•fc Enn ríkir þögn um ástæð
una fyrir því, að Lönd og Leið
ir h. f. var svipt leyfá til
reksturs ferðaskrifstofu. Hvorki
ráðuneytið né ferðaskrifstofan
hefur látið frá sér fara yfir
lýsingu, þótt forráðamaður
ferðaskrifstofunnar hafi sagt,
að hann hafi verið búinn að
semja við skuldunauta síhá, og
kærur hafi því ekki komið úr
þeirri átt.
☆ Blaðið hefur góðar heimild
ir fyrir því, að skuldir fyrir-
tækisins nemi um 9.5 milljén
um króna. Eignir þess munu
aftur á móti vera litlar.
☆ Enn er beðið skýringar frá
ráðuneytinu á því, hvers vegna
gripið var til leyfissviptingar,
og hvers vegna það var gert
nú.
varpstæki voru hér til að byrja
með, en í febrúar og marz mánuði
tókst að bæta móttökuskilyrði það
vel, að tal er ágætt og mynd oft
ast góð. í dag eru komin upp um
40 sjónvarpsviðtæki á Hvamms
tanga og næsta nágrenni. Þetta
er fyrsti staðurinn á Norður-
Iandi, þar sem sjónvarp er, og má
I þakka það áhugamönnum á
I Hvammstanga.
Stofnað var Félag sjónvarps-
áhugamanna á Hvammstanga, og
bera áhugamenn allan veg og
vanda af þessum framkvæmdum
í sjónvarpsmálunum. Setja varð
upp móttökunet, sem til að
Framhald á bls. 14.
annað en að hann hafi verið
að reyna nýja flugvélargerð,
ásamt félaga sínum, Vladimir
Serjogin-ofursta og verkfræð-
ingi er flugvélinnj hlekktist á
með þeim afleiðingum að þeir
fórust báðir.
Útför Gagarins verður gerð
með allri þeirri viðhöfn sem
opinberum greftrunum fylgir
því að hann verður jarðsettur
undir múrum Kreml, á Rauða
torginu, þar sem stórmenni
Sovétríkjanna hvíla. Verkfræð
ingurinn, Serjogin ofursti, verð
ur grafinn við hlið hans.
Serjogin hefur til þessa verið
óþekktur opinberlega, en það
er mál margra þeirra sem til
þekkja að á bak við tjöldin
hafi hann verið einn af helztu
foringjum geimferðastofnunar
Sovétmanna.
Moskvnútvarpið skýrði frá
dauða mannanna tveggja í
aukaútsendingu í morgun, og
síðam var fregnin endurtekin
öðru hverju en á milli var
alvarleg tónlist leikin. Báðir
báru þeir félagar titilinn Hetja
Sovétríkjanna, en það er æðsta
viðurkenning sem veitt er þar
í landi. í fregninni um slysið
var þess aðeins stuttlega getið
að þeir hefðu verið að reyna
nýja flugvélartegund, en ekki
minnzt á hvaða tegund það
hefði verið, né heldur hvar slys
ið hefði borið að höndum eða
hvers vegna ekki var skýrt
frá þess'u fyrr.
Óstaðfestar fregnir segja
hins vegar að þeir hafi flogið
gamalli, þekktri þotutegund,
MIG 15 tveggja sæta orrustu
vél, sem m. a. var nobuð í
Kóreustríðinu. Sömu heimildir
segja vélina hafa hrapað 40—
70 kilómetra norðaustur af
Moskvu.
í kvöld sagði þó einn af
helztu foringjum geimferða-
stofnunarinnar George Petrov
í útvarpsræðu, '5ð mennirnir
tveir hefðu aðeins verið á
venjulcgu æfingarflugi, eins og
venja er til með sovézku geim
farana.
Óstaðfestu fregnirnar kváðu
hreyfil vélarinnar hafa drepið
á sér um leið og hún hafi ver
ið komin á loft. Gagarin hefði
setið við stjórnvöliún og reynt
Framhald a bls. 14.
H-DOMSTÓLLINN DÆMIR SERLEYFIS-
HAFA GREIDSLU VE6NA BREYTINGA
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
Fallinn er dómur í rnáli sem
Félag sérleyfishafa höfðaði gegn
fjármálaráðherra fyrir hönd rík
issjóðs vegna kostnaðar á breyt-
ingu áætlunarbifreiðar sem gera
þarf vegna væntanlegrar hægri
umfcrðar. Málið var dæmt af
sérstökum rétti sem settur er
vegna mála sem rísa kunna vegna
skaðabótagreiðslna í sambandi
við umferðarbreytinguna. Dómur
féll á þá leið, að framkvæmda-
nefnd hægri umferðar er gert að
greiða allan beinan kostnað af
breytingu bifreiðarinnar.
Dómurinn var kveðinn upp 25.
marz s. 1. Málið var höfðað vegna
áætlunarbílsins M-303, eigandi
hans er Sæimundur Sigmundsson,
Borgarnesi. Höfðaði Félag sér-
leyfishafa málið fjTir hans hönd.
Þótt ekki hafi verið ' fjallað um
kostnað við noma þennan eina
bíl, er hér um prófmál að ræða
og má því líta á úrskurð dómstóls
ins á þann veg að Framkvæmda-
nefnd hægri umferðar beri að
greiða beinan kostnað við breyt
ingu á öllum farþegabifreiðum sér
leytfishafa sem gera þarf vegna H-
umferðarinnar. Sæmundur hefur
sérfeyfi á Reýkjavík-Akranes og
Akranes-Borgarnes. Þennan bíl
ætlar hann að nota á þeirri leið
ásamt þrem öðrum bílum sem
hann á. Tveir þeirra eru með
hægri dyra búnaði og tveir með
vinstri. Fóru sérleyfishafarnir í
þetta mál til að kanna hvort hann
fengi kostnaðinn bættan, og var
honum, eins og áður er sagt dæmd
ur bótaréttur. En til er ákvörðun
frá Framikvæmdanefnd hægri um
; ferðar þess efnis að eigendur bíla
sem aka á fjölförnuiri sérleyf-
isleiðum, aðallega í nógrenni
Reykjavíkur, fái greiddan allan
beinan kostnað við að breyta dyra
búnaði bílanna íil samræmis við
hægri umferð. í dómnum er ekki
tekið fram um upphæð sem greiða
ber vegna breytingarinanr, held-
ur aðeins um kostnað sem fram
úr þúsund krónum fer.
Ekki er hægt að áfrýja úrskurði
H-yfirdómstólsins, og er þetta
því endanleg ákvörðun. f rauninni
Framhaid á bls. 14.
/