Alþýðublaðið - 22.12.1989, Blaðsíða 5
Föstudagur 22. des. 1989
5
FRÁ RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er það kappsmál að sem fæstir
verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um
jóiin sem endranær. Til þess að tryggja öruggt
rafmagn um hátíðirnar vill Rafmagnsveitan benda
notendum á eftirfarandi:
IReynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni
yfir daginn eins og kostur er, einkum á aðfanga-
dag og gamlársdag. Forðist, ef unnt er, að nota
mörg straumfrek tæki samtímis, t.d. rafmagns-
ofna, hraðsuðukatla, þvottavélar og uppþvotta-
vélar - einkum meðan á eldun stendur.
Farið varlega með öll raftæki til að forðast
bruna- og snertihættu. Illa með farnar lausar
taugar og jólaljósasamstæður eru hættulegar.
Útiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþéttar og
af gerð sem viðurkennd er af Rafmagnseftirliti
ríkisins.
í flestum nýrri húsum eru sjálfvör (útsláttar-
rofar) en í eldri húsum eru vartappar (öryggi).
Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöppum.
Helstu stærðir eru:
10 amper - Ijós
20-25 amper - eldav.él
35 amper - aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður skuluð þið gera eftir-
farandi ráðstafanir:
- Takið straumfrek tæki úr sambandi.
- Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr íbúð,
(t.d. eldavélar eða Ijósa) getið þið sjálf skipt um
vör í töflu íbúðarinnar. Ef öll íbúðin er straum-
laus getið þið einnig sjálf skipt um vör fyrir
íbúðina í aðaltöflu hússins.
5
6
Hafi lekastraumsrofi í töflu leyst út er rétt að
taka öll tæki úr sambandi og reyna að setja leka-
straumsrofann inn aftur. Leysi rofinn enn út er
nauðsynlegt að kalla til rafvirkja.
Tekið er á móti tilkynningum um bilanir í síma
686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan
sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er
einnig tekið á móti bilanatilkynningum til kl. 19 í
síma 686222.
Við flytjum ykkur bestu óskir um gleðileg jól
og farsæld á komandi ári, með þökk fyrir
samstarfið á hinu liðna.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
(Geymið auglýsinguna)
Aktu eins og þú vilt
_ að aðrir aki!
ÖKUM EINS OG MENN!
IUMFERÐAR
RÁÐ
formanni Verkakvennafélagsins Framtiöar í
Afmælisbarniö tekur hér á móti Guöriöi Elíasdóttur
Hafnarfiröi. A.mynd/E.ÓI.
Eiöur Guönason formaöur þing-
flokks Alþýöuflokksins færöi Kjart-
ani þennan blómvönd frá þing-
flokknum. í baksýn má m.a. sjá eig-
inkonu Kjartans, Irmu Karlsdóttur
og Guömund Oddsson bæjarfull-
trúa Alþýðuflokksins í Kópavogi.
Meöal gesta voru þeir herramenn
Ragnar Halldórsson stjórnarfor-
maöur ísal, Halldór Ásgrimsson
sjávarútvegsráöherra og Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra. Samkvæmt heimildum Al-
þýöublaðsins skiptust þeir þre-
menningar á skoöunum um lax-
veiði.
Forseti Islands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir sést hér á tali viö tvo
þingmenn Sjálfstæöisflokksins úr
Reykjaneskjördæmi, þau Matthías
Á. Mathíesen og Salóme Þorkels-
dóttur.
Halldór Ásgrímsson ráöherra og
Jóhann Einvarðsson þingmaöur
Framsóknarflokksins heilsa þeim
hjónum, Kjartani og Irmu.
Frá vinstri; Erlendur Einarsson yfir-
þingvöröur Alþingis, Hreggviöur
Jónsson þingmaöur og Páll Péturs-
son þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins.
Kjartan
Jóhannsson
fimmtugur
Kjartan Jóhannsson
sendiherra Islands í Genf
varð fimmtugur á þriðju-
daginn var. Þá var Kjart-
an hinsvegar staddur í
Briissel í föruneyti utan-
ríkisráðherra á ráðherra-
fundi EFTA og EB. í gær
hélt hann svo vinum og
samstarfsmönnum hóf í
Gaflinum í Hafnarfirði og
ljósmyndari Alþýðublaðs-
ins, Einar Ólason, tók
þessar myndir við það
tækifæri. Alþýðublaðið
færir Kjartani heillaóskir
í tilefni þessara tíma-
móta.