Alþýðublaðið - 22.12.1989, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 22. des. 1989
BÓKAFRÉTTIR
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér bókina Svartur sjór af síld —
Síldarævintýrin miklu á sjó og
landi eftir Birgi Sigurdsson rithöf-
und. Þar endurvekur hann áhrif
síldarinnar á mannlíf og þjóðlif í
hundrað ár. Hér eru leiddir fram á
sjónarsviðið síldarspekúlantar, stór-
brotnir athafnamenn, afiakóngar,
síldarstúlkur, hásetar, verkamenn.
Bókin geymir ógrynni heimilda um
þróun sílarútvegsins, frásagnir og
samtöl um líf og störf karla og
kvenna sem upplifðu síldarævintýr-
in miklu.
Síldarárin eru sveipuð ævintýra-
Ijóma. Þau voru stórbrotin og
spennandi með umsvifamiklum
framförum og afdrifaríkum koll-
steypum í þjóöfélaginu. Síldin var
nefnd silfur hafsins, bjargvættur
þjóðarinnar, gull Islands. Hún var
óútreiknanleg kenjaskepna. Hún
gerði menn að milljónerum og bein-
ingamönnum, reisti og rústaöi bæi
og byggðarlög, réð örlögum manna
og efnahagsiífi þjóðarinnar.
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefiö út
bókina Eins manns kona — minn-
ingar Tove Engilberts eftir Jónínu
Michaelsclóllur. Tove Engilberts var
ung kona þegar hún yfirgaf heima-
land sitt og fluttist til Islands ásamt
manni sínum, listmálaranum Jóni
Engilberts. í bókinni segir hún frá
uppvaxtarárunum á auðmanna-
heimili í Kaupmannahöfn og dregur
upp óvenjulega og heillandi mynd
af lífinu þar í borg á árunum milli
stríða. Hún lýsir fyrstu kynnum
þeirra Jóns en þau kynntust fyrst er
þau voru bæöi við myndlistarnám.
Síðan lýsir Tove langri sambúö við
stórbrotinn listamann og lífi þeirra á
íslandi af óvenjulegu innsæi og
næmi á sérkenni samferðamanna
sinna.
I kynningu Forlagsins segir m.a.:
„Minningár Tove Engilberts eru
ógleymanlegur aldarspegill þar sem
fjöldi þjóöfrægra manna og kvenna
kemur við sögu. Hún lýsir á eftir-
minnilegan hátt samskiptum lista-
manna fyrr á árum, baráttu þeirra,
vonbrigöum og sigrum. Þar skiptast
á skin og skúrir, en umfram allt er
saga Tove áhrifamikil lýsing á til-
finningaríku samlífi tveggja elsk-
enda og vina sem aldrei varö hvers-
dagsleika og vana að bráð."
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér nýja bók eftir Gylfa Gröndalsem
ber heitið Dúfa töframannsins,
minningar Katrínar Hrefnu
yngstu dóttur Einars Benedikts-
sonar skálds.
Hrefna kvaddi Island að loknu
stúdentsprófi fyrir rúmum 60 árum
og hélt í óþökk föður síns til Suöur-
Ameríku ásamt ástmanni sínum.
Með sanni má segja að líf hennar sé
ævintýri líkast og líkist fremur
skáldsögu en veruleika. Ætíð komst
hún þó klakklaust úr hverjum hild-
arleik. Á gamals aldri sneri Hrefna
loks aftur heim til íslands til að eyöa
hér síðustu ævidögunum. I bókinni
varpar Hrefna nýju Ijósi á föður
sinn, hið stórbrotna skáld og fram-
kvæmdamann sem var langt á und-
an samtíöinni í hugsjónabaráttu
sinni. Hún lýsir honum á hispurs-
lausan og áhrifaríkan hátt, ágæti
hans og yfirburöum, en jafnframt
veikleika og vanmætti.
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér bókina Undir eldfjalli eftir
Svövu Jakobsdótlur. Hún hefur fyrir
löngu skipað sér í fremstu röð ís-
lenskra rithöfunda með skáldsögum
sínum, smásögum og leikritum.
Skemmst ér að minnast lofsamlegra
dóma sem síðasta bók Svövu,
Gunnlaðar saga, hlaut fyrir tveim-
ur árum en hún mun á næstunni
koma út á fjórum Norðurlandamál-
um og var nú í nóvember tilnefnd af
Islands hálfu til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs.
Þetta nýja sagnasafn Svövu
Jakobsdóttur, og hið fjórða frá
hennar hendi, hefur að geyma sex
sögur. Yrkisefnin eru margvísleg og
gædd þeim meistaratökum sem ein-
ungis fáum skáldum eru lagin. Allar
persónur sagnanna heyja baráttu
sína undir eldfjalli þó í ólíkum skiln-
ingi sé. Sumar þeirra takast á viö líf-
ið, háska þess og hverfulleika, af
þrautseigju og ástríki. Aðrar sögu-
persónur glíma viö eyðingariifl
valds og kúgunar sem brjótast upp á
yfirborðið gegn góðum vilja og
beinast gegn lífinu þegar minnst
varir.
Tónagjöf kallast ný bók, sem
Fjölvaútgáfan sendir frá sér. Þetta er
myndskreytt handbók um sígilda
tónlist. Titill bókarinnar er tekinn
eftir heitinu á tónverki sem Bach
samdi og færði Friðriki mikla
Prússakonungi að gjöf.
í Tónagjöf eru rakin æviatriði 124
sígildra tónskálda af öllum tímum.
Þeim er skipað niöur í stafrófsröö.
Þar eru rakin í stuttu máli æviatriöi
hvers tónskálds, þroski og tónlistar-
ferill, lýst stílgerð og samskiptahópi
og talin up og lýst helstu tónverkum
í tímaröð. Til vitnis um, hve yfir-
gripsmikið efni bókarinnar er, má
nefna að í nafnaskrá, sem fylgir, eru
tilgreind um 900 mismunandi tón-
verk og koma þar þó aðeins þau
sem bera heiti, en ekki þau fjöl-
mörgu tónverk sem aðeins eru núm-
eruð svo sem fjöldi sinfónía og
konserta.
Fjölvi-Vasa senda nú frá sér skáld-
söguna Vaxtarverkir Dadda eftir
Sue Townsend. Hún er einskonar
framhald Dagbókar Dadda, sem
kom út fyrir tveimur árum. Sögu-
persónan Daddi heitir Adrian Mole
og hefur hlotiö slíka frægð að kvik-
mynd hefur veriö gerð um hann og
sögunni jafnvel breytt í leikritsform,
sem flutt hefur veriö á nokkrum
stöðum hér á landi.
Það er sérkennilegt við bækurnar
um Dadda, að þær eru allar skrifaö-
ar í dagbókarformi, svo það er eins
og lesandinn sé að gægjast í dagbók
tánings á vandræðaaldrinum og
maöur les allar hans leyndustu hug-
renningar og kenndir. Líf Dadda er
oft æði tilbrigðaríkt sem markast
m.a. af því að foreldrar hans eru til
skiptis að skilja og taka saman og
hann eignast meira að segja syst-
kini, en sjálfur er hann trúlofaöur
Pandóru, þó oft slettist þar líka upp
á vinskapinn. Bjori> Thorarensen ís-
lenskaöi.
Hathayoga er heilsufræði Yog-
anna, sem Fjölva/Vasaútgáfan hef-
ur nýlega gefiö út. Er hún 3. bindið
í ritsafni Yogameistarans Ramacha-
ruka.
Að vísu stefna Yogafræðin aðal-
lega að þroskun andans, svo að
mannssálin megi rísa upp á æðra
stig, — en til þess að auðvelda þann
þroska þarf líkaminn einnig að vera
heilbrigður.
Því leggja Yogar svo mikla áherslu
á heilsufræði, aö líkaminn á að vera
eins og göfugt musteri fyrir andann
og því samdi Ramacharaka sérstak-
an erindaflokk um ræktun líkam-
ans.
* Krossgátan
□ 7""" 3 n —
■ □
6 □ 7
9
10 □ íí
□ 12
13
Lárétt: 1 blekkti, 5 hár, 6 frost-
skemmd, 7 húð, 8 báturinn, 10
kall, 11 kerald, 12 ofnar, 13
stundar.
Lóðrétt: 1 háð, 2 sléttu, 3 sem, 4
fífl, 5 hestsnafn, 7 berg, 9 Ijá, 12
keyrði.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 fóarn, 5 ráma, 6 ælu, 7
st, 8 kárína, 10 tt. 11 tað, 12
maga, 13 níska.
Lóðrétt: 1 fálát, 2 ómur, 3 AA, 4
notaða, 5 ræktun, 7 snaga, 9 ítak,
12 MS
HfMBI getraunir
ALÞÝÐUBLAÐIÐ FJC REYNDIST GET- S PA KAST LEIKIR 26. DES. ’89 LMIÐL Z > ! 5: Q| h- .A! z z -D -1 > o o 2 SPÁ Q Q. CC I < I > cc! 3 cn s £ Qi oc BYLGJAN STÖÐ2 STJARNAN Q Q < -J m => Q ■> n. J <! HLJÓÐBYLGJAN SAMTALS
I 1 X 2
Alþýðublaðið sigraði glæsilega í haustkeppni íslenskra getrauna meðal Asfon Villa - Man. Utd. 1 .2 X 1 1 1 1 ij 1 T T 9 1 1
11 fjölmiðla landsins. Að 15 erfiðum umferðum afloknum stóð Alþýðublað- « p „ -. . iö uppi sem sigurvegari meö samtals 87 rétta eöa 5,8 aö meöaltali. í ööru ' 2 2 2 2 2 X 2 1 2 2 1 2 1 8
sæti lenti Bylgjan með 85 rétta og næst komu DV og Dagur með 84 rétta. Derby - Everton 1 JL J 2 X J J j X J x 6 J ±
Alþýðublaðið þakkar hinum sigruðu fjölmiðlum fyrir spennandi keppni. . „ p Verðlaunin eru ferð fyrir tvo á leik að vali í Englandi eða Þýskalandi. Til- Luion NOtl. 0 . 2 j 2 X 2 X X 2 X X X 2 0 6 5
högun mála var mjög lýðræðisleg og tóku 8 starfsmenn þátt í innbyrðis Man. City - Norwich 2 ! 2 2 2 2 2 X 1 1 2 1 3 1 7
keppni. Tveir efstu menn fara á viðkomandi leik og urðu efstir Friðrik Þör n D B r niirtmi mHccnn mprt Rfi8 að mpðaltali ng Krictján Þnrvaldccnn mpð 5 47 að U.r.H. - LOVentry J J X^ X X J J( 1 X 2 4 6 1
meðaitaii. Southampton - Arsenal 2 X 2 2 2 1 2 2, 1 1 X 3 2 6
Framundan eru tvær aukaumferðir en 6. janúar hefst ný fjölmiðlakeppni. Eftirfarandi spá gildir um leiki annan dag jóla. Seðillinn er nokkuð snúinn, lOttennam - Mlllwall 1 1 X 1 1 1 1 jJ 1 1 1 10 1 0
en Aston Villa, Tottenham og Wimbledon talin örugg um sigur. Wimbledon - Charlton 1 j 1 j J J J Jj J< J J 10 L 0
Ipswich - West Ham 2 1 1 X X J X 1 1 1 2 6 3 2
Sheff. Utd.-Leeds X X 1 2 1 2 1 2 X 1 1 5 3 3
Spá okkar: 1-2-1/X-2-X/1-1-1/M-1. Cu(ínrlnn DhílLh,im Korficcrvá-1 _Y9.i v/Y9.o.i y/i 9.1.1 n y.i Y9.1 Swnidon - Blackburn X 1 2 1 X 1 X 1 1 1 |X 6 T 1
RAÐAUGLÝSINGAR
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir nóvembermánuð
1989, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27.
desember.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru
orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbót-
ar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16.
janúar 1990.
Fjármálaráðuneytið
Alþýðuflokksfélag
Kópavogs 40 ára
Alþýðuflokksfélag Kópavogs býður til afmælis-
fagnaðar 27. desember nk. í Félagsheimili Kópa-
vogs 1. hæð.
Opið hús frá kl. 17—19
Við bjóðum upp á „góðar" veitingar.
Verið öll velkomin.
Stjórnin
Það er þetta með
bilið milli bíla...
iJ UMFERÐAR
'RÁO