Alþýðublaðið - 03.01.1990, Side 2
Miðvikudagur 3. jan. 1990
MMBUBLMB
Armúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Dreifingarstjóri: Sigurður Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 75 kr. eintakiö.
NYTT AR MEÐ
HÆKKANDI SÓL
Nýtt ár er gengið í garð. Á áramótum strengja menn heit og
vænta betri tíðar. Gamla árið kvaddi með óvenjulegum hætti. At-
burðir í Austur-Evrópu riðluðu heimsmyndinni. Lýðræðið velti
einræði úr stóli og kalda stríðinu lauk.
*
A íslandi minnkuðu verðmæti sjávarafurða miðað við árið áður
og þar með versnuðu lífskjör þjóðarinnar. Vandamál okkareru þó
smámunir hjá því sem þorri jarðarbúa þarf að kljást við, og okkar
vandi er að mestu heimatilbúinn. Við vitum af gamalli reynslu að
gengi okkar veltur á því að við fáum skikkanlegt verð fyrir sjávar-
föng og okkur ber því að taka á þeim vanda. Stjórnmálamenn
hafa látið hjá liggja að móta lífskjarastefnu í kjölfar nauðsynlegra
breytinga í sjávarútvegi. Öðru hverju er látið undan þrýstingi og
gripið til „aðgerða" sem ævinlega leiða til óbreytts ástands innan
ekki langs tíma. Umgjörðin er nefnilega hin sama. Ytri aðstæður
breytast ekki. Fiskurinn í sjónum stjórnar mannlífi í landi og hags-
munaaðilar í sjávarútvegi stjórnmálamönnunum. Ár eftir ár hafa
þeir síðarnefndu afsalað sér ákvörðun um helstu verðmæti þjóð-
arinnar í hendur útgerðarmanna í landinu.
Ef almenningur í landinu væri spurður að því við þessi áramót
hvað kæmi sér best til að jaf na lífskjör og bæta hag, er enginn vafi
á því að svarið yrði að ráðast að verðbólgu og koma verðlagi nið-
ur. Vextirnir og vaxtaverkirnir sem hrjá atvinnulíf og eru að koma
fjölskyldum á kaldan klaka, eru meiri byrðar á flestum en yfirvöld
virðast gera sér grein fyrir. Það skiptir miklu meira máli fyrir þorra
landsmanna að hemja verðlag og koma vöxtum niður, en að
semja um óverðtryggðar krónur í launaumslag, eða að lofa at-
vinnurekendum bót og betrun seinna meir. Misræmið milli
launahækkana og útgjalda, sem er að sliga margar fjölskyldur,
lagast ekki með fleiri krónum eða loforðum um bættan hag, þeg-
ar efnahagur blómgast á ný. Hér á ekki síst við um þær stéttir
sem hafa orðið að taka á sig lífskjaraskerðingu umfram þá sem
þjóðarbúið eitt og sér hefur orðið fyrir. Fram að þessu hafa kaup-
staðarbúar að mestu getað rétt sinn hlut með aukinni vinnu, en
ekki verður sömu sögu að segja um þá sem búa á þeim stöðum,
sem atvinna hefur dregist saman.
Það hvílir ekki síst á jafnaðarmönnum að móta heillega þjóð-
málastefnu fyrir næsta áratug. í núverandi ríkisstjórn eru ýmis
veigamestu atvinnu- og félagsmálin undir verkstjórn ráðherra
Alþýðuflokksins, og því vænta menn mikils af þeim. Formaður
Alþýðuflokksins mun áfram glíma við það vandasama mál að
tryggja hag okkar í viðræðum um mótun evrópskrar efnahags-
samvinnu sem væntanlega mun enda með því að myndaður
verði órofið efnahagssvæði í Evrópu. Iðnaðarráðherra vinnur að
því að koma á samvinnu erlendra aðila og íslenskra um stóriðju
á íslandi, og þar með renna styrkari stoðum undir atvinnulíf í
landinu og bæta efnahag okkar. Félagsmálaráherra hefur sýnt í
verki að hún ber hag almennings fyrir brjósti, en hvergi ætti að
vera betra að ná meiri jöfnuði í lífskjörum en með réttlátri félags-
málalöggjöf. Gífurleg verkefni eru framundan á því sviði. Hús-
næðismál hafa um langa hríð verið í ólestri í landinu, en með
breyttu húsnæðiskerfi sem ráðherra hefur dyggilega staðið að,
opnast meðal annars leiðir til að byggja myndarlega á félagsleg-
um grunni. Breytt verkaskipting ríkis og sveitarfélaga sem m.a.
felur í sér aukið sjálfstæði sveitarfélaga eykur sjálfstæði þeirra og
dregur úr miðstýringu.
Það er engin,. ástæða til svartsýni á áramótum. Þjóðhagsstofn-
un spáir nú betri hag eftir samdrátt í hartnær þrjú ár. Ríkisstjórn-
inni gefst nú gullið tækifæri til að koma á samningum á vinnu-
markaði sem myndu slá verðbólguna út af laginu. Bæði atvinnu-
rekendur og forsvarsmenn launþega hafa lýst yfir fullum vilja til
samninga sem gætu leitt til hraðminnkandi verðbólgu. Það væri
óskynsamlegt að sleppa þessu tækifæri.
ÖNNUR SJONARMIÐ
JÓN Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra hefur vakið verðskuld-
aða athygli alþjóðlegu pressunnar
fyrir frábæra frammistöðu sem for-
maöur EFTA-ríkjanna, ekki síst í
samningaviöræðunum við EB.
Nýveriö birtist grein á leiöarasíðu
sænska stórblaðsins Dagens Nyhet-
er, þar sem fjallað var um helstu nið-
urstöður af samningum EFTA og EB
hingaö til. í greininni var sérstak-
lega vikið að Jóni Baldvin og farið
um hann einkar lofsamlegum orð-
um. Ljósmynd af íslenska utanríkis-
ráðherranum birtist með greininni
og undir Ijósmyndinni stendur: ,,Gaf
EFTA nýjan prófíl: Jón Baldvin
Hannibalsson frá íslandi." Á öðrum
stað í greinni er Jón Baldvin kallað-
ur ,, Hin nýja stjarna EFTA," og
álíka lofsyrði sem verða að teljast
óvanaleg þegar fjallað er um ís-
lenska ráðamenn í alþjóðlegu press-
unni, ef fjallað er þá um Islendinga
yfirleitt. Álla vega er óhætt að segja
íhaldsstrákunum á íslandi að Jón
Baldvin^sr að verða að Kim II Sung
íslands víðar en í Alþýðublaðinu.
Grípum aðeins niður í leiðara-
grein Dagens Nyheter, þar sem
greint er frá hinum alþjóðlega
blaðamannafundi í Brussel eftir
lokaviðræður EFTA og EB á þessu
ári. Og aö sjálfsögðu í íslenskri þýð-
ingu:
„Eftir ræðu Dumas (utanríkis-
ráðherra Frakkiands), talaði hin
nýja stjarna EFTA, Jón Baidvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra Islands. Án allra orðaleng-
inga, lagði hann fram kröfur og
stefnu EFTA-ríkjanna. Aðrir ráð-
herrar EFTA, þar á meðal Anita
Gradin, fylgdust heillaðir og
hrifnir með ræðusnilld hins
glaðbeitta málsvara EFTA fyrir
framan hinn evrópska blaða-
heim. Það er ekki nema von, að
Ttas gemensamma
•"esskonferens i Bryssel. Det
lar inget fel pá den verbala
j’anska elegansen. Ljuden
Itár för den franska varian-
l*n (EEE) av europeisk eko-
J omisk sfár.
Dumas sekunderades av
i)ftas nya stjárna, islándske
latrikesministern Jón Baldvin
■ Hannibalsson (jo, han ser
Ijust sá ut!). Utan större
' krusiduller presenterade han
* Eftas krav och st&ndpunkter.
' Förtjusta och imponerade
följde de övriga Eftaminist-'
rarna, bland dem Anita Gra-
din, denna frejdige talesmans
k framfart inför den församla-
Ide europeiska pressen.
Undra pá att Wall Street
llournal násta dag rubricera-
| e sin artikel: "Efta gár med
|á förhandlingar med EG"!
L ' -mickrqn.-Jp missförstánd.
♦-ju
; ens overeiT
som menas med '
"förhandling" eller "beslut".
Efta anser att man redan
förhandlar, EG har inte ánnu
gett kommissionen ett for-
mellt förhandlingsmandat.
m
Gav Efta en profiU Islands
Jón Baldvin Hannibalsson.
viii delta i beslutsfattan-
inte tilláter —
med beslut
?er). h.
_ jegránsningarfkonv:;
me» att finnas för mánftiskor
att röra sig fritt i Vásteurop’a?
Vissa Eftalánder vill iritp ha
helt fri rörlighet (
• För vilka jordbrukspröduk-
ter kommer EG att kráva
,tillgáng till Eftamarknaden
(troligen frukter och grönsa-
ker frán Sydeuropa)? |
• Kommer EG att b'evilji j
Norge och framför allt Islanc ]
fri marknad för fiskeproduk-
ter utan att hálla fast yid sitt '
nuvarande krav pá fri till-
gáng tili dessa lánderá svárt j
exploaterade fiskevatten?
• Pá vilket sátt ska Eftalán-
derna bidra till att föryerkli-1
ga den gemensamma press-r
kommunikéns ord om atii
minska ekonomisk och socia |
ojámíikhet mellan regionerl
Efta-inbetalningar till .EG f
strukturfonder? Kan det sLJ
utan att Efta fár vara mi|
och bestámma ^ur pen^-
ska ar**
I leiðaragrein sænska stórblaðsins Dagens Nyheter er Jón Baldvin m.a.
kallaður „Hin nýja stjarna EFTA."
Wall Street Journal hafi birt eft-
irfarandi fyrirsögn næsta dag:
„EFTA samþykkir viðræður við
EB.“
Hér er greinilega enginn Garðar
Hólm á ferð!
SKULDIR og ósjálfstæði fara sam-
an. Það er alla vega niðurstaða Ein-
ars Odds Kristjánssonar, forseta
Vinnuveitendasambandsins í ára-
mótagrein sem birtist í Morgunblað-
inu sl. sunnudag.
Einar Oddur skrifar:
„Þjóð sem tekur erlend lán til
þess að standa undir eyðslu
sinni stefnir bara einn veg, til fá-
tæktar. Við höfum ekki þýðst
viðvaranir á undanförnum árum
en endalaust er ekki hægt að
skella skollaeyrum eða stinga
höfðinu í sandinn. Þetta er blá-
kaldur veruleikinn og engum á
að líðast undan að líta. Skuldugt
fólk er ófrjálst fólk, skuldug fyr-
irtæki eru ófrjáls fyrirtæki,
skuldug þjóð er ófrjáls þjóð.“
Þá er bara aö spyrja: Hvernig
urðu allar þessar skuldir til komnar?
EINNMEÐ KAFFINU
Maður sat með kjölturakkann
sinn í bíó. Hundurinn hló og hló.
Þá sýr kona sér við og segir:
„Þetta er furðulegur hundur
sem þú átt." „Já," svaraði mað-
urinn. „Það segirðu satt, hon-
um fannst ekkert varið í bókina,
sem myndin er gerð eftir."
DAGATAL
Markaösmaöur Noröurlanda
leitar ásjár hjá Marteini Mosdal
Aramótaskaupið í Sjónvarpinu
var mjög fyndið. Þar gerðu menn
óspart grín að yfirvöldum og köll-
uðu Ólaf Ragnar „Skattmann" og
svo framvegis. Þeir á Stöð 2 voru
einnig að reyna að vera fyndnir en
eitthvaö mistókst það. Fyndnari
var öllu heldur fréttafölsunarann-
áll Stöðvarinnar — reyndar alveg
óvart.
F yndnastur af öllu er þó veruleik-
inn. Stöð 2 hefur í talsverðan tíma
verið tákn sjálfstæðis og einka-
framtaks. Þegar fjölmiðlabyltingin
svonefnda sprakk út í öllum sínum
blóma við afnám Ijósmiðlaeinok-
unar ríkisins, spruttu upp útvarps-
stöðvar á hverju horni. Og Stöð 2
fór með einföldum smekk af stað.
Síðan hefur þjóðin verið afrugluð
markvisst pg nú munu nokkur
tugþúsund íslendinga eiga afrugl-
ara til varanlegar eignar.
Forráðamenn Stöðvar 2 hafa hins
vegar ekki verið afruglaðir fyrr en
um áramótin þegar Verslunar-
bankinn lagði hald á hlutabréf
forsprakka Stöðvarinnar, og ein-
um þeirra varð að orði í einu dag-
blaðanna, að betra væri að eiga
helminginn í litlu fyrirtæki en allt
í engu fyrirtæki. Það er einmitt
svona lógík sem gerir það að verk-
um að það er alltaf gaman að búa
á íslandi.
Eitt af sköpunarverkum Stöðvar
2 er Marteinn nokkur Mosdal.
Hann er helsti erkifjandi Stöðvar-
innar, enda ríkiseignarsinni. Fyrir
jól lentu forsprakkar Stöðvarinnar
í því erfiða máli, að glæsitímabili
Stöðvarinnar virtist endanlega
vera að Ijúka og skuldirnar að
sliga einkaframtakið. Þetta fréttu
landsmenn í ölium öðrum miðlum
en fréttastöð Stöðvarinnar. Að
vísu settist fréttastjórinn sem hef-
ur einfaldan smekk, einu sinni eða
tvisvar við fótskör meistarans
Jóns Óttars og spurði Hans há-
göfgi náðusamlegast auðveldra
spurninga sem hvergi móðguðu
sjónvarpsstjórann eða gerðu hon-
um erfitt fyrir. Síðan hvarf frétta-
stjórinn aftur í felur i fataskápinn
sinn. Ólafur ógurlegi, slátrarinn á
fréttastofu Stöðvarinnar var einn-
ig víðs fjarri, sennilega á kafi í leit
að spillingu í ríkisbákninu.
Hvað um það. Þegar einkafurst-
arnir voru komnir að fótum fram,
hringdu þeir í Marteinn Mosdal og
báðu um hjálp. Marteinn benti
þeim á vini sína í ríkisstjórninni og
þangað sendu forstjórarnir beiðni
um ríkisábyrgð á erlendu láni.
Ráðherrarnir treystu sér auðvitað
ekki til þess. Það verður að vera
einhver heil brú í geggjuninni.
En einkakapítalið á Stöð 2 gafst
ekki upp. Félagarnir báðu um að-
stoð gegnum Hlutafjársjóð, At-
vinnutryggingasjóð eða Þróunar-
félagið. Marteinn Mosdal hlýtur að
hafa verið þeirra helsti rekstrar-
ráðgjafi. En allt kom fyrir ekki.
Ríkið fann enga lagastoð sem
heimilaði þeim slíka fyrirgreiðslu.
Ólafur slátrari var enn í jólafríi eða
að elta uppi spillinguna eins hvers
staðar inni í bákninu með dyggri
aðstoð embættismanna í Sjálf-
stæðisflokknum og fréttastjórinn
sennilega niðri í bæ að máta föt,
þannig að landsmenn urðu að
fylgjast með gangi mála annnars
staðar, einna helst í málgagni
einkaframtaksins, Morgunblað-
Að lokum fór svo að Marteinn
Mosdal og félagar hans í rikis-
stjórninni sáu engan flöt á að
bjarga glæsiliðinu á Stöð 2. Versl-
unarbankinn sá aumur á einka-
kapítalistunum og keypti meiri-
hlutann í Stöðinni og höfðingjarn-
ir komu með einhverja tryggingu
á móti, aðallega heimanmund
eins eigandans í jarðeignum. Það
er ekki að ástæðulausu að menn
hreppi markaðsverðalaun Norð-
urlanda. Eftir þessa ráðstöfun er
sýnt að sjónvarpsstjórinn getur
áfram komið fram í Leiðurum og
Ofurleiðurum og skammað ríkis-
stjórnina og Marteinn Mosdal
verður áfram aðal grínnúmerið á
Stöðinni. Ólafur slátrari hlýtur að
finnast í kerfinu og koma með nýj-
ar uppljóstranir um sukk og svín-
ari og fréttastjórinn er vís með að
koma úr felum í fataskápnum.
Lífið verður aftur skemmtilegt.
Yfir til þín, Mosdal!