Alþýðublaðið - 03.01.1990, Page 4

Alþýðublaðið - 03.01.1990, Page 4
4 Miðvikudagur 3. jan. 1990 ÁVARP FORSETAISLANDS 1. janúar 1990 Góðan dag, góðir áheyrendur, Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs nýárs með þeirri heilu von að við megum nú líta til bjartari tíma í íslensku þjóðlífi en verið hafa um skeið. framtíðarspá um þjóðar- hag leyfir okkur einnig að trúa að svo sé og að við eigum nú að baki örðugasta hjallann á nokkuð tor- sóttri vegferð okkar á árinu sem kvatt hefur og heyrir þegar sögunni til. Allt andstreymi í stórum heimi er þó afstætt og mér er stundum, þeg- ar við kveinkum okkur mikið undan þungum róðri, sem ég heyri vísna- smiðinn þylja: Finnst mér oft er þrautir þjá þulid mjúkt uid eyra: þetta er eins og ekkert hjá ödru stœrra og meira. Þyngst er okkur ávallt að lifa með sorg við ástvinamissi og um þessi áramót sem fyrr minnumst við þeirra sem ekki eru lengur hluttak- endur í lífi okkar og vottum þeim sem sárast sakna innilegan samhug okkar. „Svo rís um aldir árið hvert um sig. ..“ kvað Jónas í nýárskvæði sínu. Og enn verður sama undrið, nýtt ár, eilífðin í endurtekningunni, en samt eitthvað breytt. Sólin er sú sama og í fyrra, en þó er sem sitt- hvað hafi breyst í Ijósi þessarar sólar. Landið er hið sama og í fyrra en samt nýtt og með einhverjum hætti öðruvísi en fyrr. Og söm er þjóðin sem landið byggir en þó hefur ævin- lega eitthvað breyst í fari hennar og aðstæðum. Því á hverjum tímamót- um bíða okkar ný verk, nýr vandi og oftar en ella ný gleði, — sá vandi og sú gleði sem fylgir þeirri vegsemd aö vera ísiendingur. Því það er í senn gott til gæfu og vandasamt að vera Islendingur. Hafís við norðurstrendur landsins er um þessar mundir enn einu sinni að minna okkur á það, hvar við er- um stödd á hnettinum, þessi sami hafís sem skáldin kváðu um, „lands- ins forni fjandi", sem boðaði hart vor, kannske hungur og neyð. Samt skyldum við aldrei gleyma því að- stæður okkar nú eru allt aðrar en formæðra okkar og feðra til þess að fást við vandann sem skapast af óblíðri náttúru, aðeins ef við viljum beita til þess þekkingu okkar og samtakamætti en látum ekki vanda lítillar þjóðar í stórum heimi smækka okkur, beygja okkur, held- ur hvetja okkur til að horfa framan í veröldina og segja án yfirlætis en líka án óhóflegs lítillætis: Hér erum við og hér verðum við — því að hér viljum við vera. Við erum nátengdari þessu landi en margar aðrar þjóðir ættlöndum sínum, þótt sumir finni það ekki fyrr en þeir eru farnir héðan og horfa á það úr fjarlægð. Við gleymum því aldrei að við erum alin upp í töfra- birtu hins íslenska sumars, okkur finnst að við eigum þetta land með einhverjum þeim hætti sem engu líkist, ískalda jöklana líka og hrjóstr- in öll. Þetta er landið sem við tókum í arf og þess vegna er það okkar land og við erum fólk þessa lands. Þetta er það land sem við þekkj- um og unnum. Og ekki aðeins land- ið í heild: Átthagar eru stórt orð í vitund okkar, oftast stærra en fyrir öðrum annars staðar í álfum. Að sumu leyti kann það að stafa af því að í átthögunum ber næstum að segja hver biettur nafn sem við þekkjum og talar til okkar á gegn- særri tungu. Bláfjöll og Jarlhettur, Hveradalir og Hljóðaklettar, Jóru- kleif og Ingólfsfjall — allt eru þetta staðir sem bera okkur óm sögunnar og náttúruskynjunar allt frá land- námsöld. Of sjaldan gefum við því líklega gaum hvern fjársjóð við eig- um þar sem eru skiljanleg örnefni, nöfn sem hvert barn getur séð í gegnum án þess að leita flókinna skýringa frá málvísindamönnum eins og algengast er með öðrum þjóðum. Þarna eins og annars stað- ar sameinar tungan okkur, eflir skilning okkar, gefur okkur óþrjót- andi umræðuefni, ekkert síður en fámennið og frændræknin. Oft látum við að því liggja að land- ið sé stórt en þjóðin fámenn, jafnvel of fámenn. Hugsanlega eru þó menning okkar og siðvenjur þess megnugar að leggja okkur mikla líkn í þraut. Til dæmis er sennilegt að hver venjulegur íslendingur þekki miklu fleira fólk persónulega — bæði lífs og liðið — en mönnum tekst að komast yfir annars staðar í heiminum. Lífs eða liðið sagði ég, því engin þjóð sem ég þekki man eins vel þá sem gengnir eru og hin íslenska, engin þjóð er jafn iðin við að draga þá inn í umræðuna um daginn og veginn með því að vitna til þess hvað þeir sögðu og gerðu. þetta er eitt af einkennum menning- ar okkar og með þessum hætti verð- ur fámennið til að skerpa minni okkar, gera kynslóðabilið marklítið og um leið til að stækka þjóðina, fjölga í því liði sem við vitum af okk- ur til trausts og halds í tilverunni. Og okkur er líka hollt að minnast forréttinda sem fylgja því að vera fá- menn þjóð. Vissulega látum við okkur lynda ýmisskonar misrétti en fámennið ætti að gera okkur kleift að byggja þjóðfélag okkar á hug- sjónum meira jafnréttis og öflugri samhjálpar en stórþjóðirnar eiga kost á, þar sem ávallt vofir yfir að einstaklingurinn verði ekki annað en peð í tafli sem enginn hefur yfir- sýn yfir. Dýrasta sameign okkar, landið, tungan og minningarnar, eflir okkur öryggiskennd. Við erum ekki rótslit- in, við eigum okkur athvarf í himin- geimnum. En einnig í sameign okk- ar, í nábýli okkar hvert við annað, felast mótsagnir. Við höfum kunnað að snúa bökum saman þegar mikið lá við en í næstu andrá tökumst við á, gagnrýnum hvert annað eins og lífið liggi við, erum dómhörð og um- burðarlynd á víxl, og ekki alltaf auðvelt að koma auga á rökvísina sem ræður því hvað verður ofan á. Þetta getur orðið böl, því við meg- um síst við því að bíða „þrjóskir við garðinn" eins og segir í nýju Sturl- ungakvæði: ,,medan sueit okkar máist í módu sundrungar „át.“ Þegar við á áramótum reynum að skyggnast fram í tímann hljótum við að minnast þess að þetta eru mikil- vægustu forsendur framtíðar okkar: Landið og fólkið. Án byggilegs lands á fólk sér enga framtíð. Eg ætla ekki að fara mörg- um orðum um það hvernig við höf- um á liðnum öldum gengið um land okkar, jafnvel svo að sumum hefur þótt horfa til auðnar. Hins vegar vil ég minnast þess að fyrir dyrum stendur merkilegt átak í tengslum við sextugsafmæli Skógræktarfé- lags íslands, nú á nýbyrjuðu ári, og er kennt við ræktun landgræðslu- skóga. En landgræðsluskógur er skilgreindur sem allar þær land- græðslu- og gróðurverndaraðgerð- ir, sem leiða til þess að örfoka eða lítt gróið land verði klætt trjágróðri að nýju, eða öðrum jurtagróðri sem bindur mold og býr í haginn. Um gróður gildir það sama og um lífs- yndi okkar, börnin. Ef við viljum lifa það að sjá grjóskuríkan árangur, þá verðum við að byrja strax, — það er aldrei hægt að draga neitt á langinn sem varðar ræktun. Jafnvel um miðjan vetur verður að gera áætlan- ir um, hvernig að standa eigi að verki strax og tækifæri gefst. Landið sem við nefnum ættjörð okkar hef- Forseti íslands, Vigdt's Finnbogadóttir. ur oft leikið okkur hart. Það hefur með öðru leitt til þess að við höfum gengið harðara að því en skynsam- legt hefði verið. Vera okkar í land- inu hefur ekki samrýmst því að landkostir héldust. En nú höfum við sem betur fer gert okkur grein fyrir illri þróun og viljum snúa við blað- inu. Færa landinu aftur það sem frá því var tekið. Og þá gefum við sjálf- um okkur um leið þá gjöf að eiga miklu betra land að una við. Ég líkti saman trjárækt og uppeldi barna. Til lítils kemur okkur að rækta upp örfoka land ef við gleym- um því að öll framtíð þjóðarinnar veltur á þeim sem nú eru börn. Ef okkur gleymist að hlúa að þeim kemur landgræðsla fyrir lítið. Fyrir nokkru voru stpfnuð tvenn samtök, annars vegar íslandsdeild alþjóða- samtaka um uppeldi barna áður en þau ná skólaskyldualdri, OMEP, og hins vegar samtök sem til bráða- birgða eru nefnd „Hjálpum börn- um“ og vinna eiga að barnaheill og bættum hag barna hér á ís- landi. Þessi samtök stefna að þörfu átaki í aðhlynningarmálum barna, — og mun nú líklega margur spyrja hvort eitthvað skorti á að börnum sé sæmilega sinnt á íslandi. Búum við ekki við það lán að öil börn fá að borða á Islandi og enginn gengur klæðlaus? Vonandi er það rétt. Þó er það nú svo að mörgum er hagur barna í þessu vinnuþreytta þjóðfé- lagi mikið áhyggjuefni og greinilega er nauðsynlegt að finna leiðir til lausnar. Við verðum að játa það fyr- ir okkur sjálfum að börn okkar eru afskipt. Við höfum verið svo ánægð með allt það frelsi sem okkur hefur áskotnast og gengið svo áköf til vinnu til að afla verðmætanna, án þess að láta þar á móti koma örugg- an umhyggju- og uppeldisstað fyrir börnin, skóla og námsstofnanir, að við höfum gengið svo langt að láta börnin ganga sjálfala. Það er eins og við höldum að þau geti bjargað sér sjálf, að þau læri af sjálfsdáðum að tileinka sér verðmæti lífsins, svo sem fróðleik ýmisskonar og sjálf- saga. Þá höfum við gleymt því, að ekki gátum við, sem nú erum full- orðin, bjargað okkur sjálf til uppeld- is. Við fengum aðstoð, okkar rækt- un, þegar við vorum börn og styrk til að nýta hana. Þessa aðstoð fengum við hjá full- orðnum sem leiðbeindu og töluðu við okkur og umgengust okkur eins og þær manneskjur sem þeir vildu að við yrðum, þjóðinni til gagns þegar við eltumst. Öll börn eiga rétt á þessari hjálp. Öll börn eiga rétt á því að fá frá okkur fullorðnum upp- eldi til að njóta þess að lifa, hjálp til að sjá og nálgast það sem gefur líf- inu gildi. Þegar nú samfélag okkar hefur þróast til þess að hverju heim- ili dugi ekki minna en tveir til fyrir- vinnu, ef sinna á kröfum nútímans, þá verður eitthvað annað að koma í staðinn til leiðsagnar og uppeldis. Þá verður með nýjum hætti að tryggja öllum börnum full mann- réttindi. Ég tel líka að hér séu hyggindi sem í hag koma — hvert skref sem stigið er til að kenna börnum að njóta andlegra verðmæta verður til þess að þau geti betur aflað sér hinna veraldlegu, án þess að mikla þau fyrir sér. Við verðum að gefa börnunum af tíma okkar og reynslu og vinsamlegum skilningi svo þau viti betur að maður er manns gam- an um leið og þau kunni að vera ein með sjálfum sér og afla sér gleði við annað en það sem mölur og ryð fá grandað. Og öll börn eiga heimtingu á uppeldi til þess að verða mann- eskjur í einu og öllu, til þess að njóta samvista við aðra en óttast þá ekki. Ekkert okkar fær í vöggugjöf skemmdarfýsn eða kunnáttu til of- beldisverka. Ekkert barn á skilið að alast upp til slíkrar hegðunar. Þegar við um þessi áramót reyn- um að sjá tilveru okkar, það að vera íslendingur, í víðara samhengi, hugsum við ekki síst til þ;ss hvers virði séreinkenni okkar, þjóðmenn- ing okkar, er í heimsmenningunni. Heimsmenning, og þjóðmenning: Þetta tvennt skarast alltaf, því eng- inn er eyland. í þjóðmenningunni er ávallt margt að finna sem er heims- menning. Án þjóðmenninga sem eru sjálfum sér trúar væri engin heimsmenning. Og mætti ég þá í leiðinni minna á þann augljósa sannleik að heimurinn er ekkert annað en við, hér og nú, og að ábyrgð okkar er að bregðast á hverju augnabliki sem líður við því hvernig hann er frá stund til stund- ar. Á þetta höfum við verið átakan- lega minnt í jólamánuði 1989. En þar fyrir utan er þjóðmenning sér- eign þjóðar, sem verður að fá að hugsa sitt i Ijósi þess hvar hún býr á jarðhnettinum og í Ijósi þess sem yf- ir hana hefur gengið. Þetta er sú menning sem er séreign hverrar þjóðar, auðlegð sem aldrei verður frá henni tekin. Vitundina um þessa auðlegð sköpum við okkur í tungumálinu. Þar erum við rík en megum þó ekki láta þar við sitja. Hver og einn rækti garðinn sinn segir í frægri bók. Og það er til margs konar ræktun. Á ný- liðnu ári var efnt til málræktarátaks og er talið að hafi lánast vel. En því átaki má ekki vera lokið. Því má aldrei Ijúka. Öll ár í lífi þjóðarinnar verða að vera málræktarár. Okkur getur ekki liðið vel, við getum ekki eignast lífsfyllingu í þjóðerni okkar, nema með því að rækta tunguna sem best, þetta orðríka, gagnsæja og langminnuga tungumál, sam- eign okkar. Við viljum ekki að fyrir íslenskri tungu fari eins og latínu, að afkomendur okkar verði að setjast á skólabekk og nálgast hana sem framandi tungu til að geta lesið um okkur sjálf. Við verðum að láta það renna okkur í merg og bein og hvert orð sem gleymist er glataður sjóður, ómissandi lykill úr stórri lykla- kippu, hvert örnefni innstæða á minningabanka með góðum vöxt- um. Þá þurfum við einnig að tryggja það að þeir sem við taka kunni að tileinka sér bækur, haldi áfram að lesa okkar eigin bækur um okkar eiginn veruleika og kunni og skilji Ijóð okkar. Eg hef lengi verið þeirrar trúar að Ijóð þjóðarinnar varðveiti svo vel ótal orð og blæbrigði í ríki- dæmi tungunnar sem stöðugt er í hættu og glati purpurafaldi sínum. Og Ijóð er auðvelt að læra — þau seitlast inn i minnið og efla til lesturs annars efnis sem á sama hátt er verðmætt. Við vitum að samkeppn- in um tómstundirnar harðnar og að hætt er við að bóklestri fari aftur. Við það yrðum við til muna fátæk- ari. Því það verður seint ofmetið hve mjög það auðgar hvern mann að hafa vanist því að lesa. Vitað er fyrir margvíslegar rann- sóknir að lestrarvenjur mótast snemma, eða áður en börn eru 11 til 12 ára. En hver lítur eftir því að börn okkar læri að umgangast bókina sem ómissandi þátt í daglegu lífi, sem ætti ekki að vera bundin skyldu heldur er sjálfsagður réttur barns sem elst upp í þessu landi. Og hver getur séð til þess að Ijóðið taki þátt í því að rótfesta tunguna og ríkidæmi hennar með þeim virka hætti sem við helst vildum? Að engir múrar rísi milli þeirra sem fara með bók- menntaarfinn og rækta hann og hinna sem á stundum þykjast láta sér fátt um finnast. Þorsteinn skáld frá Hamri segir: Köllumst þuí á annad ueifid! þú og ég og madurinn sem fullyrdir stundum ad sér leidist Ijód; og huer ueit nema madur sem fuUyröir aö sér leiðist Ijóö geti þrátt fyrir þaö nœrt okkur á Ijóöi lífs síns sœrt okkur uiö Ijóö alls lífs dag og dag. Góðir landsmenn. Ég hef eins og stundum áður látið mér tíðrætt um ræktun lands og lýðs. Skilji þó eng- inn orð mín svo að ég geri lítið úr því sem á þeim sviðum hefur verið unnið hingað til. Þar hefur oft verið lyft grettistökum. En á hverjum tíma ber okkur skylda til að byggja á þeirri þekkingu sem við vitum besta og sannasta. Okkur ber ávallt að vera reiðubúin að endurskoða starfsaðferðir okkar, jafnt í landrækt sem mannrækt. Við lifum tíma svo stórstígra breytinga að margir jafna til byltingar. Án þess að gera okkur sek um óleyfilega bjartsýni getum við meira að segja haldið því fram að þjóðir heimsins muni á nýjum áratug snúa sér að ræktun og uppbyggingu með stórfenglegum hætti. Stórbætt sambúð ríkja og ríkjablakka leiðir til þess að stigin eru merkileg skerf í þá átt að skera niður vígbúnað, fækka eyðingarvopnum. Með því móti er dregið að miklum mun úr líkum á því að styrjaldir brjótist út manna í milli. Um leið verða til nýir möguleikar á því að semja sátt í stríði mannkynsins gegn móður náttúru, sem alltof lengi hefur stað- ið og haft hörmulegar afleiðingar. Heimurinn gerir sig nú líklegan til að hrista sem víðast af sér fjötra, til að höggva eldflugaskóg og snúa orku sinni og hugviti að því að vernda náttúrulegt umhverfi mannsins, — snúa við blaði, hreinsa mengunarkaunin, rækta upp, láta sár foldar gróa. Það er trú mín og von og ósk, að á þessu ári og þeim næstu munum við sjá vakningu um allan heim, samstillt átak til að bæta það sem við höfum óvart eða viljandi rifið niður eða eyðilagt, átak til að byggja upp jörðina sem við göngum á og manninn sjálfan. Fari svo, kann að blasa við okkur ný og mennskari framtíð á þessum síð- asta áratug aldarinnar en okkur hefur dreymt um að undanförnu. I raunsærri bjartsýni höfum við þá fulla ástæðu til að segja af sannfær- ingarkrafti: Gleðilegt nýár, gifturíka framtið. Guð blessi land vort og þjóð.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.