Alþýðublaðið - 06.01.1990, Side 1
Fiskirólan
sveiflast
Fátt mun jafn sveiflukennt hér
í heimi eins og aflabrögð og fisk-
verð á erlendum mörkuðum.
Sjávarútvegurinn er undirstaða
lífskjara okkar og jafnt velmeg-
unarskeið sem krepputímar
eiga rót sína að rekja til sveiflna
í aðstæðum þessarar atvinnu-
greinar. En hvert skyldi fiskiról-
an sveiflast á nýbyrjuðu ári,
dýpra inn í kreppuna eða til
baka í átt að meiri afla og hærra
verði?
SJÁ BLS. 9.
100 millj. kr.
getrauna-
pottur!
Isienskar getraunir og get-
raunafyrirtæki í Svíþjóð, Dan-
mörku og Finnlandi hafa ákveð-
ið að vera með sameiginlegan
getraunaseðil í tengslum við
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Italíu í
júní. Fyrsti vinningur verður
sameiginlegur og má búast við
100 milljónum króna í sjóðinn!
SJÁ BLS. 8.
„Ég er aö láta kanna stjórnunarlega stööu húsnæöisstofnunar og frumvarp um þaö mun veröa tilbúiö i þessum manuöi. Bæöi veröur skoöuð staöa og
verksvið Húsnæöisstofnunarinnar sjálfrar og stjórnar hennar," segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráöherra.
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálarádherra
uill takmarka ualdsvid stjórnar hásnœöisstofnunar:
Húsnæðisstofnun hefur
óeðlilega mikil völd
„Staðreyndin er sú að Hús-
næðisstofnun og stjórn hennar
hafa óeðlilega mikil völd að
mínu mati,“ segir Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráð-
herra. I ítarlegu viðtali sem
birtist við félagsmálaráðherra
í dag, segir Jóhanna að ráðð-
herra beri ábyrgð á þessum
málaflokki en hafi í reynd lítið
að segja um fjármálastjórn
Húsnæðisstofnunar.
,,Ég er að láta kanna stjórnunar-
lega stöðu húsnæðisstofnunar og
frumvarp um það mun verða tilbú-
ið í þessum mánuði. Bæði verður
skoðuð staða og verksvið Hús-
næðisstofnunarinnar sjálfrar og
stjórnar hennar," segir félags-
málaráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir og stjórn
Húsnæðisstofnunar hafa ekki allt-
af verið sammála um það hver
stefna Húsnæðisstofnunar skuli
vera. Meðal annars deildu ráð-
herra og stjórnin um hvaöa vexti
húsnæðislán skuli bera. Lauk
þeirri deilu með að vextir á al-
mennum lánum voru hækkaðir
um eitt prósent úr 3,5% í 4,5%. Á
móti munu koma vaxtabætur sem
verða tekjutengdar og í samræmi
við greiðslubyrði hvers og eins.
í viðtalinu við Jóhönnu kemur
einnig fram að hún telur á vanta
aö áherslur Alþýðuflokksins séu
réttar og leggja beri meiri áherslu
á félagshyggju. Þá vill hún að líf-
eyrissjóðamálin verði tekin íastari
tökum.
SJÁ BLS. 5—6.
Dreifð
sala í jóla-
bókaflóðinu
Samkvæmt upplýsingum
sem Alþýöublaðiö hefur afI-
aö sér má ætla að metsölu-
bækurnar á síðasta ári hafi
selst í á milli 7 og 8.000 ein-
tökum. Þetta er mun minna
en t.d. síðasta ár. Raunaukn-
ing varð ekki í bóksölunni,
menn telja að hún hafi u.þ.b.
náö að halda í við verð-
bolgu, sennilegast hefur þó
orðið einhver samdráttur.
Margir titlar seldust vel,
mjög fáir afburða vel. Það er
annað megineinkenni næst-
liðinnar bókavertíðar, hitt er
gengisfall samtalsbóka og
ævisagna.
SJÁ BLS. 3.