Alþýðublaðið - 06.01.1990, Page 4

Alþýðublaðið - 06.01.1990, Page 4
4 Laugardagur 6. jan. 1990 IÞROTTAVIÐBURÐIR FYRRITIMA „Æfingar íslenska flokksins samanstóðu af hægum og viröulegum fimleikahreyfingum, sameinuöum af ströngustu kröfum danslistarinnar," sagöi m.a. í umfjöllun blaöamanns viö Aberdeen Express um IR-stulkurnar. Glæsiför ÍR-stúlkna til Frakklands og Bretlands 1928: VIRÐULEGAR FIMLEIKAÆFINGAR ÁSAMT MEÐFÆDDUM YNDISÞOKKA Kvenflokkur íþróttafélags Reykjavíkur í fimleikum fór í frækilega för til Frakklands vorið 1928 til þátttöku í fimmtugustu minningarhátíð fimleikanna þar í landi. Fararstjóri flokksins var Tryggvi Magnússon, sem um árabil var einn besti fimleikamaður landsins og m.a. íslandsmeistari, a.m.k. tvívegis. Flokkurinn tók sér far með (lull- fossi oi> þann 17. maí var komið við á Fáskúðsfirði og þar var geni>- ið í land og æft, en samdægurs haldið áfram til Reyðarfjarðar og því næst áfram til Hskiíjarðar, þar sem stúlkurnar sýndu fyrir fullu húsi áhorfenda. Afram hélt Gull- foss norður Austfirðina og fyrir áskorun Norðfirðinga fór þar fram ' sýning á hryggju Sigfúsar Sveins- sonar. Skipið beið í klukkustund ineðan sýningin fór fram. Að kvóldi sama dags var enn efnt til sýningar og nú á Seyðisfirði, en alla fyrirgreiðslu á staðnum ann- aðist íþróttafélagið Huginn. Að sýningu lokinni hélt Theódór Blöndal flokknum veislu og um miðnættið var Seyðisfjörður yfir- gefinn og stefnan tekin á Skot- land. „Ströngustu kröfur danslistar" Að morgni 21. maí kom Gullfoss til Aberdeen. Brytinn, Jónas Lár- usson fór strax í land og tilkynnti komu fimleikaflokksins blaða- manni Aberdeen Kxpress. Kfnt var til sýningar í ..Paláis de Dance” fyrir milligöngu Jónasar. Sýningin tókst með miklum ágætum og í dómi áðurnefnds um sýninguna segir m.a.: „Æfingar íslenska flokksins samanstóðu af hægum og virðulegum fimleikahreyfing- um. sameinuðum með ströngustu kröfum danslistarinnar. — Auk þess kom berlega í ljós, að mikil rækt hefur verið lögð við æfingar þeirra. Þetta, ásamt meðfæddum yndisþokka, gerir þær færar um að veita ágæta skemmtun." Ferðinni var nú haldið áfram og til Calais kom ÍR-flokkurinn 25. maí. Par tók á móti stúlkunum H.C. Ingersleve, stöðvarstjóri Stóra Norræna i Calais og hann var stoð og stytta flokksins meðan á dvöl- inni stóö í borginni. Um þessar mundir voru 70 þúsund íbúar í Calais, en þennan dag 25. maí, voru um 50 þúsund gestir í borg- inni. Alls voru mættir íulltrúar 400 félaga víðsvegar aö af Frakklandi, sem gengu um göturnar undir hljóðfæraslætti. Auk þess komu þangað 17 belgískir flokkar, 7 ítalskir, 2 enskir og einn frá Dan- mörku, Luxemburg og ÍR-flokkur- inn. 20 þúsund áhorfendur Hátíöahöldin stóðu yfir í þrjá daga og daglega sýndu á annaö hundrað flokkar, en þeir nutu sín miður en skyldi vegna þregnsla. Síðasta dag hátíðarinnar þann 2X. maí gekk IR-flokkurinn um aðal- götur borgarinnar undir íslensk- um fána, en í broddi fylkingar fór 60 manna hljómsveit. Auk ís- lenska hópsins var belgískur flokkur og ótal margir franskir. Göngunni lauk við Ráðhúsið, þar sem tugir þúsunda fögnuðu fim- leikafólkinu. Þennan dagsýndu IR-stúlkurnar ásamt fjölmörgum öðrum flokk- um. Sýningarnar drógust á lang- inn, en það virtist aðeins hafa áhrif til góðs á íslensku stúlkurnar, sem stóöu sig með mikilli prýði og fengu áberandi undirtektir þeirra flokka, sem sýndu á þessu fim- leikamóti. Þegar sýning stúlkn- anna fór fram voru áhrofendur um 20 þúsund. Hátíðarstund Fararstjóri bresku fimleikafiokk- anna, sem voru í Calais, fór þess á leit við ÍR-flokkinn, að hann sýndi í London á heimleiðinni. Var fast- mælum bundið að hittast í millj- ónaborginni. Sýning flokksins fór fram í veglegri byggingu við Tott- enham Court Road þann 28. maí. Þetta var bjartur og rúmgóður sal- ur, sem var fullsetinn ýmsum sér- fræðingum fimleikaíþróttarinnar í Bretlandi. Þetta var hátíðarstund. segir fararstjórinn, Tryggvi Magn- ússon og við skulum gefa Tryggva orðið: „Framkomu flokksins fylgdi prúðmennska svo mikil, skilningur, öryggi, festa og vissa í hinum mjúku og prýöilega sam- stilltu æfingum þeirra. Þessi fyrsta íslenska fimleikasýning í London varð okkur til sóma." Að sýning- unni lokinni var flokknum fagnaö innilega, svo og hinum frábæra stjórnanda hans, Birni Jakobssyni. Vinsæiar fyrirsætur Fróðlegt er einnig að birta hér stuttan úrdrátt úr ritgerö, er birtist í breska íþróttatímaritinu Physical Kducation: Sýningin hófst á nokkrum mjög yndislegum, óþvinguðum æfing- um, afbragðsvel samstilltum og leiknum af óskeikulli nákvæmni, án hljóðfærasláttar eða fyrirskip- ana. — Jafnvægisæfingarnar voru frábærlega vel af hendi leystar. Sýningunni lauk meö nokkrum frjálsmannlegum æfingum, sem einnig voru prýöisvel samstilltar. Loks gekk flokkurinn í hring á leiksviöinu og kvaddi meö fána- kveðju, og voru það viröuleg leikslok á þessari glæsilegu sýn- ingu. Meöan flokkurinn dvaldi í Lond- on komu fjölmargir ljósmyndarar morgun einn og báöu stúlkurnar að klæðast leikfimifötum sínum og voru teknar fjölmargar myndir af flokknum, m.a. þær sem birtast hér meö þessari grein. Komið var aö lokum þessarar feröar, en síöasti viðkomustaður- inn var Edinborg, þar sem flokkur- inn sýndi 31. maí. Sömu alúölegu móttökurnar voru þar og umsagn- ir blaða lofsamlegar. í fimleikaflokki ÍR þessi ár voru eftirtaldar stúlkur: Vilborg Jóns- dóttir, Anna Guðmundsdóttir, Guðbjört Ólafsdóttir, Gyða Sigurð- ardóttir, Haildóra Guðmundsdótt- ir, Hanna Gísladóttir, Hólmfríður Jónsdóttir, Jónína Jafetsdóttir, Jór- unn Norðmann, Laufey Kinars- dóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir og Vil- borg Ásmundsdóttir. (Heimild: Aldarfjórdungs Minningarrit ÍR) Örn Eidsson skrifar „Sýningin hófst á nokkrum yndislegum, óþvinguðum æfingum, afbragósvel samstilltum og leiknum af óskeikulli nákvæmni, án hljóðfærasláttar eða fyrirskipana," sagöi m.a. í grein um íslensku stúlkurnar í breska iþróttatímarit- inu Physical Education.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.