Alþýðublaðið - 06.01.1990, Page 8
8
Laugardagur 6. jan. 1990
Nordurlöndin með sameiginlegan
getraunasjóð í heimsmeistarakeppninni:
milljónir i
1. vinning!
Hákon Gunnarsson: Möguleiki er á því aö fleiri þjööir bætist viö og þá veröur
potturinn ennþá stærri — fræöilegur möguleiki á aö gríöarlegar upphæöir geti
lent t.d. á Hofsösi eöa öðrum stöðum í fjárhagslegum erfiöleikum!
A-mynd/E.ÓL.
Islenskar getraunir og getraunafyrirtæki í Svíþjóö, Dan-
mörku og Finnlandi hafa ákveðiö aö vera með sameiginlegan
getraunaseöil í tengslum viö heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Ítalíu i júní. Seölarnir verða tvær vikur
og báðir seölar meö 13 leikjum. Það er fyrsti vinningur sem
verður sameiginlegur, en vinningar fyrir 12 og 11 rétta bundnir
viö viðkomandi lönd.
EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON
Aö sögn Hákonar Gunnarssonar
framkvæmdastjóra íslenskra get-
rauna liefur veriö unniö að þessu
verkefni i nokkra mánuöi og er nú
aðeins beöiö eftir reglugerðarbreyt-
ingu hjá dómsmálaráðuneytinu.
„Þetta má segja brýtur blaö í
happadrættissögunni í heiminum,
því þetta er í fyrsta skiptið sem aö al-
þjóölegt happadrætti er starfrækt á
þennan máta. Þá á ég við að mis-
munandi gjaldmiðlar eru notaðir.
Það eru til gríðarleg lottó í Banda-
ríkjunum á milli fylkja með gígan-
tískum upphæðum, en hér eru á
feröinni gjaldmiðlar mismunandi
ríkja og er það tímanna tákn."
— Eru menn farnir að gera sér
upp hugmyndir um hversu mikl-
ir fjármunir verða í hinum sam-
eiginlega pott?
„Þetta er dönsk hugmynd og fékk
ég spádóm frá þeim, sem hljóöar
upp á aö bara þessi fyrsti vinningur
veröi upp á um 100 milljónir ís-
lenskra króna. Við getum ímyndað
okkur þann fræðilega möguleika aö
þetta lendi allt á stað eins og á Hofs-
ósi, Suöureyri, Patreksfirði, Djúpa-
vogi eöa öðrum stöðum hér sem átt
hafa í fjárhagsöröugleikum — og
reddi plássinu!"
— Leikirnir eru í heimsmeist-
arakeppninni og væntanlega þó
nokkrir með góða möguleika á
13 réttum?
„Jú, vissulega, þaö verða leikir á
borö viö Argentína á móti Camer-
oon eða Sameinuðu furstadæmin á
móti V-Þýskalandi og slíkir leikir
eiga aö heita öruggir. En þaö verða
!56 leikir til aö velja úr og aðeins 26
komast að og þá hægt aö sníða þá
allra auöveldustu úr. Þess fyrir utan
eru alltaf að koma upp á óvænt úr-
slit eins og menn vita. Knattspyrnu-
heimurinn er um leið alltaf að
smækka og litlu þjóðirnar — eins og
Island — alltaf að verða sterkari."
— Þetta er nú bundið við þessi
Norðurlönd. Er við því að búast
að viðbrögðin verði enn meiri og
potturinn enn stærri?
„Ég er viss um það já. Þaö er alltaf
möguleiki á að fá 13 rétta, en ef ekki
þá all góðir möguleikar að fá 12 eöa
11 rétta. Hvað lönd varðar þá liggur
fyrir að stór getraunafyrirtæki í
löndum eins og V-þýskalandi, Sviss
og Austurríki sýna mikinn áhuga á
að koma inn í þetta, en frestur renn-
ur út 15. janúar í því sambandi.
Þeim hefur verið boðin þátttaka
eins og fleirum og ef þjóöir eins og
ítalir bætast við, þar sem knatt-
spyrnan er eins og trúarbrögö nán-
ast, þá er aldrei að vita um hvers
konar gríðarlegan pott er um aö
ræða."
— Hvernig verður formið á
þessum seðlum?
„Viö höfum verið með svokallaöa
aukaleiki, en hér verða þeir teknir
út og í staðinn settur möguleiki fyrir
13 leiki. I mínum huga er ekki
spurning um hvort heldur hvenær,
að þetta verði framtíðarfyrirkomu-
lag. Þess má geta að við stöndum að
mörgu leyti betur en hin löndin, þar
sem viö erum í beinlínukerfi og í
raun með fremsta getraunakerfiö í
öllum heiminum. Þannig getum við
tippað í hverri viku 3 dögum lengur
en hin löndin, sem þurfa að skila
sínu á miðvikudögum. Hin löndin
eru að undirbúa að fara eftir okkar
hugbúnaði."
— Nú hsda getraunir lent í mik-
illi samkeppni og um tíma mikilli
niðursveiflu. Hvernig hefur
gengið síðan?
„1986 var happadrættismarkaö-
urinn ákaflega staðnaöur. Það voru
til 3 peningahappadrætti og svo eitt
gamaldags getraunafyrirtæki. Á því
ári komu hins vegar skafmiðarnir
inn og það varð bomba, þeir tóku
40% af markaöinum og lottóið kom
til viðbótar sem tók 30%. Hjá get-
raunum gætti andvararleysis, en
1987 gekk þetta þó þokkalega. En
eftir að við fórum í beinlínukerfiö
hefur þetta gengið mjög vel, þótt
miklu hafi verið kostað til og tals-
verð áhætta tekin. í mínum liuga er
framtíð íþróttagetrauna í landinu
mjög björt. Og á alþjóðasviðinu eru
möguleikarnir gríðarlega miklir."
Minning
Grímur M. Helgason
deildarstjóri
F. 2. september 1927 D. 26. desember 1989
Leiöir okkar Grims M. Helga-
sonar lágu saman — þó ekki óslit-
ið — í röska hálfa öld. Á árunum
1938—1940 vorum við embættis-
menn í barnastúku austur á Seyö-
isfirði og sátum hlið við hlið á
fundum. Eftir þaö skildu leiðir um
sinn, en næst uröum við samferða
í námi í Háskóla íslands
1949—1955. Enn lágu leiðir okkar
saman í safnahúsinu við
Hverfisgötu í ársbyrjun 1964,
þegar ég hóf starf í Þjóðskjalasafni
Islands, en Grímur haföi þá unniö
um skeið í Handritadeild
Landsbókasafns. Upp frá því
Ted Árnason andaðist 26. des-
ember sl. í Johnson-minningar-
sjúkrahúsinu í Gimli eftir fimm ára
hetjulega baráttu við krabbamein.
Ted fæddist í Gimli 25. júní 1918.
Hann var óþreytandi eljumaöur
allt frá æsku er hann hóf störf á
býli foreldra sinna og síöan við
margvísleg fyrirtæki sín. Hann var
fjögur ár í flugher Kanada í síðari
heimsstyrjöld en árið 1946 stofn-
aði hann með Valda bróöur sínum
sjálfsafgreiðsluverslunina „Arna-
son's Self Serve", sem var fyrsta
verslun af því tagi í Gimli.
Síðar starfaöi hann við margvís-
leg fyrirtæki á sviði byggingastarf-
semi ásamt bræðrum sínum, Bald-
win, Joe, Frank og Wilfred, og
uniuim við undir sama þaki, og
varla leið svo dagur, að viö hitt-
umst ekki og tækjum upp spjall
um heima og geima og oftast á
léttari nótunum.
Sem starfsmaður og síöar for-
stööumaöur Handritadeildar naut
Grímur einstakra vinsælda fyrir
lipurð og greiövikni í starfi. Hann
var prúðmenni í framkomu og
hvers manns luigljúfi, en hélt þó á
málum af fullri einurð, ef þess
gerðist þörf, enda hreinlyndur
stofnaði loks ferðaskrifstofuna
Viking Travel Ltd. árið 1974.
Ted var ætíö mjög áhugasamur
um félagsmál og virkur meölimur
félaga þeirra og klúbba, sem hann
geröist aöili að. Árið 1977, þegar
hann var kominn á þann aldur, er
flestir fara að hugsa um aö setjast
í helgan stein, bauð hann sig í
fyrsta sinn fram til opinbers starfs
og var kjörinn borgarstjóri Gimli.
Þau tólf ár sem hann gegndi því
embætti, gerði hann sér far um að
stjórna af réttsýni í allra garð,
kynna Gimli og bæta kjör ibúa
bæjarins og nágrennis.
Hann vann af kappi í ýmsum
nefndum og samtökum á vett-
vangi bæjarins. Meðal helstu af-
með afbrigðum og drengur góður.
Á vinnustað var hann iöulega
mannasættir, þegar i odda skarst
eða lægja þurfti öldur. Glögg-
skyggni hans og vandvirkni var
slík, að fulltreysta mátti hverju því,
sem hann lét frá sér fara í útgáfum
eða rituöu máli.
Grímur var skilningsríkur á
mannlega kosti og bresti sam-
feröamanna, gamansamur vel og
skarpskyggn á broslegu hliöarnar
á mönnum og málefnum. Þaö er
reka hans á því sviöi voru árang-
ursrík barátta hans gegn Garrison-
veitunni, sem ógnaði Winnipeg-
vatni, og gerð útivistarsvæðis fyrir
íbúa Gimli og umhverfis.
Hin mikla virðing, sem Ted naut
meðal íbúanna, kom fram í því að
hann var endurkjörinn þrisvar í
embætti borgarstjóra, svo og í sér-
stöku kveðjuhófi, sem honum var
haldiö og honum þótti sérstaklega
vænt um.
Ted hafði sérstakan áhuga á að
efla áhuga og skilning manna á ís-
lenskri menningu og erföum, sem
hann var svo hreykinn af. Hann
talaði íslensku og eftir margar.
ferðir til islands og vinfengi við
marga íslendinga, var þaö honum
því dauflegra en áöur í gamla
Safnahúsinu, þegar hann er horf-
inn á braut á vit hins ókunna.
Viö, starfsfólkið í Þjóðskjalasafni
lslands, minnumst Gríms með
þakklæti fyrir alla hjálpsemi hans
í okkar garö í rúman aldarfjórö-
ung. Fyrir hönd okkar allra votta
ég Hólmfríði, börnunum, Vigdísi,
móður Gríms, systkinum hans og
öðrum vandamönnum dýpstu
samúð og bið þeim blessunar.
Gunnar Sveinsson
sem annað heimili. Hann vann öt-
ullega í Þjóðhátíðarnefnd um tutt-
ugu ára skeiö og beitti hinni miklu
samningalipurð sinni og höfðings-
lund til aö treysta tengslin milli Is-
landsog Kanada. Hinn 17. nóvem-
ber 1989 var hann sæmdur æösta
heiðursmerki Islands, Kiddara-
krossi Fálkaoröunnar, af forseta ís-
lands.
I dagfari sínu öllu var Ted trúr
þeim einkunnaroröum, sem hann
innrætti börnum sinum og barna-
börnum: „Það, sem þiö veitiö lífi
annarra, veitist ykkur aftur".
Tryggð hans viö fjölskyldu sína,
hlýleiki hans og örlæti, mætur
hans á samvistum við fjölskyldu
og vim, vammleysi hans og aödá-
un á vel unnu verki mun alltaf
verða í minnum höfð í fjölskyldu
hans og meöal hinna mörgu vina
hans.
Marjorie, kona 'Iéds, lifir hann
ásamt þrem dætrum þeirra, eigin-
mönnum þeirra og börnum, Fetr-
ínu móður hans, fjórum bræðrum
og þrem systrum, en Guðjón faðir
hans og tveir bræður eru látnir.
Neil Bardal
Minning
Krisf ján Theódór Árnason
„Ted borgarstjóri"
F. 25. júní 1918 — D. 26. desember 1989