Tíminn - 18.05.1968, Qupperneq 7
TIMINN
LAUGARDAGUR 18. *maí 1968
AFMÆLI
19
inámstíS fram á seinni aldir.
Veldur þvií vafalaust afskekikt
lega og einangnun byggðarinn-
ar, strjáiar og erfiðar samgöng
ur. Iifcur benda þó til, að sjó-
sókn, ásamt landíbúnaði, hafi
frá fyrstu tfð verið lífsbjörg
kynslióðamna, sem hér ólu ald-
ur sinn,, og að Siglunes og
Siglufjiörður hafi um aldir ver-
ið forðabúr nœnsveita um fisk
meti.
Mttur af Þórihalii tonapp
bemdir til, að heiðni hafi hér
haldizt öllu lengur en í nær-
sveitum. Og eftir prestsstoap-
artíð sr. Grettis Þorvarðarson-
ar, sem var síðar klertour hér
í kaiþólskum sið, og einn
þeirra, er sóttu láto Jóns bisk-
ups Arasonar og sona hans
suður, virðist vera 30 ára eyða
í prestsþjón'ustu hér. Hinir
eílztu Sigilfirðingar virðast því
haf’a verið fastheldnir í forna
siði og ekki nýju.ngagjarnir.
Heimilda frá fyrri öldum
byggðar hér, er einkum að
leita í sögu kirkjunnar. Árið
1352 fcaupir Ormur bis'kup
Hvanneyri í Siglufirði og sam
kvæmt rekaskrá Hólastóls frá
1374 á Hóladómkirkj a rekann ó
Siglunesi. 1422 er með vissu
kirkja á Sigluinesi, 1614 er
kirkjam flutt þaðan að Hvann
eyri, 1890 er reist kirkja á Þor
móðseyri, en núivenandi sóka-
arkirkja er byggð 1932 og
stendur hún í landi Hvann-
eyrar, ofan eyrarinnar, og
gnæfir yfir byggiingar á henni.
Verzlunar- og kaup-
staðaréttindi
Árið 1788 er stofnuð fyrsta
verzlunin í Siglufirði. Ein það
er ekki fyrr en 20. maí 1818,
sem þáiverandi konungur Dan-
merkur og íslands löggildir
Siglufjörð sem verzlunarstað.
Með þeirri löggUdingu er
grundvöUurinn lagður að fram
tíð Siglufjarðar. í kjölfar sigl
firzkrar verzlunar komu margs
konar hræringar í ativinnu- og
menningarlífi þessa litla, ein-
angraða sveitanfélags sem
varð visir þess, er síðar kom.
Hreppsnefnd er hér fyrst
kjörin 1874. Tii eru hrepps-
rei'kningar frá 1865 og er þá
upphæð útsvara í hreppnum
1094 fiskar, 1895 voru þau
3000 fiskar, en á s.l. ári greiddu
Siglfirðingar í útsvör og að-
stöðugjöld 18,5 milljónir
fcnóna.
Árið 1907 var sett hafnar-
reglugerð fyrir Siglufjörð og
hafinarsjóður stofnaður. Síðan
voru sett hafnarlög fyrir Siglu-
fjörð og ný hafnanreglugerð
staðsett.
1911 var tekin í notfcun
vatnsveita í kauptúninu.
1913 var vígð rafveita við
Hvanneyrará, ein fyrsta vatns-
aflsstöð á landinu, en nú á
kaupstaðurinn fulifcomið orku-
ver við Skeiðsfoss í Fljótum
og „Diesel" varastöð i húsa
kynnum fyrstu rafveitu sinnar
við Hvanneyrará.
Sparisjóður var hér stofnað-
ur árið 1873 og starfar enin og
er ein elzta penimgastofnun i
landinu. Má þess til gamans
geta, að fundargjörðabók
sjóðsins er enn sú sama og þá.
er hann var stofnaður, og end
ist vonandi til 100 ára starfs-
afmælis. Hér er og starfandi
útibú frá Útvegsbanka íslands.
Á 100 ára verzlunarafmæli
Sigluifjarðar, 20. maí 1918, fær
bærinn kaupstaðarréttindi, eft
ir langa og stranga baráttu.
Þá baráttu leiddi þáiverandi
sóknarprestur, sr. Bjanni Þor-
steinsson, prófessor og tón-
skáld, fyrsti heiðursborgari
Siglufjarðankaupstáðar, sem
var andlegur og veraldlegur
leiðfcogi Siglfirðinga um ára-
tuga skeið.
Atvinnuvegir
Sjávarúfcvegur hefur löngum
verið aðalatvinnuvegur Sigl-
firðinga. Áður en síldveiðar
komu til sögunnar, var há-
fcarlaveiðin uppistaðan í út-
gerðinni og hákarlalýsi áðal-
verzlunarvaran. Skipin voru
missfcór, sum þilskip, og ýmist
í eigu útvegsbæindia eða verzl-
ana. Árið 1869 enu hér ' i4
hákarlaskip og munu þau oft-
ast háfa verið milli 10 og 20.
Frá Sigiunesi var mikið út-
ræði öldum saman og þaðan
sóttur sjóriinn frá nœrliggjar.di
sveitum og lengra að. Norð-
rnenn stunduðu héðan hval-
veiðar seint á öldinmi sem leið
og höfðu þeir hér um 20 hval-
báta á ánumum 1890—1900.
Árið 1880 var stofnað hér
félag um sildveiðar me'ð nót
við land eða í svonefnda sí'.d-
arlása. Voru þær veiðai mis-
heppnaðar og lognaðist félag-
ið útaf. Um 1903 hefja Norð-
menn síldveiðar í hringnót og
reknet. Þar með er hafinn sá
kafli í atvinnu. og þróuuar-
sögu Siglufjarðar, sem mestan
þáttinn átti I framvindu og
frama byggðarlagsins. Á fyrri
helmingi alidar var Siglufjörð-
ur höifuðstaður síldveiða og
síldariðnáðar (sölfcunar og
bnæðslu) og átti einn veiga-
mesta þáttiinm í þeirri verð-
mætasköpun þjóðarbúsims,
sem gerði mögulega þá þjóð
félagsþróun, sem varð, frá fá-
tækt og frumibýlingshætti til
velmegunar og tækniþróunar.
Þó breyttar göngur síldar og
annarra fiskistofna hafi valdið
þáttaskiium í þessu efni, er
Siglufjörður enn í fremri röð
sMarbæja og býður upp á
meiri afkastagetu á sviði sfld-
arbræðslu og síldarsöltunar em
nokkur éinn staður amnar hér-
lendis. Og fari svo, sem horfir,
að á næstu árum verði að
sækja silfunfiskinn á fjanlæg
mið, og flytja hann langle;ðir
til vinnslu, hefur Siglufjörður
ekki síðri vígstöðu en aðrar
vinnsluhafnir á Norður- og
Austuxlamdi.
Auk sfldarbræðslna og sölt-
unarstöðva eru hér staðsptt
ýmis atvinnutæki önnur,
sjávarútvegi temgd: frysti-
hús, niðurlagningarverk-
smiðjur, tunnuverfcsmiðja (en
hér var vagga tunnuiðnaðar í
landinu), netagerð og saltfisk
vinnsla. Ennfremur eru hér
nokkur trésmíðaverkstæði,
vélaverkstæði, eitt bifreiða-
verkstæði og fjölbreyttur iðn-
aður af ýmsu tagi.
Engu að síður hefur skort
á atvinnuöryggi hér undanfar
im ár, svo sem nærri má geta,
þegar undirstaða aðalatvinnu-
vegarins hefur að nokkru
bróstið, þó of mikið hafi ver-
ið úr gert. Vonir standa til,
að Norðurlandsáætlunin, sem
nú er unnið að, tryggi á ný
afcvinnuöryggi bæjarbúa, og
hafa Siglfirðingar sett fram
Barnaskóli SiglufjarSar.
ýmsar hugmyndir í því efni,
sem ekki vexða hér raktar.
Heilbrigðismál
— menningarmál
Héraðslastonir var hér fyrst
skipaður 1879, Helgi Guð-
mundsson frá Ból í Reykjavík.
Árið 1916 byggja Norðmenn
hér samkomuhús, sem jafn
framt var notað sem sjúkrahús
fyrir norska síldveiðisjómenn.
1928 er tekið í notkuin sjúkra-
hús í eigu sveitarfélagsins- og
um áramótin 1966—67 er tek-
ið hér í notkun nýtt og glæsi-
legt sjúkrahús og elliheimili.
Barnafræðsla komst hér á
fastan fót 1883 og hefur hald
izt óslitið síðan. Nú er í notk-
un nýlega endurbyggður og
vel út búinn barnaskóli, með
viðbyggðum leikfimisal.
Gagnfræðaskóli tók hér til
starfa- árið 1934 og er nú til
húsa í nýlega byggðu húsnœði
við Hliðarveg.
rðnskóU hefur verið hér
starfræktur frá 1936, fyrstu 20
árin af bæjarsjóði og Iðnaðar-
mannafélagi Siglufjarðar, en
frá 1956 í samræmi við iðn-
fræðslulöggjöf, er þá tók gildi.
Hann er nú til húsa í Gagn-
fræðasfcól'anum.
Hór er starfrækt stór yfir-
byggð sundLaug og hefur svo
verið um nokkurt skeið. Um
sl. áramót var sett niður í-
þróttagólf yfir sundlaugar-
þróna, sérgert í Englaodi, og
er fyrirhugað að nota bygg-
ingu þessa sem íþróttahús um
vetiur en sundlaug á sumrin.
Gólfflöturimi er um 450 ferm.
og er þarna aðstaða til hvers
konar innanhússíþrótta. Hefur
aðsta'ða þessi verið nýtt hvern
virban dag frá áramótum og
langt fram eftir bveldi. Þegar
þetta er ritað, er verið að taka
gólfið niður þar sem skóla-
sund (kennsla) er að hefjast.
Fyrirhugað er að koma upp
gufubaðstofu í þessari bygg-
ingu.
Hér er og starfrækt vel út-
búið æskulýðsheimili, með
aðstöðu til margháttaðra
skemmtana og föndurstarf-
semi. Dagheimili er hér rekið
fyrir börn sumannánuðiinia, 1
gœzluvöllur fyrir börn og 2 án
sérstakrar gæzlu.
Hér hefur þróazt fjölbreytt
félagsmálastarf á sviði íþrótta-
menningar- og mannúðarmála
og er of langt mál að gera því
skil í stuttpi tímaritsgrein.
Samgöngur —
Siglufjörður hefur verið ein
angruð byggð frá landnámstáð.
Má segja, að samgöinigur á sjó
hafi lengst af verið einu sam-
göngumar, þar sem Siglufjarð
arskarð var aðeins fœnt blá-
sumarið og gat teppzt í hvaða
mánuði árs sem var. Þessi ein
angrun stóð bænum fyrir þrif-
um á margan hátt, og er ó-
þarfi að rökstyðja þá fulyrð-
ingu.
Nú hefur mikið áunnizt i
þessu efni. Siglufjörður er nú
temgdur þjóðvegakerfi lands
ins með Siglufjarðarvegi ytri
og 800m. jarðgöngum um
Strákafj all. Um þennan nýja
veg veriður Siglufjörður sóttur
heim í sumar af hundruðum
velunnara sinna, er 50 ára
kaupstaðarafmælisins verður
minrnzt um fynstu helgi júli
mánaðar, 6. og 7. Júlí nk. Þá
hefur veri'ð tekin í notkun um
700 m. flugbraut austan fjarð-
arins, þar sem meðaistórar
flugvélar geta lent, og er mik-
I samgöngubót með því feng-
in.