Tíminn - 08.06.1968, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.06.1968, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 8. jání l$4r8. TIMINN Pétur Friðrik sýnir í Hafnarfirði Pétur Friðrik listmálari opnar í dag, laugardag, mál- verkasýningu í Iðnskólanum í Hafnarfirði. Sýningin verður opn.uð kl. 4 og framvegis verð ur 'hún opin frá kl. 5—10 virka d-aga o-g frá kl. 2—10 um helg ar.' Á sýningunni eru 34 olíu- málverk, sem öll eru til sölu, og hafa þau verið máluð á síðustu tveimur árum. Pétur hélt málverkasýningu í Hafn- arfirði í fyrra og fyrir tveim- ur árum hélt hann sýningu í Reykjavík. Sýningunni lýkur 16. júní. Vorsýningunni lýkur á sunnudaginn Áttunda vorsýning Mynd- listarfélagsins stendur nú yfir t Menntaiskólanum i Reykja- vík. Á sýningunni eru 52 verk eftir 15 málara, þá Eyiólf Ey- fells, Finn Jónsson, Guðmund K. Ásbjörnsson, Guðna Her- mannsen, Gunnar Hjaltason. Helgu W. Foster, Hörð Har- aldsson, Helga Guðmundsson, Jðhannes Sv. Kjarval, Jón Gunnarsson, Maríu H. Ólafs- ftóttur, Pétur Friðrik, Ragn-ar Pál, Sigurð Kr. Árnason og Svein Björnsson. Aðsókn að sýningunni hefur verið góð. Flest verkin, sem sýnd eru, eru til sölu, Sýnimgin er opin frá kl. 2—10 og lýkur henni á sunnudagskvö'ld. Þakkarávarp frá Vest- firðingafélaginu Vestfirðingafélagið í Reykja vík færir hér með einstakling um, stofnunum og fjmirtækj- um alúðar þakkir fyrir almenn an velvilja og rausnarleg fram lög, í sambandi við söfnun þá ef félagið gekkst fyrir vegna sjóslysanna í Bolungavík og Súðavík á síðastl. vetri. Söfnuninni er nú að ljúka og hafa félaginu borizt kr. 581.000,00 — fimm hundruð áttatíu og eitt. þúsund krónur. Stjórnin. Sjálfvirk símstöð á Patreksfirði Nýlega var tekin í notkun á Patreksfirði fyrsta sjálfvirka landssímastöðin á Vestfjörðum með 300 númerum. Auðveld- lega má stækka stöðina upp í 1000 númer. Nú þegar eru í notkun 230 númer. Svæðis- númer er 94 Stöðin hefur 12 vallínur til Reykjavíkur. — Áfram verður þó 31 símnotandi í nærliggjandi sveitum með handvirka afgreiðslu. Byrjað var á uppsetningu stöðvarinnar i nóvember 1967. Yfirumsjón með ve-rkinu hef- ur haft Þorvarður Jónsson, yf ir\’ er kf r æð in gur 1 an ds-sim - Nýtt hefti af 65° Þrið-j-a hefti tímaritsins 65° er nú kornið í bókaverzlani-r, lesilegt að vanda. Meðal efnis er ný ensk þýð ing á Hávamálum, sem birt er hér í útdrætti og með sér- stöku leyfi þýðandanna, enska lárviðarská-ldsins W.H. Auden o-g bandaríska prófessonsins Paul Taylor. Franski sendi- herrann á íslandi ritar um söguleg og menningarleg tengsl Frakka og íslendinga, og Sigurður A. Magnússon rit stj-óri, á grein um Boðorðin tíu o-g ís-lendinga. Þá skrifar Einar Páisson, forstöðumaður málaskólans Mímis, g-rein um kenmsluaðferðir skólans. Dr. Ágúst Valfells, kjarnorkueðlis fráeðin-gur, ritar um stöðu vís- inda og aðstöðu vísindamanna í íslenzku þjóðfélagi í da-g. Einn íslendingur Listaháskólinn í Kaupmanna höfn hefur fallizt á að t-aka við einum ís-lendingi árlega til náms í húsagerðarlist, enda fulnœgi h-ann kröfum u-m und irbúningsnám og standist með Mlnægjandi árangri inntöku- próf í skólann, en þau hefjast venjule-ga í byrjun ágústmán- aða-r. ' Um-sóknir um námsvist í skólanum sendist menntamála- ráðuneytinu, Stjómarráðshús- inu við Lækjartor-g, fyrir 20. júní n.k. Sérstök umsóknar- eyðublöð fást í ráðuneytinu. Ljóðasamkeppni Stúdentafélag Háskóla ís- lands efnir til samkeppni u-m ljóð í tilefni 50 á-ra afmæli fullveldis fs'lands hinn 1. des. 1968. Sex ljóð höf-ðu borizt 1. júní. Skilafrestu-r lj-óðanna er til 15. júní næstkomandi, og skal þeim komið á skrifstofu há- skól-ans undir dulnefni, enda fylgi nafn höfundar með í |ok uðu umslagi. Síðar verður efnt til sam- kep-pni um lag við ljóð það. er verðlauni-n hlýtu-r, 10.000 krón-ur. Sýningu Benedikts lýkur á sunnudag Sýningu Benedikts Gunnars son-ar í Bogasalnum lýkur á sunnudag. Mikil aðsókn hefur verið að sýnin-gunni og hafa með-al annars fjöknargir er- lendir ferðamenn s-koðað hana. 17 myndir eru seld-ar. Hótel Garður opnar Hótel Garður hef-ur nýlega hafið starfsemi sina o-g þar með sitt níunda starfsár undir stjórn stúdenta s-jálfra. H-ótel- ið er til húsa í tveimur bygg- ingum á háskólalóðiinni, þ.e. Gamli Garður við Hringbraut- i-na og Nýi Garður vestur á lóð in-ni, beint norður af Norræna húsinu. í hótelinu eru um 70 —80 hóteliherbergi, eins og tve-ggja manna. Nú í vor hafa verið gerðar ýms-ar lagfæring- ar á húsnæði hótelsins, ja-fn- fra-mt því að húsgögn hafa ver ið keypt fyrir hótelið, og eru en-n frekari fra-mkvæmdir á döfinni varðandi þau mál. Hótelstjóri' er Ingólfur Hjart arson stud. jur. og Tryggvi Þorfinnsson skólastjóri Mat- svein-askólans sér um allar veitingar. Framhald a bls. 15 ............................. Á sunnudag verður sumarsýning Ásgrímssafns opnuð, en safnið hefur verið lokað undanfarnar vikur, m. a. vegna ýmiss konar lagfæringa, en frá Danmörku komu I mal gamlar myndir úr viðgerð, og tók tima að koma þelm fyrir í hinum þröngu húsakynnum safnsins. í heimili listamannsins hefur verið komið fyrir vatnslitamyndum, m. a, frá Kerlingafjöllum, Þingvöllum, Mý- vatnssveit. Einnig myndum úr Njálu og Sturlungu. í vinnustofu Ásgríms er sýning á olíumálverkum, m. a. eru nokkrar þær myndir sem nýkomnar eru úr við- gerð frá danska ríkislistasafninu, og hafa aldrei verið sýndar áður. Sú elzta af þeim mun vera frá árunum 1916—18, og er af atburði úr Njálu. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ó keypis. f júlí og ágúst verður safnið opið alla daga á sama tíma nema laugardaga. Myndina tók GE í safninu. 65. STORSTÚKUÞINGID Þing Stórstúku íslands hið 65. í röðinni var sett í Templarahöll- inni að Eiríksgötu, föstudaginn 7. júní. Ólafur Þ. Kristjánssbn stór templar setti þingið. Þinghaldið að þessu sinni er með nokkuð öðru sniði en undanfarin ár. Meira um almcnnar samkomur og ferða- lög en áður hefur verið- Daginn fyrir þingsetingu var efnt til kynn ingarkvölds í Templarahöllinni, þar sem flutt var ávarp, skemmti- þáttur og ballett. Nær 100 fulltrúar víð-svegar að af landinu sitja þingið. Fimm fé- laga,r tóku' stórstúkustig og minnzt 1-átinn-a félaga. Að þessu loknu h-ófust nefndarstörf, með því að lagðar voru fram s-kýrslur og reikningar framka’æmdanefndar. Stórtemplar fylgdi skýrsl-um og reikningum úr hlaði í ítarlegri ræðu. Minntist hann á ýmsa þætti starfsins og lét m. a. ánægju s-ína og þakklæti í ljós í sam-bandi við byggingu hins nýja samkomuhúss reglunnar. Kl. 13.30 var safnazt saman að nýju við Tem-plarahöll- ina og gengið þaðan undir fánum og einkennum til Hallgrímskirkju og hlýtt messu hjá séra Jako-bi Jónssyni. Að me-ssu lokinni var la-gt af stað í ferðalag um Ha-fnar- fjörð, Krýsuvík og Hverag-erði. í dag heldur þingið áfram og hefst kl. 9 f. h. Dagin-n áð-ur en stór- stúkuþingið var , sett var þing unglingareglunnar háð í Templara höllinni. Þingið var sett kl. 10 f. h. og stóð samfellt til kvölds. Tók það ípörg mál til meðferðar og gerði ým-s-ar samþykktir. Sextíu barna- og unglingastúkur vo-ru starfandi á veg-um unglipgareglunn ar á síðasta ári með um 7000 félög um. Stórgæzlumaður er Sigurður Gunnarsson. Tvær sýningar eftir á Apótek- aranum „Óperan“ sýnir nú um þessar mundir annað verk- ef-ni sitt, en það er atriði úr óperunni Ráðskonuríkið eft- ir Pergolesi Fidelio eftir Beethoven og La Tra-viata eftir Verdi svo og einþátt- ungs óperan „Apótekarinn" eftir Ha-ydn. Sýningar hafa þegar verið tvær og verða aðeins tvær til viðbótar, — su-nnudagskvöld og fimmtu dagskvöld. Þar sem erfitt hefur verið að ná til á-skrif. enda er nauðsynlegt fyrir þá áskrifendur, sem ekki hafa þegar tryggt sér miða, að þeir snúi sér til miðasölunn ar í Tjarnarb-æ. AÐALFUNDUR KAUP- FÉLAGS SUÐURNESJA Aðalfundur Kaupfélags Suður- nesja var haldinn í Aðalveri í Keflavík 25. maí s.l. Auk stjómar, deildarstjórna og endurskoðenda, voru mættir á fundinum um 40 fulltniar frá öllum deildum félags ins. Formaður félagsstjómar, HaU grímur Th. Bjömsson, setti fund- inn og bauð velkomna fulltrúa jg aðra viðstadda. Þá minntist hann Þórarins Ólafssonar trésmíðameist ara, sem látizt hafði á árinu, en han-n var í varastjórn félagsins og hafði lengi átt sæti í deildarstjórn um þess. Fundarstjórar vora kjöm ir Guðni Magnússon og Svavar Ámason og ritarar Ásbjörn Egg- ertsson og Sigurður Brynjólfsson. Formaður f-lutti skýrsl-u félags- stjórnar, en kaupfélagsstj-óri, Gunnar Sveinsson las og skýrði reikninga félagsins, er lágu fyrir fundin-um í prentaðr-i ársskýrslu. Var afkoma félagsims góð eftir atvikum. Heildarvörusala var kr. 91.868.992,60. Er eignir félagsins höfðu verið afskrifaðar, samkv. lögum um kr. 975.325.00 og greidd ir vextir af stofnsjóðsinnstæðum félagsman-na, var rekstrarhalli kr. 315.461.93. Bened-ikt Jónsson, framkvæmda stjóri, fl-utti skýrsl-u um rek-stur Hraðfrystihúss Keflavík-ur h.f., sem er eign kaupfélagsins. All- mikill rekstrarhalli varð á rekstri hússins, e-n heildarvel-ta þess á árinu varð kr. 47.665.838.36. Var þetta erfiðasta rekstursár húss- ins frá því kaupfélagið eignaðist það. Úr stjórn kaupfélagsins áttu að þess-u sinni að ganga þeir Hall- grímur Th. Björnsson og Sva-var Árnason, en voru báðir endur- kjömir. Maður kærður fyrir nauðgunartilraun OÓ-Reykjavík, miðvikudag. Tvítug stúlka í Keflavík kærði á s. 1. s-unnudagsmorgun mann fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga sér. Atgangurinn var harð ur og er stúlkan víða marin eftir að verjas-t manninum, sem úrskuvð aður hefur verið í 30 daga g-æzlu varðhald. Árásarmaðurinn er 24 ára ^ð aldri og hefur oft áður ver ið kærður fyrir líkamsárásir. Aðfaranótt sunnudags brauzt maður þessi inn í mannlaust ibúð arhús I Keflavík. Þekkti hann eitt hvað til húsráðenda og vissi að - þeir voru ekki heima. Bauð maður Frambalo ? bls. 14 Stofnað félag til að vinna að velferð- armálum aldraðs fólks Nýlega var stofnað í Hafnarfirði Styrktarfélag aldraðra. Markmið félagsins, er sem hér segir: Ýmsum þeim, seni gamlir vcrða mæta á efri árum lífsvenjubreyt- ingum, sem kannske eru þyngsta þrautin á lífsleiðinni. Þó er það svo, að gamalt fólk gelur notið lífsins engu síður en á yngri ár- uni, ef aðstæður eru ákjósanlegar. Flestir munu kjósa að halda sitt hcimili sem lengst. Það mun og æskilegast frá félagslegu og þjóð hagslegu sjónarmiði. Sumir þurfa þó óhjákvæmilega á hælisvist að halda. Aðrir gætu bjargað sér lengur, ef betur væri að þeim búið. Framhald á bls. 15. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.