Tíminn - 13.06.1968, Side 16
119. tbl. — Fimmtudagur 13. júní 1968. — 52. árg.
Útgáfu „Hrundar“ hætt
GÞE-Reykjavík, miðvikudag.
Kveiinablaðið Ilrund er bætt
að koma út, og Handbækur
h.f., sem stóðu að úlgáfu þesis
liafa hætt starfsemi sinni. Ein-
ar Sveinsson framkvæmdastj.
blaðsins sagði í viðtali við
Tímaiiu í dag, að útgáfukostn-
aður blaðsins hefði verið orð-
inn fyrirtækinu ofviða, en
hann hefði numið hálfri millj-
Framhald á bls. 12
FERÐAMANNA-
STRAUMUR ÚTI
Á LANDIHAFINN
SJ-Reykjavik, þriðjudag.
Sumarið er komið á Norður-
landi allt suður í Borgarfjörð.
Tíminn átti tal við nokkra hótel-
stjóra á þessum slóðum í ilag og
var þá sólskin og hiti og bezta
veður. Ferðamannastraumurinn
norður í land er farinn að glæð-
ast, og þeir sem atvinnu hafa af
ýmiss konar þjónustu við þá,
hyggja gott til vertíðarinnar.
Mest hefur borið á erlendum
ferðamönnum fram að þessu.
Leópold veitingamaður í Hreða
Heimskauta-
farar eiga
í miklum
erfiðleikum
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Nýjustu frététir af brezka
norðurheimskautsi eiðangr-
inum herma, að leiðangurs
menn séu komnir um 80
mílur austur af fyrirhug-
aðri leið sinni, og sé ástand
ið alvarlegt. Leiðangurs-
menn gera nú tilraun til
þess að komast yfir hættu-
legt íssvæði, þar sem ísinn
er þunnur, víða brotinn og
vatn á honum hingað og
þangað. Ætla þeir þannig
að reyna að komast á rétta
leið aftur.
Leiðangursstjórinn, Wally
Herbert, er þó stað-
ráðinn í að halda áfram
jafnvel þótt ferðin yfir
norðurheimsskautið taki 2
ár, en ekki 18 miánuði eins
og áður var áætlað.
vatnsskála sagði að ckki hcfði
verið mikil umferð af bí'ium á
leið langt norður og austur fram
að þessu enda hefði verið kalt í
veðri. En nú er orðið vörlegt í
Norðurárdal, skógurinn allaufgað
nr enda umferðin farin að örv-
ast. Annars er útlitið ekki gott
í sveitinni, tún illa farin af kali
og heyskaparútlit ekki sem bezt.
Hægri umferðin, sagði Leópold,
að gengi eftir vonum, þótt ýms
ir vildu enn halda sig á vinstri
vegarbrún.
Þorsteinn Sigurjóusson, hótel-
stjóri á Blönduósi tók i sama
streng og sagði, að sumarumferð-
in væri að byrja, tveir ferða-
mannahópar hefðu komið við hjá
sér síðustu daga og strjálingur
væri af öðrum ferðamönnum út-
lendum og innlendum.
Á Hótel Kea hafa verið ýmsir
gestir að undanförnu, sem sótt
hafa ráðstefnur og fundi á Akur-
eyri. Gunnar Thoroddsen átti þar
viðkomu í gær ásamt fylgdarliði
sínu og á næstunni verður þar
haldinn aðalfundur Sambands ís-
lenzkra rafveitna. Þá hefur verið
nokkuð mikil aðsókn útlendinga
að hótelinu að undanförnu. Ragn-
ar Ragnarsson, hótelstjóri sagði,
Framhald a bls. 15.
7:
Eyþór mcð hreindýrið í taumi. (Tfmamynd Alda Jónsdóttir)
Hreindýr
í byggö
Síðastliðinn vetur var eins
og mörgum er í fersku minni
óvenju kaldur og veðraharður.
Hreindýr leituðu niður til
byggða í suðurdölum Aust-
fjarða í fyrra lagi. Það bar
svo við á bænum Eyjólfsstöð-
um upp af Berufirði um miðj-
an nóvember, að þrír hrein-
dýrskálfar komu heim undir
bæ. Bóndinn á Eyjólfsstöðum,
Hermann Guðmundsson, dvald
ist á Homafirði síðastliðinn
vetur við kennslustörf, en bróð
ir hans, Eyþór, annaðist búið
ásamt konu sinni, Öldu Jóns-
dóttur. Eyþór brá við og tókst
að handsama einn kálfinn. Var
hann settur i hús. f fyrstu var
hann tregur til að þiggja góð-
gjörðir af heimiiisfólki. Var
helt ofan í hann mjólk. Brátt
fór hann þó að éta hey. Einnig
var honum gefið rúgmjöl og
lýsi, en fóðurblöndu eða sfld-
armjöl vildi hann ekki þiggja.
I>ó var hann farinn að smakka
á fóðurblöndunni í vor. Hreinn
inn hefur verið að mestu úti
síðan voraði. Hefur hann verið
bundinn á dreif. Gæfur er
liann við heimafólk, en hon-
um er heldur lítið gefið um
ókunnuga. Ilann er í góðum
Framhald á bls. 15
MikHI utidirbúningur lögreglunnar vegna NATO-fundarins:
Veitir bæði ráðherrum
og ^mótmælendum^ vernd
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Um aðra helgi hefst í Reykja-
vík utanríkisráðherrafundur At-
lantshafsbandalagsins. Verður
fundurinn haldinn í háskólabygg-
ingunni eins og alkunnugt er.
Andstæðingar varnarliðssetu á ís
landi og Atlantshafsbandalagsins
yfirleitt, cru lítið hrifnir af þessu
fundarhaldi og hafa boðað mót-
mælagöngu, sem kennd er við
Keflavík, og mótmælafund sama
dag og ráðlierrafundurinn hefst.
í höfuðmálgagmi andstæðinga
bandaríska varnarliðsins hefur ver
ið skýrt frá, að á meðan fundur-
inn stendur yfir, verði lóðin um-
hverfis háskólabyggingarnar girt
af og fái ekki aðrir aðgang að
svæðinu en þeir sem fundinn sitja
og starfsmenn þeirra. Þá er stað-
hæft, að þeir sem eiga heimili
innan svæðisins þurfi sérstök
vegabréf til að komast heim til sín
4 leikflokkar úr Rvík
fara um landið í sumar
EKH-Reykj'avík.
Leikfélag Reykjavikur og Þjóð
leikhúsið hafa undanfarin ár
sent leikflokka á hverju sumri
út um landsbyggðina. Hafa
þeir farið víða og sýnt í næst-
um öllum félagsheimilum á
landinu. Aðsókn að þessum
sýningum Icikflokkanna hefur
jafnan verið afbragðsgóð, enda
þykir fólki nöfn Reykjavíkur-
leikhúsanna tryggja gæðin. Unil
antekningariaiist hefur hér ver
ið um að ræða sýningar, sem
sýndar hafa verið í Iðnó eða
Þjóðlcikhúsinu á Ieikárinu og
þykja hcntugar til flutnings úti
á landi.
Annað veifið hafa svo ýmsir
leikarar tekið sig saman og
myndað sjálfstæða leikflokka,
æft upp leikrit og farið með
þau til sýninga út a landsbyggð
ina. Stundum reyna þessir
sjál'fstæðu leikflokkar að kynna
tilraunakennda leiklist. en ofl-
ast nær verður léttmeti
i'yrir valinu. Oltið hefur á
ýmsu um undh'tektir og að-
sókn i þessum leikförum, enda
misjafnlega lil þeirra stofnað
hvað snertir undirbúning og
æfingar.
Héðan úr Reykjavík fara 4
leiikflokkar með sýningar út á
landsbyggðina í sumar.
Þjóðleikhúsið.
Aðalleikför Þjóðleikhússins
um landið hefst þarin 23. júni,
og verður farið með leikritið
„Vér morðingjar" eftir Guð-
nvund Kamban, en sýningar á
Framhald á bls. 14.
og heiman, og að gerðar hafi
verið miklar öryggisráðstafanir
til að óviðkomandi komizt ekki
nærri fundarstaðnum.
Tíminn bar þá spurningu undir
Bjarka Elíasson, yfirlögregluþjón,
hvort háskólalóðinni yrði lokað
og höfð ströng varðstaða við girð
inguna, og hvaða öryggisráðstaf-
anir yrðu yfirleitt gerðar til vernd
ar fundarmönnum í háskólabygg
ingunni. Sagði Bjarki það upp-
spuna einan, að til stæði að girða
lóðina af. En eðlilega gerði iög-
reglan sínar öryggisráðstafanir til
að koma í veg fyrir að fundar-
menn verði fyrir ónæði, ef svo
færi að einhverjir aðilar ætluðu
að efna til óspekta. En í hverju
þessar öryggisráðstafanir eru
fólgnar, vildi Bjarki ekkert segja,
en kvaðst vona að lögreglan
þyrfti ekki að grípa til neinna
sérstakra aðgerða vegna ráðherra
fundarins.
Hins vegar sagði Bjarki, að lög
reglustjóri hefði gefið góðfúslegt
leyfi til útifundar í Reykjavík 23
þ.m., sem Samtök hernámsand-
stæðinga hafa sótt um að halda.
Einnig hefur verið sótt um leyfi
Framhald a bls. 15.