Alþýðublaðið - 06.03.1990, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.03.1990, Blaðsíða 3
3 Þriðjudagur 6. mars 1990 Laugavegur 178 — stórhýsi sem titrar og skelfur: Liklega gufusprengii i iarðlögum undir hú segir Eysteinn Tryggvason jaröedlisfrœdingur SKULI NIELSEN rakarameistari — kemur fyrir ad kúnnarnir spyrja mig hvers vegna flöskurnar í hillunum hristast. Húsið að Laugavegi 178 tók að hristast í sömu mund og blaða- maður Alþýðublaðsins gekk í hús. Talsverðar drunur fylgdu kippnum og flöskur í hillum rak- arans á neðstu hæð hússins hristust. Skúli Nielsen, hárskerameistari, lét sér hvergi bregða. „Þetta hefur gengið svona síðan í sumar. Það kemur fyrir að kúnnarnir spyrja mig hvers vegna flöskurnar í hillunum hristist, en margir taka ekki eftir neinu." Eysteinn Tryggvason, jarðeðlis- fræðingur var fenginn til að mæla kippina á neðstu hæð hússins í síð- ustu viku. Um 50 kippir mældust þá nótt, allir svipaðir af stærð. Eysteinn vildi ekki fullyrða hver skýringin á þessu væri, en taldi líklegt að unt gufusprengingar í jarðlögum undir húsinu væri að ræða. Guðjón Jónsson, húsvöröur, sagö- ist hafa haft samband við Norrænu eldfjallastöðina þegar fólk á neðstu hæö hússins var farið að furöa sig á hvernig á þessum kippum gæti stað- ið. ,,Þeir héldu að ég væri orðinn ruglaður þegar ég sagði þeim frá þessum hræringum undir húsinu." Aðspurður sagðist Guðjón þess full- viss aö hér væri ekki um neitt yfir- náttúrulegt aö ræða. ,,Ég er hér að nóttu sem degi og hef aldrei orðiö var við neitt slíkt, sagði Guðjón. FRÉTTIN BAK VIÐ FRÉTTINA Hcmdboltaliðið á við Gullfoss og Geysi Viö erum orðin svo grimmilega heimtufrek hvaö varðar handboltann að þjóðin er með böggum hildar eftir að landsliðið tapaði fyrir heimsmeisturunum fré Júgóslavíu. Maður gengur undir manns hönd til að reyna að finna skýr- ingu á þessu tapi sem okkur finnst með ólíkindum. Orsökin fyrir ósigri gegn Spánverjum liggur hins vegar í augum uppi því þar brugðust dómararnir á elleftu stundu og ekki í fyrsta sinn sem slíkt hendir þegar okkar menn eiga í hlut. En svo urðu þeir spönsku raunar allra uppáhald hér heima þegar þeir lögðu Kúbumenn og fleyttu okkur þar með áfram í keppninni. Svo er bara að sjá hvernig liðið stendur sig í leikjum þessarar viku en þjóðin krefst sigurs í hverjum leik. Hver sigur er okkar sigur, en hvert tap er hins vegar tap landsliðsins. Efst á baugi Hér í eina tíð voru frjálsíþrótta- menn efstir á vinsældalista þjóð- arinnar, en það var þegar þeir unnu hvern sigurinn á fætur öðr- um í keppni við aðrar þjóðir. Nú hefur almennur áhugi á frjálsum dalað mjög þó við eigum einstaka afreksmenn á því sviði. Knatt- spyrnulandsliðið fær af skiljanleg- um orsökum ekki mörg tækifæri til að reyna sig á ári hverju og eng- inn ætlast til að við náum heims- frægð á því sviði. En það er hand- boltinn sem er efst á baugi þegar íþróttakeppni við aðrar þjóðir er annars vegar. Ef ég man rétt var það árið 1983 sem Bogdan var ráðinn landsliðs- þjálfari og má segja að þá hafi orð- ið nokkur tímamót í handboltan- um. Engu að síður hafði landslið- inu gengið allvel oft og tíðum áður en Bogdan kom til sögunnar. Hins vegar má segja að hann geri meiri kröfur en fyrirrennarar hans og árangurinn er eftir því. Velgengni liðsins á síðustu árum samhliða öflugu auglýsinga- og áróðurs- starfi hefur lyft handboltanum á þann stall sem hann er í dag með þeim árangri að sú manneskja er vandfundin sem ekki er tilbúin til að hafa skoðun á landsliðinu og einstökum leikmönnum. Meira að segja antisportistar eins og ég og mínir líkar sitjum límdir við lýsing- ar á landsleikjum og öskrum á aukakast eða víti hvenær sem blakað er við okkar mönnum og höfum ákveðnar skoðanir á frammistöðu hvers leikmanns. Handboltaliðið er orðiö samein- ingartákn þjóðarinnar og fær okk- ur til að gleyma um stund bág- bornu efnahagsástandi og póli- tísku þrasi. Mikill kostnaður Það er mikill kostnaður samfara landsleikjum handboltaliðsins og þátttöku þess í alþjóðlegum mót- um. Hleypur á mörgum tugum milljóna yfir árið. Jón Hjaltalín og hans menn í stjórn HSI hafa verið óþreytandi við að afla peninga. Ýmis fyrirtæki styðja myndarlega við bakið á liðinu og hefur margur forstjórinn reynt það að dýrt getur orðið að taka í höndina á Jóni Hjaltalín. Þá hefur allur almenn- ingur einnig tekið drjúgan þátt í að fjármagna liðið með frjálsum framlögum og kaupum á happ- drættismiðum. Eins og eðlilegt er hafa heyrst þær raddir að alltof miklum pen- ingum sé variö í handboltaliðið á kostnað annarra íþróttagreina. Benda sumir á að nær væri að efla almennt íþróttastarf í stað þess að eyða gífurlegum fúlgum í tiltölu- lega fámennt keppnislið. En þegar landsliðinu vegnar vel gleymast slíkar vangaveltur þegar í stað og enginn vill hlusta á úrtölumenn. Við erum nefnilega sannfærð um að hæfni landsliðsins veki ámóta athygli í öðrum löndum eins og hér heima og að við séum að sýna það og sanna fyrir alheimi að við séum bestir í handbolta sem öðru. Auglýsingar í bak og fyrir Gengi íslenska liðsins vekur að sjálfsögðu hvergi viðlíka athygli og hér heima enda flestir sem hafa áhuga á handbolta bundnir við árangur eigin landsliðs hvar í heiminum sem þeir búa. Hins veg- ar fer ekki milli mála að góð frammistaða okkar í handbolta á alþjóðavettvangi, sem og á öðrum sviðum er nokkur auglýsing fyrir land og þjóð. Einstök fyrirtæki sem styrkja landsliðið fá líka sína auglýsingu enda liðið gangandi auglýsing í bak og fyrir. A æfinga- göllum þess er saltfiskur auglýstur á bakinu en Pepsí, Flugleiðir og Landsbankinn að framan. A keppnisbolum eru Flugleiðir að framan og Landsbankinn á erm- unum auk þess sem við verðum að auglýsa Opel á bakinu á þessu móti í Tékkóslóvakíu þar sem Opel er aðal styrktaraðili mótsins. Ekki veit ég hvort útflutningur á salt- fiski eykst vegna handboltans né heldur hvort fleiri drekka pepsí en áður á sama hátt og erfitt er að meta ávinning Flugleiða og Lands- bankans af sínum auglýsingum. Þegar allt kemur til alls er það frammistaða liðsins og árangur þess sem hefur mest að segja þeg- ar auglýsingar eru annars vegar. Og þá á ég við auglýsingu fyrir land og þjóð fyrst og fremst en ekki beinan árangur af auglýsing- um einstakra fyrirtækja. Staðreyndin er auðvitað sú að þátttaka okkar á alþjóðavettvangi á sviði íþrótta er oft og tíðum ekki lakari auglýsing fyrir fsland en myndir í erlendum blöðum af Gullfossi og Geysi. Öll jákvæð kynning og umfjöllun sem tengist Islandi hefur sín áhrif. Ekki bara hvað varðar hingaðkomur er- lendra ferðamanna heldur líka t.d. á sölu íslenskra afurða erlendis. Því má segja að þeim fjármunum sem varið er til landsliðsins í hand- bolta um þessar mundir sé um leið varið til landkynningar sem reikna má með að skili sér aftur með einum eða öðrum þætti. Áfram með smjörið Þegar öllu er á botninn hvolft er það hins vegar þjóðarstoltið sem vegur þyngst þessa dagana hvað varðar handboltann. Hver sigur er sigur þjóðarinnar. Auðvitað er það á móti öllum lögmálum að svo fá- menn þjóð eigi handboltalið á heimsmælikvarða, en við tökum þessu samt sem sjálfsögðum hlut og okkur hættir til að gleyma því að útaf fyrir sig er það einstakt af- rek að hafa náð svona langt. Hvernig sem allt veltist í þessari viku í Tékkóslóvakíu þá skulum við halda áfram að styðja við bak- ið á strákunum í blíðu og stríðu með það fyrir augum að halda þeim sessi sem áunnist hefur með þrotlausri vinnu og dugnaði. Allir vilja dansa með þegar vel gengur en þeir eru ófáir sem kjósa að yfir- gefa baHið ef eitthvað bjátar á í þessu sem öðru. En áfram með smjörið hvaö sem tautar og raular. Auðvitað væri gaman ef við hrepptum heimsmeistaratitilinn einhvern tímann. Og sá draumur blundar í brjósum margra þótt þeir hafi ekki hátt um það. Slikar vangaveltur eru kannski ekki tímabærar og út i hött, en menn mega þó láta sig dreyma um stóra vinninginn í þessu sem öðru. Stærsti vinningurinn er þó líklega sá, að góð frammistaða íslenskra íþróttamanna í hvaða grein sem er verður til að efla íþróttaáhuga barna og unglinga og sá vinningur verður ekki metinn til fjár.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.