Alþýðublaðið - 06.03.1990, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 6. mars 1990
Vinningstölur laugardaginn
3. mars ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 9 279.600
2. 4 104.315
3. 4af 5 256 2.946
4. 3af 5 4.405 399
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.465.431 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Morguntrimm
Athugið, okkur vantar blaðbera víðsvegar um borg-
ina.
Þeir sem hafa áhuga á því að fá sér morgunrölt, vin-
samlegast hafið samband við afgreiðslu blaðsins í
síma 681866 milli kl. 9.00—17.00.
Alþýöublaðiö/Pressan.
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
verður haldinn þriðjudag 6.
mars næstkomandi kl. 20.30,
að Goðatúni 2.
Dagskra:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Gestur fundarins verður Rannveig Guðmunds-
dóttir alþingismaður.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Alþýðuflokkurinn
hlustar
Málstofa um stefnuskrármál
verður haldin þriðjudaginn 6.
mars nk. í Félagsmiðstöð jafn-
aðarmanna, Hverfisgötu
8—10.
Hópstjóri er Gísli Ágúst Gunn-
laugsson.
Mætum öll og höfum bein áhrif á stefnu flokks-
ins!
Frœösla og leidsögn fyrir útlendinga á Islandi:
Tæplega tiu þúsundir
búsettir ú islandi
— fæddir erlendis
Danfríöur Skarphéöinsdóttir, þingmaöur Kuennalista, segir stööu austur-
lenskra kvenna hér á landi í mörgu ábótavant.
„Á allra síðustu árum hefur æ
oftar komið í ljós að erlendar
konur sem giftast íslendingum
virðast að ýmsu ieyti verr settar
en karlar hvað varðar það að
tengjast og aðlagast íslensku
þjóðfélagi. Einkum er þetta erf-
itt fyrir konur sem eru upprunn-
ar í þjóðfélögum þar sem staða
konunnar og viðhorf til kvenna
er gjöróiíkt því sem gerist hér á
landi," kom fram hjá Danfríði
Skarphéðinsdóttur á Alþingi í
gær.
Danfríður mælti fyrir þingsálykt-
un sem felur ríkisstjórninni að sjá
um að útlendingar, sem taka sér bú-
setu á íslandi, hljóti skipulega
fræðslu og leiðsögn sem miði að því
að auðvelda þeim að takast á við
daglegt líf í íslensku umhverfi.
Fræðslan skal einkum beinast að
kennslu í íslensku, fræðslu um rétt-
indi og skyldur íslenskra þegna, ís-
lenskt þjóðfélag og stofnanir þess
og fræðsla um sögu landsins og
staðhætti, íslenska menningu og
þjóðlíf.
Þá benti Danfríður á að 1. des. sl.
bjuggu tæplega 5.000 erlendir ríkis-
borgarar á íslandi og er þá starfsfólk
erlendra sendiráða ekki talið með.
Á sama tíma voru tæplega 9.473
(3,7% af íbúafjölda hér á landi)
manns búsettir á íslandi sem eru
fæddir erlendis. Þessi tala hefur
hækkað mikið á undanförnum ár-
um, var 1.631 (1,1%) árið 1950,
3.873 (2,2%) árið 1960 og 5.984
(2,6%) árið 1980. Þess ber að gæta
að nokkur hluti þessa hóps eru börn
íslenskra foreldra sem búið hafa er-
lendis um skeið.
Annars beindi Danfríður sjónum
sínum aðallega að þeim hópi
kvenna sem hingað hefur flutt frá
Tælandi og Filipseyjum. Nokkuð
hefur verið um það að íslenskir karl-
menn hafi sótt sér kvonfang þang-
að. Þessar konur eru oft á tíðum svo
gott sem mállausar bæði á íslenska
og enska tungu og eru sér lítt kunn-
ar um réttarstöðu sína. Þá kom fram
hjá Danfríði að henni væri kunnugt
um að Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefði sett á fót
óformlega nefnd vegna þessara
mála.
Feguröarsamkeppni
Austurlands:
Gestir
veðurtepptir
ú fjórða
sólarhring
Hríðarbylur og síðar snjóflóð
seinkuðu fólki sem verið hafði
viðstatt fegurðarsamkeppni
Austurlands í Neskaupstað um
þrjá til fjóra daga. Sumir sátu um
kyrrt á Hótel Egilsbúð í Nes-
kaupstað en aðrir komust til
Eskifjarðar eða Reyðarfjarðar
og sátu síðan fastir þar.
Fegurðarsamkeppni Austurlands
var haldin í Neskaupstað laugar-
dagskvöldið 24. íebrúar. Á sunnu-
daginn skall á stórhríðarbyiur og
snjóflóðin sem féllu í Norðfirði, rétt
innan Neskaupstaðar og á Fagradal,
seinkuðu för fólksins enn frekar.
Þrennt varð eftir í Neskaupstað á
sunnudaginn en aðrir komust ýmist
til Eskifjarðar eða Reyðarfjarðar.
Það dugði þó skammt þótt snjó-
flóðin í Norðfirði og Oddsskarðið
væru að baki, því snjóflóð féll einnig
í Fagradal, en um hann liggur vegur-
inn frá Reyðarfirði til Egilsstaða.
Ekki tókst að ryðja veginn um
Fagradal fyrr en á miðvikudag og
m.a. mun hluti dómnefndarinnar
hafa komist með flugi til Reykjavík-
ur á miðvikudagskvöldið.
Samkvæmt upplýsingum sem Al-
þýðublaðið aflaði sér fyrir austan
tóku ferðalangarnir þessum töfum
með mesta jafnaðargeði og notuðu
tímann til að taka sér góða hvíld frá
erli hversdagslífisins.
/--------------------\
Ferðu stundum
á hausinn?
árlega í hálkuslysum
Á mannbroddum, ísklóm
eða negldt.rn skóhlífum
ertu „sve&kaldur/köld“.
Heímsæktu skósmiðinn!
Alþýðuflokksfélag
Seltjarnarness
Aöalfundur félagsins veröur haldinn fimmtudag-
inn 8. mars nk. kl. 20.30 í sal tónlistarskólans i
Safnahúsi Seltjarnarness, gengið inn frá Skóla-
braut.
Dagskrar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Bæjarstjórnarkosningar í vor.
3. Önnur mál.
Guöfinnur Sigurvinsson.
Guömundur Oddsson.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir.
Jón Sigurösson.
Gestir fundarins veröa: Guöfinnur Sigurvinsson,
bæjarstjóri Keflavíkur, Guömundur Oddsson, for-
seti bæjarstjórnar Kópavogs, Jóna Ósk Guðjóns-
dóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjaröar, Jón Sig-
urösson, viðskipta- og iðnaöarráöherra kemur á
fundinn.
Stuöningsmenn Alþýðuflokksins eru hvattir til aö
mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin.