Alþýðublaðið - 09.03.1990, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 09.03.1990, Qupperneq 3
Föstudagur 9. mars 1990 3 Island 19 — Austur-Þýskaland 17: Staðráðnir i að vinna — sagöi Oskar Ármannsson eftir leikinn. „Þetta var stórkostlegur leik- ur. Leikmenn hafa aldrei barist eins mikið og í þessum leik. Við vorum staðráðnir í að vinna og gefa hvergi eftir,“ sagði Óskar Armanns sem var valinn maður íslenska iandsliðsins eftir leik- inn við Austur-Þjóðverja. Islensk landsliðið vann langþráð- Rússarnir auglýsa V-þýskt útgáfu- fyrirtæki Það vekur athygli hér á HM að Rússar bera tvær auglýsingar á keppnisbúningum sínum. Önn- ur er skylduauglýsingin frá OP- EL, — hin er frá DEUTSCHER HERALD, útgáfufyrirtæki í V-Þýskalandi. Sýnir þetta e.t.v. hugarfarsbreytingu í herbúðum Sovétmanna. Kúbumenn hafa aftur á móti hafn- að öllum auglýsingum, — einir þjóða hér. Þeir hafa þannig ekki borið auglýsingu OPEL-bílaverk- smiðjanna og varð af þessu fjaðra- fok í byrjun keppninnar. Óskar Ármannsson. an sigur á HM í handbolta í Tékkó- slóvakíu í gær þegar því tókst að leggja Austur-Þjóðverja með 19 mörkum gegn 17. Þar með vann lið- ið sér rétt til að leika um 9. sætið í keppninni gegn Frökkum. Takist ís- lendingum að vinna Frakka, vinna þeir sér jafnfram rétt til að taka þátt í Olympíuleikunum í Barcelóna á Spáni eftir tvö ár. Óskar Ármannson sem lítið hefur fengið að leika með landsliðinu hingað til stóð sig mjög vel og stjórnaði leik liðsins með miklum ágætum enda var hann valinn mað- ur leiksins. ,,Við vorum ofurspenntir í fyrri hálfleik en liðið náði ró sinni í seinni hálfleik og þá small þetta allt saman hjá okkur. Þá skipti það ekki litlu að Einar fór að verja mjög vel í markinu," sagði Óskar við Alþýðu- blaðið. Handboltaunnendur fá því ekki að sofa út á laugardaginn ætli þeir að fylgjast með beinni útsendingu á leik íslendinga og Frakka því send- ingin hefst klukkan átta a<S morgni. „Vorum taldir geggjaðir að gera út frystitogara" — segja frumkvöölarnir á Skagaströnd — Örvar hefur malad gull fyrir Skagaströnd — íbúarnir ákváðu að takast á við vandamál byggðarlags síns og stofnuðu útgerðarfélagið Skagstrending hf. Skagstrendingur hf. á Skaga- strönd er fyrirtæki sem oft er bent á sem fyrirmyndarfyrir- tæki í útgerð og fiskvinnslu. Fyr- irtækið er almenningshlutafé- lag og hlutabréfin í góðu gengi á markaðnum. Sveinn Ingólfsson framkvæmda- stjóri segir í viðtali við Fjármál blað Fjárfestingarfélags Islands, að þeir á Skagaströnd hefðu verið taldið meira en lítið geggjaðir, þegar þeir ákváðu að breyta togaranum Örvari i frystitogara árið 1981. Menn töldu að það að vinna aflann um borð og frysta hann þar væri sama sem aö eyðileggja aflann. ,,Það komu alls konar sérfræðing- ar fram á sjónarsviðið og sögðu þetta rugl og einhverjir höfðu raun- ar orð á því að það ætti að senda mig til vistunar við Sundin blá, svo litla trú höfðu menn á frystitogur- um,“ segir Sveinn Ingólfsson í við- talinu. Sveinn er Reykvíkingur en tók ungur að árum að sér að stýra Skagstrendingi hf. og hefur gert það frá 1968 þegar fyrirtækið var stofn- að. Allir vita hvernig til tókst með út- gerð Örvars, — enda eru frystitogar- arnir á íslandi orðnir 25 i dag og fleiri vilja fara út í þann rekstur. Tog- arinn hefur í reynd malaö gull fyrir Skagstrendinga, sem stóðu mjög tæpt sem sveitarfélag fyrir tveim áratugum eða svo. Akureyrin er lík- lega þekktastur frystitogaranna ásamt Örvari. Aflaverðmæti Akur- eyrinnar á síðasta ári nam 510 millj- ónum króna en Örvars 453 milljón- um. I þriðja sæti kom togarinn Har- aldur Kristjánsson frá Hafnaríirði með 346 milljónir króna. Skagstrendingur hf. er í eigu 240 hluthafa, — stærstur eigenda er hreppsfélagið með 37%. íbúar Skagastrandar — að fjórum fjöl- skyldum undanteKnum — eru hlut- hafar. Lögðu fjölskyldurnar fram hlutafé á sínum tíma, margar af miklum vanefnum eins og þá var háttað í bæjarfélaginu. Þá stóðu íbú- arnir frammi fyrir svipuðu vanda- máli og ýmis bæjarfélög gera í dag. Annað hvort var, — að gefast upp eða bjarga sér sjálf. Síðari kosturinn var tekinn og Skagstrendingur hf. stofnaður og fyrsti báturinn keyptur í janúar 1969. Fyrirtaekiö rekur nú togarann Arnar auk Örvars. Arnar sinnir því hlutverki að sjá frystihúsi félagsins fyrir hráefni. Arnar er rétt eins og Örvar, mikið happaskip. Arnar var keyptur frá Japan 1973 og voru bátar félagsins þá seldir, en þeir hétu Arnar og Örvar. Árið 1980 var samið um kaupin á Örvari. Jafnframt var fyrirhugað að reisa nýtt frystihús. Fyrirgreiðsla til byggingarinnar fékkst ekki — nú segja menn e.t.v. sem betur fer — og kom þá upp sú staða að sigla yrði ut- an með aflann eða jafnvel að hætta við útgerð Örvars. Sveinn Ingólfsson segir að í vanda sínum hafi menn haldið til Noregs og kannað þar útgerð þar sem afl- inn var flakaður um borð og flökin fyrst. „Okkur sýndist að dæmið ætti að ganga upp óg ákváðum því að láta breyta Örvari í frystitogara, þrátt fyrir úrtölur flestra." Afurðir þeirra á Örvari seljast vel á mörkuðum og ekki að sjá annað en að svo verði áfram. Almanaks- happdrætti Þroskahjálpar Almanök Þroskahjálpar eru auk þess að vera fallega myndskreytt dagatöl happdrættismiði, en dregið er mánaðarlega. Vinningur fyrir janúar kom á almanak númer 6726, en í febrúar 2830. Ættfræðigrúsk á námskeiði Ættfræði er vinsælt viðfangsefni, ekki bara hér á landi, heldur víða um heim. Ættfræðiþjónustan, Jón Valur Jensson, efnir nú til nám- skeiðs fyrir þá sem vilja fræðslu um fljótvirkar og öruggar leitaraðferðir og önnur vinnubrögð við ættfræði- jgrúskið. Innritun á námskeiðið er hafin hjá Ættfræðiþjónustunni að Sólvallagötu 32A. FÖSTUDAGSSPJALL ALLIR PASSA ALLA sú í langflestum tilfellum að stjórn- arandstæðingar á Alþingi efna til aðgerða gegn ríkisstjórn, frekar en að lýðræðis- og prinsipöfl á þinginu geri það þingsins sjálfs vegna. Þegar svo ber viö að mótmæli eru höfð uppi í nafni þings og frumburðarréttar þess, er orsak- anna yfirleitt á endanum að leita í ofur venjulegum valdaslag stjörn- ar og stjórnarandstööu. Þá er þingsóminn yfirklór. Það hefur veriö fróðlegt að fylgj- ast með viðbrögðum ráðamanna við athugasemdum ríkisendur- skoðunar og umboðsmanns Al- þingis um ýmis mál á undanförn- um misserum. Menn hafa ekki almennilega vit- aö hvernig ætti að taka á þessum „gestum" í þjóðmálaumræðunni, þegar þeir hafa kvatt sér hljóðs. Stundum hafa menn orðiö reiðir og svarað fullum hálsi, t.d. þegar fjármálaráðherrar hafa svarað spám ríkisendurskoöunar um af- komu ríkissjóðs. Stundum hafa menn reynt aö láta í það skína að ríkisendurskoðun sé að úttala sig um hluti sem henni komi ekkert við. Oft hafa ráðandi aðilar líka einfaldlega hundsað þessa aðila, eins og umboösmaður Alþingis hefur margsinnis orðið fyrir. Aö rífast meö rökum Það er auðvitað forkastanlegt að stofnanir skuli ekki svara erind- um þessara aðila. Og það er gam- aldags valdahroki aö reyna að þagga niöur í ríkisendurskoðun með því að takmarka verksvið hennar. Einu eðlilegu viðbrögð ráða- manna við álitum ríkisendurskoð- unar og umboðsmanns eru raunar Dæmi um kosti stjórnkerfishug- mynda sinna sótti Vilmundur gjarnan til Bandaríkjanna. Þar takast á i sífellu dóms-, lög- gjafar- og framkvæmdavald, vegna þess að í stjórnarskrá er þeim íalið að hafa eftirlit hvert með öðru. Með bandarísku stjórn- arskránni er beinlínis efnt til átaka og ósamkomulags milli valdþátt- anna þriggja. Á þann hátt hefur verið talið aö þeir gegndu best eftirlitshlutverki sínu. Þingsomi yfirklór? Þegar átök verða milli þings og ríkisstjórnar á Islandi, er ástæðan þau fyrstu, þ.e. að svara fyrir sig og vera reiöur, ef ástæða er til. Þótt þessar nýju eftirlitsstofnan- ir séu stórkostleg framför, eru þær nefnilega engir æðstu dómstólar heldur. Þeim þarf að veita aðhald, eins og þeim sem þær eiga aö veita aðhald. Á milli þeirra, þings og stjórnar eiga aö ríkja átök og óspektir, byggð á rökum og viðleitni til að bæta stjórnarfariö í landinu. Stjórnarfarinu er ekkert eins hættulegt og þögnin. Guðmundur Einarsson skrifar Eitt af málum, sem Vilmundur Gylfason barðist fyrir, var að auka eftirlit af hálfu Alþingis með ríkisstjórn. Á tækni- málinu var þetta kallað að löggjafarvaldið hefði eftirlit með framkvæmdavaldinu. Undirtektir undir þetta voru afar litl- ar og ástæðurnar vafalaust fleiri en ein. Einhverjum hefur, eins og alltaf, fundist ástandið ágætt eins og það var og engin ástæða til breytinga. laust gilt einu hvort þeir voru í eða utan stjórnar. Sá, sem er í stjórn, vill ekki hafa sterkar þingnefndir á hælum sér og sá sem er i stjórnar- andstöðu hugsar líklegast: Það er best að þrauka í áhrifalítilli stjórn- arandstöðu vitandi að eftir kosn- ingar á ég þess kost að komast í ríkisstjórn og þá vil ég ekki sterkt og athafnasamt þing. Sumum hefur þótt þetta gagns- laust tal um formalisma og best að snúa sér strax að stóru málunum, eins og efnahagsástandinu. Enn öðrum hefur þótt ástæðulaust að efna til úlfúðar milli þings og stjórnar og loks má nefna þá sem ekki vildu láta hafa eftirlit með sér í ríkisstjórn. Um þá síðastnefndu hefur vafa-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.