Alþýðublaðið - 14.03.1990, Side 1
MÞYBVBIABQ
Miðvikudagur 14. mars 1990
41. tbl. 71. árg.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra:
Pentagon íhugar tillögur íslands
um afvopnun á höfunum
Utanríkisraöherra segir hugmyndir um kjarnorkulaus
Noröurlönd úreltar: ,,Aldrei mikil rök né kunnátta aö
baki hugmyndinni‘
PENTAGON í Washing-
ton DC, utanríkis- og
hernaðarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna íhuga nú
tillögur Islendinga um
afvopnun á og í höfun-
um. Þetta fullyrðir Jón
Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra í við-
tali við Svenska Dagbla-
det sl. sunnudag.
Utanríkisráðherra segir í
viötali við Alþýðublaðið
að honum sé kunnugt að
Pentagon sé að endurskoða
í heild hernaðarstefnu
Bandarikjanna á Norður-
höfum og þar séu tillögur
Islendinga um afvopnun á
og í höfunum til athugunar.
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra segir
ennfremur í viðtalinu við
Svenska Dagbladet, að
hvorugt stórveldanna í
vestri og austri né leiðtogar
norrænna jafnaðarmanna-
flokka hafi hingað til sýnt
afvopnun á og i höfunum
nægilegan áhuga. Utanrik-
isráðherra segir ennfremur
að hugmyndir forystu-
manna í Skandinavíu um
kjarnorkulaus Norðurlönd
séu úreltar og aldrei hafi
legið rök né kunnátta að
baki þeirri hugmynd.
Jón Baldvin segir í viðtal-
inu sem birtist 11. mars sl.,
að Bandaríkin og Bretland
hafi algjörlega neitað öllum
viöræðum við Varsjár-
bandalagið um afvopnun á
höfunum: „Aðalröksemda-
færslan hefur verið sú, að
sambandið milli Bandaríkj-
anna og Evrópu sé líflína
NATO. Og herflotinn er
sterkari í vestri. Því þá að
setjast að samningaborði? í
upphafi fengum við engan
stuðning viö málstað okk-
ar. Fulltrúi Noregs var
meira að segja orðfár. En
breyting er í nánd. Við vit-
um að Pentagon er með til-
lögur okkar í athugun."
Utanríkisráðherra gagn-
rýnir ennfremur hugmynd-
ir Skandinava um kjarn-
orkuvopnalaus Norður-
lönd, og segir þau „úrelt
viðhorf." „Aður fyrr var
þessi hugmynd mótmæli
gegn árangurslausum við-
ræðum um afvopnunar-
mál. Það mátti túlka hana
sem tillögu smáþjóða til að
móta aðgerðir sem sköp-
uðu trúnað, þótt ekki lægju
mikil rök eða kunnátta að
baki hugmyndinni. En þró-
un afvopnunarmála hefur
að mínu mati sannað að
þessi aðferð, sem ég hef
alltaf verið á móti, hafi ver-
ið röng frá upphafi," segir
Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra í viðtal-
inu við Svenska Dagbladet.
Guömundur Árni Stefánsson bœjarstjóri
Undrast þróun móla
„Ég vil lýsa yfir ákveð-
inni undrun minni með
þróun þessara mála af
hendi íslenskra yfirvalda.
Sannleikurinn er sá að í tíð
þriggja ríkisstjórna höfum
við Hafnfirðingar verið
kallaðir til samstarfs,
samningaviðræðna, vegna
stækkaðs eða nýs álvers í
Straumsvík og tekið þátt í
þeirri undirbúningsvinnu
sem hefur verið ítarleg og
tímafrek,‘‘ segir Guð-
mundur Arni bæjarstjóri í
Hafnarfirði. „Við sjáum út-
af fyrir sig engar forsend-
ur fyrir stökkbreytingu á
þessu stigi málsins og ég
hef ástæðu til að ætla að
verði nú um breytingu á
staðsetningu að ræða gæti
það tafið málið og sett all-
an framgang þess í stór-
hættu.“
Forstjórar álfyrirtækjanna,
Alumax og Hoogovens, áttu
um hádegisbilið í gær fund
með bæjaryfirvöldum í Hafn-
arfirði. Rætt var um hugsan-
lega staðsetningu nýs álvers í
Staumsvík sem fyrirtækin
stæðu að ásamt Gránges og
þá aðstöðu sem Hafnarfjarð-
arbær getur boðið upp á.
Paul Draek, aðalforstjóri Al-
umax, sagði fundinn hafa
verið ánægjulegan og gagn-
legan.
Bæjarstjóri Hafnfirðinga,
Guðmundur Arni Stefánsson,
var líka ánægður með fund-
inn. „Mín tilfinning var sú að
þessir nýju aðilar, þ.e. Alum-
ax, sem nú hafa komið að
málinu hafi verið ánægðir
með þá möguleika sem fyrir
hendi eru hér í Hafnarfirði.
Ég lagði líka áherslu á það í
þessum viðræðum að við
Hafnfirðingar höfum bæði
reynslu og þekkingu á fyrir-
hugaðri starfsemi og vitum
hverju henni fylgir. Við leggj-
um að sjálfsögðu áherslu á að
fyllstu mengunarvarna verði
gætt og bendum á að verka-
lýöshreyfingin hér í Firðinum
þekkir samstarf við fjölþjóö-
leg fyrirtæki. Ibúar bæjarins
vita einnig aö hverju þeir eru
aö ganga."
Guömundur Árni sagði
ennfremur að það hafi átt sér
staö „gagnleg skoðanaskipti
um ýmis mál sem snerta
væntanlegt álver sem risi í
Straumsvík. Staðreyndin er
sú að flestar upplýsingar
varðandi slíkt álver liggja fyr-
ir en undirbúningur að álveri
hér í Straumsvík í samstarfi
við Atlantal-hópinn hefur nú
verið í gangi í þrjú til fjögur
ár.
Samningaviðræöur Hafn-
firðinga með fulltrúum ríkis-
valdsins og fulltrúum Atlan-
tal-hópsins hafa verið prýðis-
góðar og eru komnar vel á
veg. Mjög fáum spurningum
er í reyndinni ósvarað vegna
slíks álvers þó að sjálfsögðu
eigi eftir að fara ofan í saum-
ana á ýmsum smærri atrið-
um. Prátt fyrir að nýr sam-
starfsaðili sé nú kominn inn í
Atlantal-hópinn, þ.e. Alumax
í stað Aluswiss, þá breytir þaö
náttúrlega ekki allri ytri um-
gjörð málsins. Þ.e.a.s. þeim at-
riðum sem snúa að Hafnar-
firði og þeirri aðstöðu og
þjónustu sem bærinn kemur
til með að láti í té. Þar á ég við
hafnaraðstöðu, land, vatn og
holræsi, samgöngumál og
menn hafa náttúrlega skipst
á skoðunum um skattamál.
Þess vegna sé ég ekkert því til
fyrirstöðu að hægt væri að
ganga frá samkomulagi um
slíka uppbyggingu á tiltölu-
lega mjög skömmum tíma
hér í Straumsvík," sagði Guð-
mundur Árni að lokum.
þegar sameiginleg yfirlýsing aðila um ásetning aö Ijúka byggingu álvers var undirritud í gœr
Islandi
íkref
„Vid hlökkum til að und-
irrita samninginn, sagði
Max Koker framkvæmda-
stjóri Hoogovens skömmu
fyrir undirritun samnings-
ins um nýtt álver á Islandi,
— eða sameiginlegrar yfir-
lýsingar aðilanna. Ljóst er
að með þessum undir-
skriftum var stigið stórt
skref fram á við í stóriðju-
málum okkar. Ekki að
undra að létt var yfir iðn-
aðarráðherra, Jóni Sig-
urðssyni sem lagt hefur
mikla vinnu í farsæla
lausn þessa máls. „Til þess
erum við hér að kanna
möguleika á staðsetningu
nýs álvers og það er alls
ekki tímabært að segja
nokkuð um það frekar að
svo stöddu,“ sagði Koker,
forstjóri hollenska fyrir-
tækisins ennfremur.
Hina sameiginlegu yfirlýs-
ingu um ásetning um að ljúka
byggingu nýs álvers hér á
landi undirrituðu Jón Sig-
urðson, iðnaðarráðherra fyr-
ir hönd íslands og Paul
Drack, aðalforstjóri Alumax,
Per O. Aronsson, forstjóri
Gránges, og Max Koker, fram-
kvæmdastjóri Hoogovens Al-
uminium.
Með undirrituninni er
formlega staðfest aö Alumax
mun taka þátt í Atlantal-verk-
efninu um að reisa hér á landi
nýtt álver.
Yfirlýsingin staðfestir allt
það er fram hefur komið um
málið í Alþýðublaðinu aö
undanförnu. I henni staöfest-
ir iðnaðarráðherra vilja is-
lenskra stjórnvalda til þess að
stuðla að nýtingu innlendra
orkulinda með aukinni ál-
framleiöslu á íslandi. Alu-
max, Gránges og Hoogovens
staðfesta áhuga sinn á því að
efla álframleiðslu sína meö
því að byggja nýtt álver á ís-
landi.
Eftir er að ganga frá samn-
ingum um skattamál og lausn
ágreiningsefna, orkusölu-
samning, lóðar- og hafnar-
samning við hlutaðeigandi
sveitarfélag meðal annars.
Stefnt er að því að reisa álver
með 200.000 tonna fram-
leiðslugetu á ári er geti hafið
rekstur á árinu 1994.
Gert er ráð fyrir að eignar-
hlutur Alumax í nýju álveri
verði stærstur eða á bilinu
30—40% en hlutur hinna fyr-
irtækjanna tveggja á bilinu
25—35% hvors um sig. Undir-
ritun endanlegra samninga
verður háð samþykki Alþing-
is.
Stefnt er að því að taka
ákvörðun um staðsetningu
álversins fyrir lok mai 1990
og öllum samningum fyrir
20. september sama ár. iðn-
aðarráðherra hyggst leggja
fyrir Alþingi í október frum-
varp til heimildarlaga vegna
álvers og að málið fái af-
greiðslu fyrir árslok. Álfyrir-
tækin munu afla samþykkis
viðeigandi stjórna í síðasta
lagi um eða strax eftir næstu
áramót.