Alþýðublaðið - 14.03.1990, Síða 7
Miðvikudagur 14. mars 1990
7
ÚTLÖND
„Gulldrengurinn" Mark Spitz
Enginn hefur ennþá slegið met Spitz að vinna sjö gull-
verðlaun á Olympíuleikunum í Munich áriö 1972. Hann varð
heimsfrægur fyrir vikið og þar sem hann þótti með afbrigð-
um myndarlegur gaf það auga leið að hann fengi tækifæri
til að leika í kvikmyndum. Ekki tókst honum að slá í gegn
sem leikari eða annaö í skemmtanalífinu.
Margir hafa velt
því fyrir sér hvaö
sundstjarna
Bandaríkjanna á
Ólympíuleikunum
1972 hafi fyrir
stafni
Nú er hann vel efnaður kaup-
sýslumaður sem rekur fyrirtæki
sem framleiðir íþróttafatnað undir
sérstöku merki. Hann býr ásamt
konu og syni rétt hjá Los Angeles.
Hann lifir mjög þægilegu lífi en
hefur lagt sundið á hilluna, hefur
ekki einu sinni synt i sinni eigin
sundlaug.
Þess vegna vakti það mikla
undrun þegar það fréttist að hann
hefði í hyggju að keppa á Ólym-
píuleikunum í Barcelona árið
1992.
Bandarískur blaðamaður innti
hann eftir því hvort þetta væri
satt.
,,Svo sannarlega! Mér fannst
það lét geggjuð hugmynd fyrst
þegar mér datt þetta í hug, en svo
fór ég að kynna mér málin. Sund-
menn í dag synda hraðar en ég
gerði á sínum tíma — en tími minn
í flugsundi er ennþá samkeppnis-
fær. Það ætti líka að verða auð-
veldara fyrir mig ef ég tek aðeins
þátt i einni keppnisgrein.”
Blaðamaðurinn spurði hann
hvort hann hefði haldið sér í þjálf-
un, skokkað eða stundað líkams-
rækt.
„Ekki aldeilis. Ég hefi ekki einu
sinni stigið á vigtina. Metin sem ég
setti 1972 voru ekki slegin út fyrr
Mark Spitz sem vann til sjö gullverðlauna áriö 1972 ásamt Susan konu
sinni og áttu ára syni.
en árið 1984. Ég er sannfærður
um að ég get synt jafn hratt og
1972 — ef ekki hraðar, og ég held
að það muni koma mér til góða að
hafa ekki slitið mér út með of
miklum æfingum. Nú syndi ég um
tvær og hálfa klukkustund á dag
og viðurkenni að ég er mjög þreytt-
ur á kvöldin pg þarf meiri svefn en
ég þurfti. Ég held að enginn
hneykslist þó þetta takist ekki hjá
mér, en margir segja að sundmenn
séu búnir að vera um þrítugt. Mig
langar til að sanna að svo sé ekki.“
SJÓNVARP
Stöð 2 kl. 20.30
LANDSLAGIÐ
Að þessu sinni verður flutt lag eftir
Halldór Lárusson og ívar Halldórs-
son, Gluggáást heitir það lag og
flytjendur eru þau Helga Möller og
ívar Halldórsson, Magnús Kjartans-
son útsetti lagið.
Sjónvarpið kl. 20.35
GESTAGANGUR
Að þessu sinni tekur Ólína Þorvarð-
ardóttir á móti hjónunum Jóni Bald-
vin Hannibalssyni og Bryndísi
Schram og væntanlega verður sleg-
ið á léttari strengina. Ólína er reynd-
ar vel kunnug þeim hjónum, hún
skráði bókina um Bryndísi fyrir á að
giska tveimur árum og var reyndar
nemandi þeirra hjóna vestur á Isa-
firði á sínum tíma.
Sjónvarpið kl. 21.15
UTLAGINN**,/2
íslensk kuikmynd, gerd 1984, leik-
stjóri Agúst Guömundsson, adal-
hlutuerk Arnar Jónsson, Tinna
Gunnlaugsdóttir, Ragnheiöur Stein-
dórsdóttir, Þráinn Karlsson, Helgi
Skúlason.
Mynd um frægasta útlaga íslands-
sögunnar, Gísla Súrsson og örlög
hans. Myndin þykir í þokkalegasta
lagi ef miðað er við íslenskar kvik-
myndir, hún er gerð í árdaga ís-
lenskrar kvikmyndunar þrátt fyrir
að hún sé ekki gömul. Það sem eink-
um kann að vefjast fyrir fólki er
söguþráðurinn, þ.e. ef menn þekkja
ekki til Gísla sögu og kunna ekki
einhver skil á þeim anda sem hér
ríkti til forna, svosem eins og hefnd-
arskyldunni og því um líku. En þessi
mynd er vissulega í hópi betri kvik-
mynda sem hér hafa verið gerðar, í
flestum tilfellum ágætlega leikin og
leikstýrt af metnaði.
Stöð 2 kl. 23.05
SÆLURÍKIÐ**
(Heavens Gate)
Bandarísk bíómynd, gerd 1980, leik-
stjóri Michael Cimino, adalhlutuerk
Kris Kristofferson, Christopher
Walken, Sam Waterston, Brad Dou-
rif, Isabelle Huppert, Jeff Bridges,
John Hurt, Joseph Cotton.
Ein af dýrustu myndunum sem
Hollywood hefur gert, enn þann
dag í dag og — því miður, ein af
þeim misheppnuöustu. í myndina
vantar nefnilega lykilatriðið, sögu-
þráð. Mestanpart fjallar hún um bar-
áttu innflytjenda í Wyoming á 19du
öld við Bandaríkjamenn sem vilja
koma þeim burt, þar sem þeir
standa í veginum fyrir uppbyggingu
heimsveldis. Myndatakan þykir
rúmlega stórkostleg og sviðsmynd
og tökustaðir aldeilis frábærlega
gert, rétt eins og búningar og öll ytri
umgjörð. En það dugar bara ekki til,
söguþráðurinn er bara ekki fyrir
hendi og einhvern veginn rennur
myndin öll út í sandinn þegar á hana
líður. Þetta var slys, rétt eins og Isht-
ar þeirra Warren Beatty og Dustin
Hoffman. Samt, svona fyrir forvitn-
issakir mestanpart, er örugglega
gaman að gjóa augum á myndina.
0' JF Jí STOO-2
17.50 Töfraglugginn (20| 15.30 Góðir vinir (Such Good Friends) Gamanmynd við allra hæfi 17.05 Santa Barbara 17.50 Fimm félagar
1800 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn Umsjón Stefán Hilmarsson 18.15 Klementina 18.40 í sviðsljósinu !
1900 19.20 Umboðsmaöur- inn (1)Nýr bandarískur gamanmyndaflokkur. Ungur maður gerist óvænt umboðsmaður sérviskulegra skemmtikrafta 19.50 Bleiki pardusinn 20.00 Fréttir og veður 20.35 Gestagangur Ólína Porvarðardóttir spjallar að þessu sinni við hjónin Bryndísi Schram og Jón Baldvin Hannibalsson 21.15 Útlaginn íslensk kvikmynd frá árinu 1984, byggð á Gísla sögu Súrssonar 19.1919.19 20.30 Landslagið — Gluggaast Flytjendunl Helga Möller og ívar Hall- dórsson. Lag ívar Halldórsson. Texti: Halldór Kjartansson 30.35 Stórveldaslagui í skák 20.45 Af bæ i borg Gamanmyndaflokkur 21.15 Bilaþáttur Stöðvar 2 Umsjón Birgir Bragason 21.55 Michael Aspel Sjónvvarpsmaðurinn kunni spjallar viö þekkt fólk
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok 23.05 Sælurikið (Heaven's Gate) Raunsæ mynd sem lýsir baráttu Banda- rikjamanna við land- nema en þeir fyrr- nefndu vilja landnemana á bak og burt. Stranglega bönnuð börnum 01.35 Dagskrárlok