Alþýðublaðið - 24.03.1990, Page 7
Laugardagur 24. mars 1990
sem eldri kynslóðir hafa átt erfitt
með að kyngja oft á tíðum.
Hugmyndafræði fortíðarinnar
hefur aídrei verið gerð upp til
fullnustu, þýska þjóðin lifir enn
með skugga fortíðarinnar á herð-
unum og kemst ekki undan henni.
Það er ekki bara nazisminn, held-
ur og ekki síður kommúnisminn
sem alið hefur upp stóran hluta
þjóðarinnar og gert að verkum að
sumir þýskir þegnar hafa búið við
falskt atvinnuöryggi, enga sam-
keppni, niðurgreiðslur á nauðsynj-
um. Það getur orðið nokkuð
harkalegt þegar þessu fólki verður
harka samkeppnisheimsins ljós og
um leið verður það að horfast í
augu við algerlega nýjan sögu-
skilning, væntanlega meira og
minna kominn að vestan. Aust-
ur-Þjóðverjar hafa til að mynda
aldrei viljað viðurkenna sök á síð-
ari heimsstyrjöldinni, hafa skýlt
sér á bak við hlutverk kommún-
ismans í sigrinum á nazismanum,
Þeir eru mun styttra komnir í upp-
gjörinu en Vestur-Þjóðverjar. í
raun og veru rétt lagðir af stað.
Efnahagslegur samruni_
Hvernig reisa menn efnahag
Austur-Þýskalcinds við er spurning
sem oft er spurt. Þýðir sú viðreisn
ekki aukna skatta og mun almenn-
ingur í Vestur-Þýskalandi sættast á
það. Aðrir benda á að viðreisnin
muni fyrst og fremst koma frá
einkafjármagninu sem sér hag í
því að dæla fé inn í Austur-Þýska-
land og svo enn austar, til þess að
búa til markað fyrir eigin vörur. í
þessu tilliti eru Þjóðverjar í lykil-
stöðu í Evrópu, þeir eru eina þjóð-
in sem hefur fjárhagslegt bolmagn
til að mæta þörfum sveltandi Aust-
ur-Evrópubúa, þeir búa yfir gríð-
arlegri tæknikunnáttu og þekk-
ingu á framleiðslu vara sem eru
notaðar í frum- og hverskyns nú-
tíma þungaiðnað, vörur sem ger-
valla Austur-Evrópu mun skorta á
næstu árum. Ogsíðast en ekki síst
hvað þetta varðar. Þýska sölu- og
markáðsvélin er sú sterkasta í
heimi, jafnvel Japanirnir standast
þeim ekki snúning. Það sést glögg-
lega þegar viðskiptajöfnuður
stærstu og ríkustu þjóða heimsins
er skoðaður. Hann er hvergi jafn
hagstæður og hjá Þjóðverjum sem
eru þekktir fyrir að flytja lítið inn
og treysta mjög á eigin fram-
leiðslu.
Lifskjör Austur-Þjóðverja eru
auðvitað langtum lakari en Vest-
ur-Þjóðverja. Úrslitin í kosningun-
um í Austur-Þýskalandi um síðustu
helgi benda til þess að Aust-
ur-Þjóðverjar sætti sig engan veg-
inn við þetta ástand lengur. Þeir
vilja njóta þeirra veraldlegu gæða
sem Vesturlandabúar hafa notið
um langan tíma. En hagvöxtur
Vestur-Þjóðverja, sem talinn er
geta orðið allt að 3% á ári á lOda
áratugnum, grundvallast fyrst og
fremst á markaðskerfi þar sem
nýjasta tækni, gott skipulag og
metnaður til að gera stöðugt betur
er drifkrafturinn. Þetta eru Aust-
ur-Þjóðverjum ný hugtök og
þeirra hagkerfi er á brauðfótum,
vörur þeirra ekki samkeppnishæf-
ar, hvorki í verði né að gæðum.
Þetta þurfa Vestur-Þjóðverjarnir
að laga og það mun taka þá tíma
Þjóðar-
framleiðsla
ó mann
Bandaríkin
$ 19.770
Japan
$ 14.340
Sameinað
Þýskaland
$ 13.987
Sovétríkin
$ 8.850
Sundkeppni á Ólympíuleikjunum í Seoul 1988. Aústur-þýska sunddrottn-
ingin Kristin Otto 2. frá vinstri. Ef þýsku ríkin hefðu keppt undir einum fána
i Seoul hefði landið hlotið flest verðlaun allra landa á leikjunum. Nú spyrja
menn sig, tekst að viðhalda þessu eftir að ríkisstyrkir Austur-Þjóðverja til
íþrótta, sem voru gífurlegir, leggjast af.
og kosta fé. Oscar Lafontaine,
kanslaraefni jafnaðarmanna hefur
t.d. varað við afleiðingum þess ef
austur-þýskum iðnaði verður hent
útí almenna samkeppni; það muni
einfaldlega þýða að hann bíði af-
hroð, verði undir og fólk missi at-
vinnu í stórum stíl.
Hið stöðuga Þýska mark
Hvað sem þessu öllu líður, hug-
myndafræðilegu uppgjöri, fortíð-
inni og því hvernig til tekst þegar
raunverulega verður farið að
spyrða saman þýsku ríkin, er ljóst
að ef allt gengur að óskum verður
til nýtt stórveldi í þjóðasamfélag-
inu. Stórveldi sem byggir á sterk-
um efnahag, miklu þjóðarstolti og
metnaðarkennd. Stórveldi sem
stendur sterkt á öllum sviðum
mannlífsins, listum, menningu,
íþróttum, skólakerfi o.s.frv. Hvern-
ig það síðan kemur til með að að-
lagast og hafa áhrif á hina evr-
ópsku sameiningu, á efnahag ann-
arra ríkja, eins og t.d. Bandaríkj-
anna og samkeppnisstöðu Japana,
verður að koma í ljós þegar fram
í sækir. Wolf Bierman, hinn þekkti
austur-þýski trúbador, sagði eftir
kosningarnar í Austur-Þýskalandi
að breyta ætti þjóðsöng Þjóðverja
í D-Mark, D-Mark úber alles. Það
a.m.k. ljóst að hið stönduga og
óhagganlega D-Mark verður
styrkasta stoðin undir hið nýja
veldi í Evrópu og heiminum. Samt
munu Þjóðverjar væntanlega enn
um sinn stöðugt þurfa að sýna
fram á að Þýskaiand nútímans er
ekki það Þýskaland sem hóf síðari
heimsstyrjöldina. Við hana losna
þeir aldrei.
Byggt á Newsweek og fleiru
cngir
tveir einstaklingar
eru eins!
í okkar augum er munurinn augljós.
Viögerum okkur glögga grein fyrir því aö einstaklingar eru
eins ólíkir og þeir eru margir. Og því er þörfin fyrir fjármálaþjónustu
mjög mismunandi.
Þetta er staöreynd sem starfsfólk íslandsbanka
hefur aö leiöarljósi ísínu starfi.
Islandsbanki mœtir því kröfum markaöar- ^
ins meö nýjungum og persónulegri þjónustu sem
einkennist af þekkingu, vandvirkni og lipurö.
Þess vegna njóta einstaklingar góös af
þjónustu íslandsbanka.
ISLANDSBANKI
- í takt við nýja tíma.
Vibskiptanet Islandsbanka: Fyrir utan þá 37 afgreiöslustabi sem íslandsbanki starfrœkir eru Verbbréfamarkabur
íslandsbanka hf. og fjármögnunarfyrirtœkib Clitnir hf.dótturfyrirtæki bankans. Einnig er íslandsbanki eignarabili ab
EurocardVisa, Fjárfestingarfélaginu og Féfangi.