Alþýðublaðið - 24.03.1990, Page 12
ALÞYÐUBLAÐIÐ
PRESSAN
FAX 82019
MHimitmiiii
Laugardagur 24. mars 1990
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRN
O
681866-83320
Vestfirdingar vilja
allt til vinna ad fá
göng:
Aukagjaldið
kostar sama
og Mogginn
- 67 daga
Vestfirðingar geta, sé
það talinn nauðsynlegur
þáttur í að flýta jarðganga-
gerð, fallist á að innheimt
verði sérstakt aukagjald af
bensíni og brennsluolíu á
ðkutæki og vinnuvélar á
svæðinu. Þetta er nefni-
lega samþykkt Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga.
Telur stjórn sambandsins
að eigendur ðkutækja
muni í reynd spara þrátt
fyrir sérsköttun, eldsneyt-
isnotkun minnki, að ekki
sé talað um slit á bílum og
tækjum.
Vestfirðingar hafa gert sín
heimadæmi og segja sem svo
að munurinn á því að greiða
slíkt gjald yrði ekki mikill.
Reikna þeir með 6000 km
akstri á ári og 12 lítra eyðslu
á hverja 100 kílómetra. Sá
ökutækiseigandi þyrfti að
greiða 2.250 krónur aukalega
í sérstakan bensínskatt, —
sama og fyrir 67 daga áskrift
að Mogganum.
Hallgríms-
kirkja
matstaður
Hallgrímskirkja
tekst á við nýtt hlut-
verk nk. fimmtudag
þegar þar verður boðið
upp á opinn matarfund
í hliðarsal. Miðaustur-
lenskur matur er uppi-
staðan en á matseðlin-
um eru m.a. pítur, fala-
fel o.fl. Þetta er vænt-
anlega nýlunda í kirkj-
um landsins en þar hef-
ur hingað til mestan
part verið boðið upp á
messuvín og oblátur.
Það er vinafélagið ís-
land-ísrael sem fyrirhug-
ar að standa fyrir þessum
fagnaði í kirkjunni og í
fréttatilkynningu frá fé-
laginu segir að félags-
menn og gestir séu vel-
komnir, því fleiri — því
skemmtilegra, stendur
þar.
VEÐRIÐ
í DAG
Allhvöss norölæg eða
norðvestlæg átt um mest-
allt and og snjókoma eða
éljagangur um norðanvert
landiö, en úrkomulítið
syðra. Gert er ráð fyrir að
um hádegisbilið bari að
lægja og undir kvöld má
búast við að vindur snúist
til suðlægrar áttar. Frost
verður á bilinu 2—8 stig.
Fimm mánaöa greiðslustödvun Eldeyjar að Ijúka:
Vantar 30 millj-
ónir I nýtt hlutafé
Almennur hluthafa-
fundur í útgerðarfélag-
inu Eldey á Suðurnesjum
sem haldinn verður í
dag, gerir sennilegast út
um það hvort félagið
heldur áfram starfsemi
sinni eða lýsir yfir gjald-
þroti. Á morgun, sunnu-
dag, lýkur 5 mánaða
greiðslustöðvun félags-
ins og undanfama mán-
uði hafa forsvarsmenn
þess leitað með logandi
Ijósi að nýju hlutafé svo
hægt væri að halda fé-
laginu gangandi. For-
svarsmenn félagsins
telja að 30 milljónir vanti
upp í nýju hlutafé svo At-
vinnutryggingasjóður
komi útgerðinni til að-
stoðar.
Samkvæmt upplýsingum
sem Alþýðublaðið aflaði
sér hjá Eldey í gær hefur
Atvinnutryggingasjóður
gefið vilyrði um að koma
félaginu til aðstoðar að
uppfylltum vissum skilyrð-
um. Fyrst og fremst því að
eigið fé verði aukið en enn-
fremur að félagið yrði rekið
með það í huga að alltaf fá-
ist hæsta verð fyrir aflann.
Sem fyrr segir hafa for-
svarsmenn Eldeyjar leitað
logandi ljósi að nýju hlutafé
á undangengnum mánuð-
um. Örn Traustason hjá
Eldey sagði menn ekki gera
sér alveg grein fyrir því
hvort það fé sem þurfi
myndi nást en sagði aö
hlutafjársöfnunin hefði
gengið framar öllum von-
um. Það kemur í Ijós á hlut-
hafafundinum í dag og þar
með ræðst framtíð fyrir-
tækisins.
Eldey var stofnsett 1987
til að verða einskonar sam-
einingarafl í útgerð á Suður-
nesjum, eigendur félagsins
eru fjölmargir og markmið-
ið í upphafi var að félagið
keypti skip sem annars
þyrfti að selja frá Suður-
nesjum svo svæðið missti
ekki kvóta. Vegna ónógrar
fyrirgreiðslu komst félagið
aldrei á þann skrið sem
þurfti og hefur barist í
bökkum allt frá stofnun.
Eldey gerir út sem stend-
ur tvo báta á línu, Eldeyj-
ar-Boða og Eldeyjar-Hjalta
og samkvæmt upplýsing-
um Arnctf Traustasonar hjá
Eldey, hefur gengið mjög
vel hjá þeim það sem af er
þessu ári, aflaverðmæti
þeirra upp úr sjó er nærri
50 milljónir á tveimur
fyrstu mánuðum ársins.
Bátarnir hafa lagt upp hjá
Fiskmarkaði Suðurlands og
selt svo afla erlendis einnig.
Landsbanlcinn gerði það gott
Þeir Landsbankamenn
mega vel við niðurstöðu
síðasta rekstrarárs una, —
bankinn skilaði 223.4
milljón króna hagnaði það
ár, og stórbætti stöðuna
frá árinu á undan, þegar
varð 117 milljón króna
hagnaður.
Aðrar tölur hjá Landsbank-
anum eru viðlíka glæsilegar,
— heildareignir upp á 81,4
milljarða, sem er 24,1%
aukning milli ára. Eigið fé var
5.032 milljónir króna. Á
myndinni má sjá Jón Sigurðs-
son, viðskiptaráðherra stað-
festa ársreikning bankans
með undirskrift sinni. Lengst
til vinstri á myndinni er
bankaráðsformaðurinn, Eyj-
ólfur K. Sigurjónsson, þá Jón
Sigurðsson, Björn Friðfinns-
son og Friðrik Sophusson.
Alþingi fékk adgengibúnad fyrir fatlaöa ad gjöf:
Hvar er gjöfin niðurkomin?
Lesandi einn hafði sam-
band við blaðið vegna mynd-
ar og fréttar um slæmt að-
gengi fatlaðra í Alþingishús-
inu. Hann sagði að í raun
væri til búnaður hjá Alþingi
til að auðvelda fötluðu fólki
að komast upp hina háu stiga
hússins.
„Það var SÍBS sem gaf
stofnuninni eins konar skrið-
dreka, — tæki á beltum, sem
notað er af fötluðu fólki til að
komast upp stiga. Þessi bún-
aður var afhentur forseta
sameinaðs þings og skrif-
stofustjóra þingsins með
pomp og prakt fyrir nokkrum
árum," sagði lesandinn.
Þeir SÍBS-menn höfðu þá
að orði að nú væri hlutum
snúið við, áður hefðu þeir oft
leitað til þingsins um styrki til
starfseminnar, — nú kæmu
þeir færandi hendi. Var vel
tekið í það og boðið til kaffi-
drykkju.
En núna nokkrum árum
seinna er þessi skriðdreki Al-
þingis líklega gleymdur og
núverandi húsbændur vita
líklega ekki að þessi búnaður
er í eigu þingsins. Hvernig
væri að dusta rykið af hon-
um?
ÍSLAND
Hitastig í nokkrum iandshlutum kl. 12 í dag
Fólk
„Talið er víst að þetta
verði það fyrsta sem Hall-
dór þarf að bakka með,“
segir í Sjómannablaðinu.
Þar er verið að ræða um
bann Halldórs Ásgríms-
sonar við útflutningi á
hausuðum og flöttum
fiski. Segir blaðið að til
þessa hafi Halidór staðið
allt af sér, enda sé hann
þrautseigur og þrár með
afbrigðum. „Sumir kalla
hann síðasta „Bjart í Sum-
arhúsum" sem eftir er í-
pólítíkinni," segir blaðið.
★
Löggan á Sauðárkróki er
á kafi í pólitík lesum við í
Feyki. Spyr blaðið í góð-
■ látlegum tón hvort lög-
regluríki sé í uppsiglingu.
Birgir Hreinsson er í 3.
sæti hjá krötum, Svein-
björn nokkur er talinn lík-
legur kandídat hjá íhald-
inu og síðan er sagt að
þeir Björn Mikk og Gud-
mundur Páls séu sagðir
berjast um sæti ofarlega
hjá Framsókn. Semsagt
pólitík hjá pólitíinu!!
★
Framarar fagna því 21.
apríl að nú eru liðin 50 ár
síðan félagið tók að iðka
þjóðarsportið, handknatt-
ieik. Á þessari hálfu öld
hafa þúsundir Framara
kastað tuðrunni sín á milli
og í mark andstæðing-
anna. Án efa munu marg-
ir þeirra mæta í félags-
heimili Fram við Safa-
mýri í afmælishófið og
rifja upp gamlar minning-
ar.
★
„Staðreyndin er sú að sá
sem býður óeðlilega lágt í
verk kemst upp með að
skila lélegu verki. Það er
ekki leiðin til að byggja
upp íslenskan iðnað," seg-
ir Hreinn Frímcmnsson
verkfræðingur hjá Hita-
veitu Reykjavíkur í viðtali
við blaðið Iðnaðurinn. í
blaðinu er verktakastarf-
semi landsins tekin til sér-
stakrar meðferðar.
t