Alþýðublaðið - 30.03.1990, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 30. mars 1990
UMRÆÐA
Landgræðsla eða skógrækl
Mér var heldur betur
brugöiö er ég sá í fjölmiöl-
um að heill hópur virtustu
rithöfunda, skálda, lista-
manna og fræöimanna
þjóðarinnar ætluöu að
leggja fram efni í bók
(YRKJU) og á sá ágóöi af
henni aö renna til kaupa á
trjáplöntum til gróöursetn-
ingar af grunnskólanem-
endum svo og aö hlúa að
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-1. fl. 15.04.90-15.04.91 kr. 2.598,14
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS
DAGUR JARDAR 22. APRlL
Móðir jörð á undir
högg að sælq'a
Áttþú góða hugmynd sem getur nýst henni?
Umhverfisvernd skiptir meira máli nú en nokkru sinni fyrr.
Ef maðurinn heldur áfram að misnota jörðina mun hann á endanum
gera hana óbyggilega.
Við þurfum að snúa vörn í sókn - með sameiginlegu átaki. Til þess þarf
góðar hugmyndir. Því hefur umhverfismálaráð Reykjavíkurborgar
ákveðið að setja á stofn hugmyndabanka vegna „DAGS JARÐAR“,
alþjóðlegs umhverfisvemdardags 22. apríl næstkomandi. Þar gefst
borgarbúum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum,
tillögum og ábendingum um úrbætur sem geta orðið til að bæta
umhverfi okkar.
Með hugmyndabankanum vill umhverfismálaráð Reykjavíkur kalla á
jákvæðar og framsýnar hugmyndir um úrbætur í nánasta umhverfi
borgarbúa. Umhverfismálaráð mun fara ítarlega yfir allar tillögur sem
skilað verður í hugmyndabankann og hrinda í framkvæmd eftir því sem
kostur er og nánar verður ákveðið.
Hugmyndum og tillögum skal skila fyrir 22. apríl merktum:
Dagur jarðar
Hugmyndabanki
Skúlatúni 2,
105 Reykjavík.
UMHVERFISMÁLARÁÐ REYKJAVÍKUR
gróöri og lífi. Þetta er allt
gott og gilt, nema aö
Landgræðslu ríkisins er
hvergi getið.
Ég hef verið áhugamaður um
landgræðslu um árafjölda og hef
hrifist af fyrrum landgræðslu-
stjóra Páli Sveinssyni og núver-
andi landgræðslustjóra Sveini
Runólfssyni, fyrir þeirra miklu
starfa að landgræðslumálum þrátt
fyrir naumt skammtað fé. Nægir
þar að nefna alla þá sanda í Rang-
árvallasýslu er ræktaðir hafa verið
upp fyrir forgöngu landgræðsl-
unnar. Þetta framlag til okkar
lands hefur verið svo mikið á und-
anförnum árum að undrun sætir,
en virðist samt ekki njóta sann-
mælis, hvorki af almenningi né
hinu háa Alþingi, sem ekki hefur
veitt nægilegt fé til þessara góðu
mála. Nægir þar að minna á að við
eigum nú flugvél sem getur dreift
áburði og fræi í miklum mæli en er
illa nýtt. Þarna þarf að gera stór-
átak og þætti mér sem leikmanni
ekki útilokað að minnsta kosti
helmingur af ágóða YRKJU færi til
landgræðslunnar til uppgræðslu.
Flugmenn Flugleiða eiga sérstak-
ar þakkir skilið fyrir þeirra fram-
lag með því að fljúga flugvélinni til
áburðar og frædreifingar endur-
gjaldslaust. Ég er handviss um að
þeir væru til umræðu til frekari
starfa að þessum málum.
Draumur minn um áraraðir hef-
ur verið sá að hið háa Alþingi taki
á sínum stóra og sameini skóg-
rækt og landgræðslu í eitt undir
stjórn landgræðslustjóra (Hall-
ormsstaður gæti orðið útibú frá
Gunnarsholti) því þannig mætti
nýta fjármuni betur í alla staði og
gera allt landgræðslustarf mark-
vissara.
Skógræktarmenn hafa svo tröll-
riðið þjóðinni í fjölmiðlum og á
mannamótum undanfarin ár, að
það virðist sem landsmenn telji
það einu og sönnu landgræðslu.
Þessu hugarfari verður að breyta
og sýna þjóðinni að fyrst og fremst
verður að græða landið upp með
áburðar og frægjöfum.
Vona ég að þessi skrif mín verði
„Skógræktarmenn hafa svo tröll-
riðið þjóðinni í fjölmiðlum og á
mannamótum undanfarin ár, að
það virðist sem landsmenn telji
það hina einu og sönnu land-
græðslu. Þessu hugarfari verður að
breyta," segir Björn Stefánsson
m.a. í umræðugrein sinni.
til þess að forráðamenn YRKJU
sjái sér fært að færa þjóðinni fé í
landgræðslu, svo og að hið háa Al-
þingi sameini skógrækt og land-
græðslu, jafnframt því að auka fé
til hennar.
(Höfundur er fyrrverandi skrifstofu-
stjóri)
Björn Stefánsson
skrifar
Fiskvmnslufólk
mótfallið kvótasölu
„Fiskvinnslufólk er mótfallið
hverskonar sölu ó aflakvóta
skipa eins og fram hefur komið í
athugasemdum fulltrúa VMSÍ í
nefnd um stjórn fiskveiða. Fund-
urinn felst á að heimilt sé að
flytja aflaheimildir milli skipa
sömu útgerðar og milli skipa
innan sama byggðarlags", segir í
ályktun sem gerð var á fundi
deildar verkafólks í fiskvinnslu
innan Verkamannasambands ís-
lands um síðustu helgi.
í ályktuninni segir ennfremur:
„Jafnframt fellst fundurinn á að
heimilt sé að skipta á veiðiheimild-
um einstakra tegunda, enda sé um
jöfn skipti að ræða. Að öðru leyti
verði sala aflaheimilda bönnuð.
Verði hinsvegar leyfð sala á afla-
kvóta í andstöðu við álit fundarins,
krefst hann þess að viðkomandi
stéttarfélög og sveitarstjórnir verði
umsagnaraðilar um söluna áður en
heimild til flutninga er gefin".
Á fundinum var tilkomu Aflamiðl-
unar fagnað, með henni verði fisk-
vinnslustöðvum í landi tryggt hrá-
efni, — og útflutningi stýrt á þann
veg að ekki skapist offramboð á
mörkuðum erlendis.
Blaðamenn mótmæla
Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands hefur lýst yfir fyllstu van-
þóknun sinni á þeirri ákvörðun
írakskra yfirvalda að taka blaða-
manninn Farazad Basoft af lífi.
„Þetta óhæfuverk er á fulla
ábyrgð stjórnvalda í írak, sem hafa
verið upplýst af pyntingum og
morðum á minnihlutahópum og
stjórnarandstæðingum heima fyrir.
Jafnvel ungabörnum er misþyrmt
og þau myrt, samkvæmt nýlegum
skýrslum frá Amnesty Internation-
al“, segir m.a. í ályktun stjórnar
Blaðamannafélagsins.
Er bent á þá miklu hættu sem
fréttamenn leggja sig í oft og einatt
þegar þeir afla frétta í ríkjum eins og
Irak. Alþjóða blaðamannasam-
bandið hefur upplýst að nær tveir
tugir blaða- og fréttamanna hafi ver-
ið myrtir við störf sín á síðasta ári.
Leiðrétting
í fréttaskýringu á miðvikudaginn
um vinnudeiluna í Straumsvík, varð
sá ruglingur að Jakob Möller, starfs-
mannastjóri álversins, var í síðari
hluta greinarinnar kallaður Jóhann
Möller. Lesendur og ekki síður Jak-
ob og Jóhann Möller eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.