Alþýðublaðið - 29.05.1990, Síða 5
Þriðjudagur 29. maí 1990
5
NÆRMYND af Sigurjóni Sighvatssyni kvikmyndageröarmanni í Hollywood.
Ljúfur Skagamaður skorar
,,Hvort ég á mér draumamynd? Það er nú erfitt að
segja til um það. Alla vega er ekkert slikt verkefni
sem ég geng með i maganum alla daga. En ein af
minum uppáhaldsbókum er Sjálfstætt fólk og þegar
ég fann eintak af bókinni fyrir hendingu i húsi i Am-
eríku hugsaði ég með mér að þetta væri engin tilvilj-
un. Enda hef ég alltaf verið hjátrúarfullur eins og
aðrir íslendingar og ef til vill geri ég kvikmynd um
Sjálfstætt fólk áður en yfir lýkur," sagði Sigurjón
Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi er Alþýðu-
blaðið náði sambandi við hann þar sem hann var
staddur i Frakklandi.
Segja má að þessi ummæli Sig-
urjóns sýni betur en flest 'annað að
þrátt fyrir að hann hafi búið árum
saman í Ameríku og öðlast frægð
og frama er hann íslendingur eftir
sern áður. En það er langt bil á
rnilli Bjarts í Sumarhúsum og
fólksins hans og þess lífs sem fjall-
að er um í kvikmyndinni ,,Wild at
Heart" sem hlaut Gullna pálmann
í Cannes. Fyrirtæki Sigurjóns,
Propaganda Films, er framleið-
andi myndarinnar en hún fjallar
um flótta tveggja elskenda um
Ameríku undan lögreglu og leigu-
morðingja. Gullni pálminn þykja
ein virtustu verðlaun kvikmynda-
heimsins..
Agaður og viljasterkur
Sigurjóri Sighvatsson er ekki
nema 37 ára gamall og hefur verið
búsettur í Bandaríkjunum í 11 ár.
Fyrir fjórum árum stofnaði hann
fyrirtækið Propaganda Films
ásamt félaga sínum Steve Golin.
Það er nú orðið vel þekkt á sínu
sviði og með verðlaunaveiting-
unni Cannes er fyrirtækið komið í
hóp þeirra þekktustu í kvik-
myndaheiminum. A síðasta ári
var velta Propaganda Films sem
svarar hátt í fjórir milljarðar ís-
lenskra króna og ,,Wild at Heart"
kostaði sem samsvarar 800 millj-
ónum króna. En það er engin til-
viljun að Sigurjón hefur náð svo
langt.
Birgir Hrafnsson markaðsstjóri
hjá Ólafi Laufdal hefur lengi þekkt
Sigurjón og á sínum tíma spiluðu
þeir saman í popphljómsveitinni
Ævintýri.
„Strax á þessum tíma skar Sig-
urjón sig nokkuð úr vegna þess
hve hann hafði mikinn sjálfsaga —
hann var mjög ábyrgðarfullur
samfara metnaðargirni og sam-
viskusemi. Músikin átti hug hans
allan á þessum árum og hann tók
hana mjög alvarlega eins og nám-
ið en hann var byrjaður í Verslun-
arskólanum á þessum árum. Þeg-
ar við hinir vorum að djamma í
miðri viku þegar við áttum frí sat
hann heima yfir námsbókunum.
Þegar við vorum að aka á milli
landshluta í hljómsveitarferðum
notuðum við tækifærið til að sofa
í rútunni — nema Sigurjón. Hann
sat með bassann sinn og hélt
áfram að æfa sig," sagði Birgir.
Hann sagði að þessi dugnaður
væri einkennandi fyrir Sigurjón
og hann skipulegði sinn tíma og
sína vinnu mjög vel. „Hann er
hamhleypa til vinnu. Ég heimsótti
hann í Los Angeles í fyrra og gisti
hjá honum eina helgi. Við fórum
út að borða á laugardagskvöldið,
en klukkan átta morguninn eftir
var Sigurjón farinn á fund og var
þar til hádegis. Þá fórum við út að
sigla með Finni Torfa en vorum
komnir að landi um klukkan fjög-
ur. Þá brá Sigurjón sér á annan
fund og var fram að kvöldmat. Sig-
urjón er skýrl dæmi um það, að
það er allt hægt ef viljinn er nógu
sterkur," sagöi Birgir Hrafnsson.
Hann sagði jafnframt að á þessum
árum hefði ekki verið hægt aö
merkja að Sigurjón hefði meiri
áhuga fyrir kvikmyndum en hver
annar.
Vinnan er heillandi
„Ég hef ekki fundið fyrir því að
ég vinni mikiö en eflaust er það
samt tilfelliö. En þessi kvikmynda-
vinna er min skemmtun og tíminn
því fljótur að líða. Hins vegar er ég
farinn að hugsa um aðra hluti líka
eins og eigin heilsu bæði andlega
og líkamlega," sagði Sigurjón er
hann var spuröur hvort hann væri
haldinn vinnufíkn. En hugsar
hann með söknuði til gömlu dai>-
anna í popphljómsveitum á ls-
landi?
„Nei, ég geri það ekki. Þetta var
skemmtilegt meðan á því stóð, en
það var mín gæfa að komast í
kvikmyndirnar. Það má segja að í
kvikmyndinni renni allar listgrein-
ar saman í eina heild og nýtast þar
með einum eða öðrum hætti. Ég
er ekki i þessari framleiðslu til að
verða ríkur og hef aldrei gert neitt
peninganna vegna. Peningar eru
hins vegar nauðsynlegt hreyfiafl
og þá ekki síst í kvikmyndafram-
leiðslu sem er mjög dýr. En pen-
ingar hafa í sjálfu sér lítið gildi fyr-
ir mig," segir Sigurjón ennfremur.
Hann sagði að Propaganda
Films skuldaöi ekki neitt. Þeir Ste-
ve tækju aldrei lán nema þá
skammtímalán sem væru svo
greidd upp. Það ætti sinn þátt í vel-
gengninni. Eflaust þætti þetta ein-
kennilegt á íslandi og raunar væri
þetta ekki í takt við þaö sem tíðk-
aöist í Ameríku heldur.
Télcu mikla áhættu___________
Sem fyrr segir kostaði verð-
launamyndin „Wild at Heart" um
800 milljónir króna sem kannski
þykir ekki svo mikið á amerískan
stórmyndamælikvaröa. Hinn
þekkti bandaríski leikstjóri David
Lynch leikstýrir og meðal leikara
eru Nicholas Cage, Diane Ladd,
Laura Dern og Isabella Rossellini.
„Viö tókum mikla áhættu með
þessari mynd því þær myndir sem
viö höfum framleitt fram að þessu
hafa ekki kostaö helming á viö
Tryllt hjörtu. Nei, við hefðum ekki
farið á hausinn þótt myndin hefði
mistekist. Við lögðum svona eina
milljón dollara undir sem var okk-
ar eigið áhættufé. Ef allt hefði far-
ið á versta veg hefði það auðvitaö
verið talsverður skellur og við
I
kvib
mynd•
unum
orðið að endurskoða okkar áætl-
anir. En þaö heföi ekki rústaö fyr-
irtækiö. Hér er ekki allt lagt undir
við eina mynd eins og tíökast á ís-
landi," sagði Sigurjón Sighvatsson.
Á síðasta ári gerði Propaganda
Films 120 myndbönd, 30 sjón-
varpsauglýsingar, á milli 10 og 15
lengri tónleikamyndbönd og þrjár
bíómyndir. Auk þess átta þátta
sjónvarpsmyndaröðina fyrir ABC
sem heitir „Twin Peaks". Sigurjón
sagði að sjónvarpsþættirnir heföu
hlotið mjög góðar viðtökur og bú-
ið væri að ákveöa fleiri þætti. Auk
þess væru tveir aðrir sjónvarps-
myndaflokkar í farvatninu.
Ekki þetta venjulega
ofheldi_____________
Skiptar skoðanir eru um verð-
launamyndina frá Cannes og vafa-
samt aö hún fáist sýnd óstytt í
Bandaríkjunum vegna ofbeldis-
og kynlífsatriða sem spila stóra
rullu. Sigurjón segir að „Wild at
Heart" sé listræn mynd. Eru þessi
umdeildu atriði þá listræn eða
bara sölubrella?
„Þetta er fyrst og fremst listræn
mynd og alls ekki hugsuö sem
sölumynd enda ekki framleidd
sem slík. Það var þess vegna sem
ég sagöi að viö hefðum tekið
mikla áhættu. Hér er heldur ekki
á ferðinni þetta venjulega ofbeldi
þar sem fólk er myrt í hrönnum,
heldur eiga þessar senur aö vekja
fólk til umhugsunar. Síöasti tangó
í París er viðurkennd sem listræn
mynd þó ýmsir hefðu horn i síðu
hennar til aö byrja með. Myndin
okkar er í anda David Lynch og
þaö má segja að hún sé beint fram-
hald af myndinni „Blue Velvet" þó
sögusviöið sé að sjálfsögðu ann-
að,“ sagði Sigurjón.
„Verðlaunin í Cannes færir okk-
ur mikla virðingu í kvikmynda-
heiminum, eða eins og David
Lynch sagði: „Þetta eru önnur
mikilsverðustu kvikmyndaverö-
laun heimsins." Þetta gefur okkur
gott orð og hjálpar mikið við að
markaðssetja myndina, sérstak-
lega í Bandaríkjunum. Kvikmynd-
in er áhrifamesti tjáskiptarniðill-
inn og nú unnum við með topp-
fólki," sagöi Sigurjón einnig.
Mjög vel liðinn_________________
Það kom fraiii í samtölum við
vini og kunningja Sigurjóns hér
heima aö hann er mjög vel liðinn
og vinsæll. Þykir ákveðinn og fast-
ur fyrir en ekki ósanngjarn.
„Það var eins og hann þyrfti
ekkert að hafa fyrir lærdómnum
þegar hann var í skóla en hann er
afskaplega duglegur og er nú að
uppskera árangurinn af dugnaöi
sínum. Viö vorum saman í Ævin-
týri á sínum tima og einnig unnum
við saman við að koma upp sýn-
ingunni Litla Hryllingsbúðin hér í
Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Þar nutu hæfileikar Sigurjóns sín
vel enda var þetta góð sýning sem
fékk mikla aðsókn," sagöi Björg-
vin Halldórsson hljómlistarmaður.
Björgin sagöist hafa sent honum
símbréf þegar hann frétti af verð-
laununum í Cannes: „Næst er það
Oskarinn" og sagði Björgvin aö
sér kæmi ekki á óvart að þetta
kæmi til með að rætast.
Lárus Ýmir Óskarson kvik-
myndaleikstjóri hefur starfaö með
Sigurjóni og lætur vel af því sam-
starfi. Nú síðast unnu þeir saman
aö kvikmyndun á Bílaverkstæöi
Badda. Lárus sagði að Sigurjón
byggi í gömlu húsi vestan hafs sem
Roy Rogers byggöi á sínum tíma,
en Sigurjón síðan endurbyggt.
„Hann lætur ekki velgengnina
stíga sér til höfuðs og tekur því
sem sjálfsögðum hlut aö vinna
meö heimsfrægu fólki. Síðast þeg-
ar ég var hjá honum voru Mad-
onna og Diane Keaton að eiga við-
skipti við hann," segir Lárus Ýmir.
Opnar skrifstofu i
London og Laxá biður
Sigurjón Sighvatsson sagði að
Propaganda Films væri búið að
opna skrifstofu í London og þar
störfuðu um 10 manns við að
framleiða tónlistarmyndbönd og
sjónvarpsauglýsingar. I athugun
væri að taka upp samstarf við fyr-
irtæki í Frakklandi en þar hlaut
ðnnur mynd Propaganda Films
önnur verðlaun þar sem spennu-
myndir kepptu um Koníaksverð-
launin. Þaö var myndin Kill me
again og er veriö aö markaössetja
hana í Evrópu og víðar. En er Is-
land ennþá „heim" í huga Sigur-
jóns?
„Það er nú oröið svolítið erfitt
að gera upp á milli Los Angeles og
íslands. En ég hugsa um heiminn
sem eitt smáþorp og því skiptir
kannski ekki öllu hvar maöur er.
En ég er ekki á leiöinni heim til að
setjast þar að, enda bjóða aðstæð-
ur í kvikmyndaheiminum þar ekki
upp á það. Ætli ég verði ekki ein
40 ár ennþá í þessu. Hins vegar
var ég dreginn í fyrsta sinn á lax-
veiðar heima í fyrra. Var í grenj-
andi rigningu og roki að berjast í
Laxá í Kjós. Eg hélt áður að þetta
væri bara fyrir einhverja kalla sem
vissu ekki hvaö þeir ættu við tím-
ann að gera.
En þessi ferö breytti þessu áliti
og ég á eftir að fara aftur í lax. Ég
hef alltaf komiö til íslands af og til
og þar er sonur minn búsettur,
hann Þórir, og ég er kvæntur ís-
lenskri konu sem heitir Sigríður
Þórisdóttir. Það er því engin hætta
á að tengslin við ísland rofni,"
sagði Sigurjón Sighvatsson.