Alþýðublaðið - 30.05.1990, Síða 5
Miðvikudagur 30. maí 1990
5
Hvað segja
efstu menn A-lista?
Alþýðuflokkurinn
kom víðast hvar nokkuð
vel út úr nýafstöðnum
sveitarstjómarkosning-
um þó gengi flokksins
hafi að sjáHsögðu verið
eitthvað misjafnt. Al-
þýðublaðið hafði sam-
band við ýntsa þó sem
skipuðu efstu sæti lista
Alþýðuflokksins viða
um land til að heyra i
þeim hljóðið. Hér ó sið-
unni getur að lita við-
brögð þeirra sem i núðist
við kosningaúrslitunum.
Borgarnes:
„Ég er þokkalega ánægður með
útkomuna hjá okkur hérna í Borg-
arnesi," sagði Eyjólfur Torfi Geirs-
son sem skipaði fyrsta sæti lista Al-
þýðuflokksins þar.
„Það má segja að við höfum
unnið varnarsigur. Við unnum
mann síðast og okkur tókst að
halda honum. Alþýðuflokkurinn
bauð hér fyrst fram árið 1970 og
hefur haft einn mann í bæjarstjórn
þar til á síðasta kjörtímabili. Við
höfum því fest okkur í sessi með
tvo menn."
Eyjólfur Torfi kvað þreifingar
um myndun meirihluta byrjaðar
en fráfarandi meirihluti féll. Auk
Alþýðuflokks eiga Framsóknar-
flokkur og Sjálfstæðisflokkur nú
tvo fulltrúa í bæjarstjórn. Taldi
Eyjólfur Torfi því líklegast að tveir
þessara þriggja myndu mynda
meirihluta en sjö fulltrúar sitja í
bæjarstjórn í Borgarnesi.
Hafnarfjörður:
Jóna Ósk Guðjónsdóttir sem
skipaði annað sæti lista Alþýðu-
flokksins hafði allt gott að segja
um úrslitin þar. „Við lögðum upp
meö að halda okkar fimm mönn-
um eftir stórsigurinn síðast. Undir
það síðasta var ég að vísu farin aö
gera mér vonir um að okkur tæk-
ist að ná inn sex mönnum og þar
með hreinum meirihluta og það
tókst. Ég var sannfærð allan tím-
ann að Alþýðubandalaginu tækist
að halda sínum fulltrúa inni.
Það má segja að þetta hafi verið
stórsigur meirihlutans því samtals
náðu A-flokkarnir sem að honum
stóðu um 60% fylgi. Þá er eftir-
tektarvert að Alþýðubandalagið
bætir við sig hérna á sama tíma og
það er að tapa alls staðar annars
staðar," sagði Jóna Ósk að lokum.
ísafjörður:
„Við erum vissulega vonsvikin.
Ég er ekkert að leyna því. Við
stefndum að því að halda okkar
þremur bæjarfulltrúum en það
tókst ekki," sagði lngibjörg Ágústs-
dóttir oddviti Alþýðuflokksins á
ísafirði.
„Fyrir því eru sjálfsagt ýmsar
ástæður. Viö vorum forystuafl í
fyrrverandi meirihluta og vorum
látin gjalda þess sem miður fór en
ekki samstarfsflokkar okkar. Þá er
augljóst að klofningsframboð
Sjálfstæðismanna, I-listinn, hefur
tekið eitthvað af fylgi frá okkur.
Þaö hefur þegar slitnað upp úr
viðræðum Sjálfstæðisflokksins og
í-listamanna. Við erum nú t við-
ræöum viö sjálfstæðismenn um
myndun nýs meirihluta en það er
of snemmt að spá um hver niður-
staðan af þeim viðræðum verður,"
sagði lngibjörg í viötali viö Al-
þýðublaðið.
Ólafsvík:
„Ég held að úrslitin hérna hafi
ekki komið mjög á óvart. Við unn-
un mjög óvænt tvo bæjarfulltrúa
hér síðast. Þá vissu menn lítið um
hvar einstaka flokkar stóðu því Al-
þýðuflokkur, Framsóknarflokkur
og Alþýðubandalag höfðu boðið
‘fram saman um langan tírna,"
sagði Sveinn Þór Elínbergsson
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Ól-
afsvík.
„Við töpuðum 32 atkvæðum og
það var nóg til þess að við misst-
um annan manninn. Það kom
ekki á óvart að Framsóknarflokk-
urinn skyldi vinna á en önnur úr-
slit komu okkur á óvart. Ég efast
þó um í Ólafsvíkingar hafi verið að
leggja blessun sína yfir kvótakerf-
ið með því að kjósa B-listann.
Annars erum við mjög bjartsýn-
ir hér á Ólafsvík. Við höfum ný-
stofnað bæjarmálaráð með óháð-
um borgurum og væntum mikils
af samstarfi við þá. Til okkar hefur
komið mikið af nýju og kraftmiklu
fólki til starfa þó svo við höfum
tapað manni núna kvíði ég ekki
framtíðinni."
Njarðvik:
„Ég er ekki nógu ánægður með
úrslitin hér í Narðvík hvað varðar
fjölda bæjarfulltrúa okkar Alþýðu-
flokksmanna. Við misstum einn af
þremur en undir venjulegum
kringumstæðum hefðum við átt
að halda okkar þremur fulltrúum
með yfir 35% greiddra atkvæða,"
sagöi Ragnar Halldórsson sem
skipaði efsta sæti A-listans í Njarð-
víkum.
„Kosningabaráttan var geysi-
lega hörð og spjótin stóðu á okkur
úr öllum áttum. Við unnum mik-
inn kosningasigur síðast og það er
alltaf erfitt aö halda slíku og allir
veitast gegn þeim stóra.
Ég tel það engu að síður mjög
gott að fá tæp 500 atkvæði. Okkar
fólk vann mjög vel í kosningabar-
áttunni og til liðs við okkur kom
mikið af ungu og nýju fólki. Við
munum því halda ótrauðir áfram
og framtíðin er björt," sagði Ragn-
ar i Njarðvíkum.
Garðabær:
„Við erum þokkalega ánægð
með okkar hlut og því að halda
okkar bæjarfulltrúa. Við vonuð-
umst að vísu eftir fleiri atkvæðum
en við fengum," sagði Helga Krist-
ín Möller sem var kosin i bæjar-
stjórn af A-listanum í Garðabæ.
„Við tókum ákveðna áhættu
með því að fara ekki í sameigin-
legt framboð með hinum minni-
hlutaflokkunum en það hefur sýnt
sig að það var hárrétt ákvörðun.
Samflotin hafa algjörlega mistek-
ist og ég er viss um að staða Sjálf-
stæðisflokksins hefði ekki oröiö
jafn sterk og raun ber vitni ef
flokkarnir hefðu boðið fram hver
fyrir sig.
Hér í Garðabæ var við ramman
reip að draga. Fólk virðist ánægt
með það sem íhaldið hefur gert og
hefur ekki gert. Þá held ég að mál-
flutningur okkar hafi ekki komist
nógu vel til skila.
Við höfum þó rósina og ég held
að hún hafi gert sitt og verið á við
margra litprentaða bæklinga. Þá
vil ég þakka þeim Garðbæingum
sem studdu okkur og lögðu okkur
lið í kosningabaráttunni," sagði
Helga Kristín að lokum.
Grindavik:
„Kosningaúrslitin valda mér
vissum vonbrigðum. Við stefnd-
um að því að fella meirihlutann en
það tókst ekki að þessu sinni,"
sagði Jón Gröndal oddviti Alþýöu-
flokksins í Grindavík.
„Hins vegar megum við sæmi-
lega vel við una því við höldum
okkar og bætum heldur við okkur.
Viö höfðum tvo bæjarfulltrúa en
tókst ekki að bæta viö okkur
manni. Viö vorum bjartsýnir á
góða kosningu en það gekk ekki
alveg eftir. Það er ljóst að hér fara
framsóknarmenn og sjálfstæöis-
menn áfram með meirihlutavald-
ið.
Annars erum við bjartsýnir á
framtíðina og bindum miklar von-
ir við stórum öflugra flokksstarf
með nýju húsnæði. Nú höfum við
grundvöll fyrir að skipuleggja
traust og gott starf til að byggja á
fyrir framtíðina," sagði Jón Grön-
dal í stuttu samtali við blaðið.
Akranes:
„Við eru mjög ánægðir með sig-
urinn. Þetta er okkar stærsti sigur
hér á Skaganum í 30—40 ár. Við
teljum aö þetta hafi unnist vegna
góðrar samstöðu og góðs málatil-
búnings," sagði Gísli Einarsson for-
ystumaður Alþýðuflokksins á
Akranesi.
„Það hefur tvímælalaust verið
til góös sú tenging sem hefur átt
sér stað milli verkalýðshreyfingar-
innar og bæjarstjórnarinnar. Fólk
er farið að skilja sinn vitjunartima.
Við bætum við okkur einum
manni og eigum nú þrjá bæjarfull-
trúa. Mikil eindrægni hefur veriö
ríkjandi í okkar hópi og liver
höndin annarri fúsari að takast á
viö þau verkefni sem við höfum
fengist við og framundan bíða. Við
höfum verið jákvæð og ég þakka
það ekki síst hversu góður árangur
náðist," sagði Gísli að lokum.
Vestmannaeyjar:
„Við bættum við okkur tals-
verðu fylgi og erum að vonum
ánægðir með það. Þrátt fyrir stór-
sigur íhaldsins aukum við fylgi
okkar meðan aðrir flokkar tapa.
Þetta sýnir að við höfum unnið vel
og að okkar listi var vel skipaður,"
sagði Guðmundur Þ.B. Ólafsson
leiðtogi Alþýðuflokksins í Vest-
mannaeyjum í stuttu rabbi við
blaðið.
„Ég vil sérstaklega þakka öllu
því fólki sem studdi okkur og lagði
okkur lið í kosningabaráttunni.
Við héldum okkar tveimur fulltrú-
um og ég þakka það góðu starfi á
síðastliðnu kjörtímabili ásamt öfl-
ugu starfi margra í kosningabar-
áttunni," sagði Guðmundur í Eyj-
um aö lokum.