Alþýðublaðið - 03.07.1990, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.07.1990, Blaðsíða 1
MÞYBUBLMD Aktu ekki út i évissuno aktuó Ingvar Helgason hf. Sævarhoföa 2 Simi 91-67 4000 97. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1990 HVALVEIÐAR: Alþjóða- hvalveiðiráðið fundar nú í Hollandi og á fundinum ræðst það hvort hrefnu- veiðar verða leyfðar að nýju. Islensku fulltrúarnir á fundinum eru ekki allt of bjartsýnir þrátt fyrir það að vísindanefnd ráðsins hafi staðfest þá niðurstöðu ís- lenskra vísindamanna að hrefnustofninn sé vannýtt-. ur. Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra sagði í viðtölum við Ijósvakamiðla í gærkveldi að til greina kæmi að Islendingar segðu sig úr ráðinu ef engar hvaiveiðar yrðu leyfðar. STJORNU-ODDI ! Stjörnu-Oddi var maður nefndur sem bjó í Flatey á Skjálfanda að því er sögur herma. Ríkisút- varpið greindi frá því í kvöldfréttum í gær að leiðangur fomleifafræðinga og stjörnufræðinga væri nú Flatey þeirra erinda að fá úr því skorið hvort Oddi hafi stundað þar stjörnuathuganir. SKJÁLFTAR Á HAFS- BOTNI: Jarðskjálftamæl- um hefur nú verið komið fyrir á hafsbotni á Reykja- neshryggnum á 70—80 metra dýpi um 170 kíló- metra suðvestur af Reykj- anestá. Þessar rannsóknir eru framkvæmdar í sam- vinnu íslendinga og Jap- ana. Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur sagði í útvarpsviðtali í gærkveldi áð tilgangurinn væri að finna hvar jarðskjálftar yrðu á Reykjaneshryggnum. Mæl- arnir verða sóttir eftir mánuð og þá lesið af þeim. UMHVERFISSTOFNUN: Ríkisútvarpið skýrði frá því í gærkveldi að Bandaríkjamenn hefðu hug á að hrinda úr vör þremur stórum rannsóknarverkefnum í samstarfi við væntanlega alþjóðlega umhverfisrannsóknastofnun á ís- landi. Hvert verkefni myndi væntanlega kosta hundruð milljóna dollara. Verkefnin tangjast straumfræði Norð- ur-Atlantshafs, ástandi þorskstofnsins og ósonlaginu yfir íslandi og Grænlandi. Ákvörðun um rannsóknastofnunina verður tekin á ráðstefnu sem boðað hefur verið til í haust. ALÞÝÐUBANDALAG- IÐ: Staða Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns Al- þýðubandalagsins, virðist hafa styrkst verulega á fundi miðstjórnar flokksins á Egilsstöðum um helgina. Fyrir fundinn var þess al- mennt vænst að þar yrði gerð hastarlega atlaga að formanninum en heimild- armaður Alþýðublaðsins orðaði það svo í samtali í gær að „hnífarnir hefði ekki einu sinni verið sýndir." Tillaga um stuðning við BHMR í deilunni við ríkið var felld með 82 atkvæðum gegn 15. LEIÐAMNNIDAG Leiðari Alþýðublaðsins fjallar í dag um ábyrgð í atvinnurekstri. Þar er rakið hvernig fjölmörg fyrirtæki hafa farið á hausinn og starfsfólk þurft að gjalda með því að fá ekki laun sín greidd fyrr en seint og um síðir eða jafnvel aldrei. ■BH .. 2 Fótbolta- geðveikin Sæmundur Guðvinsson skyggnist bak við fréttirnar og veltir því fyrir sér hvers vegna jafnvel ákafir andstæðingar íþrótta sitja nú spenntir yfir heimsmeistarakeppninni. Ekkert úr sameiningu? Er fátækt 5 á íslandi? Það mun nokkurn veginn lið- in tíð að fólk svelti á íslandi af fátæktar sökum. En er fátæktin úr sögunni? Gunnar Haralds- son blaðamaður hefur gert út- tekt á fátækt á íslandi. IHverfandi líkur virðast nú á því að sameining Stöðvar tvö og Sýnar hf. nái fram að ganga. — Par sem nú er íþróttavöllur íþróttafélags Kópavogs — Náttúruverndarmenn vilja halda sveedinu óskertu Um vestanverða Digra- neshæð, sem oft er kall- að Hólavallarsvæði o.fl., standa nú deilur Digra- nessóknar og nágranna hæðarinnar um hvort þar skal rísa kirkja eður ei. A þessu svæði er nú malar-fótboltavöllur sem íþróttafélagið ÍK hefur haft til umráða en afráðið hefur verið að ÍK fái aðstöðu í Fossvogs- dalnum. Þegar hafa safn- ast saman um 80 undir- skriftir til mótmæla kirkjubyggingunni. ,,Það hefur verið falast eftir þessu svæði til að byggja kirkju en þessi stað- ur hefur ekki alveg legið á lausu," sagði séra Þorberg- ur Kristjánsson prestur í Digranesprestakalli. „Nátt- úruverndarmenn hafa ver- ið þarna inni í myndinni á móti okkar kirkjubyggingu og vilja engar framkvæmd- ir á þesssarri hæð. Vissu- lega á að vera þarna útivist- arsvæði. En ég held að það fari vel saman að hafa þarna kirkju og útivistar- svæði. Við þurfum aðeins 2,5% af þessu svæði. Þetta ber hátt þarna og það myndi skapast skjól af kirkjunni. Menn hafa hingað til ver- ið að kvarta yfir ónæði og ryki af þessu svæði svo ger- ist það undarlega þegar við fórum í að því að fá að byggja kirkju á þessu svæði, úr því völiurinn átti nú að fara, þá koma upp ýmsar raddir af hálfu íbú- anna sem vilja halda í völl- inn. Ég veit að það eru mjög skiptar skoðanir hjá íbúum þessa svæðis en þær hafa verið mjög ákveðnar á móti kirkjubyggingunni, sagði séra Þorbergur Krist- insson ennfremur. Digranessókn hefur haft augastað á þessu svæði í 10 til 12 ár. í dag notar Digra- nessókn ásamt Kársnes- sókn Kópavogskirkju undir sína starfsemi. Þeir eiga hins vegar lítið safnaðar- heimili sem er í nágrenni við Digraneshæð. Rafnar K. Karlsson er íbúi í nágrenni Digraneshæðar og mótmæltur fyrirhugaðri kirkjubyggingu: „Það er alls ekkert pláss fyrir þessa kirkjubyggingu. Það er mjög augljóst. Fólk þarf ekki annað en að koma og kíkja á þetta til að sjá það. Við teljum að mjög vel hafi verið tekið í þessi mót- mæli okkar. Enda er það fáranlegt að fara setja hér kirkjur nánast hlið við hlið. Gamla kirkjan úti á Kárs- nesi hefur alveg dugað. Svo er það nú þannig að þó kirkjunnar menn segi að kirkjan eigi að taka lítið pláss trúir maður því ekki. Það hlýtur að þurfa tölu- vert pláss fyrir kirkju. Hún átti að vera 1000 fermetrar og alltaf vill þetta stækka í meðförum. Ætli þetta sé ekki bara hæðin sem mennirnir eru að líta á. Þeir vilja vera nálægt Guði þá þurfa þeir að teygja sig," sagði Rafnar. Rafnar sagði fótboltavöli- inn mjög vel liðin. Þarna hafi börn og unglingar ver- ið frá því snemma á morgn- anna þar til seint á kvöldin og fái að vera í friði. Á völl- unum sem félögin eiga fá ekki nema fáir útvaldir að vera. Vináttukvennafélag íslands og Kamerún Vináttufélag íslands og Kamerún heitir nystofnað félag nokkurra áhugakvenna um íþróttir og önnur gáfuleg málefni. Kon- urnar, sem þekkjast mismikið innbyrðis, hafa hist öðru hverju um eins árs skeið. „Við vorum auðvitað ekkert ánægðar með tapið gegn Englendingum i gær. Mórallinn í hópnum var þannig að lítið mátti gera á hlut Kamerún-manna til þess aö við heimtuðum vitaspyrnu. Og hver sá Englendingur er svo mikið sem snerti Kamerúna átti að vera rekinn út af vellinum," sagöi Guðriður Haraldsdóttir ein þessarra hressu kvenna. Felagið var upphafleg stofnað sem fræðandi og uppbyggjandi, m.a. hef- ur komið til tals að kalla það gáfukvennafélagið. Fyrir eina samkunduna var m.a. Heimsljós Halldórs Laxness lesið og sagan siðan krufin til mergjar. Ennfremur hafa þær haldið talnaspeki og tarot-kvöld. Það er semsagt fjölbreytt dagskrá hjá Vináttu- felagi Islands og Kamerún. RITSTJORN 0 681866 ~ 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLYSINGAR 0 681866

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.