Alþýðublaðið - 03.07.1990, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 03.07.1990, Qupperneq 4
4 VIDHORF Þriðjudagur 3. júlí 1990 IHHBUBll Ármúli 36 Sími 681866 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsingastjóri: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blaö hf. Flákon Flákonarson Ingólfur Margeirsson Jón Birgir Pétursson Hinrik Gunnar Hilmarsson Siguröur Jónsson Leturval, Ármúla 36 Oddi hf. Áskriftarsíminn er 681866 Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið ÁBYRGÐ Í ATVINNIIREKSTRI I siöasta tölublaöi VR-blaösins er vakin athygli á aö mikið beri á því að fólki sem er komið á miðjan aldur sé sagt upp störfum í kjölfar endurskipulagn- ingar í fyrirtækjum og samruna þeirra. Því má bæta við að á undanförnum árum hafa mörg fyrirtæki verið gerð upp eftir vonlausan rekstur. Rekstur sem í fjölmörgum tilfellum hefur verið komið af stað af eintómri bjartsýni eða fyrirhyggjuleysi og eftirlitsleysi þeirra aðila sem hafa greitt götu atvinnu- rekenda án þess að þess hafi verið gætt að einhver von væri um að rekstur- inn bæri sig. Eitt allra síðasta dæmið eru matvöruverslanir Grundarkjörs, sem skutu upp kollinum eins og gorkúlur, fyrir tveimur árum, en reyndust spilaborgir. r I góðærinu á árunum 1986—87 ætluðu margir að verða milljónamæringar án mikilla tilþrifa. Mörgum tókst að koma ár sinni fyrir borð, án þess að hafa haft minnstu hugmynd um hvert bæri að róa. Afleiðingarnar urðu gjaldþrot og oft draga þessir aðilar fjöldann með sér í fallinu. Með gjaldþroti Grundar- kjörsþúðanna misstu til dæmis hátt í tvö hundruð manns vinnuna fyrirvara- laust. r^að hlýtur eitthvað að vera að í lánamálum og fyrirgreiðslu, þegar mál ganga eins langt og hér er lýst. Svo virðist sem aðhald sé ákaflega takmark- að, og að Pétri og Páli sé leyft að hefja atvinnurekstur og hljóti ótæpilega fyr- irgreiðslu fram í rauðan dauðann. Fyrr en varir eru skuldir komnar upp úr öllu, og þegar endanlega er gert upp situr starfsfólk eftir og sér fram á að fá laun greidd seint og um síðir eða að kröfur þess nái alls ekki fram að ganga. r*að stangast verulega á að atvinnurekendur virðast eiga tiltölulega auð- velt með að hefja rekstur án þess að þurfa að sýna fram á að þeir séu til þess hæfir, og að starfsfólkið geti fyrirvaralaust fengið tilkynningu um að fyrir- tækið hafi gefist upp. Hér er ekki verið að dæma atvinnurekendur sem stétt. Ábyrgðin á ævintýralegum atvinnurekstri er vitaskuld allt eins þeirra sem greiða götu ævintýramannanna. En þessu þurfa samtök atvinnurekenda að gefa gaum. Og líka hinu sem VR-blaðið minnir á; fólk á miðjum aldri og eldra á erfiðast uppdráttar á vinnumarkaði. Gleðileg sjónarmið koma fram í viðtali við Óla K. Sigurðssonar forstjóra sem birtist í Alþýðublaðinu á laugardag. Óli telur að ekki sé hægt að hugsa sér betra starfsfólk en það sem sé komið á efri ár. Það búi yfir mikilli þekkingu og sé mjög samviskusamt. „Ef þetta fólk vill fara í léttari störf, þá má það færa sig um set í fyrirtækinu," segir Óli i Olís. Mættu fleiri fara að dæmi hans. Stöð 2 hæti lent i erfiðleikum ef ekki verður af sameiningunni við Sýn hf. Stöd 2 og Sýn: Slitnar upp úr sameiningunni? Litlar sem engar horfur eru nú taldar á því að nokkuð verði úr sameiningu Stöðvar 2 og Sýnar. Fari svo munu erfiðleik- ar Stöðvar 2 fyrirsjáanlega aukast því að Sýn á nú sýning- arrétt á stórum hiuta af vinsæl- asta efni stöðvarinnar. Sam- kvæmt traustum heimildum Alþýðublaðsins snýst ágrein- ingurinn að hluta um persónur og munu Sýnarmenn ekki taka ■ mál að Þorvarður Elíasson verði sjónvarpsstjóri en þeim mun einnig þykja erfitt að starfa með Jóhanni Ólafssyni og Jóni Ólafssyni. Meðan ekkert skýrist um sam- einingarmálin halda Sýnarmenn sínu striki og sendibúnaður nýju sjónvarpsstöðvarinnar mun þegar kominn í skip ásamt þeim loftnet- um sem til stendur að setja upp. Auk þess hefur Sýn þegar keypt inn þrjú þúsund klukkustundir af efni til sýningar. Svo virðist sem Sýn hf. standi með pálmann í höndunum ef til þess kemur að stöðvarnar tvær lendi í samkeppni sín á milli. Sýn hefur þegar klófest sýningarrétt á fjöldamörgum þáttum sem sýndir hafa verið á Stöð 2 og mun þar í mörgum tilvikum um að ræða það efni sem notið hefur mestra vin- sælda. Um sjónvarpsmál á fslandi er fjallað í nýjasta tölublaði aiþjóð- lega sjónvarpstimaritsins TBI (Television Business Internation- al). Þar eru m.a. raktir efnahags- örðugleikar Stöðvar 2 og skýrt frá væntanlegum sjónvarpssending- um Sýnar hf. í greininni er fullyrt að Sýn hafi náð til sin sýningar- réttinum á stórum hluta af besta sjónvarpsefni Stöðvar 2. Viðræðum um sameiningu stöðvanna tveggja hefur ekki ver- ið slitið en líkur á samkomulegi hafa síður en svo aukist að undan- förnu. Viðræður munu aö mestu liggja niðri þessa dagana vegna sumarleyfisfjarvista helstu samn- ingamanna. Verði ekki af samein- ingu blasir afruglaravandamál við Sýnarmönnum en samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins mun enn haldið opnum möguleikanum fyrir samkomulagi um sameigin- legt afruglarakerfi stöðvana. RADDIR Hvaöa liö á HM hefur veriö í uppáhaldi hjá þér? Ragnhildur Eiríksdóttir, 21 árs nemi: Ég hef eiginlega ekkert' fylgst með HM, en Kamerún hefur verið i uppáhaldi. Af þeim liðum sem eftir eru held ég að Vestur-Þjóð- verjar vinni þetta örugglega. Arnar Þór Guðjónsson, 19 ára nemi: Uppáhaldsliðið mitt hefur verið Kamerún. Annars held ég núna með ítölum og vona að þeir vinni Vestur-Þjóðverja í úrslitaleiknum. Kristín Björnsdóttir: Ég hef fylgst með öllum leikjun- um en ég get ekki sagt hvaða lið er í uppáhaldi. En ég þoli ekki Maradona sem er alltaf á hausnum, hann er alveg agalegur. En mér finnast íslensku þulirnir mjög góðir, bæði Sólnes og þessi dökkhærði. Mað- ur getur ekki farið frá fyrr en leikur- inn er búinn. Bjarni Fel er líka ágætur. Svanhildur Olafsdóttir, 24 ára að- stoðarmaður tannlæknis: Ég hef voðalega lítið fylgst með þessu en Kamerún hefur nú samt verið uppáhaldsliðið mitt. Ég held nú ekki með neinu af þeim liðum sem eftir eru í keppninni en ég á von á því á Vestur-Þjóðverjar vinni þetta. Ingi Björn Albertsson, 37 ára þjálfari meistaraflokks Vals i knattspyrnu karla: Brasilía hefur alltaf verið í uppá- haldi hjá mér og er það ennþá, en af þeim liðum sem eftir eru er það Ítalía. Úrslitaleikurinn verður væntan- lega á milli ítala og V-Þjóðverja og ég vonast eftir sigri ítala, mér er al- veg sama hvernig.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.