Alþýðublaðið - 18.08.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 18. ágúst 1990
3
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
SOÐASKAPUR ! Einhverjir starfsmenn Kringlunnar og
Húss verslunarinnar voru í gær og fyrradag aö kvarta yfir
þessum auglýsingum sem límdar hafa verið upp á brúar-
stöplinum við Miklubraut og Kringlusvæði. Þeir telja sóða-
skapinn sem af þessum álímingum stafa einum um of.
Þarna virðist líka ríkja stríð um auglýsingapláss. Einn aug-
lýsandi kemur þá annar er búinn að líma — og límir yfir!
Borgaryfirvöld sinntu ekki kvörtunum þessum.
ÍSLENDINGUR LAMINN Í SVÍÞJOÐ: Fórir rudda-
legir dyraverðir á skemmtistað í Trelleborg í Svíþjóö stór-
slösuðu landa okkar sem þar var á ferð fyrir skemmstu.
Margrét Jónsdóttir í sendiráði Islands í Stokkhólmi segir
í sænsku blaði fyrir skemmstu að ekki hafi verið hægt að
senda manninn heim til íslands, svo illa sem hann var far-
inn. Maðurinn var í öndunarvél á sjúkrahúsi, annaö lungað
fallið saman og fjögur rifbein brotin. Maðurinn mun vera
kominn heim þegar þetta er ritað. Hann var vel tryggður,
segir blaðið. Vitni voru að atburðinum og munu 'dyra-
gæsluruddarnir í vanda staddir, svo og eigendur veitinga-
hússins Kungsparken.
AFLABANKINN KAUPIR ÞAÐ SEM SJÓMENN
AÐURHENTU Nýjasti „bankinn" er Aflabankinn, starf-
ræktur á vegum Rannsóknarstofnunar fiskiðnaöarins. I
þennan banka mega sjómenn leggja upp allskonar
„ódrætti", sem þeir áður fleygðu fyrir borð. Árangurinn eft-
ir nær hálfs árs starf er sá að 50 tonn hafa safnast: 25 tonn
af tindabikkju, 10 tonn af gulllaxi og annað eins og skráp-
flúru og fleiri flatfiskum og 5 tonn af ýmsum tegundum
fiska. Útlit er fyrir að tekist hafi að skapa markað fyrir laus-
fryst tindabikkjubörð í Frakklandi. Skilaverð gæti orðið
110—120 krónur fyrir kílóið.
HALLI, 14 ÁRA, HELDUR TÓNLEIKA: Hain Caut-
hery heitir ungur maður, 14 ára fiðluleikari, sonur Bjarg-
ar Árnadóttur Björnssonar, tónskálds og Andrew
Cauthery óbóleikara við bresku þjóðaróperuna í London.
Halli heldur tónleika á morgun kl. 16.30 í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Halli hefur numið fiðluleik frá 5 ára aldri og
nú síðustu 2 árin í Yehudi Menuhin-skólanum í London og
er hann einn 48 nemenda skólans, en þeir koma víða að
úr heiminum. í Hafnarborg munu tónleikagestir án efa
skoða Sumarsýningu safnsins í Sverrissal.
B0RGIN Á AFMÆLI í DAG: Afmæli Reykjavíkurborg-
ar, 204 ára afmæli, verður haldið hátíðlegt í dag. Opnað
verður þjónusturými fyrir aldraða á Dalbraut 18—20. Eftir
hádegi er haldið upp á 30 ára afmæli Fæðingarheimilisins
við Eiríksgötu með athöfn á túninu fyrir framan heimilið.
Þá er ætlunin að afhjúpaö verði listaverk við Skúlagötu kl.
16 — Sólfar heitir verkið og er eftir Jón Gunnar Árnason
heitinn. Kl. 17 eru veitt verðlaun fyrir fegurstu götu í
Reykjavík og viðurkenningar fyrir fallegar lóðir og endur-
bætur gamalla húsa. Tilkynfit verður um val borgarlista-
manns og hvaða listamaður hlýtur 3 ára starfslaun Reykja-
víkurborgar.
ALBERT FASTAFULL-
TRUI: Albert Guðmunds-
son, sendiherra Islands í
París, hefur verið skipaður
fastafulltrúi íslands hjá Evr-
ópuráðinu í Strassborg frá
og með 1. ágúst, segir í
fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu.
LÁNSKJARAVÍSITALA HÆKKAR UM 0,24%:
Lánskjaravísitala sem gildir fyrir september n.k. er 2932
stig, hefur hækkað um 0,24% frá mánuðinum á undan.
Umreiknað til árshækkunar hefur breytingin orðiö þessi:
Síðasta mánuð 2,9% — siðustu 3 mánuði 6,4% — síöustu
6 mánuði 6,3% og síðustu 12 mánuðina 13,5%.
INNLENDAR FRÉTTIR
KVÖTABRASK I
Það hefur eitthvað borið
á því að stærri útgerðarað-
ilar hafi keypt nýja smá-
báta sem eiga eftir að afla
sér kvótaviðmiðunar og
skipti á þeim og smábátum
sem þegar hafa unnið sér
inn kvótarétt. Á næsta ári
geta útgerðaraðilar fært
kvótann af gömlu trillun-
um yfir á stærri skip sín en
trillukarlinn með nýja
trillu fer að vinna sér inn
kvótarétt með veiðum
næstu þrjú árin.
Nú fyrir helgina voru síð-
ustu forvöð að skrásetja nýja
smábáta og fá þá skráða til að
afla sér kvótaréttar. Afli
þeirra þrjú næstu árin verður
síðan notaður sem viðmiðun
fyrir varanlegan kvóta
þeirra. Um næstu áramót
taka gildi lög sem skammta
kvóta á smábáta eins og önn-
ur fiskiskip. Með því hefur
heldur betur hlaupið á snær-
ið hjá sumum.
Af þessu má ljóst vera að
með úthlutun kvóta er verið
að færa útgerðarmönnum,
stórum og smáum, óhemju-
verðmæti fyrir ekki neitt.
Er frelsi til fiskveiða endanlega úr sögunni?
Trillur undir 10 tonnum voru
áður undanþegnar kvóta en
með því að nú færist kvótaút-
hlutun til þeirra eins og ann-
arra skipa standa trillukarlar
allt í einu uppi með nýfengin
verömæti. Á sama hátt er girt
fyrir að aðrir íslendingar geti
sótt fisk í sjó nema að kaupa
kvóta þeirra sem hafa fengið
hann fyrir ekki neitt.
Áætlað er að hér á landi
séu um 1.000 trillur með um
36 þúsund tonna kvóta sam-
tals. Margir trillukarlar eru
með trilluna sína sem auka-
getu eða jafnvel frístunda-
sport meðan aðrir lifa alfarið
af trilluútgerð. Ýmsir spá nú
að stærri útgerðir muni
kaupa upp um helming af
kvóta smábátanna og þurfi
þá að greiða fyrir það um 2,5
milljarða.
ALGLEYMINGI
Árni Gunnarsson alþingismadur vegna vanda Slippstödvarinnar:
Þróunaraðstoð i skiptum
fyrir veiðiheimildir
Árni Gunnarsson, al-
þingismaður og stjórnar-
maður Slippstöðvarinnar
á Akureyri, hefur varpað
fram þeirri hugmynd að
ríkið kaupi skip af Slipp-
stöðinni og geri það síðan
út sem skólaskip fyrir þró-
unarlönd. Hann segir að-
stoð Islendinga við þróun-
arlöndin smánarlega litla.
Með þessu mætti slá tvær
flugur í einu höggi, styðja
og styrkja fiskveiðar ríkja
í Asíu og Afríku gegn
veiðiheimildum og um leið
kynna íslenskar vörur á
sviði sjávarútvegs.
Slippstöðin á Akureyri hef-
ur átt við mikinn fjárhagsleg-
an vanda að etja m.a. vegna
að þess að þeir hafa smíðað
skip sem ekki hefur tekist að
selja. Nú hleður það upp á sig
fjármagnskostnaði sem gerir
þaö í raun enn dýrara. Árni
Gunnarsson segir að fjár-
magnskostnaður vegna
skipsins á þess ári sé orðin
um 15 milljónir, eða um 1,5
milljónir á mánuði.
Fjármálaráðherra, Olafur
Ragnar Grímsson, mætti á
fund með stjórn Slippstöðvar-
innar út af þessum málum í
fyrradag. Þar lagði Árni
Gunnarsson fram hugmynd
sína um að ríkið keypti
óselda skipið og notaði til
þróunaraðstoðar við fátæk
ríki. Árni telur að tilkostnað-
ur við smíði skipsins sé orðin
það mikill að ekki takist aö
selja það á almennum mark-
aði auk þess sem það hefur
engan kvóta.
Þá telur Árni að ríkið, sem
er meirihlutaeigandi í Slipp-
stöðinni, þurfi með einu eða
öðru móti að aðstoða við að
koma skipinu í verð. Hann
bendir á að þróunaraðstoð ís-
lendinga hefur verið í algjöru
jlágmarki. Nú séu fjöldamarg-
ar þjóðir að leita eftir veiði-
heimildum í Asíu og Afríku.
Þar sé víða að finna feikilega
gjöful fiskimið og að íslend-
ingar hafi nánast ekkert gert
til að taka þátt í þeirri bar-
áttu.
„Mín hugmynd er sú að rík-
issjóður kaupi skip af Slipp-
Verðlagsyfirvöld sjá
ekki ástæðu til þess að sól-
arlandaferðir hækki í
verði. Ferðaskrifstofurnar
ætla sér að draga til baka
1% af þeim hækkunum
sem hafa orðið á sólar-
landaferðum en telja sig
ekki geta tekið á sig allar
þær kostnaðarhækkanir
sem hafi skollið á ferða-
skrifstofum að undan-
förnu án þess að verð
hækki.
ASÍ skoraði í gær á ferða-
skrifstofurnar að draga alla
hækkunina til baka, en í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær
sagði Andri Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Veraldar, að
stöðinni, annað hvort það
sem þegar er smíðað eða
annað sem stöðin hefur þeg-
ar keypt efni í. Það yrði þá
smíðað sérstaklega sem
skóla- og rannsóknarskip en
myndi einnig nýtast sem
markaðsetningarskip fyrir ís-
lenskar íramleiðsluvörur á
sviði sjávarútvegs. Þar á ég
við veiðarfæri, ýmis tæki og
tól sem hér eru smíðuð og lít-
rætt væri um að mæta aukn-
um kostnaði að undaförnu
með því að ferðaskrifstofurn-
ar tækju hluta af honum á sig.
Hann bættist við kostnaðar-
auka sem kom fram fyrr á ár-
inu og þvi væri ekki um að
ræða að ferðaskrifstofurnar
tækju allan kostnaðaraukann
nú á sig. „Það bjóst enginn
við stríði við Persaflóa," segir
Andri Ingólfsson.
í bréfi Alþýðusambandsins,
sem það sendi Félagi ís-
lenskra ferðaskrifstofa i gær-
morgun, segir að dregið hafi
úr verðbólgu og gengið hald-
ist stöðugt, en hvort tveggja
hafi skapað fyrirtækjum til-
efni til að lækka álagningu.
ið hefur verið gert til að
markaðssetja," sagði Árni í
samtali við blaðið.
„Með þessu móti," sagði
Árni, „getum við aðstoðað
fátækar þjóðir til að þróa sinn
sjávarútveg gegn einhverjum
veiðiheimildum og nýtt
þannig betur allt of stóran
fiskveiðiflota okkar íslend-
inga."
Talsmenn ferðaskrifstofanna
skrifuðu síðan Alþýðusam-
bandinu bréf síðdegis í gær
þar sem þeir tíunduðu þann
kostnað sem ferðaskrifstof-
urnar hafa orðið fyrir á árinu,
og þar er tekið fram að félag-
ið hafi skorað á félagsmenn
að lækka ferðir eins og kost-
ur er.
Örn Friðriksson, varafor-
seti ASÍ, segist ekki sætta sig
við afgreiðslu ferðaskrifstof-
anna og segir að þær verði
eins og önnur fyrirtæki að
taka þátt í þeirri niðurfærslu-
leið sem nú sé farin. „Við telj-
um hækkunina sem ferða-
skrifstofurnar hafa tekið
ótímabæra," sagði Örn í við-
tali við Alþýðublaðið í gær.
ASÍog uerdlagsyfirvöld vilja að ferðaskrifstofur taki til baka
2,5% hækkun á sólarlandaferðum
Ferðirnar munu
lækka um 1 %
Ferðaskrifstofur segjast ekki geta dregið alla hœkkun til baka