Alþýðublaðið - 18.08.1990, Blaðsíða 7
Laugardagur 18. ágúst 1990
7
oregskonungur, hleypur til með kyndil og hyggst brenna
rið hæfi og pína gamlar konur og menn.
Mágarnir Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri og Egill ÓlafsSon, ræðast við fyrir næstu töku.
Andrés Wtursson, Aiþýdubladid, Hclk’sylt í
Norctfi:
í Hellesylt í Vestur Noregi
standa nú yfir tökur á kvik-
myndinni „Hvíti víkingurinn“
eftir handriti og undir stjórn
Hrafns Gunnlaugssonar.
Myndin er unnin á vegum allra
Norðurlandanna og er lang-
dýrasta samnorræna verkefn-
ið af þessu tagi til þessa. Áætl-
aður kostnaður við gerð kvik-
myndarinnar og sjónvarps-
þátta, sem unnir eru samhliða,
er áætlaður 350 milljónir ís-
lenskra króna. ALÞÝÐUBLAÐ-
IÐ var á staðnum fyrir nokkr-
um dögum og fylgdist með ein-
um degi kvikmyndatökunnar.
Hellesylt er friðsæll smábær
skammt frá hinum þekkta Geir-
angursfirði. Bærinn er vinsæll
ferðamannastaður því þaðan
ganga ferjur til Geirangursfjarðar.
Nú seinni part sumars hafa það
ekki verið ferðamennirnir sem
hafa sett svip sinn á bæinn — held-
ur kvikmyndatökufólkið. Það hef-
ur lagt undir sig helsta ferða-
mannahótel bæjarins,' Grand Hot-
el. Þetta er gamalt hótel frá því um
aldamót.
Vikingarnir _______________
storma gegnum______________
ferðamannakösinq___________
Bæjarbúar í Hellesylt eru löngu
hættir að kippa sér upp við að
einn og einn vikingur, eða jafnvel
hópar víkinga með alvæpni,
sprangi um götur hér. En ferða-
menn sem leið eiga um staðinn
reka hins vegar upp stór augu er
heil víkingafjölskylda með Hrafn
Gunnlaugsson í fararbroddi storm-
ar niður að höfn gegnum ferða-
mannakösina og á kvikmynda-
svæðið.
igili hótar að_______________
brennq stúlkwna______________
A eyri skammt frá bænum sjálf-
um hefur hinn þekkti finnski leik-
myndahönnuður, Ensio Suomin-
en, byggt hof í heiðnum stíl og þar
fór einmitt takan fram, sem Al-
þýðublaðið fékk að fylgjast með.
Kvikmyndin „Hvíti víkingurinn"
gerist í Noregi og á íslandi um árið
1000. Ólafur Tryggvason Noregs-
konungur fer úr einum firðinum í
annan og svínbeygir landsmenn
sína til kristni. Guðmundur góði
hefur lengi þrjóskast við og Ólafur
ferð með her manna á hans fund.
Þegar Ólaf ber að garði er Guð-
mundur, sem leikinn er af Þor-
steini Hannessyni, fyrrum tónlist-
arstjóra Ríkisútvarpsins, einmitt
að gifta dóttur sína Emblu, sem
María Bonnevie leikur, Aski, sem
Gottskálk D. Sigurðarson leikur.
Ólafur lætur til skarar skríða, en
Guðmundur neitar að beygja sig.
Það er ekki fyrr en Ólafur reyrir
stúlkuna við stólpa inni í hofinu og
kveikir í að goðinn brotnar og ját-
ast undir kristni.
Eineygður og_____________
ofbeldisfullur
Sluðmaður
Egill Ólafsson fer á kostum sem
Ólafur Noregskonungur. Gervi
hans er sterkt og það er eiginlega
hálfóhugnanleg að sjá þennan
myndarmann umbreytast í ein-
eygðan, ofstækisfullan víkinga-
höfðingja. Ekki voru svipbrigði
Þorsteins Hannessonar minni er
hann fylgist harmi sleginn með
því þegar dóttir hans er hlekkjuö
við staurinn í hofinu og verður
logunum næstum að bráð.
Jón Tryggvason r hlutverki Asks, á myndinni má vel sjá handbragð bún
ingahönnuðarins, Karls Júliussonar.
Íslendingar i______________
aðalhlulverki______________
Þrátt fyrir að við Islendingar sé-
um smáir í norrænu samstarfi og
greiðum ekki nema lítinn hluta af
kostnaði við gerð sjónvarpsþátt-
anna og kvikmyndarinnar er hlut-
ur Frónbúans í gerð þessa verk-
efnis ekki svo smár.
Eins og áður var sagt þá leikstýr-
ir Hrafn Gunnlaugsson myndinni,
auk þess að vera höfundur hand-
ritsins ásamt Jonathan Rumbold.
Sextán ára gamall Reykvíkingur,
Gottskálk D. Sigurðarson, leikur
Ask. Egill Ólafsson leikur Ólaf
Tryggvason Noregskonung. Jón
Tryggvason leikur Ketil, en Þor-
steinn Hannesson Guðmund
góða. Að sjálfsögðu leikur svo
Helgi Skúlason, hann sjáum við í
hlutverki Þorgeirs. Þar að auki
verða margir aðrir Islendingar í
ýmsum smærri hlutverkum.
Þáttur þeirra Karls Júlíussonar
og Þórs Vigfússonar er heldur
ekki smár. Karl hefur hannað alla
búningana og er ekki hægt að
segja annað en að honum hafi tek-
ist vel til við það verk. Þór Vigfús-
son hefur hins vegar annast smíði
leikmuna og er það ekki síður
mikilvægt í slíku verkefni.
Þar sem myndin er tekin upp
með íslensku tali hafa erlendu
leikararnir setið sveittir við að
læra íslensku.Ekki er hægt að
segja annað en að norsku stúlk-
unni Maríu Bonnevie hafi tekist
vel upp, því það hljómar mjög eðli-
lega þegar hún eggjar föður sinn
að gefa ekki eftir: „Ekki hugsa um
mig, faðir minn. Óðinn og Freyja
munu hefna mín“, segir hún með
miklum tilþrifum í atriðinu í hof-
inu.
Frumsýning 1992_____________
Áætlað er að kvikmyndin verði
tilbúin vorið 1991. Sjónvarpsþætt-
irnir, sem verða fjórir, hver
klukkutími á lengd, verða komnir
á markað þá um haustið. Ekki er
ólíklegt að þættirnir verði sýndir í
norrænu sjónvarpi þá um veturinn
en vegna þessa mun kvikmyndin
sjálf ekki verða frumsýnd á Norð-
urlöndunum fyrr en árið 1992.
Kvikmyndahópurinn fer héðan
frá Hellesylt í lok ágúst til íslands
og verður myndað á Reykjanesi
og á fleiri stöðum í haust.
Bein lína um
breyttar
gjaldeyrisreglur!
Breytingar á gjaldeyrisreglum á íslandi eru framundan. í meginatribum stubla
Ibœr ab frjálsari gjaldeyrisvibskiptum. Vibskiptavinum Islandsbanka og öbrum
þeim sem hafa áhuga á ab kynna sér nánar áhrif
þessara breytinga er velkomib ab hringja í
UPPLÝSINGASÍMA ÍSLANDSBANKA:
91-679455
Síminn er opinn frá kl. 9.15-16.00 alla virka daga.
ISLANDSBANKI
-í takt við nýja tíma!