Alþýðublaðið - 18.09.1990, Side 6

Alþýðublaðið - 18.09.1990, Side 6
6 Þriðjudagur 18. sept. 1990 Vinningstölur laugardaginn 15. sept. ‘90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 0 2.058.587 a nvsdMÍB <£.. 4af5%^« 4 89.431 3. 4af 5 97 6.361 4. 3af 5 3430 419 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.470.498 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Slys gera ekki boð á undan sér! yuj™ Iþróttahelgin Fram hlaut íslands- meistaratitilinn 1990 Baráttu- og sigurvilji 1. deild- arliðs Fram í leiknum gegn Valsmönnum á Laugardalsvelli í laugardaginn verður lengi í minnum hafður. — Eftir erfið- an fyrri hálfleik, þar sem Vals- menn höfðu yfir 2:0, komu Framarar tvíef ldir til leiks eftir hlé og börðust eins og ljón frá fyrstu til síðustu mínútu. Þegar töluvert var liðið á hálfleikinn kom Ríkharður Daðason Fram á blað með ágætu marki. Jöfn- unarmarkið kom nokkru síðar og þar var Steinar Friðgeirs- son að verki og loks kom þriðja markið 7 mínútum fyrir leiks- lok og það skoraði Viðar Þor- kelsson. Fram 3, Valur 2. Stemmningin og andrúmsloftið á Laugardalsvellinum var með ólíkindum og flestir geta verið sammála um það.að svona eiga úr- slitaleikir að vera. Þó að leikirnir í Eyjum og Vesturbænum hefðu bein og óbein áhrif á endanleg úr- slit, var þetta leikurinn, þar sem úrslitin urðu. Til hamingju Fram- arar! Knattspyrnan er á uppleið________________ Urslit annarra leikja urðu þessi í 1. deild: ÍBV-Stjarnan 4:3, KR-KA 2:0, Þór-Víkingur 4:1 og FH-ÍA 2:1. Gott íslandsmót í 1. deild er á enda. Það var skemmtilegt og um- Framarar fagna Islandsmeistaratitli. — A-mynd E.ÓI. fram allt spennandi. Eins og gefur að skilja voru leikir misjafnir, en í heild sinni er augljóst, að knatt-' spyrnan á Islandi er á uppleið. Sér- staka athygli vekur frábær árang-' ur nýliðanna í 1. deild, ÍBV og Stjörnunnar. Er gaeðamunur____________ knattspyrnunnar i________ I. eg 2. deild___________ að rninnka? _____________ Baráttan um annað sætið í 2. deild, og þar með 1. deildarsæti að ári, var spennandi á laugardag. Víðir hafði sigrað með yfirburðum í 2. deild, en slagurinn um hið eft- irsótta sæti var á milli Breiðabliks og Fylkis. Breiðablik hafði eins stigs forskot og gulltryggði sér sætið með sigri. Þegar leik Breiða- bliks og Tindastóls lauk með jafn- tefli, 1:1, átti Fylkir möguleika, en félagið lék við Grindavík, sem barðist fyrir sæti sínu í 2. deild. Þeirri viðureigin lauk með sigri Grindvíkinga, 2:0, sem héldu sætii sínu í 2. deild og þar með féllu Leiftur og KS í 3. deild en Leiftur vann í innbyrðis leik þeirra 4:0. Loks vann ÍR Selfoss, 5:1, og Víðir og ÍBK gerðu jafntefli, 3:3. RAÐAUGLÝSINGAR Flokksstarfid Frá skrifstofu Alþýðuflokksins Miövikudaginn 19. september veröur Jóhanna Siguröar- dóttir félagsmálaráð- herra meö viötalstíma frá kl. 16.00—18.00. Opinn fundur Verkalýðs- og stjórnmálanefnd SUJ boöar til opins fundar. Fundarefni: Þátttaka Alþýðuflokksins í ríkisstjórn sl. 3 ár. Stjórn- málaástandið — stefnir í kosningar í haust? Fundartími: Fimmtudagur 20. september kl. 20.15. Framsögumaður: Jón Baldvin Hannibalsson,formaöurAlþýðuflokks- ins og utanríkisráðherra. Fundarstaöur: Félagsmiðstöð jafnaðarmanna Hverfisgötu 8—10. Allir áhugasemir jafnaðarmenn eru velkomnir. Við stoppum ekki hér! Félags- og stjórnmálanámskeið SUJ haldið 22.—23. og 29.—30 september í RÓSINNI, félagsmiðstöð jafnaðarmanna Hverfisgötu 8—10 kl. 13.00—17.00 alla dagana. Dagskrá: Laugardagur 22. september: Iðnaðarþjóðfélagið, þróun samfélags og fjöl- skyldu. Leiðbeinandi: Gísli Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðingur. íslenskt þjóðfélag frá stöðnun til samtíðar. Leiðbeinandi: Gísli Gunnarsson dósent. Alþjóðleg verkalýðshreyfing og jafnaðarstefna Alþýðuflokkurinn og verkalýðshreyfingin á ís- landi. Leiðbeinendur: Helgi Skúli Kjartansson lektor, Sigurður Pétursson sagnfræðingur. Sunnudagur 23. september: Ritað mál — Greinaskrif. Leiðbeinandi: Pjetur Hafstein Lárusson rithöfundur. Blaðaútgáfa og fjölmiðlar. Leiðbeinandi: Ingólf- ur Margeirsson ritstjóri. Laugardagur 29. september: Framsögn og ræðumennska. Leiðbeinandi: Gunn- ar Eyjólfsson leikari. Fundasköp og félagsstörf. Leiðbeinandi: Þráinn Hallgrímsson, skrifstofustjóri ASÍ. Sunnudagur 30. september: Alþýðuflokkurinn — Skipulag og flokksstarf. Leiðbeinandi: Guðmundur Einarsson, aðstoðar- maður ráðherra. Alþýðuflokkurinn — Stefna og framtíð. Leið- beinandi: Guðmundur Árni Stefánsson bæjar- stjóri. Námskeiðið er opið öllu áhugafólki um félags- og stjórnmál. Þátttaka tilkynnist í síma 29244 (Alþýðuflokkurinn) og 13959 (Sigurður). Þátttökugjald kr. 1.000,- Samband ungra jafnaðarmanna. Alþýðuflokksfélag Garða- og Bessastaðahrepps Áríðandi félagsfundur verður haldinn í félagsheim- ilinu Goðatúni, miðvikudaginn 19. september kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á flokksþing. 2. Vetrarstarfið. Stjórnin. Málstofa um stjórnmál Fundur í málstofu um stjórnmál í FUJ í Reykjavík fimmtudaginn 20. september kl. 20.30 í RÓSINNI Allir FUJ félagar hvattir til að mæta. Fundarefni: Tillögur fyrir flokksþing um stjórnmál. Upplýsingar gefa Margrét Haraldsdóttir í síma 32753 og Björn Ágúst Jónsson í síma 673449. FUJ í Reykjavík.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.