Alþýðublaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 8
• • • •
• •
• • • •
• • • •
WORCHESTER, (s-Afr.
íku): Nelson Mandela sagði
hugsanlegt að friðarvið-
ræðum við forseta S-Afríku,
FiW. de Klerk, yrði hætt ef
neyðarfundur Afríska þjóð-
arráðsins kemst að þeirri
niðurstöðu að tilburðir rík-
isstjórnarinnar til að binda
enda á óeirðir í Jóhannes-
arborg séu ekki nægir.
Hbnn sagði á blaðamanna-
fundi að þing Afríska þjóð-
arráðsins myndi koma sam-
an í dag, þriðjudag, til þess að ræða hertar aðgerðir stjórn-
arinnar, sem nefndar eru ,,járnhnefinn“, til að bæla niður
óeirðirnar.
BAGHDAD: írösk yfirvöld segja að háttsettur íranskur
embættismaður hafi rætt bætt samskipti þjóðanna og
skipti á striðsföngum við embættismenn í Baghdad.
MOSKVU: Mikils metinn hagfræðingur í Sovétríkjunum
og Níkolaj Ryzhkov, forsætisráðherra, segja að efnahags-
hrun vofi yfir Sovétríkjunum nú þegar ráðamenn þar deili
um hvernig best sé að breyta þjóðfélaginu í átt til markaðs-
búskapar.
BRUSSEL: Ríkisstjórnir aðildarríkja Evrópubandalags-
ins hafa samþykkt að vísa úr landi íröskum hermálafulltrú-
um og takmarka ferðir annarra íraskra sendiráðsstarfs-
manna í kjölfar innrásar íraskra hermanna í sendiráð ríkja
Vesturlanda í Kúvæt-borg sl. föstudag. Utanríkisráðherrar
bandalagsríkjanna 12 samþykktu einnig að setja þrýsting
á þau ríki sem grunuð eru um að virða ekki viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna gegn írak, sem samþykkt var í fram-
haldi af innlimun Kúvæts í írak. Hins vegar gátu ráðherr-
arnir ekki komið sér saman um hversu mikla fjárhagsað-
stoð skyldi veita þeim ríkjum sem viðskiptabannið hefur
bitnað hvað verst á og hvernig kostnaðinum við hana
skyldi deilt á milli bandalagsríkjanna.
AMMAN: Samtök hliðholl írökum hótuðu að hefja
hryðjuverk gegn Bandaríkjunum ráðist bandarískar her-
sveitir á írak. í yfirlýsingu sem gefin var út að aflokinni ráð-
stefnu arabískra stjórnmálasamtaka sagði að hryðjuverk
gegn Bandaríkjunum yrðu forgangsverkefni samtakanna
um leið og Bandaríkin réðust gegn Irökum.
WASHINGTON: Varnamálaráðherra Bandaríkjanna,
Dick Cheney, rak yfirmann bandaríska flughersins, Micha-
el Dugan, í gær eftir að hafa ráðfært sig við Bush Banda-
ríkjaforseta. Dugan var rekinn fyrir að segja að Bandaríkin
myndu gera loftárás á Baghdad kæmi til stríðs og að sér-
stök áhersla yrði lögð á að ráða Saddam Hussein af dög-
um.
KHAFJI , (Saúdi-Arabíu): írakar safna nú saman ungum
Kúvæt-búum og óttast ýmsir að fyrirhugað sé skrá þá í
íraska herinn, sem nú ræður ríkjum í landi þeirra. Flótta-
menn sem flúið hafa frá Kúvæt yfir landamæri Saúdi-Arab-
íu segja að ungir Kúvæt-búar hafi verið handteknir á
landamærunum.
AMMAN: Fjórir franskir þegnar, sem Saddam Hussein
lét lausa, komu til Amman frá Baghdad með flugi íraska
flugfélagsins, að sögn vitna.
MUNCHEN, (V-Þýska-
landi): Helmut Kohl, kansl-
ari V-Þýskalands og
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti ætla að ræðast
við í Múnchen á næstunni
og þá sérstaklega um fram-
tíð Evrópu og ástandið við
Persaflóa, að sögn embætt-
ismanna í Bonn.
ERLENDAR FRETTIR
Umsjón: Glúmur Baldvinsson
EB-ríkin 12
Visa iröskum hermála-
fulltrúum úr landi
Mitterrand hefur brugöist ókvæöa við innrés íraskra hermanna í bústað sendiherra
Frakklands í Kúvæt. Frakkar ætla nú aö senda aukiö herliö til Saúdí-Arabíu.
Frakkar og Bretar hafa
rekid fjölda Iraka úr landi
í kjölfar innrásar íraskra
hermanna í vestræn sendi-
ráð í Kúvæt-borg sl. föstu-
dag.
Frakkar hafa rekið 40
íraska sendiráðsstarfsmenn
og aðra embættismenn úr
landinu, þar á meðal eru her-
málafulltrúar sem starfa við
sendiráð Iraks í París og liðs-
menn írösku leyniþjónust-
unnar. Þetta var gert í fram-
haldi af innrás íraskra her-
manna í bústað franska
sendiherrans í Kúvæt, þar
sem fjórir franskir þegnar
voru handteknir og færðir á
brott. Einum þeirra, frönsk-
um hermálafulltrúa, var
sleppt skömmu siðar.
Mitterrand Frakklandsfor-
seti hefur greint frá því að
Frakkar hyggist að auki fjölga
enn frekar í herliði sínu í
Saúdí-Arabíu. Þeir ætla að
senda 4 þúsund hermenn til
Saúdí-Arabíu á næstu dögum
auk skriðdreka og herþotna.
írakar hafa neitað fregnum
um að hermenn þeirra hafi
ráðist inn í vestræn sendiráð
og segja þær upplýsingar
byggðar á misskilningi. Sadd-
am Hussein Iraksforseti gaf út
tilskipun um lausn á fjórum
frönskum þegnum frá írak.
Þegnarnir, 3 karlmenn og
eiginkona eins þeirra, komu
til Amman frá Baghdad upp
úr hádegi í gær og að sögn
franska utanríkisráðuneytis-
ins höfðu þau verið í haldi í
mikilvægum hernaðarmann-
virkjum í írak. Saddam hefur
einnig sagt að öldruðum og
sjúkum Frökkum yrði veitt
brottfararleyfi frá írak.
Bretar hafa farið að dæmi
Frakka og vísað 23 íröskum
þegnum og starfsmönnum
íraska sendiráðsins í London
úr landi. Douglas Hurd, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sem
staddur er á fundi utanríkis-
ráðherra EB í Brussel, sagði
að ákvörðunin um brottvísun
sendiráðsstarfsmannana
hefði verið tekin í samráði
við hin aðildarríki EB. Evr-
ópuríkin 12 hafa ákveðið að
reka íraska hermálafulltrúan
úr löndum sínum og ætla auk
þess að takmarka ferðir
íraskra stjórnarerindreka
sem eftir verða. Hurd sagði
að það væri að fullu réttlæt-
anlegt að taka upp hertari að-
gerðir gegn írökum. írösku
sendiráðsstarfsmönnunum
hefur verið gefinn vikufrest-
ur til að hafa sig á brott frá
Bretlandi en mennirnir 23
hafa örlítið lengri frest.
Varnamálaráðherra
Pólland
Walesa i
Lech Walesa, leiðtogi
Samstöðu í Póllandi, til-
kynnti í gær að hann muni
bjóða sig fram í embætti
forseta landsins en gert er
ráð fyrir að þing- og for-
setakosningar fari fram
seinna á þessu ári eða í
byrjun þess næsta.
Ákvörðun Walesa um
framboð var opinberuð í yfir-
lýsingu sem lesin var í pólska
útvarpinu en þar sagðist
hann endanlega hafa gert
upp hug sinn í gærmorgun.
Með því að gefa kost á sér til
forseta sagðist Walesa vera
að efna loforð sem hann
hefði gefið í ágúst árið 1980
þegar samtök Samstöðu voru
stofnuð en þá sagðist hann
ætla að berjast gegn einræði
kommúnista og koma á lýð-
ræði í Póllandi.
Ekki er enn vitað hvort
Tadeusz Mazowiecki, forsæt-
isráðherra Póllands og fyrr-
Bandaríkjanna, Dick Cheney,
leysti yfirmann bandaríska
flughersins, Michael Dugan,
frá störfum í gær fyrir laus-
mælgi. Dugan sagði í viðtali
við Washington Post, sem birt
var á sunnudag, að Bandarík-
in myndu gera loftárás á
Lech Walesa.
um ráðgjafi Walesa, muni
einnig gefa kost á sér til emb-
ættisins. Stuðningsmenn for-
sætisráðherrans innan Sam-
stöðu segja Walesa ekki hæf-
an til að gegna forsetaemb-
ætti sökum menntunarskorts
og tilhneiginga til að vera of
einráður.
Walesa hefur ítrekað að
hann hafi ekki áhuga á for-
setaembættinu sem slíku en
Baghdad kæmi til stríðs og að
lögð yrði sérstök áhersla á að
drepa Saddam Hussein.
Cheney sagði að Dugan hefði
enga heimild til að ræða slík
mál opinberlega og því hefði
verið nauðsynlegt að reka
hann.
segist líta á það sem skyldu
sína að koma á lýðræði í Pól-
landi sem fyrst. Hann hefur
lengi gagnrýnt Mazowiecki
fyrir að fara sér of hægt í að
koma á breytingum í átt til
lýðræðis.
Stuðningsmenn Mazo-
wieckis segja að hann hafi
enn ekki tekið ákvörðun um
framboð þrátt fyrir mikinn
þrýsting frá sterkum öflum
innan Samstöðu. Walesa seg-
ist viss um sigur þrátt fyrir
mótframboð Mazowieckis og
telur það aðeins vafamál
hversu stór sigur sinn verði.
í dag mun Walesa og leið-
togar helstu stjórnmála-
flokka Póllands koma saman
til að ræða fyrirhugaðar
kosningar í landinu. Búist er
við að í framhaldi af fundin-
um muni pólska þingið fara
fram á afsögn núverandi for-
seta landsins, Wojciech
Jaruzelski.
forsetaframboð
Gorbatsjov Sovétleiðtogi
Ryzhkow sitji áfram
Míkhaíl Gorbatsjov Sov-
étleiðtogi hafnaði í gær
kröfum um afsögn forsæt-
isráðherrans, Níkolajs
Ryzhkovs.
Þetta kom fram á fundi
Æðstaráðsins, degi eftir
fjöldamótmæli í Moskvu, þar
sem að minnsta kosti hundr-
að þúsund umótasinnar söfn-
uðust saman og kröfðust af-
sagnar Ryzhkovs og ríkis-
stjórnarinnar samstundis og
að markaðsbúskap yrði kom-
ið á sem fyrst. Gorbatsjov
sagði að afsögn Ryzhkovs og
ríkisstjórnarinnar nú væri
útilokuð þar sem slíkt mundi
leiða til upplausnar í stjórn-
málum landsins og aukins
óróa í þjóðfélaginu.
Sovétleiðtoginn sagði að
ríkisstjórnin ætti að sitja þar
tii markaðsbúskap væri kom-
ið á en að þá væri eðlilegt að
stokka upp.
Hann hvatti til pólitískrar
samstöðu og varaði við pólit-
ískum vígaferlum og verkföll-
um.
Ryzhkov hefur verið kennt
um langvarandi matarskort
og harðræði í Sovétríkjunum
og undanfarið hefur hann
verið harðlega gagnrýndur
fyrir að standa gegn róttækri
áætlun um umskipti í átt til
markaðsbúskapar, svokall-
aðri 500 daga áætlun sem
hefur verið kennd við hag-
fræðinginn Sjatalín. Sjálfur
hefur Ryzhkov lagt fram
áætlun sem þykir ekki eins
róttæk. Haft hefur verið eftir
honum að hann muni segja af
sér verði tillaga hans ekki
samþykkt.
Gorbatsjov hefur lýst
stuðningi sínum við 500 daga
áætlun Sjatalíns.