Alþýðublaðið - 21.09.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 21. sept. 1990
INNLENDAR FRETTIR
3
FRÉTTIR
í HNOTSKURN
FLUGLEIÐIR FÁ BRÁÐABIRGÐAHÆKKUN: Eids-
neytisverð hefur hækkað mikið að undanförnu og bitnar
það m.a. á flugrekstrinum. Flugleiðir hafa nú fengið leyfi
samgönguráðuneytis til að hækka fargjöld um 3,5% frá 1.
október. Er það lítillega minna en félagið fór fram á. Hækk-
un þessi er veitt með því fororði að fylgst verði með þróun
verðlags á eldsneyti á næstu vikum og þessi ákvörðun þá
endurskoðuð, ef nauðsyn ber til.
UTANRÍKISRÁÐHERRA RÆÐIR VIÐ BIRNU: jóu,
Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra átti fund á
mánudaginn með Birnu Hjaltadóttur, sem nýkomin er
heim frá Kúvæt. Ræddu þau meðal annars ástandið við
Persaflóa og í Kúvæt, og stöðu íslendinganna sjö sem enn
eru innlyksa í landinu.
SKJALAFLÓÐIÐ 0G
TÆKNIN: Sagt er að all-
stórar matvörubúðir eigi
gömul skjöl sem fylla gjör-
samlega stór geymsluhús-
næði. Þetta er gert lögum
samkvæmt, — enda þótt
allir viti að erfitt muni að
finna fylgiskjöl, eigi að
grípa til þeirra á annað
borð. Nútímatæknin gerir
þessa geymslu auðvelda
með notkun örgagna og
ljósdiska, þar sem geyma
má hverskonar skjöl og upplýsingar. Stjórnunarfélag ís-
lands fær á næstunni til sín fyrirlesara, David O. Steph-
ens, en hann er forseti og aðalframkvæmdastjóri alþjóð-
legra samtaka skjalastjórnenda. Námsstefna um þessi mál
verður haldin á Höfða á Hótel Loftleiðum 2. október, eink-
um ætluð stjórnendum sem annast skrifstofurekstur og
skjalastjórn. Innritun er hafin hjá Stjórnunarfélaginu.
TRYGGINGAFÉLÖG HJÁLPA IÐNSKÓLA: verk-
námsdeildir Iðnskólans í Reykjavík hafa verið í hálfgerðu
fjársvelti og hefur þeim reynst stöðugt erfiðara að gegna
hlutverki sínu af þeim sökum. Tryggingafélögin hafa nú
komið til hjálpar þeim þætti þar sem fram fer verkleg
kennsla í réttingum. Telja félögin sig eiga mikið undir því
að verkþekking iðnaðarmanna sé góð. Hafa tryggingafyr-
irtækin ákveðið að gefa Iðnskólanum 9 bifreiðar sem verk-
efni fyrir nemendu r í bifreiðasmíði. Verða bílarnir afhentir
á næstu fimm árum. Myndin er frá athöfn þegar Ingi R.
Helgason, forstjóri VIS afhenti Ingvari Asmundssyni,
skólameistara, gjafarbréf tryggingafélaganna.
RÁÐHERRA TIL
BÚDAPEST: Jón Sig-
urðsson, viðskipta- og iðn-
aðarráðherra, er nú í Ung-
verjalandi í opinberri heim-
sókn í boði Bela Kádárs
og Akos Peder-Bod, sem
gegna störfum iðnaðar- og
viðskiptaráðherra þar í
landi. Jón verður viðstadd-
ur opnun mikillar alþjóð-
legrar vörusýning ar í Búda-
pest, en þar var íslending-
um og Finnum sérstaklega
boðið að kynna framleiðslu
sínaogþjónustu. Munu Islendingar leggjasérstaka áherslu
á nýtingu jarðhita og sölu á íslenskum búnaði og þekkingu
í því sambandi. Einnig munu ullarvara, sjávarafurðir og
lagmeti eiga sinn bás á sýningunni.
SANNUR ÍSLANDSVINUR: Aðaleigandi stórfyrir-
tækisins Tetra Pak, sem framleiðir mjólkurfernurnar sem
íslendingum eru að góðu kunnar, heitir dr. Gad Rausing.
Hann er fornleifafræðingur að mennt. Dr. Rausing hefur
mikinn áhuga á íslandi — burtséð frá mjólkurfernuvið-
skiptunum — og hefur sýnt í verki vinsemd sína. Á síðasta
ári beitti hann sér fyrir því að fyrirtækið gaf 40 milljónir
ísl. króna í því skyni að tryggja framtíð kennarastóls í ís-
lensku við Oxford-háskóla, sem kenndur er við Guðbrand
Vigfússon. í dag mun dr. Rausing verða sæmdur fálkaorð-
unni fyrir þá rausn sem hann hefur sýnt. Annað kvöld
heldur forseti íslands dr.Rausing kvöldverðarboð.
Evrópubandalagiö gerir kröfu til EFTA-landanna:
BIIRTU MEÐ
TOLLMÚRANA
Frá Þorláki Helgasyni, Alþýdublaö-
id, Stokkhólmi.
Evrópu bandalagið
mun í næsta mánuði
birta lista yfir landbún-
aðarvörur sem það vill
fá að selja inn á markað
EFTA-landanna, hafta-
Iaust.
í fréttum frá Brussel segir
að EB muni krefjast þess að
EFTA dragi úr tollvernd og
niðurgreiðslum. EFTA-ríkin
hafa fram að þessu hafnað
því að ræða landbúnaðar-
vörur, en nú óskar EB eftir
því að reglur og ákvæði á
þessu sviði verði sam-
ræmdar milli samtakanna.
Fram til þessa hafa
EB-ríkin við Miðjarðarhaf
haft mestan áhuga á að
EFTA-markaðurinn opnist
upp á gátt fyrir afurðir að
sunnan. En nú hefur þeim
sunnanmönnum bæst liðs-
styrkur, því Þýskaland og
Holland hafa tekið undir
kröfur þeirra.
Niðurgreiðslur eru að
jafnaði miklu hærri í
EFTA-löndum en í löndum
Efnahagsbandalagsins. I
Finnlandi, Noregi og í Sviss
eru niðurgreiðslur til út-
flutnings ásamt tollaíviln-
unum metnar 70% af fram-
leiðsluverðmætum. Út-
flutningsbætur á íslandi
hafa ennfremur verið mikl-
ar, en útflutningur landbún-
aðarvara frá Islandi þó
dregist mjög saman undan-
farin ár og er raunar sáralít-
ill í dag.
Sœnskir hrifnir af FRAM:
Jón Erlingur í
atvinnumennsku?
Frá Þorláki Helgasyni, Alþýöubladid,
Stokkhólmi.
Nú er það spurningin
hvort Jón Erlingur Ragn-
arsson, hinn knái kappi í
knattspyrnuliði Fram, fær
ekki boð um atvinnu-
mennsku í Svíþjóð. Að
minnsta kosti verður það
svo, ef þulurinn í sænska
sjónvarpinu fær að ráða.
í fyrrakvöld fékk íslensk
knattspyrna 10 mínútna aug-
lýsingu í íþróttaþætti á aðal-
rás sænska sjónvarpsins eftir
að Framarar lögðu Djurgár-
Islenska Óperan á
ferð í Gautaborg:
Glansandi
tenór
— segir í umsögn um
söng Gardars Cortes
Frá Þorláki Helgasyni, Alþýdubladid,
Stokkhólmi.
Garðar Cortes var glans-
andi tenór í hlutverki leik-
hússtjórans Canio í „I
Pagliacci", segir í sænska
stórblaðinu Dagens Ny-
heter þar sem fjallað er
um söng og leik íslensku
óperunnar í Gau taborg um
síðustu helgi.
Alþingishátíðarkantötu
Jóns Leifs í flutningi óperunn-
ar átti blaðamaðurinn erfið-
ara með að kyngja. Auðmelt-
ari þóttu honum ,,Tíu íslensk-
ir söngvar" eftir Jón Ásgeirs-
son í flutningi kórs óperunn-
ar. Evrópskt verk sem sannar
að ísland er ekki einangrað
land, segir blaðið.
den svo eftirminnilega og
Jón Erlingur hafði skorað tvö
markanna þriggja í 3:0 sigri
Fram.
„Við verðum að venjast því
að Davíð slái Golíat út," sagði
fréttamaðurinn, sem fylgdist
með viðureign Fram og Djur-
gárden. Það leyndi sér ekki
að hann var hrifinn af knatt-
leikni leikmanna Fram. „Sjá-
ið bara hversu glæsilega Jón
Erlingur fer að,“ sagði hann. í
útsendingunni fengu áhorf-
endur að sjá „landsliðsmann
með mikla reynslu," eins og
sjónvarpsmaðurinn sagði og
átti við Pétur Ormslev.
„Markússon, Daðason og
Kristinsson" fengu auk þess
mikið lof fréttamannsins.
Auk góðra einstaklinga fengu
Svíar að sjá þrjú glæsimörk
Framara.
Dagblöð í gær telja litlar
líkur á að Djurgárden komist
áfram í keppninni. Svenska
Dagbladet segir að Jón Er-
lingur hafi með öðru marki
sínu „rekið naglann í kistu
Djurgárdens." Blaðamaður-
inn segir að í seinni hálfleik
hafi Jón Erlingur og Ríkharð-
Frá Þorláki Helgasyni, A Iþýdublaöiö,
Stokkhólmi.
Kjarnorkuver verða lögð
niður í Svíþjóð og á þeirri lok-
un að vera lokið árið 2010.
Ríkisstjórnin hyggst ná sam-
ur leikið sér að sænsku vörn-
inni.
Þjálfari Svíanna hafði sagt
fyrir leikinn að lið hans yrði
að leika vel til að eiga mögu-
leika á að halda í við Fram og
flestir spekingar á íþrótta-
sviði höfðu spáð jafntefli.
stöðu við Þjóðarflokkinn og
Miðflokkinn og er óbundin af
því að hefjast handa 1995, en
það ár átti að taka fyrsta ver-
ið úr notkun samkvæmt fyrri
samþykktum.
Engin kjarnorka
eftir árið 2010