Alþýðublaðið - 21.09.1990, Síða 8
• • • • • • • • •
• • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • •
• • • • • • • • • • • • • • • • • • • • •
Franskir skriðdrekar á leið til Saúdi-Arabíu.
NIKOSIU Saddam Hussein, forseti íraks, segir að írakar
séu reiðubúnir til langvarandi stríðs gegn Bandaríkjunum
komi til átaka við Persaflóa. „Gerist þess þörf, munum við
berjast í þrjú, fjögur, fimm eða sex ár,“ sagði Saddam. Hann
hefur látið taka upp myndband með ávarpi sínu til banda-
rísku þjóðarinnar þar sem hann skýrir afstöðu sína í Persa-
flóadeilunni. írakar hafa farið fram á það við Bandaríkja-
menn að þeir sjónvarpi ávarpinu.
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM: Fastafulltrúar Öryggis-
ráðsins samþykktu að banna flugumferð til íraks nema
flugmenn heimiii skoðun á varningi sínum áður. Öryggis-
ráðið í heild mun greiða atkvæði um loftbannið í dag. Fast-
lega er gert ráð fyrir að það verði samþykkt.
SAUDI-ARABIU ! Fyrsta sending v-þýskra ökutækja sem
hafa búnað til að greina eiturefni kom til Saúdí-Arabíu í
gær. Fulltrúar bandalags V-Evrópuríkja sem funda í París
segja að herskipafloti Evrópumanna í Persaflóanum sé lítt
varinn fyrir hugsanlegum sprengjuárásum Iraka nema
stjórnun flotans verði samræmd. Fyrstu sveitir franskra
fótgönguliða sigldu áleiðis til Saúdí-Arabíu í gær og munu
verða tilbúnar til að taka sér stöðu fyrir 5.október, að sögn
talsmanns franska hersins.
KAIRO Heimildir úr varnamálaráðuneytinu segja að Eg-
yptar íhugi að auka framlag sitt til f jölþjóðaherliðsins sem
er Saúdí-Arabíu til varnar. Þeir hafa nú þegar 20.000
manns í herliðinu.
DHAKA: Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins segir
ólíklegt að Yasser Arafat leiðtogi PLO geti orðið sáttasemj-
ari í Persaflóa-deilunni því að enginn muni treysta honum.
BEIJING: Ólympíunefnd Asíu hefur ákveðið að meina
írökum þátttöku í Asíuleikunum sem hefjast á morgun.
JOHANNESARBORG: Lögreglan viðurkenndi í fyrsta
skipti að hún væri að leita hvíts byssumanns vegna morðs
eftir að deyjandi kona staðfesti að morðingi hennar hefði
verið hvítur. Afríska þjóðarráðið sleit neyðarfundi eftir
viðræður við keppinaut sinn, Inkatha-hreyfinguna, og
vildi ekkert um það segja hvort það myndi halda áfram
samningaviðræðum við ríkisstjórnina. Að sögn fjölmiðla í
Suður-Afríku segir Nelson Mandela að Afríska þjóðarráðið
muni ekki svara kalli félaga sinna um að grípa til vopna sér
til varnar. Hins vegar mundi það leiða til stríðs ef stjórnin
í Pretoríu misnotaði friðarvilja Þjóðarráðsins.
MOSKVA : Háttsettur hershöfðingi í Moskvu ásakar rót-
tæklinga að grafa undan ríkinu og skeyta ekki um viðvar-
andi ógnun frá Vesturveldunum.
AUSTUR-BERLIN: Austur-þýska þingið staðfesti sam-
einingarsáttmála þýsku ríkjanna í gær þannig að ekkert er
nú í veginum af hálfu Austur-Þjóðverja til að sameiningin
geti orðið 3. október. Vestur-þýska þingið átti að staðfesta
samninginn síðar í gær. Yfirmaður löggæslu í Vest-
ur-Þýskalandi sendi út viðvörun þess efnis að ofstækis-
menn sem vildu ekki sætta sig við sameininguna kynnu að
veita stjórnmálamanni eða iðnjöfri banatilræði á næst-
unni.
AÞENU: Forseti Grikklands, Konstantín Karamanlís,
sagði að það væri flekkun á Ólympíuleikunum og áliti
æðstu stjórnar þeirra að Atlanta skyldi hafa verið falið að
halda sumarleikana 1996 en ekki Aþenu. Hann tók undir
með þeim sem hafa sagt að Alþjóðaólympíunefndin hafi
látið gróðasjónarmið ráða. Á sama tíma stöðvuðust hjól at-
vinnulífsins í Grikklandi vegna mótmæla gegn aðhaldsað-
gerðum stjórnvalda.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Glúmur Baldvinsson
Persaflóadeilan:
Saddam reiðubúinn i
langvarandi strið
Saddam Hussein, forseti
íraks, sagðist í gær vera
reiðubúinn til að heyja
margra ára stríð við
Bandaríkin komi til átaka í
Samningavidrœdur
strídandi fylkinga
í S-Afríku:
Leita
lausnar
Pólitísku erkifjendurnir,
liðsmenn Afríska þjóðar-
ráðsins og frelsishreyfing-
ar Inkhata, sem háð hafa
stríð í bæjarhlutum
svartra í Jóhannesarborg
undanfarinn mánuð, áttu í
gær viðræður um hvernig
binda mætti enda á átökin,
að sögn Nelsons Mandela,
leiðtoga Afríska þjóðar-
ráðsins.
Þetta var sögulegur fundur
og sá fyrsti á milli háttsettra
liðsmanna hreyfinganna frá
1979. „Þetta voru vinalegar
viðræður og báðir aðilar
voru sammála um alvarleika
málsins og sýndu vilja til að
leysa það," sagði einn af með-
limum Afríska þjóðarráðsins,
Joel Netshitenze.
f sameiginlegri yfirlýsingu
fundarmanna sagði: „Við-
ræðurnar voru tilraunalegs
eðlis, þar sem báðir deiluaðil-
ar leituðust við að skilja af-
stöðu hvor annars og skýra
sína eigin."
760 manns hafa fallið í bar-
dögum hinna stríðandi fylk-
inga undanfarnar sex vikur.
Mandela hefur sakað leið-
toga Inkatha, Mangosuthu
Buthelezi, um að hafa átt
upptökin að átökunum og
fyrir að reyna skjóta sér leið
inn í samningaviðræður Afr-
íska þjóðarráðsins og ríkis
stjórnar hvítra um afnám að
skilnaðarstefnunnar.
Persaflóa. Yfirlýsing Sadd-
ams kom í kjölfar hótana
George Bush Bandaríkja-
forseta um að hann væri
tilbúinn til að taka upp
hertar aðgerðir dygði við-
skiptabann Sameinuðu
þjóðanna ekki til að hrekja
Iraka á brott frá Kúvæt.
Hlutabréf á mörkuðum í
Evrópu féllu í verði í gær í
kjölfar yfirlýsinga leiðtog-
anna og hefur verð þeirra
ekki verið lægra við lokun
markaðar á þessu ári.
í viðræðum við fyrrverandi
forsætisráðherra Tyrklands,
Bulent Ecevit, sagði Saddam
að írakar hefðu háð átta ára
stríð við írani og að þeir væru
reiðubúnir í langvarandi stríð
við Bandaríkin gerðist þess
þörf.
Yfirvöld í Baghdad hafa
farið fram á það við Banda-
ríkin að myndbandi með
skilaboðum frá Saddam Hus-
sein til bandarísku þjóðarinn-
ar verði sjónvarpað þar í
landi. Beiðnin kemur í kjölfar
sýningar á myndbandi með
ávarpi Bush til írösku þjóðar-
innar sl. helgi.
Fastafulltrúar Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna sam-
þykktu í gær flugbann á írak.
Þeir vilja banna alla flugum-
ferð til Iraks og Kúvæts nema
flugmenn fallist á að vélarnar
séu skoðaðar fyrst utan land-
anna. Einungis á eftir að fá
staðfestingu ríkisstjórna
fastafulltrúanna til að loft-
bannið taki gildi. Til að fram-
fylgja banninu verður heimilt
að neita flugmönnum um
þjónustu á jörðu niðri en ekki
að skjóta flugvélar niður.
Skjóta má aðvörunarskotum
fáist samþykki herflugstjórn-
ar landsins sem flogið er yfir
fyrir því.
LOFTFERÐABANN SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
f*, * ‘ JW*'
li JllMÉálfea
mmé’
m&mm-
Iran
Kúvæt
* að leyfa f lutnlnga af mannúoar ástæðum
n Flugvélar sem efcki heímila skoðun verða övíptar tryggíngu og íendingarrétti í öörum lön< lliliill
o Herffugvélar geta flogið til móts við brotlegar ó flugvéiar en hafa ekki leyií tii aö skjóta á þær
4 Fiugher lands $em flogíð er yíír * til aio skjóta aðvorunarskotum getur veitt leyf lillllllll
Greenpeace-samtökin:
Mótmæla kiarnorku-
sprengingum Sovétmanna
Greenpeace-samtökin
tilkynntu í gær að þau
hefðu sent seglskipið M.V.
Greenpeace til Novaja
Zemlja eyja í Brentshafi til
að mótmæla áætlunum
Sovétmanna um að taka
upp að nýju kjarnorku-
sprengingar í tilrauna-
skyni á norðurskauts-
svæðinu.
Aðalsprengjutilraunasvæði
Sovétmanna hefur undanfar-
ið verið í Kazakhstan en í
kjölfar mótmæla almennings
hefur tilraunum verið hætt
þar og ákveðið að hefja til-
raunir á svæðinu í kringum
Novaja Zemla eyjar. Á árun-
um 1958—63 voru þessar eyj-
ar aðaltilraunasvæði Sovét-
manna.
Skip Greenpeace-manna
hélt úr höfn í Tromsö í Noregi
og mun á leið sinni eiga við-
komu í Múrmansk, Arkhang-
elsk og Vajgatsj eyjum til að
mótmæla kjarnorkuspreng-
ingum Sovétmanna neðan-
sjávar og til að rannsaka um-
hverfisspjöll af völdum
þeirra.
„Sovétmenn ætla að auka
tilraunir með kjarnorku-
sprengingar neðansjávar
þrátt fyrir mótmæli nágranna
þeirra í Skandinavíu og hættu
á aukinni mengun af völdum
geislavirks úrgangsefnis á
svæðinu," sagði talsmaður
Greenpeace-samtakanna,
Steve Shallhorn. „Vilji Sovét-
menn að viljayfirlýsingar
þeirra um frið og afvopnun
séu teknar alvarlega, verða
þeir að hætta öllum tilraun-
um með kjarnorkuvopn,"
bætti hann við.
í dag eru tilraunir með
kjarnavopn stundaðar af
Frökkum, Bretum, Banda-
ríkjamönnum, Kínverjum og
Sovétmönnum. í janúar á
næsta ári er fyrirhugað að
halda ráðstefnu 116 ríkja í
New York til að ræða hvort
ekki beri að leggja alhliða
bann við öllum kjarnorku-
sprengingum í tilraunaskyni.