Alþýðublaðið - 22.09.1990, Page 4
4
VIDHORF
Laugardagur 22. sept. 1990
MMDUBLMD
Ármúli 36 Simi 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
GJALDÞROT GAMLA
HÚSNÆÐISKERFISINS
Ríkisendurskoöun hefur, að
beidni Þorsteins Pálssonar al-
þingismanns, sent frá sér skýrslu
um fjárhagslega stöðu og skuld-
bindingar Byggingarsjóðs ríkis-
ins og Byggingarsjóðs verka-
manna. Skýrslan er í fáum orð-
um sagt dauðadómur yfir bygg-
ingasjóðunum og gamla hús-
næðiskerfinu sem slíku.
*
I niðurstöðum skýrslu Ríkisend-
urskoðunar segir, að þó svo að
útlánastarfsemi sjóðanna yrði
hætt nú þegar, yrði ekki komið
í veg fyrir að eigið fé Byggingar-
sjóðs ríkisins gengi til þurrðar
eftir 15 ár og eigið fé Byggingar-
sjóðs verkamanna eftir 11 ár. Eft-
ir sem áður myndi sjóðina
skorta verulegt fé á ofangreind-
um tímamörkum til að standa
undir þeim skuldbindingum
sem þá munu hvíla á þeim. Til
að standa undir þeim skuldbind-
ingum sem nú þegar hvíla á
Byggingarsjóði ríkisins, þyrfti
árlegt framlag ríkissjóðs að vera
að meðaltali um 460 milljónir
króna fram til ársins 2005. Fram-
lagið til Byggingarsjóðs verka-
manna þyrfti að vera um 370
milljónir króna á ári að meðal-
tali til ársins 2016. Hætti sjóðirn-
ir strax útlánastarfsemi sinni
jafnframt því sem framlög ríkis-
sjóðs féllu niður, þyrfti í árslok
2028 að leggja sjóðnum til um
62 milljarða króna til þess að
gera skuldir þeirra upp við lána-
drottna. Haldi sjóðirnir áfram
starfsemi sinni óbreyttri frá því
sem nú er til ársloka árið 2028,
jafnframt því sem framlög A-
hluta ríkissjóðs haldist óbreytt
frá því sem þau eru í ár og þörf
sjóðanna fyrir lánsfé verði svar-
að allan tímann, mun vanta um
400 milljarða króna til að geta
gert upp að fullu við lánadrottna
sína í árslok 2028.
Þessar staðreyndir úr niður-
stöðum Ríkisendurskoðunar
sýna einfaldlega, að gamla hús-
næðiskerfið sem komið var á fót
í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins 1986 er löngu hrunið. Þessar
niðurstöður Ríkisendurskoðun-
ar sanna endurteknar ábending-
ar Jóhönnu Sigurðardóttur, nú-
verandi félagsmálaráðherra, að
stokka þurfi upp húsnæðiskerf-
ið. Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefur komið á
fót mikilsverðum nýjungum til
hagræðingar og úrlausnar, eins
og kaupleigukerfi, húsbréfum
og bættri húsnæðisaðstöðu fatl-
aðra. Eftir sem áður lifa gömlu
draugarnir enn í húsnæðiskerf-
inu. Hið niðurgreidda lánakerfi
frá 1986 bjó eðlilega til mikla eft-
irspurn og langar biðraðir eftir
gjafalánum. Stór hluti biðraðar-
innar hefur verið fólk sem er
ekki í neinni þörf fyrir húsnæði
en er hins vegar að slægjast eftir
niðurgreiddu lánsfé. Vaxtamun-
ur lána og greiðslna hefur verið
alltof mikill og margfaldað fjár-
þörf kerfisins auk þess sem
framlög úr ríkissjóði hafa verið
miklu minni en áætlað var. Þar
að auki hafa skuldabréfakaup
Iífeyrissjóðanna skilað sér síðar
en gert var ráð fyrir í upphafi.
eiga sér margar skýringar. Sú
augljósasta er auðvitað sú, að
samkomulagið um húsnæðis-
kerfi það sem Alexander Stef-
ánsson, fyrrverandi félagsmála-
ráðherra, og Asmundur Stefáns-
son, forseti ASI, gerðu með sér
1986, var vanhugsað frá upp-
hafi. Fjármögnun sjóðanna var
aldrei til staðar. Kerfið var í raun
sprungið frá fyrstu stund. Þar
við hefur bæst stjórnskipulegt
öngþveiti í húsnæðiskerfinu
öllu. Kerfið varð að óskapnaði
þar sem mismunandi hags-
munahópar sköruðu hver eld að
sinni köku. Ekki var hugsað um
þjóðarheild eða hagsmuni
þeirra sem á raunverulegri að-
stoð þurftu að halda í húsnæðis-
málum. Bruðlið var endalaust
og kostnaður við byggingar ekki
rétt metinn. Þýðingarmiklir
þættir við heildarskipulagningu
húsnæðismála, eins og erfðir á
fasteignum á komandi árum,
hafa ekki verið metnir að fullu
þegar húsnæðisþörf framtíðar-
innar er til umfjöllunar.
”etta var kerfið sem Jóhanna
Sigurðardóttir tók við sem fé-
lagsmálaráðherra 1986 og hefur
gagnrýnt frá fyrstu stund. Sam-
starfsflokkur Alþýðuflokksins í
ríkisstjórn frá 1987, Framsókn-
arflokkurinn, hefur ekki fengist
til samstarfs um að loka gamla
kerfinu. Svo virðist sem andi Al-
exanders, fyrrum félagsmála-
ráðherra, svífi þar enn yfir vötn-
um. Jóhönnu Sigurðardóttur
hefur því verið gert erfitt fyrir í
núverandi ríkisstjórn að koma
lagi á húsnæðismálin. Engu að
síður hefur núverandi félags-
málaráðherra gert byltingu í
húsnæðismálunum þrátt fyrir
öll líkin í lest stjórnarskútunnar.
Það verður að teljast einstakt af-
rek.
IVú þegar endanlegur dauða-
dómur húsnæðiskerfisins frá
1986 liggur staðfestur í tölum frá
Ríkisendurskoðun, hlýtur að-
eins eitt verkefni að blasa við
ríkisstjórninni: Að jarða líkið.
Byggingarsjóð ríkisins verður
að leggja niður og húsbréfakerf-
ið að taka við. Hlutverki Bygg-
ingarsjóðs verkamanna hefur
verið breytt og er verksvið hans
mun víðtækara en áður. Hins
vegar ber skýrsla Ríkisendur-
skoðunar með sér að víðtækrar
endurskoðunar í stjórnsýslu hús-
næðismála er þörf.
RADDIR
*
Ottast þú aukid ofbeldi i Reykjavík þegar skyggja fer?
Hildur Mósesdóttir, 27 ára skrif-
stofumaöur:
„Nei, alls ekki. Ofbeldið hefur
aukist en ég held að það sé ekki
það mikið. Það verða alltaf einhver
tilfelli en ég óttast þau ekki."
Inga Guðlaugsdóttir, 22 ára
verslunardama:
„Nei, ég óttast það ekki. Það
hefur aukist en ég held samt að
það verði ekki óviðráðanlegt."
Emil Þór Sigurlaugsson, 38 ára
sölufulltrúi:
„Nei, það held ég nú ekki. Ég
held að það sé komið nóg af of-
beldinu og það verði varla meira.
Við skulum að minnsta kosti vona
það."
Kristbjörg Marteinsdóttir, 25 ára
sölufulltrúi:
„Já, ég hef ekkert annað svar.
Ég hreinlega óttast það."
María Kristinsdóttir, 25 ára
prentsmiður:
„Nei, ég óttast það ekki. A.m.k.
ekki miðað við það sem hefur
gengið á í sumar og undanfarna
mánuði."
Raddir frá 19.9. eru endurbirtar vegna mistaka vid myndaupprödun. Viðkomandi eru beðnir afsökunar á þessum mistökum.