Alþýðublaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 1
MÞYBUBLMIIfl
Aktu ekki út i óvissuna
aktuó
j=»-irr4
Ingvar
Helgason hf.
Sævarho»öa2 Simi 91-67 4000
163. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
LAUGARDAGUR
27. OKTÓBER 1990
ALEXANDER GEGN
TEKJUTRYGGINGU:
Alexander Stefánsson,
þingmaður Framsóknar-
flokksins og fyrrverandi fé-
lagsmálaráðherra, segist
mótfallinn tekjutryggingu
ellilífeyris eins og núver-
andi tryggingamálaráð-
herra leggur til. Þetta kom
fram við umræðu um fjár-
lagafrumvarpið á Alþingi í
fyrradag. Alexander sagðist vera andvígur væntanlegu
frumvarpi eins og það var kynnt. Hann leggst gegn fyrir-
huguðu hafnargjaldi og telur að fjárveitinganefnd eigi að
fá að kanna málið betur áður en þetta verður ákveðið.
ARNÞÓR GARÐARSON FORMAÐUR NÁTT-
ÚRUVERNDARRÁÐS: Við upphaf þings Náttúru-
verndarráðs í gær flutti Júlíus Sólnes umhverfisráðherra
ávarp og tilkynnti að Arnþór Garðarson prófessor hefði
verið skipaður formaður Náttúruverndaráðs og Birna G.
Bjarnleifsdóttir leiðsögumaður varaformaður. Eyþór Ein-
arson, sem hefur verið formaður ráðsins undanfarin 12 ár,
baðst undan því að halda áfram formennskunni. Eitt helsta
umræðuefni þingsins nú er ferðamál og umgengi ferða-
manna við náttúru landsins.
ÍSLENSKUR TÓNLISTARDAGUR: í dag, fyrsta vetr-
ardag, er íslenskur tónlistardagur haldinn hátíðlegur í
fjórða skipti og mun tónlistarfólk víða láta heyra í sér. RA-
RIK-kórinn syngur í Kringlunni kl. 12.30 og í forsal Borgar-
leikhússins verða blústónleikar milli kl. 15 og 17. Tónlistar-
skóli FÍH verður með opið hús að Rauðagerði 27 milli kl.
14 og 18. Þar verða tónleikar og kynning á starfsemi skól-
ans. Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar verður með opið
hús milli kl. 13 og 15 að Hraunbergi 2 fyrir forskólanem-
endur og foreldra þeirra. Þar verður hljóðfærakynning,
tónleikar og fundur með foreldrum. fslenskar hljómplötur
fást með sérstökum afslætti í dag.
JC-DAGURINN:ídager
JC-dagurinn og í tilefni af
því hafa JC-félagar víðs
vegar um land afhent sex
ára börnum litabók. Hún er
gefin út undir kjörorðinu
„Ungt fólk fyrir heimsfriði"
en þetta er alþjóðlegt kjör-
orð JC-félaga um allan
heim.
FLYTJA BHMR-MENN ÚR LANDI?: Formaður Nor-
rænu ráðherranefndarinnar, Thor Pedersen, innanríkis-
ráðherra Danmerkur, og sendiherrar Norðurlanda í Kaup-
mannahöfn undirrituðu í gær samning um norrænan
vinnumarkað fyrir háskólamenn og aðra með minnst
þriggja ára nám á háskólastigi. Samningurinn er eins kon-
ar viðbót við núgildandi samninga um samnorrænan
vinnumarkað flestra stétta innan heilbrigðisþjónustunnar
og kennara í grunnskólum og framhaldsskólum. Búist er
við að samningurinn taki gildi næsta sumar þegar nauð-
synlegar lagabreytingar hafa verið gerðar. Þá ættu til
dæmis íslenskir lögfræðingar að geta starfað í sínu fagi í
Noregi eða Svíþjóð.
LEIÐARINNIDAG
í fyrri leiðara dagsins fjallar Alþýðublaðið um svart-
sýni bændaforystunnar varðandi frumtillögur ís-
lendinga í G ATT viðræðunum. Blaðið telur þessi við-
brögð mjög ógrunduð. I síðari leiðara blaðsins eru
orð Roberts G. Millers varaforstjóra Alumax í viðtali
við Alþýðublaðið í gær til umræðu. Blaðið segir að
Miller hafi sent skýr skilaboð til íslendinga hvað
varðar nauðsyn pólitískrar samstöðu ef samningar
um nýtt álver eiga að garíga upp.
SJÁ LEIÐARA A BLS. 4: ÁSTÆÐULAUS SVART-
SÝNI BÆNDAFORYSTUNNAR og HÆTTULEGUR
SKOLLALEIKUR í PÓLITÍK.
Prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins
Ástandið í
Rúmeníu
í kvöld lýkur prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík fyr-
ir næstu þingkosningar.
Tryggvi Harðarson hefur hler-
að hug ýmissa sjálfstæðis-
manna til frambjóðenda próf-
kjörsins og spáir í spilin.
Fréttirfrá Rúmeníu hafa ekki
veriö í brennidepli að undan-
förnu en þar á sér stað mikil
gerjun í þjóðlífinu. Adda Steina
Björnsdóttir blaðamaður var
þar á ferð fyrir skömmu og lýsir
því sem fyrir augu og eyru bar.
Vantar fólk í
fisk og hjúkrun
IÁ sama tíma og 1300 manns
voru skráðir atvinnulausir í síð-
asta mánuði vantar liðlega 500
manns til starfa við fiskvinnslu
og við rekstur sjúkrahúsa.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um könnunar á atvinnu-
ástandi.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins leitar að samnefnara í pólitík
SERFRAMBOD
BIRTINGAR?
Miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins kemur saman til
fundar á Akureyri um
helgina. Alþýðubanda-
lagsmenn hafa ekki samið
sameiginlega stjórnmála-
yfirlýsingu síðan 1987 og
segja gárungar að fundar-
tíminn á Akureyri muni að
mestu fara í að leita að
minnsta samnefnara
bandalagsins. Fáir gera
ráð fyrir að hann finnist.
Jafnvel gæti farið svo að
Birting segði skilið við
móðurskipið og byði fram
sér í vor.
Steingrímur Sigfússon,
landbúnðarráðherra og vara-
formaður flokksins, er á
heimaslóð fyrir norðan.
Þetta er hans kjördæmi.
Svanfríður Jónasdóttir, fyrr-
verandi varaformaður og að-
stoðarmaður Ólafs Ragnars,
hefur sagt að hún vilji bara
annað sætið fyrir norðan. Lít-
ið hefur heyrst frá henni upp
á síðkastið, en aðrar tungur
segja að hún gæti allt eins far-
ið í slaginn með öðrum
flokki. Kannski er þá það
vandamál úr sögunni fyrir
Steingrím að Svanfríður vegi
að honum, en hann á víðar í
vök að verjast.
í vikunni lagði Steingrímur
nefnilega fram drög að
stjórnmálayfirlýsingu sem
hann ætlaði að yrði sam-
þykkt fyrir norðan á fundi
miðstjórnarinnar. Drögin
munu hafa lent inni í þing-
flokki Alþýðubandalagsins
og Steingrímur hafa átt erfitt
uppdráttar. Fremur er litið á
ritsmíð hans sem lofræðu um
tvo ráðherra en efni í stjórn-
málayfirlýsingu. Fjármála-
ráðherrann, formaður Al-
þýðubandalagsins mun af-
greiddur í tveimur línum, en
afrek landbúnaðarráðherra
og menntamálaráðherra tí-
unduð í bak og fyrir. Óbreytt-
um liðsmönnum þykir nóg
um og því verður ritgerð
Steingríms líklegast ekki
undirstaða í því sem kemur
sameiginlega frá miðstjórn-
arfundinum á Akureyri. Ef
þaðan kemur þá nokkuð
nema í pörtum.
Sjá nánar á þingsíðu bls. 8
RITSTJORN r 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLYSINGAR 681866