Alþýðublaðið - 27.10.1990, Síða 5
Laugardagur 27. október 1990
5
Álverið á Keilisnesi veröur eins og Mount Holly álverið í Charleston, S-Karólínu í Bandaríkjunum (mynd). Svæðið undir framleiðsluhúsin er 110 hektarar en umhverfissvæð-
ið allt sem m.a. býr yfir miklum gróðri og dýraríki er hins vegar um 2400 hektarar.
Álverksmiðjan á Keilisnesi mun framleiða um 200
þúsund smálestir af áli á ári og talað hefur verið um
að auka framleiðslugetuna siðar upp i 400 þúsund
smálestir af áli á ári. Landsvæðið undir framleiðslu-
húsin mun verða 100 hektarar eða 250 ekrur. Höfn-
in verður með 12 metra djúpristu til að geta tekið á
máti stárum skipum.
Kostnaður við smiði verksmiðjunnar mun verða
um einn milljarður Bandarikjadellara.jUm 55 millj-
arðar isl. krána.) Mengunarbúnaðurinn mun kesta
um 50 milljónir Bandarikjadollara.
INGÓLFUR MARGEIRSSON SKRIFAR
Alþýðublaðinu gafst tækifæri
fyrr í vikunni ásamt öðrum ís-
lenskum fjölmiðlum að skoða ál-
verksmiðju Alumax í jaðri borgar-
innar Charleston í S-Karólínu í
Bandaríkjunum. Álverið Mount
Holly var byggt fyrir áratug og
mun fyrirhugað álver á Keilisnesi
verða mjög áþekkt ef ekki nánast
alveg eins og álverið í Charleston.
Alumax er þriðji stærsti fram-
leiðandi áls í Bandaríkjunum og
stór framleiðandi álefna og álvara
á alþjóðavísu. Af 105 fyrirtækjum
í Norður-Ameríku og Vestur-Evr-
ópu sinna öll nema fjögur álefna-
og álvöruframleiðslu.
Ahersla á mengunar-
búnað og umhverfi .
Alumax framleiðir um 500 þús-
und smájestir af áli á ári í fjórum
verum. Álverið í Charleston fram-
leiðir 185 þúsund lestir á ári, eða
líkt og fyrirhugað er að álverið á
Keilisnesi muni gera.
Stærð framleiðsluhúsanna í
Charleston-verinu, eða Mount
Holly-verinu, er um 275 ekrur eða
110 hektarar sem er næstum sama
stærð og verður á Keilisnesi (100
hektarar).
Það sem strax vekur athygli þeg-
ar gengið er um framleiðslusvæð-
ið, er hve hreint loftið er og snyrti-
legt umhorfs. Hvergi eru mengun-
arský að sjá yfir verksmiðjunni og
ekki er unnt að greina neinn óþef
af framleiðslunni.
Sömu sögu er að segja þegar inn
í verksmiðjuna er komið. Aðeins á
einum eða tveimur minni stöðum
var hægt að tala um rykagnir í
lofti. Hins vegar var talsvert um
hávaða í afsteypuskálanum og
vakti það athygli fréttamanna að
verkamenn báru ekki heyrnarhlíf-
ar. Á fundi með fréttamönnum eft-
ir skoðun verksmiðjunnar sögðu
forráðamenn verksmiðjunnar að
þeir væru að vinna að hávaða-
vörnum fyrir starfsfólk.
Alumax leggur mikla áhersiu á
megnunarvarnir. Starfsdeild 16
manna sér um stöðugar rannsókn-
ir á umhverfi verksmiðjunnar, tek-
ur sýni og fylgist með jarðvegi og
gróðri. Þurrhreinsibúnaður (um
16 þúsund hreinsipokar) nær um
100% af öllu flúori úr kerum. Ryk-
söfnunarbúnaði hefur verið kom-
ið fyrir og frárennslivatn er hreins-
að. Um 10% af byggingarkostnaði
verksmiðjunnar, eða 40 milljónum
dollara, var varið á sínum tíma til
að reisa hreinsibúnað. Um 1,5
milljónum dollara er varið árlega
til mengunarhreinsana og stórum
fjárhæðum varið þar að auki til
umhverfisrannsókna.
##Vil vinnq hér alla »vi"
Það var einkar fróðlegt að skoða
Mount Holly álverksmiðjuna
Sjá næstu síðu.