Alþýðublaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 16.11.1990, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 16. nóvember 1990 Kvenréttindafélag Islands: Gegn prófkjörum „Fundurinn telur vafasamt að þær aðferðir að velja frambjóð- endur með prófkjöri séu rétta leiðin til að styrkja stöðu kvenna á framboðslistum“, segir meðal annars í ályktun frá Kvenrétt- indafélagi íslands. KRFÍ hélt helgarmót í Munaðar- nesi helgina 2.-4. nóvember þar sem aðalumræðuefni var staða kvenna á vinnumarkaðinum og þá sérstaklega launamunur karla og kvenna. Fram kom að félagskonur eru uggandi um hag og gengi kvenna í stjórnamálum í ljósi þess hvernig þeim hefur reitt af í próf- kjörum stjórnamálaflokkanna að undanförnu. í fyrrgreindri ályktun kemur eftirfarandi einnig fram: „Fundurinn ítrekar nauðsyn þess að í lýðræðisþjóðfélagi verði hlutur karla og kvenna við ákvarðanatöku jafnaður." Það stendur því upp á lýðræðis- þjóðfélagið að ákveða hvort réttur til ákvarðanatöku fari eftir lýðræð- islegum leiðum verði bundin í lög eða ákveðin af bestu manna yfirsýn. Bamabílstóll - bílpúði - belti! Notar barnið þitt öryggisbúnað í bílnum? MÉUMFERÐAR Uráð RAÐAUGLÝSINGAR Lausar stöður Tvær stööur eftirlitsmanna með vínveitingahúsum eru lausartil umsóknar, um vaktavinnu erað ræða. Skilyrði er að umsækjendur séu orðnir 30 ára, reglu- samir og hafi góða kunnáttu í íslensku. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt sakavottorði skilist til starfs- mannastjóra fyrir 15. des. nk. Lögreglustjórinn í Reykjavík. Hálf staða deildarbókavarðar (bókasafnsfræðings) við bókasafn Veðurstofu íslands er laus til umsókn- ar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, fyrri störfog meðmælum, ef fyrirhendieru, sendist um- hverfisráðuneytinu eigi síðar en 24. nóvember 1990. Nánari upplýsingar eru veittar í skrifstofu Veður- stofunnar. Veðurstofa íslands. Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur Auglýsing Endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984—2004 Lýst eftir ábendingum og tillögum. Á Borgarskipulagi Reykjavíkur er hafin endurskoð- un á Aðalskipulagi Reykajvíkur 1984—2004, sem samþykkt var af borgarstjórn 21. janúar 1988 og staðfest af félagsmálaráðherra 27. júlí 1988. Aðal- skipulag er stefnumörkun borgarstjórnar varðandi landnotkun, umferðarkerfi og þróun byggðar næstu tvo áratugina 1990—2010. Þessi endurskoð- un er í samræmi við þá stefnumörkun aðalskipu- lagsins frá 1988 að Aðalskipulag Reykjavíkur verði tekið til endurskoðunar í upphafi hvers kjörtímabils þ.e. á 4ra ára fresti. Skipulagsnefnd Reykjavíkur stefnir að því að Ijúka endurkoðun Aðalskipulagsins um mitt næsta ár. Borgarbúum er í fyrsta skipti gefinn kostur á að koma á framfæri skriflegum ábendingum varðandi endurskoðun aðalskipulagsins. Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér þessa vinnu geta fengið afhent gögn um þróun Reykjavíkur á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð. Ábendingarnar skulu berast Borgarskipulagi fyrir 15. desember 1990. Tannvernd Aðstandendur barna eru hvattirtil að gefa börnum sínum jóladagatöl án sælgætis, t.d. jóladagatöl sjónvarpsins. Tannverndarráð Flokllsstarfið Prófkjör Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi Prófkjör Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi vegna tveggja efstu sæta á framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar fer fram laugardag- inn 24. nóvember nk., kl. 10.00—19.00 og verða kjör- staðir auglýstir síðar. Eftirtaldir frambjóðendur verða í kjöri: Eiður Guðnason Gísli S. Einarsson Sveinn Þ. Elinbergsson Sveinn G. Háifdánarson Prófkjörið veröur opið öllum kjósendum í Vestur- landskjördæmi við komandi alþingiskosningar, enda séu þeir ekki félagar í öðrum stjórnmálaflokk- um. Fyrirkjördagskosning fyrir þá, sem ekki verða heima á kjördegi hefst 10. nóvember og fer hún fram hjá eftirtöldum trúnaðarmönnum og á skrif- stofu Alþýðuflokksins í Reykjavík. Trúnaðarmenn: Akranes: Böðvar Björgvinsson, Akurgerði 11, Ingibjörg J. Ingólfsdóttir, Hjarðarholti 7, Steinunn Jónsdóttir, Akurgerði 15. Borgarnes: Ingi Ingimundarson, Borgarbraut 46, Valgeir Ingólfsson, Klettavík 3. Hellissandur: Ingibjörg Finnsdóttir, Háarifi 51. Ólafsvík: Trausti Magnússon, Hjallabrekku 1, Kristín Guðmundsdóttir, Grundarbraut 24. Grundarfjörður: Magnús Álfsson, Hlíðarvegi 23. Stykkishólmur: Davíð Sveinsson, Silfurgötu 2, Rögnvaldur Lárusson, Höfðagötu 9a. Búðardalur: Vigfús Baldvinsson, Miðbraut 7. Prófkjörsstjóm Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi. Alþýðuflokkurinn Akranesi Opið hús verður í Röst í kvöld kl. 20.30. Frambjóðendurtilprófkjörs Alþýðuf lokksins á Vest- urlandi verða á staðnum. Stjórnin. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Alþýðuflokksins í Norðurlandi eystra fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8—10 frá kl. 10—16 alla virka daga. Laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. nóv. er opið frá kl. 13—18. Skrifstofa Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Alþýðuflokksins á Vesturlandi fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8—10 frá kl. 10—16 alla virka daga. Laugardaginn 24. nóv. er opið frá kl. 13—18. Skrifstofa Alýðuflokksfélaganna í Reykjavík. Kópavogskratar!! Mætum öll á almennan fund í Kratahúsinu að Hamraborg 12a á mánudagskvöldið kl. 20.20. Til fundar hjá okkur mæta: Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráð- herra. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. Hér gefst gott tækifæri til að spyrja tvo af ráðherr- um okkar, sem eru einmitt mikið í sviðsljósinu. Nýir félagsmenn eru alltaf velkomnir. Flokksstjórnarfundur og fundur sveitarstjórnarmanna verður haldinn í Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi 109—111, laugardaginn 24. nóv. nk. Fundur sveitarstjórnarmanna með Jóhönnu Sig- urðardóttur félagsmáðaráðherra, hefst kl. 12.00 (léttur málsverður). Almennar umræður. Flokksstjórnarfundur hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1. Forysta til framtíðar — drög að kosningastefnu- skrá. Umsjón málefnanefnd Alþýðuflokksins. 2. Önnur mál. Skrifstofa Alþýðuflokksins. Góð orð ^ duga skammt. Gott fordæmi skiptir mestu máli IUMFERDAR RÁÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.