Alþýðublaðið - 28.11.1990, Page 2

Alþýðublaðið - 28.11.1990, Page 2
2 Miðvikudagur 28. nóvember 1990 I fangelsinu aö Litla-Hrauni dvelja 24 fangar í klefum sem ekki uppfylla kröfur reglugeröar um iágmarksstærö. Löggjafinn brýtur lög á lögbrjótum Ákvœði heilbrigðisreglugerðar um lógmarks- slærð mannabústaða eru þverbrotin i fangeisinu að Litla-Hrauni. Þar eru 24 fangar vistaðir i klefum sem eru undir þeirri lógmarksstærð ibúðarherberg- is sem reglugerðin segir fyrir um. Af samtölum við yfirmenn heilbrigðis- og dómsmála er Ijóst að engar úrbætur eru i s jónmáli og má þvi segja að lögg jafinn ætli að halda áfram að brjóta lög á lögbrjótum. SÆMUNDUR GUÐVINSSON SKRIFAR WITH 7VFOOD Ri PORTER 'BURTWOm* Sjónvarpskokkur auglýsir ísland Frægur sjónvarpskokkur í Am- eríku, Burton Wolf, kom hingað til lands í sumar er leið og vann að gerð auglýsinga fyrir ýmis fyrirtæki hér, m.a. Iceland Se- afood, SÍF, Flugleiðir, Icy-Vodka og Ferðamálanefnd Reykjavík- ur. Auglýsingarnar birtast á CNN — Cable News Network, en sú stöð nær til 60 milljóna manna. Hér er um að ræða dýra en mjög árangursríka auglýsingu, segir í fréttabréfi Útflutningsráðs ís- lands. Ugla sat á kvisti. . . Skemmtileg sögubók á léttu máli er komin út hjá Náms- gagnastofnun, — Ugla sat á kvisti, heitir hún. Er þetta eins- konar pakki með fjórum litlum bókum. Annað heftið heitir „Átti börn og missti..* og svo framvegis. Bókin(eða bækurnar) er léttlestrarbók svokölluð, eink- um ætluð börnum og unglingum 11—14 ára sem eiga erfitt með að lesa langan og samfelldan texta. Vimufíkn og „allsgáð vima" Dr. Harvey Milkman, prófessor í sálarfræði við Denver-háskóla í Bandaríkjunum heldur fyrirlest- ur á Holiday Inn á föstudaginn kl. 14. Dr. Milkman hefur verið ráðgjafi varðandi þjálfun starfs- fólks og mótun meðferðarstefnu á meðferðarheimilinu að Tind- um á Kjalarnesi, sem ætlað er 13-18 ára unglingum í vímuefna- vanda. Rekstur heimilisins hefst núna um mánaðamótin. Dr. Milkman mun ræða um fíkn mannsins í vímu og það sem kalla mætti „allsgáða vímu” eða „vímulausa vellíðan”. Með því er átt við það algleymisástand sem fólk getur náð við mikla líkam- lega áreynslu og reyndar við fleiri aðstæður. Ókeypis aðgang- ur meðan húsrúm leyfir. Hundeigcndur „hundskist" til að sinna dýrunum í blaðinu Nordurslód er haft eftir Armanni í Laugasteini að hundaeign hafi farið mjög vax- andi nyrðra. Segir hann tíma til þess kominn að eigendur dýr- anna „hundskist” til að sinna þessum málleysingjum eins og þeim ber. Á hann þar við að menn nýti sér hlýðninámskeið sem Súsanna Poulsen heldur, en hún rekur jafnfram hundahótel að Nolli í Grýtubakkahreppi. Fyrir nokkrum vikum spurðist Ingi Björn Albertsson alþingis- maður fyrir um aðbúnað fanga á Litla-Hrauni. Einn liður þeirrar fyrirspurnar var hvort stærð fangaklefa þar uppfyiltu ákvæði heilbrigðisreglugerðar. Dóms- málaráðherra, Oli Þ. Guðbjarts- son, svaraði fyrirspurn þing- mannsins. Þar kom fram að 24 fangaklefar á Hrauninu eru minni en sjö fermetrar, en það telst lág- marksstærð íbúðarherbergis sam- kvæmt ákvæðum heilbrigðis- reglugerðar. Þá vaknar óhjá- kvæmilega sú spurning hvers vegna ríkisvaldið er að setja lög og reglugerðir sem hið sama vald þverbrýtur. Eða gilda aðrar reglur um fangaklefa en annað íbúðar- húsnæði? Þessari spurningu var beint til Ingimars Sigurðssonar, lögfræðings í heilbrigðisráðuneyt- inu. fangaklefar__________________ eru ibúðorherbergi___________ „Ákvæði heilbrigðisreglugerð- arinnar taka til allra mannabú- staða og þar eru fangageymslur meðtaldar. í reglugerð sem gefin var út sem heild árið 1972 er með- al annars skírskotun til kafla um íbúðarhúsnæði. Þær kröfur sem þar koma fram eiga einnig við um fangaklefa og samkvæmt þeim er lágmarksstærð íbúðarhúsnæðis sjö fermetrar miðað við einn íbúa. Þessar kröfur eru því ótvíræðar,” sagði Ingimar Sigurðsson. En ef þessum kröfum reglugerð- arinnar er ekki fullnægt? Hverjir eiga þá að grípa í taumana? Ingi- mar var spurður þessara spurn- inga. „Eftirlit með þessum þætti er í höndum heilbrigðiseftirlits sveit- arfélaganna. Um valdsvið og af- skiptarétt þeirra gilda mjög ná- kvæm ákvæði sem er að finna í lögum númer 81 frá árinu 1988. Heilbrigðisnefndirnar geta meðal annars veitt áminningu og til- hlýðilegan frest til úrbóta. Þau geta líka lokað viðkomandi starfs- semi. Þessar nefndir hafa því tölu- vert vald til að grípa inn í ef þær telja ástæðu til. Hvað Litla-Hraun varðar þá er það í höndum heil- brigðiseftirlits Suðurlands. Þessi ákvæði heilbrigðisreglu- gerðarinnar eru þannig að við- komandi heilbrigðiseftirlit getur veitt undanþágur að höfðu sam- ráði við Hollustuvernd og viðkom- andi sveitarstjórn. Þá er ætlast til þess að sú undanþága sé til ákveð- ins tíma meðan verið er að vinna að úrbótum. Þetta hefur verið gert á ýmsum stöðum, til dæmis á Kópavogshælinu. Þessi stefna er því rekin af hálfu heilbrigðisyfir- valda,” sagði Ingimar Sigurðsson. Hótaði lokun___________________ Litla-Hrauns __________________ I framhaldi af samtalinu við Ingi- mar Sigurðsson var leitað til Matt- híasar Garðarsonar á Selfossi, sem er forsvarsmaður heilbrigðiseftir- lits Suðurlands. Af hverju er ólög- legum fangaklefum ekki lokað, Matthias? „Ég kom hingað fyrir sjö árum og síðan hafa farið fram miklar úr- bætur á Litla-Hrauni. Þegar ég kom voru svokallaðar sellur á Hrauninu sem voru meðal annars notaðar af lögreglunni hér í Ár- nessýslu til að vista menn í skamman tíma. Ástandið á Litla- Hrauni var þá vægast sagt slæmt, hvað varðaði allan aðbúnað. Ég bannaði notkun á sellunum og miklar endurbætur voru gerðar varðandi mötuneyti, matvæla- geymslur og annað slíkt. En hvað varðar stærð fangaklefa þá er varla hægt að loka þessari stofnun vegna þessa,” sagði Matthías. Hefur þú gefið út formlega und- anþágu svo þessir klefar megi vera í notkun? „Það er ekki fyrir hendi nein formleg skrifleg undanþága þess efnis að það megi nota hluta Litla- Hrauns. Því miður er ástand þess- ara fangelsismála í megnasta ólestri. Það eina sem hægt er að gera raunhæft til úrbóta er að byggja nýtt fangelsi því þetta er ekki mannsæmandi í dag." Er það ekki skylda þín að grípa í taumana og banna notkun á ólöglegum fangaklefum? „Ja, það virðist mjög auðvelt að setja lög og reglugerðir og sumar hverjar til þess eins að brjóta þær, liggur við. En þessir fangaklefar svífa í lausu lofti með þegjandi að- gerðarleysi, ef svo má að orði komast. Þetta verður auðvitað ekki leyst nema með því að loka Hrauninu og byggja nýtt fangelsi. Þetta er orðin úrelt bygging og vanhæf til þeirrar notkunar sem til er ætlast. Við höfum víðtækt vald og það gekk ekki þrautarlaust að fá fram þær úrbætur sem ég krafð- ist á Litla-Hrauni. Ég þurfti að fara margar ferðir í dómsmálaráðu- neytið með bréf og hótanir um lokun. Svo var komið að ég dag- setti lokun fangelsins ef úrbætur yrðu ekki framkvæmdar. Sama dag og ég ætlaði að loka Litla- Hrauni komu iðnaðarmenn hing- að austur og settu allt í gang. En ég held að það mundi engu breyta nú þótt ég gæfi út einhverja skriflega undanþágu sem heimilaði notkun þessara klefa sem ekki uppfylla ákvæði heilbrigðisreglugerðar,” sagði Matthías Garðarson. Nauðsyn brýtur Ittg Ekki tókst að ná sambandi við dómsmálaráðherra til að fá upp- lýsingar um hvort ráðuneytið hefði einhverjar úrbætur á prjón- unum. Þorsteinn Geirsson ráðu- neytisstjóri vildi lítið um málið segja. Sagði þó að hér ætti ef til vill við hið fornkveðna að nauðsyn bryti lög. Úrbætur í fangelsismál- um væru eitt brýnasta úrlausnar- efni dómsmálaráðuneytisins og ætti það ekki síður við um fangels- ið við Skólavörðustíg en Litla- Hraun. Ráðherra hefði sýnt mik- inn áhuga á að bæta ástandið og víða verið leitað að hentugu hús- næði fyrir fangelsi án árangurs. Áætlun um byggingu nýs fangelsis væri hins vegar ekki á borðinu. Að lokum má geta þess, að fyrir 15—20 árum greip um sig fram- kvæmdagleði hjá stjórnvöldum hvað varðar byggingu nýs fangels- is. Áhuginn náði það langt, að grunnur var lagður að byggingu fangelsis á Ártúnshöfða og gólf- plata steypt. Af einhverjum orsök- um hafa frekari framkvæmdir ekki séð dagsins ljós enn sem komið er. Það verður þó að ætla, að Alþingi hafi á sínum tíma sam- þykkt að ráðast í byggingu nýs fangelsis. Ná heilbrigðisreglur ekki til Litla-Hrauns?

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.