Alþýðublaðið - 28.11.1990, Side 8

Alþýðublaðið - 28.11.1990, Side 8
GEVALJA I Þaft er kaflið 687510 •••• •••• • •••••••••• •••• • • • • • • • •• •••• •••• • • • •••• •••• • • •••• ••• • •••• • • SOVÉTRÍKIN HÓTA ÍRÖKUM: Til að sýna samstöðu stórveldanna, lýsa Sovétríkin því yfir að þau munu styðja samþykkt Sameinuðu þjóðanna með því að fallast á vald- beitingu gegn írökum ef þeir verði ekki við settum tíma- mörkum um að hverfa frá Kúvæt. JEMEN GEGN VALDBEITINGU Á ÍRAK: Utanríkis- ráðherra Jemens sagði að þjóð sín styddi ekki samþykkt- ina um að fara með vopnum á hendur írökum. Bandarík- um munu á laugardaginn afhenda forsætið í 15 meðlima Öryggisráðinu til Jemens, sem er eina arabaþjóðin sem á þar sæti. KÚVÆTÚTLAGAR YFIRHEYRÐIR UM ÓDÆÐI: Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yfirheyrði útlaga frá Kú- væt um morð, nauðganir, pyndingar og rán sem þeir segja að hafi átt sér stað af hermönnum íraks. FÆREYINGAR FÁ BISKUP Á NÝ: Færeyingar sem hafa verið biskupslausir í meira en fjórar aldir fengu eigin biskup á ný sl. sunnudag þegar Hans Jacob Joensen var vígður biskup í dómkirkjunni í Þórshöfn. Danski kirkju- málaráðherrann, Torben Rechendorff, og kirkjuhöfðingjar frá öllum Norðurlöndunum voru viðstaddir athöfnina. Síð- asti biskup Færeyja hélt þaðan fyrir 433 árum. NEYÐARÁSTAND í BANGLADESH: Neyðarástandi var lýst yfir í Bangladesh í kjölfar pólitískra óeirða í Dhaka sem miða að því að fella forseta landsins, Hossain Moham- med Ershad, úr stóli. PALESTÍNUMENN VEGA ÍSRAELSHERMENN: Palestínskir skæruliðar felldu fimm ísraelska hermenn í Suður-Líbanon. Þetta er þyngsta högg sem ísraelskir her- menn hafa orðið fyrir að undanförnu í námunda við landa- mærin. SOVÉTRÍKIN FLYTJA HERGÖGN HEIM: Sovétrik- in hafa flutt um 60.000 skriðdreka, fallbyssur og hertrukka burt frá Evrópu að sögn háttsetts hershöfðingja hjá NATO. Hertól sem þeir flytja alla leið austur fyrir Uralfjöll þurfa þeir ekki að eyðileggja samkvæmt því samkomulagi sem náðist í París á dögunum. HVATT TIL GATT-SAMKOMULAGS: Yfirmaður GATT-viðræðnanna segir að tími sé til kominn eftir fjög- urra ára erfitt þref væru viðræðurnar um heimsverslun að komast í þrot og hvatti hann ráðherra til að fallast á mála- miðlanir. Síðar lét Bush Bandaríkjaforseti i ljós von um að samkomulagi mætti ná. ÓVISSA í PÓLLANDI: Óvissa hefur skapast um rót- tækar efnahagsaðgerðir í Póllandi eftir óvænta útkomu fyrstu umferðar í forsetakosningunum sem leiddi til af- sagnar forsætisráðherrans Mazowieckis. NÆRBUXUR GEGN AIDS: Frönsk uppfinningakona greindi frá því í París í gær að anti-AlDS nærbuxur sem hún hefur hannað og þróað fyrir karla og konur geti orðið áhrifaríkari vörn en smokkar gegn útbreiðslu á alnæmi. Lulette Bechet sagði að bæði kynin gætu klæðst þessari níðþröngu flík, sem þekur stærra svæði sem kann að vera í hættu gagnvart sjúkdómnum en smokkur. Kosturinn væri að þessi vörn væri ekki eins vandræðaleg og smokk- urinn. Klæðast mætti búningnum tímanlega fyrir sam- ræði. Buxur þessar eru gagnsæjar og mótaðar eftir lend- unum. Karlmannsgerðin er með innbyggðum smokk, í kvengerðinni poki úr mjúku plasti. ERLENDAR FRÉTTKR Major forsætis- ráðherra Breta John Major, fjármála- ráðherra Bretlands, mun í dag taka við umboði Breta- drottningar til að mynda nýja ríkisstjórn. Hann mun því taka við af Mar- gréti Thatcher sem forsæt- isráðherra Bretlands. I gær fór fram á þingi breska íhaldsflokksins önnur atkvæðagreiðsla um leiðtog- stöðuna í flokknum og lauk henni þannig að Major fékk 185 atkvæði og vantaði að- eins tvö atkvæði upp á að ná bindandi kosningu. Heseltine fékk 131 atkvæði og Hurd 56. Þeir lýstu hins vegar yfir stuðningi við Major þegar úr- slit lágu fyrir og kemur því ekki til þriðju umferðar leið- togakosningar hjá flokknum. Major sem er 47 ára verður yngsti forsætisráðherra Breta á þessari öld. Hann hefur hlotið óvenju skjótan frama á hægri væng breskra stjórn- mála. Hann þykir eiga óvenjulegan bakgrunn af íhaldsleiðtoga að vera. Faðir hans var loftfimleikamaður í sirkus. Hann þykir standa skoðunum Thatchers nærri enda lýsti hún ánægju yfir að hann skyldi verða eftirmaður hennar. Ekki voru þó allir ánægðir með þá yfirlýsingu hennar um að hennar hlut- verk yrði nú að vera aftursæt- isbílstjóri hjá Major. Sérstak- lega þótti stuðningsmönnum Majors að hún gæfi með þessu í skyn að Major yrði strengjabrúða í hendi hennar. Eftir að Heseltine bauð sig fram gegn Thatcher og kom þar með í veg fyrir endurkjör hennar þóttu Major og Hurd líklegastir til að verða eftir- menn hennar en þeir voru báðir fyrir í stjórn hennar. Flestir reiknuðu með að það þyrfti þriðju umferð til að skera úr um hver tæki við af henni sem leiðtogi íhalds- flokksins. En þegar úrslit lágu fyrir í gær lýsti Heseltine því yfir að hann drægi framboð sitt til baka og styddi Major. Það sama gerði Hurd nokkru síðar. Thatcher mun því ganga á fund Bretadrottningar og skila umboði sínu sem forsæt- isráðherra og verður umboð- ið væntanlega falið í hendur Major frá og með þessum morgni. JOHN MAJOR — veifar til áhangenda sinna, — í morgun mætti hann til starfa sem forsætis- ráðherra. Bláa lónid í heimspressunni: Persaflóadeilan kann aö efla gengi þessarar vinsœlu heilsulindar, segir í Reuters-frétt Jcapanskir og franskir vilja f járfesta i Lóninu „Ástandið við Persa- flóa kann að efla gengi Bláa lónsins," segir í ít- arlegri frétt sem Reut- ers-fréttastofan sendi frá sér í fyrrinótt og hef- ur áreiðanlega fengið inni í fjölmiðlum víða um heim. „Það er vaxandi eftirspurn eftir heilsu- lindum í heiminum, sér- staklega vegna óróleik- ans í Mið-Austurlöndum. Fólk sem áður leitaði til Dauðahafsins til að fá meðferð siíkra stofnana, fer nú annað,“ er haft eft- ir markaðsráðgjafa Bláa lónsins, Olafi Stephen- sen. Ólafur er sagður ráðgjafi ríkisstjórnarinnar varðandi markaðssetningu landsins í útlöndum. Sagði Ólafur að japanskir og franskir fjár- málamenn hefðu áhuga á að byggja fullkomna heilsu- ræktarstöð við Lónið, auk þess sem rætt væri um að nota botnleðjuna til fram- leiðslu á snyrtivörum. Óiafur sagði ennfremur að á íslandi háttaði víðar svo til að við gufuvirkjanir mætti gera lón svipuð Bláa lóninu og kvaðst hann þess fullviss að slík lón ættu eftir að verða helsta aðdráttarafl landsins í framtíðinni. í fréttinni er rætt við Henrik Grétarsson, sem var að bera veitingar til sænskra viðskiptamanna í Lóninu, bjór og kalda síld, en annars er hann fram- kvæmdastjóri í Lóninu. Henrik gefur ýmsar upplýs- ingar um Lónið, m.a. að 80 þúsund manns hafi komið þangað það sem af er ár- inu. Sagt er frá frægu fólki, sem komið hefur, þotuliði sem „skrapp" frá London til að fá sér bað í miðnætursól, frá heimsókn Björns Borg og Ingmars Bergman. Þá er rætt við 24 ára danska stúlku, sem þarna var, Stine Brandt-Jensen, sem þjáist af psoriasis og baðar sig í Lóninu 4 tíma á dag í tvær vikur til að reyna að fá bót.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.