Alþýðublaðið - 04.12.1990, Side 3
Þriðjudagur 4. desember 1990
3
INNLENDAR FRETTIR
FRÉTTIR
Í HNOTSKURN
JÓLAGLÖGG 0G LAUFABRAUÐSBAKSTUR í
KIRKJUNNI: í samverustund milli 3 og 5 á laugardaginn
ætla félagar í Nessókn að halda í heiðri þann gamla norð-
lenska sið að skera út laufabrauð. Ingibjörg Þórarins-
dóttir, skólastjóri Hússtjórnarskóla Reykjavíkur, leiðbein-
ir og sér um steikingu. Kökurnar verða seldar við vægu
verði. Jólalög verða leikin og Viggó Natanaelsson sýnir
í fyrsta sinn kvikmynd frá innsetningu Ásgeirs Ásgeirs-
sonar í forsetaembætti. Boðið verður upp á jólaglögg —
óáfengt, piparkökur og kaffisopa. Þeir sem ætla að vera
með í laufabrauðsgerðinni þurfa að láta kirkjuvörð vita í
viðtalstíma milli 5 og 6.
HÆKKUN Á BÓTUM ALMANNATRYGGINGA:
Um mánaðamótin hækkuðu bætur almannatrygginga um
sama hundraðshlutfaíll og laun almennt, þ.e. um 2,83% frá
því sem var í nóvember. Þá kemur í desember tekjutrygg-
ingarauki á tekjutrygginguna, heimilisuppbótina og sér-
stöku heimilisuppbótina. Þessi tekjutryggingarauki er að-
eins greiddur í desember og kemur á nóvemberbæturnar.
Samskonar glaðningur kom reyndar í ágúst og október og
var þá 15%.
KVEIKT Á JÓLATRÉ í KRINGLUNNI: Það er orðið
jólalegt í Kringlunni um þessar mundir, jólaskreytingar í
göngugötum og búðum auk þess sem sett hefur verið upp
verkstæði jólasveinanna. Á þessu verkstæði hamast
jólasveinn og dvergar við að útbúa og pakka jólagjöfum.
Á morgun kl. 17.30 verða ljósin tendruð á stóru jólatré, blá-
greni úr Hallormsstaðaskógi, sem BYKO hefur gefið. Börn
úr fimm ára bekk í ísaksskóla kveikja á trénu. Barnaspítala
Hringsins verður afhentur nokkur sjóður, sem safnast hef-
ur i gosbrunnum Kringlunnar á þessu ári. Skólakór Kárs-
nesskóla syngur við athöfnina undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur og félagar úr Sinfóníuhljómsveit æskunnar
spila.
VILJA GOLFVÖLL í F0SSV0GSDAL: Þróttmikill
golfklúbbur er byr jaður að starfa í Kópavogi, Golfklúbbur
Kópavogs. Klúbburinn heldur fyrsta aðalfund sinn í Fé-
lagsheimili Kópavogs á sunnudag. Fjölmargir golfarar hafa
gengið til liðs við félagið, 70 sóttu stofnfundinn í byrjun júlí
sl. Brýnasta verkefni hins unga félags er að koma upp golf-
velli, — og hann vilja menn fá í Fossvogsdal, í hjarta höfuð-
borgarsvæðisins. Munu margir fagna því ef af verður, —
menn báðumegin Fossvogsdals. Formaður GK er Þor-
steinn Steingrímsson, rannsóknarlögreglumaður.
JOLASVEINNINN,
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 0G
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ:
Samvinna hefur tekist milli
Þjóðminjasafnsins og Þjóð-
leikhússins um að skipu-
leggja opinbera heimsókn
jólasveinanna í Þjóðminja-
safnið. Brynja Benedikts-
dóttir leikstjóri annast .. . . ...
móttöku jólasveinanna. . . an".as'mottoku
Gunnar Bjarnason,..leik- lo'asvemanna. Þjoömm,asafm.
myndahönnuður og Orn Jónsson leiksviðsstjóri verða
líka í móttökunefndinni ásamt Margréti Matthíasdóttur,
förðunar- og hárkollumeistara, og Iðunni Elíasdóttur,
forstöðukonu saumastofu Þjóðleikhússins. Árni Björns-
son þjóðháttafræðingur verður í fjarskiptasambandi við
aðalstöðvar jólasveina og annast tæknilega aðstoð við
málflutning jjeirra ásamt Brynju. Fyrsta uppákoman er 6.
desember kl. 16.
VANLÍÐAN í NÝJUM HÚSUM: Borið hefur á þvi
undanfarin ár að fólk kvarti undan vanlíðan í nýjum hús-
um. í mörgum tilvikum má rekja þessa vanlíðan til rangra
byggingahátta. Um getur verið að ræða byggingarefni af
ýmsum toga, loftræstikerfi, frágang einstakra bygginga-
hluta og fleira. Þessu vandamáli er góður gaumur gefinn
víða erlendis, — enda talið að nær þriðjungur nýrra skrif-
stofubygginga sé haldinn húsasótt. Sótt þessi herjar einn-
ig á íbúðarhús, skóla, barnaheimili, ráðhús og fleiri. Arki-
tektafélag íslands og Endurmenntunarnefnd Háskólans
gangast fyrir námsstefnu um húsasótt á laugardaginn kl.
9_16 í Odda, stofu 101. Félagið veitir nánari upplýsingar.
Spenna á Alþingi:
Hjörleifur tók
Forvígismenn atvinnurekenda fór inn og út um dyr í Valhöll í
gærmorgun og reyndu að sannfæra sjálfstæðismenn um rétt-
mæti þjóðarsáttar. Enginn átti von á því að einn stjórnarþing-
manna tæki kaieikinn frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
A-mynd: E.ÓI.
Dramatíkin var mikil á
hinu háa Alþingi um há-
degisbil í gær. Þingfor-
seti tilkynnti klukkan
13, þegar fundur átti að
hefjast, að þingfundi
yrði frestað í tuttugu
mínútur. Klukkan 13.20
sté Hjörleifur Guttorms-
son í pontu og tjáði þing-
heimi að hann ætlaði að
sitja hjá við afgreiðslu
bráðabirgðalaganna.
Hjörleifur hafði ákveðið
sig hálftíma áður. Þar
með var kaleikurinn tek-
inn frá formanni Sjálf-
stæðisflokks.
Þorsteinn Pálsson missti
af ræðu Hjörleifs, en Þor-
steinn var kampakátur eftir
að honum var tjáð hvað
Hjörleifur hefði sagt í ræðu-
stól. Andmæli við afstöðu
þingflokks sjálfstæðis-
„Niðurstaða mín er um-
deilanleg, líka gagnvart
mér,“ sagði Hjörleifur
Guttormsson í gær, er
hann gerði grein fyrir því
hvers vegna hann hefði
ákveðið að sitja hjá við af-
greiðslu bráðabirgðalag-
anna. Hjörleifur bjargaði
stjórninni og sjálfstæðis-
mönnum fyrir horn í gær.
Hann segist hvorki hafa
verið beittur þrýstingi af
ráðherrum né þingmönn-
um.
Hjörleifur sagði að hann
hefði talið óæskilget að kosið
hefði verið um þjóðarsáttina
eina sér. Það þyrfti að móta
efnahagsstefnu til framtíðar
og breikka þjóðarsáttina. Sér
hefði virst undanfarna daga
að hrossakaup væru í tafli en
það þyrfti að ræða ýmis þjóð-
þrifamál á þinginu. Nefndi
hann sérstaklega álmálið og
samninga íslands á vettvangi
EFTA og EB.
,,I kosningum í vor mun
verða kosið um álið og mál
sem því tengjast," sagði Hjör-
leifur. Sagði hann að ekki
væri hægt að líta „almennt
séð“ á Alþýðubandalagið
sem stuðningsaðila í því máli.
Margt væri óunnið, og þing-
flokkurinn hefði almennan
fyrirvara um alla þætti máls-
ins. Sagðist Hjörleifur vera
gáttaður á að „höfðingjarnir í
Garðastræti og við Grensás-
veg“ fjölluðu ekki meira um
tengsl efnahagsmála og ál-
málsins. Hann hefði varað
við miklum fjárfestingum
sem væru í aðsigi, en að mati
flestra myndu þær setja hér
verðbólgu á fullt.
Með afstöðu sinni nú von-
ast Hjörleifur til að skapist
svigrúm til að ræða' við
BHMR og ná samkomulagi.
Hann sagðist hafa heitið á
ráðherrana á fundi þing-
flokks Alþýðubandalagsins í
hádeginu í gær að þeir beittu
sér innan ríkisstjórnarinnar
manna hafa verið með ólík-
indum. Forvígismenn at-
vinnurekenda lögðust á
talsmenn flokksins nætur
sem daga til þess að fá þá
ofan af því að greiða at-
kvæði gegn bráðabirgða-
lögunum. I gærmorgun gat
forsætisráðherra ekki skilið
að um stefnubreytingu
hefði verið að ræða hjá
sjálfstæðisþingmönnum.
Því var allt á huldu fram eft-
ir hvað myndi gerast. Ætl-
aði forsætisráðherra að
boða þingrof eða átti að
láta reyna á hvort bráða-
birgðalögin næðu í gegn?
Niðurstaða prófkjörs Al-
þýðubandalags í Austur-
landskjördæmi virðist að
hafa snúið Hjörleifi og
hann ákveðið að styðja rík-
isstjórnina. Því neitar hann
að vísu og segist ekki hafa
svo að leiða mætti það mál til
sátta. Hann væri fullviss um
að það væri ekki fullreynt.
í gær bjargaði Hjörleifur
ríkisstjórn úr vanda og létti
fargi af sjálfstæðisþingmönn-
um, sem áttu í höggi við eigið
stuðningsfólk eftir niður-
stöðu þingflokksins. Að-
Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, missti af yfirlýsingu
Hjörleifs Guttormssonar á
Alþingi í gær. Hann hafði
staðið í samingaviðræðum
við forvígismenn atvinnu-
rekenda í gærmorgun,
sem reyndu árangurslaust
að fá þingflokk Sjálfstæð-
isflokks ofan af andstöðu
við þjóðarsáttina. Þor-
steinn hafði sýnilega ekki
átt von á uppákomu stjórn-
arliðsþingmanns á Al-
þingi klukkan 13 í gær.
„Eg harma að ekki verður
kosið,“ sagði Þorsteinn í gær.
Hann neitaði því að þungu
fargi væri af sér létt eftir að
ljóst var að ekki þyrfti að
reyna á hvaða afstöðu þing-
menn Sjálfstæðisflokks
myndu taka við afgreiðslu
bráðabirgðalaganna. En fargi
væri létt af ríkisstjórninni,
sem ekki hefði þorað í kosn-
ingar og orðið að leggjast á
sína menn. Ríkisstjórnin
gert upp hug sinn fyrr en í
hádeginu í gær og ekki til-
kynnt þingflokki sínum þá
afstöðu fyrr en klukkan
12.50 í gær — eða tíu mín-
útum áður en hinn örlaga-
spurður kvaðst Hjörleifur
ekki geta sagt „út af fyrir sig"
hvort hann yrði áfram í
stjórnarandstöðu innan
stjórnarliðs, en Hjörleifur
hefur sem kunnugt er róið
nokkuð einn á báti innan
stjórnarliðs.
hefði þar með viðurkennt að
hún fór að ólögum.
Þorsteinn sagðist ekki hafa
heyrt í einum einasta manni
sem hefði mælt bráðabirgða-
lögunum bót og ekki væri
vafi á hér hefði verið um gott
kosningamál að ræða. Flokk-
urinn hefði stuðning fólks í
ríki þingfundur hófst.
Alþýðublaðinu er hins
vegar kunnugt um að í gær-
morgun ræddu formaður
Alþýðubandalagsins og
Hjörleifur málin, og því er
ekki að efa að niðurstaða í
kjöri Alþýðubandalags um
efsta sætið á Austurlandi
hafi haft mikil áhrif, þar
sem Hjörleifur bar sigurorð
af helsta keppinaut sínum,
Einari Sigurðssyni. Þegar
Hjörleifur fór í pontu og til-
kynnti þingheimi að hann
hygðist sitja hjá við af-
greiðslu bráðabirgðalag-
anna létti þingmönnum. Á
eftir Hjörleifi kom Stefán
Valgeirsson. Þingforseti
kynnti framburð hans sem
„tilkynningu." En hún kom
ekki. Stefán sagðist síðast
hafa haft samband við rík-
isstjórnina með póstfaxi
fyrir einhverjum mánuðum
og hann bæri engar skyld-
ur lengur við ríkisstjórnina.
landinu. Hægt væri að ná ár-
angri með heiðarlegum
vinnubrögðum. „Það er
reynsla fyrir því að þar sem
óheiðarlegum vinnubrögð-
um er beitt næst aldrei árang-
ur,“ sagði Þorsteinn Pálsson í
gær.
Þorsteinn Pálsson varð að fá fréttir af yfirlýsingu Hjörleifs i þing-
inu frá Guðmundi G. Þórarinssyni, kollega sinum.
A-mynd: E.ÓI.
Niðurslaða min
umdeilanleg
Þorsteinn Pálsson:
Harma að ekki
verður kosið