Alþýðublaðið - 04.12.1990, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 04.12.1990, Qupperneq 7
7 Þriðjudagur 4. desember 1990 m^m^mmm erlend fréttaskýring Fyrrverandi utanríkisráöherrar, Haig og Kissinger, gagnrýna harölega til- boö Bush Bandaríkjaforseta um beinar viörœöur viö Saddam Hussein: PALESTÍNA DREGIN INN í DEILUNA Tilboð George Bush Bandarík|aforseti um beinar viðræður við Saddam Hussein hefur gefið írökum tækifæri til að tengja Persaflóadeiluna við Palestinu- vandamólið. Það er tenging sem Bandarikin munu eiga i miklum erfiðleikum að sneiða hjá. Tveir af fyrri utanrikisráðherrum Bandarikjanna, haukarnir Kissinger og Haig, eru ómyrkir imáli gagn- vart hugmyndum Bush um beinar viðræður við íraka og telja að þar með hafi Bandarikjaforseti misst mikil- væg spil af hendi. Fjölmargir háttsettir embættis- merrn í stjórn Bush komu fram í sjónvarpinu um helgina og gáfu sömu skilaboðin: Að það boð Bandaríkjaforseta til íraka að senda James Baker utanríkisráðherra til Baghdad og taka á móti Tareq Aziz utanríkisráðherra íraks í Washing- ton — mætti ekki túlka sem upphaf samningsviðræðna eða að Banda- ríkjaforseti væri að hörfa í Persaflóa- deilunni. Ekki samningar_______________ „Þetta eru ekki samningar. Þetta er ekki breytt stefna Bandaríkja- manna. Það verða vissulega við- ræður — en ekki samningaviðræð- ur sem ná út yfir ramma Sameinuðu þjóðanna," sagði varaforsetinn Dan Quayle. Baker utanríkisráðherra sagði, að einu skilaboðin sem Saddam Hus- sein fengi í raun, væru þau að ekki yrði ráðist á íraka ef þeir færu á brott frá Kúvæt án skilyrða. írakar réðust inn i Kúvæt 2. ágúst sl. Hin alþjóðlega______________ samstaöa i hættu_____________ Þrátt fyrir yfirlýsingar embættis- mannanna, er gagnrýnin á tilboð Bush mikil. Fyrrverandi utanríkis- ráðherrar, Henry Kissinger og Alex- ander Haig, báðir repúblikanar, hafa gagnrýnt tilboð Bushs. Útleik- ur Bushs, segja þeir félagar, hefur sleppt anda Palenstínu úr flöskunni og gert lausnina staðbundnari Bandaríkjunum en hentugt er. „Þetta þýðir, að margir samherjar okkar og bandamenn líta á þetta til- boð sem samningaviðræður Banda- ríkjanna og íraks og það ýtir undir það að þeir sjálfir fara að semja sér- staklega við Iraka. Og nú verður erf- itt að halda hinni alþjóðlegu sam- stöðu áfram," segir Henry Kissinger. Adam Garfinkel, sérfræðingur í málefnum Mið- Austurlanda, segir að Bandaríkin gætu gengið í gildru íraka þar sem viðræður myndu Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráð- herra: „Eftir tilboð Bushs er hin al- þjóðlega samstaða í hættu." dragast á langinn án þess að skila árangri. „Um leið og þú ferð að ræða við óvininn, breytist allt. Með því að opna á samninga er stjórn Bush bú- in að leggja alltof mikið í hendur ír- aka.“ segir Garfinkel. Hussein leikur á USA eins og flautu___________________ Alexander Haig, fyrrum utanrík- isráðherra, er enn ómyrkari í máli: „Þessi náungi (Saddam) á eftir að leika á Bandaríkin eins og flautu og þetta er bara byrjunin," segir Haig. „Þegar eru útlínur samninga farnar að sjást — trygging fyrir því að við munum ekki ráðast á hann ef hann fer með herinn út úr Kúvæt, og jafn- vel að opnað verði á umræður um Palestínuvandamálið,'1 sagði Haig. Viðræður Baghdad- forystunnar og Bandaríkjanna munu hefjast að öllum líkindum þ. 15. janúar nk. — á sama tíma og samþykkt Samein- uðu þjóðanna tekur gildi um að and- stæðingar íraks geti beitt hervaldi. Sendiherrar íraks í Washington og Bush Bandaríkjaforseti: Tillaga hans um beinar viðræður við Iraka hafa verið gagnrýnd harðlega heima fyrir. Nú óttast menn að Hussein muni draga mál- efni Palestínu inn í Persaflóadeiluna og málefni Miö- Austurlanda almennt. Alexander Haig, fyrrum utanríkisráð- herra: „Saddam mun spila á Banda- ríkin eins og flautu." hjá Sameinuðu þjóðunum hafa um helgina sagt það skýrum orðum, að Saddam Hussein muni draga mál- efni Palestínu inn í umræðurnar. „Nú munu við semja við hvor annan,” sagði Múhammed al-Mas- hat, sendifulltrúi íraks í Washing- ton. „Við munum ræða allar hliðar Persaflóadeilunnar. Og við munum ræða allar hliðar málefna Mið- Aust- urlanda, því þessi mál fléttast öll saman og við vonumst eftir friði á öllu svæðinu,” sagði sendifulltrúinn. Strið milli Ísraela og Araba? Bandaríkin standa nú frammi fyr- ir erfiðu vali í Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna þar sem samþykkt sem gagnrýnir stefnu ísraelsmanna mun koma til atkvæðagreiðslu inn- an fárra vikna. Mun Washingtonstjórnin beita neitunarvaldi og taka áhættuna á því að vera styggja nýja arabíska bandamenn, eða taka hina áhætt- una; að láta samþykktina fara í gegn og laska enn tengslin við ísrael? Baker utanríkisráðherra hefur alltaf lofað að leggja sig allan fram við að leysa málefni Palestínu um leið og Persaflóadeilan hefur verið leyst. Nú er hins vegar spurt, hvort Bush og Baker séu þegar farnir að blanda þessum máium saman og geti átt á hættu að Persaflóadeilan fari æ meira að snúast um fyrirsján- legt stríð milli ísraela og araba. InaóUur Maraeirsson skrífar DAGSKRAIN Sjónvarpið 17.40 Jóladagatal Sjónvarpsins 18.50 Einu sinni var... 18.15 Einu sinni var strákur 18.45 Táknmáls- fréttir 18.50 Fjölskyldulíf 19.20 Hver á að ráða? 19.50 Jóladagatal Sjón- varpssin 20.00 Fréttir og veður 20.35 ísland i Evrópu (3) 21.00 Campion (7) 21.55 Ljóðið mitt 22.15 Kastljós á þriðjudegi 23.00 Ellefufréttir dag- skrárlok. Stöð 2 16.45 Nágrannar 17.30 Saga jóla- sveinsins 17.50 Maja býfluga 18.15Á dagskrá 18.30 Eðaltónar 19.19 19.19 20.15 Neyðarlínan 21.15 Ungir eld- hugar 22.10 Hunter 23.05 I hnot- skurn 23.35 Vertu sæl, ofurmamma (Goodbye Supermom) 01.10 Dag- skrárlok. Rás I 06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir 07.03 Morgunþáttur Rásar 1 07.32 Segðu mér sögu 07.45 Listróf 08.00 Fréttir 08.30 Fréttayfirlit og Daglegt mál 09.00 Fréttir 09.03 Laufskálinn 09.40 Laufskálasagan 10.00 Fréttir 10.03 Við leik og störf 11.00 Fréttir 11.03 Árdegistónar 11.53 Dagbókin 12.00 Fréttayfirlit á hádegi 12.01 Endurtekinn Morgunauki 12.20 Há- degisfréttir 12.45 Veðurfregnir 12.48 Auðlindin 12.55 Dánarfregnir 13.05 í dagsins önn 13.30 Hornsófinn 14.00 Fréttir 14.03 Útvarpssagan: Undir fönn 14:30- Miðdegistónlist 15.00 Fréttir 15.03 Kíkt út um kýraugað 16.00 Fréttir 16.05 yöluskrín 16.15 Veðurfregnir 16.20 Á förnum vegi 16.40 Ég man þá tíð 17.00 Fréttir 17.03 Vita skaltu 17.30 Tónlist á síð- degi 18.00 Fréttir 18.03 Hér og nú 18.18 Að utan 18.30 Auglýsingar 18.45 Veðurfregnir 19.00 Kvöldfréttir 19.35 Kviksjá 19.55 Daglegt mál 20.00 ítónleikasal 21.10 Stundarkorn í dúr og moll 22.00 Fréttir 22.07 Að utan 22.15 Veðurfregnir 22.20 Orð kvöldsins 22.30 Leikrit mánaðarins: Baldvin Halldórsson flytur einleikinn „Frægðarljómi" 23.20 Djassþáttur 24.00 Fréttir 00.10 Miðnæturtónar 01.00 Veðurfregnir 01.10 Næturút- varp á báðum rásum til morguns. Rás 2 07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg- unfréttir 09.03 Níufjögur 11.30 Þarfa- þing 12.00 Fréttayfirlit og veður 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur 14.10 Gettu betur! 16.03 Dagskrá 18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Gullskífan úr safni Led Zeppe- lins 20.00 Lausa rásin 21.00 Á tón- leikum með Los Lobos 22.07 Landið og miðin 00.10 í háttinn 01.00 Næt- urútvarp á báðum rásum til morg- uns. Bylgjan 07.00 Eirikur Jónsson 09.00 Fréttir 09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís Gunnarsdóttir 14.00 Snorri Sturlu- son 17.15 ísland í dag 18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson 20.00 Þreifað á þrítugum 22.00 Haraldur Gíslason 23.00 Kvöldsögur 02.00 Þráinn Brjánsson. Stjarnan 07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni Haukur Þórsson 11.00 Geðdeildin 12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson 14.00 Sigurður Ragnarsson 17.00 Björn Sigurðsson 20.00 Listapoppið 22.00 Jóhannes B. Skúlason 02.00 Næturvakt Stjörnunnar. Aðalstöðin 07.00 Á besta aldri. Morgunandakt 09.00 Morgunverk Margrétar 09.15 Heiðar, heilsan og hamingjan 09.30 Húsmæðrahornið 10.00 Hvað gerðir þú við peningana sem frúin í Ham- borg gaf þér? 10.30 Mitt útlit — þitt útlit 11.00 Spakmæli dagsins 11.30 Slétt og brugðið 12.00 Hádegisspjall 13.00 Strætin úti að aka 13.30 Glugg- að í síðdegisblaðið 14.00 Brugðið á leik í dagsins önn 14.30 Saga dags- ins 15.00 Topparnir takast á 15.30 Efst á baugi vestanhafs 16.15 Heiðar, heilsan og hamingjan 16.30 Mitt hjartans mál 18.30 Smásögur 20.00 Sveitalif 22.00 Púlsinn tekinn 24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.