Alþýðublaðið - 05.12.1990, Side 1
MIÐVIKUDAGUR
5. DESEMBER 1990
Björn Valur Gíslason: Búið að velta þessu yfir á launafólk.
Andvíaur bráða-
birgðalögunum
„Ég er andvígur leiðinni sem er farin,“ sagði Björn
Valur Gíslason, 3. varaþingmaður Alþýðubandalags-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra, sem í gær tók
sæti landbúnaðarráðherra á Alþingi.
Björn sagði í viðtali við Alþýðublaðið að hann teldi það
skárri kost fyrir launafólk að bráðabirgðalögunum yrði
fleytt í gegn en að losa um allt í þjóðfélaginu, en það mundi
gerast falli þau úr gildi. Björn segir að til sín hafi verið leit-
að með 12 klukkustunda fyrirvara og hann hafi rétt náð að
ræða við sitt fólk fyrir norðan.
Hann segist munu tryggja lögunum framgang með hálf-
um huga. „Ég er andvígur leiðinni sem er farin. Það er bú-
ið að velta þessu yfir á launafólk, en ég er ekki þeirrar
skoðunar að verðbólga í landinu sé vegna of hárra launa."
Björn er þriðji varamaður Steingríms Sigfússon, sem sit-
ur GATT-fundi á næstunni. Svanfríður Jónasdóttir, fyrsti
varamaður landbúnaðarráðherra, gat ekki setið þing sök-
um anna. Ekki heldur Sigríður Stefánsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar á Akureyri. Sigríður er annar varamaður Stein-
gríms. Hefði hún tekið sæti hans féllu lögin, eins og fram
kemur í viðtali við hana á forsíðu.
19
dagfur
til jóla
HVERS ÓSKAR ÞÚ ÞÉR Í JOLAGJÖF?
Hjördís Gissurardóttir, gullsmiður og kaup-
maður í Benetton:
Ég óska áframhaldandi uppbyggingar í þjóðfélag-
inu og jákvæðra viðhorfa hjá landanum.
LEIDARINN Í DAG
Leiðarar Alþýðublaðsins í dag fjalla báðir um bráða-
birgðalögin og brotlendingu þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins í því máli. Blaðið segir að þjóðin hafi sagt
skoðun sína á bráðabirgðalögunum og samþykkt
þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að greiða at-
kvæði gegn þeim. Skoðanakönnun DV í gær er stað-
festing á þeim þjóðarvilja að bráðabirgðalögin verði
samþykkt og að samþykkt þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins hafi verið mikið glappaskot.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: ÞJÓÐIN VILL BRÁÐA-
BIRGÐALÖG og ÞINGFLOKKUR ÍHALDSINS í UPP-
MÁMI
Prestur í pólitík
Séra Gunnlaugur Stefáns-
Ison í Heydölum er aftur kom-
inn í pólitíkina, — hann hefur
áður setið á þingi. Alþýðublað-
ið ræddi við séra Gunnlaug í
gærdag.
Eldgildran Stöð 2
IEIdvarnareftirlitið segir að
starfsmönnum Stöðvar 2 sé
mikil hætta búin á vinnustað
sínum, komi þar upp eldur.
Endurteknum aðvörunum og
áminningum er ekki sinnt.
.
v 250 þúsund trjáa
..—skógur að gjöf
IForseta íslands hafa borist
margar góðar gjafir tengdar
skógrækt, m.a. efni í talsverðan
skóg frá Finnlandsforseta og
74 myndarleg tré frá Frakk-
landsforseta.
Lœgsta tilbodi í Herjólf
EKKI TEKIÐ
Krafist skýringa á niðurgreidslum Norðmanna
Aðilinn sem átti lægsta
tilboð í smíði Herjólfs hef-
ur krafist skýringa á því
að tilboð þeirra skuli nú
vera orðið fjórða lægst eft-
ir umreikninga útboðs-
stjórnandans. Skipasmíða-
stöð á Taiwan var með
lægsta tilboð. Umboðsaðil-
anum á íslandi þykir þetta
undarleg staða og vænir
útboðsstjórnandann,
Skipatækni, um að hafa
leyft Norðmönnum að
greiða niður sín verð
þannig að nú raði þrjár
norskar skipasmíðastöðv-
ar sér í þrjú lægstu sætin.
Forráðamönnum fyrirtæk-
isins íslux í Reykjavík þykir
undarlegt að tilboð það sem
þeir lögðu fram fyrir hönd
skipasmíðafyrirtækisins í Tai-
wan, skuli vera orðið fjórða
lægsta tilboðið. Miðað við
gengi gjaldmiðla í lok nóv-
ember bauðst Shing Fu Ship-
building í Taiwan til að smíða
ferjuna fyrir einn milljarð og
60 milljónir króna. Tilboð
norsku stöðvanna, sem nú
eru metin lægra, voru 1.204
milljónir kr., 1.277 milljónir
kr. og 1,273 milljónir kr., eða
144—217 milljón kr. hærri en
tilboð Taiwan-manna. For-
ráðamenn íslux telja að
norsku aðilunum hafi verið
leyft að niðurgreiða verðið
eftir að útboð voru opnuð.
,,Ég hef komist að raun um
að Noregur er að koma með
niðurgreiðslur eftir að búið er
að birta öll verð og þær eru á
bilinu 6—12%. Þó að reiknað
sé með 12% niðurgreiðslum
erum við samt lægstir," segir
Gústaf H. Hermannsson hjá
íslux.
„Ég tel að ef þessar ásakan-
ir eru réttar sé fuli ástæða til
að skoða þetta mál allt. Hér
eru gífurlegir fjármunir í húfi
og auðvitað fyrir öllu að Vest-
mannaeyingar fái bestu ferju
fyrir upphæðina, en að ekki
sé verið að gera einhver mis-
tök. Ég mun gera nauðsyn-
legar ráðstafanir," segir Árni
Gunnarsson alþingismaður,
sem hefur kynnt sér mála-
vöxtu og hefur sjálfur setið í
stjórn skipasmíðastöðvar.
Svo virðist sem ferjan Her-
jólfur, sem á að vera í förum
milli lands og Vestmanna
eyja, sé að verða einhvei
konar framhaldssaga. Á ár-
unum 1988—1989 var leitað
að notaðri ferju í stað þess
skips sem enn siglir — en ár-
angurslaust. f júlí 1989 var
boðin út smíði 79 metra skips
en hætt við það skip og í júní
í ár var ákveðið að bjóða út
smíði ferju sem á að vera 70,5
metrar á lengd. 20. júlí sl.
voru útboð opnuð en 11 dög-
um síðar var ákveðið að
breikka skipið um 1 metra.
Gústaf H. Hermannsson segir
að skipasmíðastöðin í Taiwan
hafi fengið að sjá tilboðin um
leið og þau voru opnuð, 20
júlí sl. „Þeir sjá þá að þeir eru
í góðu máli með lægsta til-
boðið. Síðan fá þeir telefax 7.
nóvember frá Skipatækni um
að samningaviðræður séu
byrjaðar við norsku stöðv-
arnar. Ég sendi þeim bréf þar
sem ég sagði að þetta gæti
ekki verið og bað þá í guð-
anna bænum að koma, en
þeir hafa ekki áhuga á því
eins og málum er komið.“
Gústaf segir að Skipatækni,
sem hefur umsjón með út-
boðinu, hafi neitað að gera
grein fyrir útreikningum og
vísi stöðugt á byggingar-
nefndina.
í gærmorgun sendi Gústaf
Hermannsson fyrir hönd Isl-
ux símskeyti til Ragnars Ósk-
arssonar, bæjarfulltrúa í Vest-
mannaeyjum, sem á sæti í
byggingarnefnd Herjólfs og
óskaði staðfestingar að um-
reikningum Skipatækni, og
því hvort það væri rétt að
skipasmíðastöðin í Taiwan
væri nú með fjórða lægsta til-
boð. Það telja Isluxmenn með
öllu óskiljanlega niðurstöðu.
Brádabirgðalögin
Næstum fall-
in að nýju
Þridji varamadur Steingríms Sigfússonar uar
gjaldgengur og mun bjarga málinu fyrir horn
Það munaði hársbreidd
að meirihluti neðri deildar
felldi bráðabirgðalögin,
þrátt fyrir yfirlýsingar
Hjörleifs um hjásetu við
lögin. Um svipað leyti og
Hjörleifur sté í pontu í
fyrradag var verið að leita
að varamanni til að taka
sæti Steingríms Sigfússon-
ar. Með tólf klukkustunda
fyrirvara tókst að ná í
þriðja varamann hans í
kjördæminu. Sökum anna
varð að leita til þriðja vara-
manns, en hefði Sigríður
Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi á Akureyri, sem er
annar varamaður Stein-
gríms, tekið sæti hefðu
lögin fallið. Hún hefði
greitt atkvæði gegn þeim.
Sigríður Stefánsdóttir stað-
festi í samtali við Alþýðublað-
ið að hún hefði greitt atkvæði
gegn bráðabirgðalögunum,
ef hún hefði tekið sæti Stein-
gríms. „Eg hafði engan tíma
til að meta þetta og gaf því
málið frá mér,“ sagði Sigríður
í gær. ,,Ég var félagi í Hinu ís-
lenska kennarafélagi, þegar
bráðabirgðalögin voru sett
og tel mig vera þolanda. Ég
hef lýst yfir sterkri andstöðu
við lögin og hefði ekki viljað
fara inn á þing til að brjóta
gegn sannfæringu minni, ef
til þess hefði verið ætlast af
mér.“
Sökum anna í bæjarstjórn á
Akureyri, þar sem Sigríður
gegnir forsetastörfum, gat
hún alls ekki komið því við að
sitja í hálfan mánuð á Alþingi
íslendinga í Reykjavík. Sig-
ríður segist hafa fengið boð
síðdegis í fyrradag um að
taka sæti Steingríms. „Ég
hefði auðvitað ekki getað far-
ið inn á þing sem varamaður
Steingríms og verið ósam-
mála honum.“
RITSTJORN 0 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR 0 681866