Alþýðublaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 5. desember 1990 INNLENDAR FRETTIR 3 FRÉTTiR Í HNOTSKURN BÆJARSTJÓRN GEFUR ÚT PLÖTU 0G BÓK: Fúsi, Sigfús Halldórsson, varð sjötugur í september sl. og ákvað Bæjarstjórn Kópavogs þá að standa að útgáfu sönglagabókar með lögum hans. í bókinni eru fyrst og fremst lög sem ekki hafa birst áður, auk margra af ódauð- legu perlunum hans. Á myndinni eru Guðni Þ. Guðmunds- son organisti og Friðbjörn G. Jónsson söngvari, sem önnuðust lagaval með tónskáldinu, Magnús Kjartans- son, sem sá um tölvusetningu, Kristján Guðmundsson, fyrrum bæjarstjóri, og Guðni Stefá.nsson bæjarfulltrúi, sem voru í útgáfustjórn. Hér sjást þessir herrar ásamt lista- manninum að skoða verkið. ÍSLENSKUR TORFBÆR REISTUR í KANADA: Næsta vor er ætlunin að hefja óvenjulega húsasmíði í Nýja íslandi í Kanada. Þar á að reisa íslenskan torfbæ. Það er Þjóðræknisfélag íslendinga sem stendur að þessari fram- kvæmd. Starfsemi félagsins er öflug um þessar mundir, eins og fram kom á aðalfundi félagsins í Reykjavík fyrir stuttu. Hjá félaginu er undirbúningur að skráningu íslend- inga erlendis á lokastigi, reiknað með að vinna hefjist í byrjun næsta árs. Þá er hafin gerð sjónvarpsfréttaþátta sem eru sérstaklega ætlaðir íslendingum erlendis og eru þeir gerðir í samvinnu við RÚV. Formaður Þjóðræknisfé- lagsins er Jón Ásgeirsson, en aðrir í stjórn eru Krist- björg Ágústsdóttir, Jón Ármann Héðinsson, Baldvin Jónsson og Teitur Lárusson. FORMAÐUR FRAMSÓKNAR: Hún Ragna Berg- mann var titluð sem formaður Sóknar í blaðinu í síðustu viku. Að sjálfsögðu átti þar að standa að Ragna er formað- ur Verkakvennafélagsins Framsóknar, og leiðréttum við þetta hér með. BJÖRK 0G TRÍÓ GUÐMUNDAR: Björk Guðmundsdóttir, Sykur- moli, eða er óhætt að segja fyrrverandi, hefur haslað sér nýjan völl í tónlistinni. Nú syngur hún með jassg- eggjaranum Guðmundi Ingólfssyni og tríói hans. Þau halda tónleika annað kvöld í íslensku Óperunni í tilefni af útkomu plötunnar Gling-Gló. Eins og útvarps- hlustendur þekkja eflaust leggja þau áherslu á ýmsar perlur fyrri ára í dægurtónlist- inni og ganga nú aftur ýmsir þekktir slagarar í nýjum og skemmtilegum búningi. SOVÉSK BÓKASÝNING: Sovésk bókasýning verður opnuð að Vatnsstíg 10 á laugardaginn kl. 15. Á sýningunni verða á þriðja hundrað bækur, aðallega á ensku. Sýningin verður opin í viku. EKKIVIÐ, SEGIR ÍSLANDSLAX: Reyktur eldislax er einhvers staðar í felum um þessar mundir — ekki manna- matur að sögn. Friðrik Sigurðsson í íslandslaxi hf. og Sigurður Björnsson í Islenskum matvælum hf. segja að þessi fiskur sé ekki — enda þótt kjaftasögurnar segi svo — frá íslandsfiski hf. Hið rétta mun vera að fiskurinn sé ættað- ur frá fyrirtæki með líku nafni, íslandsfiski hf. Þeir Frið- rik og Sigurður taka það líka fram að ekki megi heldur rugla saman íslandslaxi hf og íslaxi hf. við ísafjarðardjúp. íslensk matvæli eru einn helsti viðskiptavinur Islandslax hf. og hæla á hvert reipi gæðum vörunnar og er svo komið að ekki er leitað annað eftir laxi. TÍSKUSÝNING FYRIR „FRJÁLSLEGA" VAXNAR KONUR : Sú var tíðin að frjálslega vaxnar konur sem nú er kallað, þ.e. eilítið þybbnar, áttu erfitt með að fá sér kjóla, pils og buxur. Nú hafa nokkrar sérverslanir bætt úr skák. Og nú gerist það óvenjulega — tískusýning fyrir frjáls- lega vaxnar konur. Sú sem hefur veg og vanda af sýning- unni er Elíza Guðmundsdóttir. Sýningin er annað kvöld, fimmtudag, í Skrúði á Hótel Sögu. Kynnir verður Þórunn Gestsdóttir, ritstjóri. ENGINN OPINN FUNDUR: Sjálfstæðismenn runnu á rassinn með Opna fundinn sem átti að vera á Hótel Borg í gær. Slangur af fólki mætti á Borginni og komst að raun um að þeir félagar, Þorsteinn og Davíð, mundu ekki ræða bráðabirgðalögin á þeim vettvangi, né „nýja ríkisstjórn til þjóðarsáttar”. Fer Guðmundur G. með Borgaraflokki? Viðræður hafa átt sér stað milli Borgaraflokks og Guðmundar G. Þórar- inssonar í Reykjavík vegna framboðs í höfuð- borginni í Alþingiskosn- ingum að vori. „Ég leik einn leik í einu,“ svaraði Guðmundur G. Þórarins- son, þingmaður Fram- sóknarflokks, er hann var inntur eftir því hvað liði framboði hans á BB- lista í Reykjavík. Ekki er búist við því að fulltrúaráð framsóknarfé- laganna í Reykjavík verði við málaleitan Guðmundar. Aðspurður um hvað þá tæki við, sagðist Guðmund- ur ekki vilja tjá sig að sinni en hann væri að kanna sitt lið: „Eg leik einn leik í einu.“ Samkvæmt heimild- um Alþýublaðsins hafa átt sér stað þreifingar milli Borgaraflokks og Guð- mundar G. Hefur meðal annars verið rætt um að Guðmundur Ágústsson, formaður þingflokks Borg- araflokks, taki annað sætið á framboðslista nafna síns. Guðmundur Ágústsson hef- ur sem kunnugt er sagt skil- ið við ríkisstjórnina og Borgaraflokkurinn er um þessar mundir svolítið í lausu lofti. Við upphlaup sjálfstæðis- manna gegn bráðabirgða- lögunum virtist allt í einu sem skellt yrði á kosning- um. Við það fóru miklar bollaleggingar af stað, þar á meðal meðal liðsmanna Ekki er talið að fulltrúaráð framsóknar í Reykjavík fall- ist á BB-lista í Reykjavík. Guðmundur G. og fulltrúar Borgaraflokks hafa ræðst við um hugsanlega sam- vinnu í höfuðborginni. Guðmundar G. og ýmissa aðila. Það hljóp kippur í Borgaraflokk, meðal ann- ars í Reykjavík, á Reykja- nesi og á Suðurlandi. Júlíus Sólnes vildi ekkert segja um málið í gær. Óli Þ. Guð- bjartsson dómsmálaráð- herra hafði mjög sterkjega verið orðaður við lista Al- þýðuflokksins á Suður- landi. Kjördæmisráð Al- þýðuflokks lokaði hins veg- ar á þann möguleika um síðustu helgi, er ákveðið var að Árni Gunnarsson skipaði efsta sæti listans. Er kominn skriður á framboð Borgaraflokks á Suðurlandi í framhaldi ákvörðunar Al- þýðuflokks. Vélfryst skautasvell í Laugardal Vélfryst skautasvell, eða hluti þess mannvirkis, var opnað í Laugardal í gær. Svellið er rétt norðan við Húsdýragarðinn og er ætl- unin að fullgert verði mannvirkið í febrúar næstkomandi. Svellið verður opið fyrst um sinn frá 17 til 22 og 10 til 18 á laugardögum og sunnu- dögum. Svellplatan er 1800 fer- metrar að stærð og gerð með ísknattleik í huga. Við svellið stendur þjónustuhús, sem er 472 fermetrar að stærð. Þar er rými fyrir frystivélar, verk- stæði, búningsherbergi, miðasölu og sælgætissölu auk þess sem þar verður hægt að skerpa skauta. Frystikerfið getur ekki, að minnsta kosti í upphafi, keppt við stífar sunnanáttir, alla vega í marga daga, og ýmsar Skautasvellið er vel upplýst Verkið mun kosta alls um þær veðursveiflur sem við með Ijósum sem eru á átta 100 milljónir fullbúið. búum við. ljósastaurum. Reykjavíkurkrakkar kunnu vel að meta nýja skautasvellið í gær. — A-mynd E.ÓI. Nú verður skautað i flestum veðrum Elduarnareftirlitid um vinnustad starfsfólks Stöðvar 2 GETUR VERIÐ Í BRÁDRIHÆTTU „Það gæti orðið ansi erf- itt að komast út úr húsinu á Stöð 2 ef eldur yrði laus á hæðunum fyrir neðan,“ segir Ásmundur J. Jó- hannsson, verkefnastjóri hjá Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur. Það er plast- verksmiðjan Plastos sem rekur starfsemi á neðri hæðum og er eigandi húss- ins að Krókhálsi 6 en Stöð 2 leigir þar efstu hæðina. Hann sagði að margt væri athugavert við þetta hús og þar hefði ýmislegt verið gert án þess að spyrja kóng eða prest. Það hefur verið breytt út frá þeim uppdráttum sem voru lagðir fyrir byggingar- nefnd og samþykktir. Húseig- andi hefði látið framkvæma ýmsar breytingar, m.a. byggt milliloft inn í húsið og ekki leitað sér neinna heimilda til að gera það. Þarna væri verið að fást við hættuleg efni þar sem plastefnin væru. „Þetta getur þýtt það að starfsfólkið á Stöð 2, sem þarna vinnur, sé í bráðum háska ef eldur brýst út,“ sagði Ásmundur. Þorvarður Elíasson, for- stjóri Stöðvar 2, segir að stöð- in hafi gert allar þær endur- bætur á húsnæði stöðvarinn- ar á Krókhálsi 6 sem Eld- varnaeftirlit Reykjavíkur hafi farið fram á. Hann vildi ekki kannast við að starfsfólkinu stafaði stórfelld hætta af hugsanlegum eldsvoða. Ekki náðist í Sigurð Odds- son hjá Plastos, eiganda hús- næðisins, sem er erlendis. Samkvæmt lögum er það húseigandi sem er ábyrgur fyrir að ákvæði um bruna- varnir séu haldin. „En ef að leigjandi hefur verið að gera einhverjar breytingar með vitund húseiganda þá er hann orðinn samsekur og ábyrgur fyrir öryggi starfs- fólks síns þegar búið er að benda á hættuna," sagði Ás- mundur ennfremur. Hjá embætti byggingarfull- trúa Reykjavíkurborgar kom það fram að gefinn hafi verið frestur til 15. janúar á næsta ári til að bæta úr því sem að hefði verið fundið. Hefðu úr- bætur ekki verið gerðar að þeim tíma liðnum yrði vænt- anlega beitt dagsektum eða gripið til annarra úrræða. Það er hins vegar á valdi byggingarnefndar hvernig á slíkum málum er tekið.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.