Alþýðublaðið - 05.12.1990, Side 2
2
Miðvikudagur 5. desember 1990
Sævar Karl
býður til tónleika
Fín föt eru sérgrein Sœvars
Karls, klæðskera í Bankastræt-
inu. En hann sér viðskiptavinum
sínum líka fyrir andlegu þörfun-
um, listinni. í verslun hans eru
oftast nær málverkasýningar, —
og nú gerir Sævar Karl enn betur
og býður viðskiptavinum sínum
til jólatónleika í Islensku óper-
unni á laugardaginn kl. 14. Þar
munu átta hljóðfæraleikarar
flytja verk eftir Rossini, Hummel
og Mozart.
Hverju spá þeir
fyrir næsta ár?
Spástefna Stjórnunarfélagsins
var haldin í fyrradag og var þar
mættur Svíinn Curt Nicolin,
stjórnarformaður Asea Brown
og SAS. Enn voru 30 kunnir at-
hafnamenn beðnir að spá um
verðbólguþróunina. Meðaltals-
spá þeirra er 10,6% — en 15 í
hópnum voru með spá um
5—10% verðbólgu sem er í sam-
ræmi við þjóðhagsáætlun sem
gerir ráð fyrir 7% verðbógu á ár-
inu.
Glöggur verðbólgu-
spámaður
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamark-
aðar Islandsbanka var einn
þeirra sem spáði um verðbólgu-
þróun ársins í ár á spástefnu
Stjórnunarfélags Islands fyrir
réttu ári síðan. Hann reyndist
getspakastur í stórum hópi at-
hafnamanna, en meðaltalsspá
hópsins var 19,5%. Samkvæmt
þjóðhagsáætlun og fjárlaga-
frumvarpi verður hækkun fram-
færsluvísitölu milli áranna 15%.
Sá bjartsýnasti í fyrra var Hall-
dór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, spáði 5% verðbólgu ef
sátt skapaðist um óbreytt ástand
á vinnumarkaði. Aðrir voru
svartsýnni: Sigfús Jónsson, þá
bæjarstjóri á Akur-
eyri(20—25%), Þröstur Ólafsson
þá framkvæmdastjóri Mikla-
garðs(20—25%), Vilhjálmur Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs (25—30%) og Þoruald-
ur Gylfason, prófessor (30% á
leið í 5-8% 1992).
Gunnlaugur Stefánsson efsti maöur A-listans á Austfjöröum:
Hér snúast málin um
Suo gæti fariö ad Gunnlaugur Stef-
ánsson, prestur í Heydölum, lenti
ödru sinni á Alþingi med bróður sér
uið hlið. Hann skipar efsta sœti
A-listans á Austfjörðum uið komandi
alþingiskosningar. Hann sat tœp tuö
ár á þingi sem þingmaður Reykja-
neskjördœmis eftir stórsigur Alþýðu-
flokksins í kosningunum 1978 en þá
sat bróðir hans, Finnur Torfi Stefáns-
son tónlistarmaður, einnig á þingi
fyrir Alþýðuflokkinn í Norðurlands-
kjördœmi uestra. Nú er möguleiki á
að Gunnlaugur lendi á þingi öðru
sinni með öðrum bróður sínum,
Guðmundi Árna Stefánssyni, bœjar-
stjóra í Hafnarfirði, en Guðmundur
Arni skipar baráttusœti A-listans á
Reykjanesi. Stefán Gunnlaugsson,
faðir þeirra þriggja, sat á þingi fyrir
Alþýðuflokkinn í Reykjanesi árin
1971 til 1974. Alþýðublaðið átt stutt
uiðtal uið Gunnlaug.
Gunnlaugur Stefánsson, prestur i Heydölum og
fyrrverandi þingmaður, skipar fyrsta sæti lista Al-
þýðuflokksins á Austf jörðum við komandi alþingis-
kosningar. Listi flokksins var samþykktur af kjör-
dæmisráði um helgina. Gunnlaugur er engin ný-
græðingur i pólitik þvi hann settist á þing eftir kosn-
ingarnar 1978. Gunnlaugur var spurður hvernig
honum likaði að vera kominn i slaginn aftur.
,,Ég er ánægður með að vera
kominn aftur í pólitík, ef ég megna
að verða að gagni. Ég lít á stjórn-
málabaráttuna sem þjónustu. Hins
vegar geri ég greinarmun á pólitík
og pólitík. Ég tel mig vera að bjóða
krafta mína til verja lífsbjörg fólks
hér á Austfjörðum. Ég hef stund-
um sagt að pólitíkin fyrir sunnan
sé eins og loftfimleikar eða knatt-
spyrnuleikur meðan víða út á
landsbyggðinni eru menn að berj-
ast fyrir tilveru sinni, búsetu og af-
komu.
Ástæðan fyrir því að ég fer í
framboð núna er að mér finnst svo
mikil þörf á þvi að taka til hendi
hér í kjördæminu varðandi þau at-
riði sem ég var að nefna."
Nú var genglð frá A-listanum
í kjördæminu um helgina.
Hvernig líst þér á listann?
„Listinn er virkilega góður. Á
honum er að finna fólk víða að úr
kjördæminu sem hefur lifað hér
og fengist við hin margvíslegustu
störf. Eg hlakka til að vinna með
því fólki að þeim verkefnum og
þeim hugsjónum sem við jafnað-
armenn stöndum fyrir."
Hvaða mál eru á oddinum hjá
ykkur á Austfjörðum?
„Það sem málið snýst um hérna
er að verja búsetuna á Austfjörð-
um og atvinnulífið. Það er mál
númer eitt, tvö og þrjú. Eitt af því
snýst um að verja fiskveiðiréttind-
in hér í kjördæminu. Við erum al-
gjörlega andvígir núverandi
kvótakerfi. Við höfnum því að
markaðslögmál frjálshyggjunnar
verði látin ráða skipan byggða- og
atvinnumála. Við berjumst fyrir
því að byggðir hér fái notið fisk-
veiðiréttinda en þau fari ekki á
uppboðsmarkað sem endi með
því að þau safnist á fáar hendur.
Það er ekki síður mikilvægt að
standa vörð um landbúnaðarfram-
leiðslu hér í kjördæminu. Land-
búnaður hér á í vök að verjast og
er á mjög viðkvæmu stigi. Það á
jafnt við um sauðfjárrækt sem
kúabúskap. Ég fæ ekki séð neina
nauðsyn þess að fara að flytja inn
landbúnaðarvöru enda er nóg
framboð af íslenskum landbúnað-
arvörum og þjóðarbúinu síst til
bóta að fara að flytja inn landbún-
aðarvöru á þessu stigi málsins.
Það væri nær að spara gjaldeyrinn
til annarra hluta."
Hvað er til úrbóta til að
styrkja byggð á landsbyggð-
inni?
„Þar skiptir ákaflega miklu máli
aukið sjálfræði og sjálfstæði sveit-
arfélaganna. Það sama á við um
fyrirtækin í sjávarútvegi. Það
gengur ekki að þurfa að sækja
undir aðila og stofnanir í Reykja-
vík með alla skapaða hluti. Mið-
stýringin frá Reykjavík er vísasti
vegurinn til að drepa atvinnulifið
og þar með allt mannlífið hér í
dróma. Það þarf að koma á þjóð-
arsátt milli dreifbýlis og þéttbýlis.
í því sambandi má benda á
hversu nauðsynlegt er að ýmsar
stofnarnir og stjórnsýsla flytjist í
stórauknum mæli út á lands-
byggðina. Það er ein af forsendum
þess að þjóðin öll geti búið sátt í
okkar landi.“
Hvernig kannt þú við þig sem
prestur á Austfjörðum?
„Vel. Ég er búinn að vera hér
prestur í fjögur ár. Ég gegni tveim-
ur sóknum, Stöðvarfirði og Breið-
dalsvík, og bý á Heydölum. í starfi
mínu hef ég kynnst lífi og starfi
fólksins mjög náið og veit hvar
skórinn kreppir að. Samhliða
preststarfinu höfum við verið með
búskap á Heydölum, kona mín,
séra Sjöfn Jóhannesdóttir, sóknar-
prestur á Djúpavogi og sonur okk-
ar, Stefán Már, sem stundar nú
nám á Eiðum.“
Hefur þú haft mikil bein af-
skipti af pólitík hin síðari ár?
„Eg hef ekki haft mikil afskipti
af flokkapólitík og reyndar mjög
lítil. Ég hef hins vegar lagt allt mitt
af mörkum hér til þess að aðstoða
fólk sem þarf að leita réttar síns
eða þarf á aðstoð að halda í lífsbar-
áttunni. Það er líka pólitík."
Nú liggja fyrir framboð
flestra flokka á Austurlandi.
Hvernig metur þú möguleika
þína og Alþýðuf lokksins í kom-
andi kosningum?
„Það hafa margir bent á að nú
sé komið að þeirri stundu að Aust-
firðingar verði að eiga þingmann
innan raða allra „fjórflokkanna".
Það hefur veikt mjög stöðu Aust-
urlands á Alþingi og i ríkisstjórn
að þingmanns frá Alþýðuflokki
hefur ekki notið við.“
Hvað segir þú um þær svipt-
ingar sem hafa átt sér stað nú
síðustu daga?
„Áður en það kom í ljós að það
væri meirihluti fyrir bráðabirgða-
lögunum, þá var eðlilegt að for-
sætisráðherrann hygði á að boða
til kosninga enda sýnt að þá væri
stjórnin fallin. En nú hefur þing-
maður Alþýðubandalagsins á
Austurlandi bjargað Sjálfstæðis-
flokknum um stund, frá því að
standa andspænis þjóðinni stefnu-
laus. En það er engu að síður stutt
til uppgjörsdaga.
Við hér fyrir austan styðjum
þjóðarsáttina heilshugar enda hef-
ur hún tryggt hjöðnun verðbólgu,
vinnufrið og komið á jafnvægi í
efnahagsmálum landsins. Við vör-
um hins vegar eindregið við því að
það verði bara launafólk og búalið
sem beri byrðar þjóðarsáttarinnar,
heldur verða atvinnurekendur,
fjármagnseigendur og stofnanir
einnig að leggja sitt af mörkum,
þar með taldar opinberar stofnan-
ir,“ sagði Gunnlaugur Stefánsson
prestur í Heydölum að lokum.