Alþýðublaðið - 05.12.1990, Síða 7
7
Miðvikudagur 5. desember 1990
ERLEND FRÉTTASKÝRING
Fyrsta vika Majors sem
forsætisráðherra og formanns
íhaldsflokksins hefur verið
viðburðarík: Enn hefur hann
ekki fundið konu í ráðherra-
stól, flokksmenn í Chelten-
ham eru æfir yfir þingmanns-
efni sem er þeldökkur lög-
fræðingur og mikið verkefni
bíður hins nýja formanns að
sætta flokksmenn eftir for-
mannsátökin sem felldu
Thatcher.
*
Ihaldsflokkurinn logar í deilum eftir fall Thatchers:
neinar tilbúnar hindranir trúar-
bragða, kynja eða uppruna, sagði
Major.
Og hann bætti við: ,,í hinu harða
samkeppnisþjóðfélagi á að vera ást-
úð og umhyggja. Umhyggjan er
nauðsynleg vegna þess að sumt fólk
þarfnast sérstakrar aðstoðar til að
lifa í valfrelsi og sjálfstæði.'
VeHerdqrþjóðfélMgið
molað niður____________________
Meginkjarni stefnu Thatchers var
einstaklingshyggja; ábyrgðin átti að
vera einstaklingsins og hvatningin
var sala ríkisfyrirtækja og einka-
væðing í stórum stíl. Skattar voru
lækkaðir og verslunarfrelsi hamp-
að.
Verkamannaflokkurinn sem setið
hefur í stjórnarandstöðu í tíð Thatc-
hers, gagnrýnir hins vegar hina
óhefta frjálshyggju og segir að
Thatcher og Ihaldsflokkurinn hafi
sprengt í loft upp hið umburðalynda
og umhyggjusama velferðarþjóðfé-
lag sem Bretar séu heimsþekktir
fyrir og hafi aukið gjá fátækra og
ríkra.
„Verkefnið sem bíður okkar nú er
að halda áfram að vera róttækur
Major reynir að
sætta fíokksmenn
Hinn nýi forsætisróðherra Bretlands, John Major,
reynir nú allt sem hann getur til að bera klæði á öll
vopn innan íhaldsflokksins eftir hallarbyltinguna sem
felldi Margréti Thatcher úr formannsstóli flokksins og
úr forsætisróðherrastóli.
í gær mætti Major sínum fyrsta
mótvindi innan flokksins vegna
deilna um kynþáttamál; nánar til-
tekið ágreinings um framboð þel-
dökks manns fyrir íhaldsflokkinn.
Major vill breyta______________
imynd Ihaldsflokksins
Enda þótt Major fylgi fast stefnu
þeirri sem Thatcher lagði grunninn
að og hafi verið í mestum metum
hjá járnfrúnni af frambjóðendun-
um, sem erfa vildu krúnu hennar
sem forsætisráðherra og formanns,
vill hinn nýi forsætisráðherra breyta
ýmsu í Thatcher-stefnunni.
Til að mynda hefur Major lagt á
það mikla áherslu að íhaldsflokkur-
inn fái betri ímynd sem umburðar-
lyndur, umhyggjusamur mannvina-
flokkur. ímynd flokksins undir 11
ára stjórn Thatchers er vægast sagt
orðin kuldaleg og fjandsamleg
mannfólki. Hin harðastefna járnirú-
arinnar gegn félagslegum umbótum
og velferð, hefur aflað henni mikilla
óvinsælda hjá almenningi.
Ýmsir heimsfrægir Bretar eru
farnir að mótmæla mannvonsku og
umhyggjuleysi ríkisstjórnar íhalds-
flokksins. Þannig hefur nýtt mynd-
band með fyrrverandi Bítli, Paul
McCartney, vakið miklar umræður
um heim allan. Þar syngur Paul
gamla negraslagarann og vögguvís-
una „All my Troubles" sem gagn-
rýni á hið kuldalega samfélag
íhaldsmanna.
Fyrsta þeldökka_____________
þingmannsofni_______________
ihaldsmanna_________________
fær kaldar móttökur
En óvænt mál á Suður-Englandi
virðist hafa gert Major erfiðara fyrir
hvað varðar andlitslyftingu á ímynd
flokksins.
Þeldökkur lögfræðingur og ráð-
gjafi hjá íhaldsflokknum að nafni
John Taylor (38) hefur áhuga á því
að verða fyrsti þeldökki þingmaður
íhaldsflokksins. Hann bauð sig fram
í prófkjöri í Cheltenham og komst í
öruggt sæti meö 111 atkvæðum
gegn 83.
Úrslit prófkjörsins hafa vakið
mikla gremju ýmissa íhaldsmanna í
kjördæminu. Sumir hafa ráðist gegn
Taylor opinberlega eftir að úrslitin
lágu fyrir og sagt að þeir vilji ekki að
negri sé þeirra fulltrúi.
Einn flokksmanna Ihaldsflokksins
í Cheltenham, Bill Galbraith, sagði
við fréttamann Press Association,
að ekki ætti að sleppa „andskotans
negrum" inn í bæinn. Þessi ummæli
hafa vakið þjóðarathygli og orðið
íhaldsflokknum til lítils sóma.
Galbraith segist ekki hafa sagt
þessi orð til þess að þau birtust opin-
berlega, heldur hafi sagt þau í
einkaviðtali við fréttamanninn.
Flokkurinn logar i ótökum
eftir Thatcher___________________
En fleiri raunir gera Major erfitt
fyrir í upphafi formansstíðar sinnar.
Eftir fyrstu vikuna sem forsætisráð-
herra hefur honum enn ekki tekist
að fá konu í ráðherrastól. Hann hef-
ur að auki rekið ungan ráðherra frá
Wales með þeim orðum að hann
ætlaði að fá annan ungan mann í
staðinn en enn bólar ekkert á nýj-
um, ungum ráðherra.
Major er 47 ára og yngsti forsætis-
ráðherra Breta í hartnær eina öld.
Hann er því að mörgu leyti reynslu-
lítill í forsætisráðherraembættið.
Nýr vandi sem nú blasir við honum,
er að lægja öldurnar hjá áhangend-
um Thatchers sem ekki eru búnir að
fyrirgefa þeim mönnum sem voru
valdir að hallarbyltingunni og börð-
ust um sæti hennar. A hinn bóginn
þarf Major einnig að eiga við hreyf-
ingu innan flokksins sem berst fyrir
því að koma þingmönnum frá sem
greiddu atkvæði gegn Thatcher í
nýafstöðnu formannskjöri og setja
nýja í þeirra stað.
Major boðar umhyggju
ihaldsmanna_____________________
Major leggur nú alla áherslu á það
innan flokksins, að menn leggi nið-
ur öll vopn og hætti tafarlaust öllum
deilum: „Við verðum að hætta allri
misklíð. Of mikið er í húfi. Við þurf-
um að vinna næstu þingkosningar,"
segir Major.
Halda verður þingkosningar í
Bretlandi í síðasta lagi um mitt ár
1992.
Major hefur svarað óbeint en ljós-
lega gagnrýni sem upp hefur komið
vegna framboðs hins þeldökka
þingmanns og konuleysis í ráð-
herraröðum.
Hann lofaði opnu þjóðfélagi þar
sem allir karlar og konur gætu náð
eins lagt og hæfni þeirra, þekking,
metnaður og geta myndi geta fleytt
þeim. „Það eiga ekki að vera til
flokkur," sagði Major í gær. „Við
verðum að dreifa forréttindunum
sem áður tilheyrðu litlum hópi og
gera fleirum kleift að komast áfram
í þjóðfélaginu." Sjálfur er Major af al-
þýðufólki kominn, sonur fjölleika-
húsmanns og hætti skóla 16 ára, fór
að vinna í banka og komst til áhrifa
og metorða á skömmum tíma í við-
skiptalífi og innan Ihaldsflokksins.
Ingólfur Margeirsson
skrífar
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.40 Jóladagatal 17.50 Töfraglugg-
inn 18.45 Táknmálsfréttir 18.55 Moz-
art-áætlunin 19.20 Staupasteinn
19.50 Jóladagadal 20.00 Fréttir og
veður 20.35 Ur handraðanum 21.25
Á langferðaleiðum 22.25 Sápuþjóf-
urinn (Ladri di Saponette) 23.00 Ell-
efufréttir 23.10 Sápuþjófurinn —
Frh. 00.00 Dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Saga jóla-
sveinsins 18.00 Meðsól íhjarta 19.19
19.19 20.15 Framtíðarsýn 21.15
Hitchcock 21.50 Spilaborgin 22.45
Tíska 23.15 ítalski boltinn 23.40
Ákvörðunarstaður: Gobi (Destina-
tion Gobi) 01.10 Dagskrárlok.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur Rásar 1 07.32
Segðu mér sögu 07.45 Listróf 08.00
Fréttir 08.30 Fréttayfirlit og Daglegt
mál 09.00 Fréttir 09.03 Laufskálinn
09.45 Laufskálasagan 10.00 Fréttir
10.03 Við leik og störf 11.00 Fréttir
11.03 Árdegistónar 11.53 Dagbókin
12.00 Fréttayfirlit á hádegi 12.01
Endurtekinn Morgunauki 12.20 Há-
degisfréttir 12.45 Veðurfregnir 12.48
Auðlindin 12.55 Dánarfregnir 13.05 í
dagsins önn 13.30 Hornsófinn 14.00
Fréttir 14.03 Útvarpssagan: Undir
fönn 14.30 Miðdegistónlist 15.00
Fréttir 15.03 í fáum dráttum 16.00
Fréttir 16.05 Völuskrín 16.15 Veður-
fregnir 16.20 Á förnum vegi 16.40
Hvundagsrispa 17.00 Fréttir 17.03
Vita skaltu 17.30 Tónlist á síðdegi
18.00 Fréttir 18.03 Hér og nú 18.18 Að
utan 18.30 Auglýsingar 18.45 Veður-
fregnir 19.00 Kvöldfréttir 19.35 Kvik-
sjá 20.00 í tónleikasal 21.30 Nokkrir
nikkutónar 22.00 Fréttir 22.07 Að ut-
an 22.15 Veðurfregnir 22.20 Orð
kvöldsins 22.30 Úr Hornsófanum í
vikunni 23.10 Sjónaukinn 24.00
Fréttir 00.10 Miðnæturtónar 01.00
Veðurfregnir 01.10 Næturútvarp á
báðum rásum til morguns.
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unf réttir 09.03 Níu fjögur 11.30 Þarfa-
þing 12.00 Fréttayfirlit og veður
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur
14.10 Gettu betur! 16.03 Dagskrá
18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir
19.32 Gullskifan úr safni Joni Michell
20.00 Lausa rásin 21.00 Úrsmiðjunni
22.07 Landið og miðin 00.10 í háttinn
01.00 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir
09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís
Gunnarsdóttir 14.00 Snorri Sturlu-
son 17.00 ísland í dag 18.30 Þor-
steinn Ásgeirsson 22.00 Hafþór
Freyr Sigmundsson 23.00 Kvöldsög-
ur 24.00 Hafþór Freyr 02.00 Þráinn
Brjánsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeild
Stjörnunnar 12.00 Sigurður Helgi
Hlöðversson 14.00 Sigurður Ragn-
arsson 17.00 Björn Sigurðsson og
sveppavinir 20.00 Jóhannes B.
Skúlason 22.00 Arnar Albertsson
02.00 Næturbrölt Stjörnunnar.
Aðalstöðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Morgunverk Margrétar 09.15
Heiðar, heilsan og hamingjan 09.30
Húsmæðrahornið 10.00 Hvað gerðir
þú við peningana sem frúin í Ham-
borg gaf þér? 10.30 Mitt útlit — þitt
útlit 11.00 Spakmæli dagsins 11.30
Slétt og brugðið 12.00 Hádegisspjall
13.00 Strætin úti að aka 13.30 Glugg-
að í síðdegisblaðið 14.00 Brugðið á
leik í dagsins önn 14.30 Saga dags-
ins 15.00 Topparnir takast á 15.30
Efst á baugi vestanhafs 16.30 Mitt
hjartans mál 18.30 Smásögur 19.00
Kvöldtónar 22.00 Sálartetrið 24.00
Næturtónar Aðalstöðvarinnar.