Alþýðublaðið - 05.12.1990, Page 8
lÁftryggmgai-
lll
ALWÓÐ4
LIFTRYGGING ARFEIAGIÐ HF.
LÁGMÚLt 5 • RFYKIAVtK
681644
APYBUBUBIB
GEVAUA
1 Það er kaffið 687510
• • • • • • •
• •
• • • • • • •
• •
• • • • •
ÍBaxaoMaa rocooxa AsnepcoH,
HoSBOJUbTO ÖR6 p&3 BtípaaHTB 0£8SH&T6JlLBOCTB 3& nfa0y*a0HH6
uHe npeiOH. Buðop HoöasoBCjcoro KouHTexa OTpaxaeT rzyöoKHo nope-
ubhu b uape aa noca&oHee Bpaun, Koropue, HageBCB, npuHecyT xsy-
Afat öeaonaoHooifc b öoxuie dsaronoxyHxa.
C oomaneHHau BHHy*neH Beu oooöouitb, hto npaöHTB a Ocao a
TpammHOHHH« "HoöeJWBOXHl nepaoa" w uena oKaaaxooi hqbosuo*—
hhu. HparzaHa - nepexouHufl aah OTpauu uouenr a xpaftnxn 3arpyxea-
hootb saoauH, TpeöynaHUH öyKaaaBHo ezenaouoro uoero bhhuhhhh h
ynacTHH. Hanescb, hto HoöexeBcxHft kouhtbt o noHHuaaHeu othooqt—
ch x QTouy h corxácHTOH npoaecTH BpyqeHHe npeuM b npyria
Soxh 8To hq. BH30Ber 3aTpynHOHHft o Bameft otopohu, a uor öu
npaöuTt b Ooxo b nopaoft nax£Ae uaa 1991 roxa. 0 xoHxpeTsnx ahhx
uoxbo óuao öu ycxoBHTBOH b cxynae Bamero oorxaona.
Qpafiony oboh h3bhh8hhh aa AOOT&nxeHHue xxonoTH.
C HaKxytnnHUH noxexaHHHUH
M.ropöaxaa
Gorbatsjov hefur lítinn tíma til annars en björgunaraðgerða
heima fyrir — hér má sjá bréf hans til Nóbelsnefndarinnar
norsku á dögunum — „ég kemst ekki," segir hann, og býöst
til aö senda fulltrúa sinn.
GORBATSJOV FÆR AUKIN VÖLD: Frá Moskvu bár-
ust þær fréttir að þingið hefði gefið forsetanum, Míkhaíl
Gorbatsjov, grænt ljós á að stokka upp í valdakerfinu til
þess að freista þess að Ijúka því krepputímabili sem verið
hefur í efnahags- og stjórnmálum Sovétríkjanna. Fulltrúar
þingsins samþykktu í aðalatriðum breytingar sem leiða
munu til þess að forsetinn mun fá öll völd í ríkisstjórninni.
REKA PALESTÍNUMENN BURTU: ísraelsstjórn
íhugar nú að taka upp að nýju brottrekstur Palestínu-
manna, aðgerð sem var lögð niður fyrir 16 mánuðum síð-
an vegna þrýstings frá öðrum þjóðum.
BANDARÍSK VOPN TIL VARSJÁRBANDA-
LAGS: Bandaríkjamenn hafa boðið Pólverjum vopn til
kaups að sögn pólsks aðmíráls í Varsjá í gær. Ef af verður
mundi þetta verða fyrsti sölusamningurinn, sem gerður
yrði í Washington við ríki sem er aðili að Varsjárbandalag-
inu.
JARÐÝTUR Á „GRÆNU LÍNUNA": Jarðýtur æddu
gegnum hindranir og víggirðingar svokallaðrar Grænu
línu sem skipt hefur Beirút í tvo hluta síðustu 15 árin. Jafn-
framt voru sprengjufræðingar önnum kafnir að taka í
sundur jarðsprengjur á svæðinu í gær. Líbanska stjórnin
hefur aftur stjórn á höfuðborginni í Líbanon, það takmark
náðist á mánudaginn með liðsstyrk 40 þúsund hermanna.
GATT-BLINDGATA: Svo virðist sem að Gatt-viðræðun-
um í Brussel muni ljúka á föstudag án þess að bera árangur.
Reuter hafði eftir bandaríska verslunarfulltrúanum, Rufus
Yerxa, í gærkvöldi að aðilarnir væru í blindgötu í umræð-
unum um landbúnaðarstyrki.
KHAMEINIVILL EYÐA ÍSRAEL: íranski erkiklerkur-
inn Ayatolla AIi Khameini sagði í gær í útvarpinu í Teher-
an að eyða yrði Ísraelsríki. Sáttaumleitanir vegna Palest-
ínudeilnanna væru landráð.
EB 0G BÁTAFÓLKIÐ:
Evrópubandaiagið, sem tók
um samskipti við Víetnam í
síðasta mánuði, samþykkti
í gær að byrja aðstoð við
landið með því að hjálpa
tugum þúsunda bátafólks
til að snúa aftur tii landsins,
sem er eitt fátækasta land
Asíu.
GEIMFARAR FENGU LOKS AÐ SJÁ UNDUR
GEIMSINS : Af geimferjunni Kólumbíu var það af frétta
í gærkvöldi að hinir fíngerðu og dyntóttu stjörnusjónaukar
ferjunnar komust loks í sjálfstýringu og yfir sig fegnir gátu
géimfararnir því tekið til við að virða fyrir sér leyndar-
dóma og undur víðáttu geimsins.
ERLENDAR FRÉTTIR
Heimsmeistaraeinvígid í skák:
Kasparov vann 3ja
daga maraþonskák
Heimsmeistarinn í skák,
Garrí Kasparov, hefur náð
forystunni í einvígi sínu
við Anatolí Karpov í skák.
Hann hefur heimsmeist-
aratitilinn að verja og
vann Karpov í þriggja
daga maraþonskák.
Þegar 16 skákum er lokið
og átta eftir hefur Kasparov
unnið tvær skákir en Karpov
eina. Þrettán hafa endað með
jafntefli.
Skákin, sem tók samtals 12
tíma við skákborðið og var
102 leikir, er lengsta skákin
milli þessara erkifjenda, sem
hafaleikið 136 einvígisskákir
sín á milli, sem er heimsmet.
Skáksnillingarnir ræddu
skákina að henni lokinni sem
þykir enn ein vísbendingin
um dvínandi gagnkvæma
andúð og þykir benda til vax-
andi virðingar fyrir skáksniili
hvor annars.
Sérfræðingar telja nú litla
von til þess að Karpov takist
að endurheimta heimsmeist-
aratitiiinn í skák sem hann
missti til Kasparovs árið 1985.
Kasparov mun halda titlinum
á jöfnu og dugir því 12 vinn-
ingar.
Uppreisnarleidtogi útnefnir sig forseta Tsjads:
Heitir fjöl-
flokka íýðræði
Uppreisnarleiðtoginn
Idriss Deby lýsti sjálfan
sig forseta Tsjads í gær og
setti á fót þjóðarráð. Deby,
sem leiðir MPS, Þjóðfresls-
ishreyfinguna, og eyði-
merkurhermönnum hans
tókst að ná völdum þann 1.
desember þegar Hissene
Habre fiúði land til ná-
grannaríkisins Kamerún.
í yfirlýsingu frá fram-
kvæmdanefnd MPS segir að
forseti hennar muni gegna
leiðtogahlutverki ríkisins. Þá
segir að pólitískar áætlanir
MPS séu að koma á fót fjöl-
flokkalýðræði í þessu ríki
Mið-Afríku og þeim muni
verða hrundið í framkvæmd.
Á meðan mun Þjóðarráðið,
sem ekki hefur verið að fullu
skipað ennþá, gegna hlut-
verki ríkisstjórnar.
í útvarpsávarpi til þjóðar-
innar í gærkveldi réðst Deby
á Habre, en Deby hafði áður
verið herforingi og öryggis-
ráðgjafi í þjónustu Hebre. Það
var áður en hann flúði og
lagðist í útlegð eftir mis-
heppnað valdarán.
„Undir harðstjórn Hissenes
Habre hafði enginn rétt til
þess að hugsa,“ sagði Deby.
Hann lýsti stjórnarskrá Habre
frá því árið 1989 ógilda og
sagði að MPS hefði fullan hug
á því að leiða Tsjad til fjöl-
flokkalýðræðis. Hann boðar
félagafreisi, skoðanafrelsi,
frjálsa verkalýðshreyfingu,
viðskiptafrelsi, frelsi fjöl-
miðla og trúfrelsi og segir
Þjóðfrelsisráðið helga sig
þessum markmiðum.
Það tók Kasparov langan
tíma að finna vinningsleið og
knýja fram sigur á frækilegri
vörn Karpovs eftir langa og
erfiða baráttu. Staða Karpovs
varð snemma erfið og sagði
Boris Spasskí, fyrrverandi
heimsmeistari, dolfallinn yfir
þrautseigju og útsjónarsemi
Karpovs. „Ég er gáttaður á
hversu uppfinningasamur
Karpov er en honum tókst
næstum að snúa sig út úr
feikilega erfiðri stöðu — sem
var nánast kraftaverk," sagði
Spasskí.
Upp komu sögur um að Ka-
sparov hefði notið úrvinnslu
tölvu við skákina en ýmsir
skákmeistarar hafa vísað því
á bug.
Sautjánda skákin er á dag-
skrá í dag og er það Karpov
sem stýrir hvítu mönnunum.
Kasparov á enn tvo mögu-
leika til að fresta skák en
Karpov aðeins einu sinni.
Forseti Bangladesh segir af sér:
Stjórnarandstaðan
skipi starfsstjórn
Forseti Bangladesh,
Hossain Mohammed Ers-
had, hefur sagt af sér sam-
kvæmt sjónvarpsfréttum
þar í landi í gær. Þar var
sagt að Ershad hafi kallað
til fundar í þinginu til á
laugardaginn og það út-
nefni varaforseta sem
muni mynda starfsstjórn
þar til kosningar hafi farið
fram.
Sjónvarpið sagði að Ershad
hefði beðið stjórnarand-
stöðuflokkana að tilnefna
varaforseta sem færi fyrir
bráðabirgðastjórn. „Boltinn
er nú hjá stjórnarandstöð-
unni,‘ sagði hann.
Afsögn Ershads kemur í
kjölfar þess að stjórnarand-
staðan neitaði að fallast á
friðartillögu sem sett fram á
mánudaginn og kröfðust af-
sagnar hans. Ershad segist
munu verða í forsetafram-
boði fyrir flokk sinn,
Jatiya-flokkinn, í boðuðum
kosningum en hann náði
völdum í valdaráni án blóðs-
úthellinga í mars árið 1982.
Hann var þriðji forseti
Bangladesh sem er fjölmenn-
asta ríki múslima með 110
milljónir íbúa. Afsögn hans
kemur eftir þriggja ára harða
andstöðu 22 stjórnarand-
stöðuflokka sem hafa haldið
því fram að stjórn hans væri
spillt, ólögleg og einræðis-
stjórn.
/