Alþýðublaðið - 27.08.1985, Page 3
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
3
Þriggja ára kerfi út
Póstur og sími tekur í notkun nýtt bílsímakerfi. Kostnaðurinn nemur tugmilljónum
Nýtt bílsímakerfi, glerfiberkapl-
ar og tölvunet er það sem koma skal
— alveg á næstunni.
Bílsíminn, sem tekinn var í notk-
un 1982, skipti sköpum um fjar-
skipti fyrir þá sem eru á ferð og
flugi en þurfa þó að vera í sam-
bandi. Nú hefur Póstur og sími tek-
ið ákvörðun um að kerfinu verði
breytt. í stað gamla handvirka kerf-
isins, sem hefur kostað 6 milljónir
króna í beinni fjárfestingu, verður
komið upp sjálfvirku kerfi, þar sem
notandinn velur beint það númer,
sem hann ætlar að hringja í.
Nú eru notendur bílsíma 350—
400, en þeim til huggunar þá verður
gamla handvirka kerfið áfram í
notkun samhliða hinu nýja um
ófyrirsjáanlega framtíð. Kostnað-
urinn við að koma upp nýju sjálf-
virku kerfi nemur tugmilljónum, en
hluti kostnaðarins dreifist á talsam-
bandið við útlönd, því nýja kerfið
gefur möguleika á beinum símtöl-
um til útlanda. Tíðnisviði farsím-
ans verður breytt og hann sam-
ræmdur því sem nú er á Norður-
löndunum.
Póstur og sími þarf að endurnýja
móðurstöðvarnar um allt land, auk
þess sem sett verður upp sjálfvirk
aðalstöð í Reykjavík. Þessu fylgir
einnig ný línulögn að hluta til.
Það sem helst skiptir notandann
máli er að skipta þarf um símtæki.
Verð bílsímans hefur tekið stakka-
skiptum á þeim stutta tíma, sem
hann hefur verið í notkun hér. í
upphafi var kostnaðurinn fyrir not-
andann um 300 þúsund krónur, en
ér nú um 70 þúsund krónur. Varla
má búast við að stofnkostnaður
lækki úr þessu, þrátt fyrir stefnu
póst og símamálayfirvalda að
kostnaður við notkun bílsímans sé í
takt við hið almenna símakerfi, en
þar hefur kostnaðurinn Iækkað.
Aætlað er að nota um 35 milljón-
ir króna á næsta ári í uppsetningu
móðurstöðva fyrir sjálfvirka kerf-
ið. Nú spyrja e.t.v. margir sem svo
„var þetta ekki fyrirsjáanlegt, er hér
ekki enn ein sóunin á almannafé".
En breytingar á fjarskiptatækninni
eru ákaflega örar. Meðuppsetningu
digitalstöðva í símstöðvum og með
lækkun á stöðvum fyrir bílsíma í
Evrópu í kjölfar aukinnar notkun-
ar, verður sjálfvirkt kerfi fyrir bíl-
síma á íslandi að staðreynd, fyrr en
nokkur þorði að vona.
/ bílum framtíðarinnar verða náttúrlega sjálfvirkir simar. Hérlendis eru sjálfvirkir bílasímar nú að halda innreið sína.
Digitalstöðvar og glerfíber
Sjálfvirkur sími er kominn inn á
næstum öll heimili landsmanna.
Síðustu sveitabæirnir verða tengdir
sjálfvirka kerfinu í lok þessa árs eða
mjög snemma á næsta ári. Þrjár
digitalstöðvar hafa verið settar upp
í símstöðvum landsins og svo er ein
stafræn stöð eða digitalstöð á
Keflavíkurflugvelli. Notkun digit-
alstöðva er forsenda nýrra mögu-
leika í fjarskiptum og höfum við
þegar bent á einn sem er sjálfvirkt
bílsímakerfi, en notkun glerfiber-
kapla í stað koparkapla í línur þær
sem bera boð á milli síma lands-
manna er annar möguleiki sem
opnast með tilkomu digitalstöðv-
anna.
Búið er að panta fyrstu glerfiber-
kaplana hingað til lands og verður
farið að leggja fyrstu ljósleiðarana
milli símstöðva innanbæjar í
Reykjavík á allra næstu dögum.
Fyrstu kaplarnir verða lagðir frá
Landsímahúsinu upp í aðalstöðina
í Múla, þaðan í Breiðholtið og
Kópavog. Þessi fjárfesting er um
fjórar milljónir króna. Hluti af
leiðinni verður lagður tvöfaldur.
Þeir kaplar sem fyrst verða lagðir
hér bera 6 ljósleiðara, en með bún-
aðinum er unnt að taka fjöldann
allan af símarásum inn á sama rás-
merkið. Því í glerfiber berast sím-
tölin manna í milli sem ljósmerki en
ekki sem rafboð. Sem dæmi má
nefna að með sex ljósleiðurum er
unnt að flytja 5760 simtöl í senn —
eða sex sjónvarpsrásir á sama kapl-
inum. Lagning glerfiberkaplanna
helst í hendur við uppsetningu digi-
talstöðvanna. Jafnframt línulögn-
inni þarf að koma upp tækjum sem
breyta símtalinu yfir í ljósmerki og
eftir eitt til tvö ár verður keyptur
búnaður sem fjölgar merkjum inn á
leiðarana.
Á næsta ári verður síðan byrjað
að leggja glerfiberkapal til Hvols-
vallar.
Með notkun glerfiberkapla er
deyfing á merkinu minni en á
gömlu köplunum og færri magnara
þarf milli landshluta. En einnig
opnast ntöguleikinn á því að flytja
margar sjónvarpsrásir samtímis eft-
ir sama kapli. Endurvarp sjónvarps
tekur miklum stakkaskiptum með
þessari tækni. Unnt er að senda
fleiri rásir og í stereó, en ekki er þó
fyrirsjáanlegt að á allra næstu árum
tengist kapallinn beint til hvers not-
anda, heldur verður þá merkið flutt
á ljósleiðara til endurvarpsstöðv-
anna og þaðan heim til notandans.
Tölvunet
Tölvufíklar líta björtum augunt
til framtíðar og sjá fyrir sér þá
dýrðartíma þegar unnt er að fá
heim í stofu allar hugsanlegar upp-
lýsingar frá tölvum hér heima eða
erlendis á augabragði. Þessi tími er
skammt undan, þvi Póstur og sínti
tekur opinberlega í notkun um
næstu áramót tölvunet, sem nær yf-
ir allt landið. Nú þegar hefur netið
verið tekið i notkun í tilraunaskyni
og geta notendur farið að tengjast
því til prufu.
Enn er ekki kontið forrit fyrir
búnaðinn, sem ákveður gjald fyrir
notkunina né er búið að samþykkja
neina gjaldskrá fyrir notkun. Það
verður um áramót.
Tölvunotendur geta tengst þessu
neti hvar sem þeir eru á landinu. í
mörgunt tilvikum eru línur fyrir-
liggjandi í húsunt tölvunotenda og
þarf þá ekki að bíða nteð tengingu,
en hjá sumurn þarf að leggja sér-
stakar línur til þess að veita aðgang
að netinu, þannig að tenging við
tölvunetið gengur ýmist í hvelli eða
hefur lengri aðdraganda.
Yfirmenn Pósts og síma standa
nú í samningaviðræðum við Breta
og Dani um að tengjast netum sem
þar eru fyrir og geta íslenskir tölv-
arar þannig komist beint í tölvu-
banka erlendis, sem veita aðgang að
pakkanetum eins og þvi íslenska.
Yfirvöld og embættismenn liggja
oft undir ámæli almennings urn að
vera ekki í takt við tímann eða ginn-
keypt fyrir nýjungunt og vera held-
ur seint til. En i ljósi allra þeirra
breytinga, sem eru að gerast í fjar-
skiptamálum . íslendinga virðist
þjónusta Pósts og síma ekki ætla að
verða til þess að við sitjum aftarlega
á merinni.
Molar
Stöðusvipting, ekkert
minna!
Helgarpósturinn upplýsti á
fimmtudaginn hver hefði skrifað
leiðara Alþýðublaðsins daginn
áður. Það virðist reyndar vera
orðið heilmikið sport hjá kolleg-
um á hinum blöðunum að þefa
uppi leiðarhöfunda Alþýðublaðs-
ins. NT komst til dæmis að þeirri
skemmtilegu niðurstöðu um dag-
inn að leiðararnir væru skrifaðir á
auglýsingas'tofu úti í bæ og
heyrðu því undir aðkeypt efni.
En leiðari Alþýðuþlaðsins á
miðvikudaginn vakti sent sagt
verðskuldaða athygli (var reyndar
endurprentaður í heild i Þjóðvilj-
anum daginn eftir) og HP þykir
því að vonum mikið í húfi að geta
komið alþýðu manna í skilning
um að nú sé „væntanlegur rit-
stjóri" farinn að taka forskot á
sæluna og skrifa leiðara.
Nú viljum við á Alþýðublaðinu
náttúrlega ekki vera síðri og við
getum upplýst að það var enginn
minni maður en sjálfur ritstjóri
HP, Ingólfur Margeirsson, sem
þarna tók sér hvíld frá leiðara-
skrifum og brá sér í hlutverk rann-
sóknarblaðamannsins.
En ritstjóri HP kafaði mun
dýpra heldur en svo að hann léti
sér nægja að komast að nafni og
númeri leiðarahöfundarins.
Hann fann það líka út af hugviti
sínu að hinn „væntanlegi rit-
stjóri" hefði einmitt misst af
hinni væntanlegu upphefð, rit-
stjórastöðunni, með þessu leið-
araskrifi.
Tja, hvað á maður nú að segja.
Það er reyndar allrar athygli vert
að ritstjóri HP skuli telja stöðu-
sviptingar svona sjálfsagðar þeg-
ar menn skrifa eins og þeim býr í
brjósti.
Nýr ritstjóri?
Eins og reyndar oft áður ganga nú
mjög ákveðnar sagnir í borginni
um fjárhagsstöðu Helgarpósts-
ins. Sagt er að forráðamenn
blaðsins leiti með logandi ljósi út
um allan bæ að fjármagni, en þar
sem lánsfjármagn liggur ekki á
lausu til blaðaútgáfu, sem yfirleitt
er ekki talinn vænlegur gróðaveg-
ur, þá muni nú einna helst hallast
að því að fá inn í fyrirtækið nýja
fjársterka meðeigendur.
I þessu sambandi hefur eitt
nafn borið oftar á góma en önnur.
Það er Ásgeir Hannes Eiríksson,
oft kallaður pulsusali, sem fyrir
ári siðan hóf útgáfu ísafoldar sem
svo lognaðist út af í verkfallinu.
Vitað er að Ásgeir Iangar mjög
til að koma sér upp málgagni og
því ekki ólíklegt að hann væri
manna líklegastur að leggja pen-
inga í Helgarpóstinn, ef það yrði
til þess að hann kæmist þar til
nokkura áhrifa.
Kannski Ásgeir Hannes sé
væntanlegur meðritstjóri Helgar-
póstsins?
•
í fréttum er þetta ekki
helst
Flokkur mannsins hefur ekki ver-
ið mikið í sviðsljósinu að undan-
förnu, allavega ekki í fjölmiðlum.
Aftur á móti kunnum við eina
sögu úr þeim herbúðunt:
Flokkurinn hefur nú nýlega
lokið hringferð um Iandið þar sem
baráttan gegn „svínræðinu" var
sett á oddinn. Þegar lagt var upp
í ferðina frá Reykjavík, höfðu
fréttamenn sjónvarpsins haft ein-
hvern pata af hinni væntanlegu
hringferð og voru mættir á stað-
inn með myndavélar sínar og
hljóðnema.
Voru síðan tekin viðtöl og
myndir og héldu við svo búið hver
í sína átt. Flokkur mannsins lagði
upp í hringferðina en sjónvarps-
menn fóru aftur í sjónvarpshúsið
að vinna úr efninu.
Flokkurinn fylgdist svo gaunt-
gæfilega með sjónvarpsfréttum á
hverju kvöldi en ekki bólaði á
fréttinni.
Seint og um síðir var svo hringt
á fréttastofu sjónvarpsins og
spurst fyrir um örlög upptökunn-
ar.
Eftir því sem við hér á Molurn
höfum sannast fregnað mun svar-
ið hafa verið á þá leið að þetta
þýddi ekki að sýna, því það væri
orðið úrelt!