Alþýðublaðið - 27.08.1985, Side 6
6
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
______Frá grunnskóla
^ Kópavogs
Grunnskólarnir í Kópavogi veröa settir með kennara-
fundum I skólunum mánudaginn 2. september nk. kl.
9.00 fyrir hádegi.
Næstu dagar veröa notaðir til undirbúnings kennslu-
starfs.
Nemendur mæti sem hér segir:
Föstudaginn 6. september9. bekkur, börn fædd 1970,
kl. 9.00,
föstudaginn 6. september 8. bekkur, börn fædd 1971,
kl. 10.00,
föstudaginn 6. september 7. bekkur, börn fædd 1972,
kl. 11.00,
mánudaginn 9. september 6. bekkur, börn fædd 1973,
kl. 9.00,
mánudaginn 9. september 5. bekkur, börn fædd 1974
kl.1000
mánudaginn 9. september 4. bekkur; börn fædd 1975,
k.l. 11.00
mánudaginn 9. september 3. bekkur, börn fædd 1976,
kl. 13.00,
mánudaginn 9. september 2. bekkur, börn fædd 1977,
kl. 13.00,
mánudaginn 9. september 1. bekkur, börn fædd 1978
kl. 14.00.
Forskólabörn 6 ára(fædd 1979)og foreldrarþeirraverða
boóuö í viðtal símleiöis frá 9.—13. september. Skóla-
ganga forskólabarna hefst mánudaginn 16. september.
Skólafulltrúi.
A
Útboð
Tilboð óskast í gröft, fyllingu og lagningu holræsa í
Vogatungu vegna íbúöa aldraöra.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu bæjarverkfræö-
ings, Fannborg 2, fráog með þriðjudeginum 27. ágúst
’85, gegn 2000 kr. skilatryggingu.
Tilboöum skal skila á sama staö fyrir kl. 11, mánudag-
inn 9. september og verða þá opnuö aö viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Bæjarverkfræðingurinn í Kópavogi.
Bandalag kennarafélaga og
Kennaraháskóla íslands
efnatil ráðstefnu um
íslenska skólastefnu
laugardaginn 31. ágúst kl. 9.00 til 17.00 að Borgar-
túni 6, Reykjavík.
Erindi flytja:
Jónas Pálsson, rektor Kennaraháskóla íslands.
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntamála-
ráðuneytinu.
Svanhildur Kaaber, formaður Bandalags kennara-
félaga.
Dr. Wolfgang Edelstein, prófessor við Max
Planck-rannsóknarstofnunina í Vestur-Berlín.
Tilkynnið þátttöku á skrifstofu Kennaraháskól-
ans í síma 91-686065 fyrir 28. ágúst.
Ráðstefnan eröllum opin.
ílsal
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Fóstruróskast á barnaheimilið Stekk, sem er meö
blönduðum aldurshópi, 2—6 ára börn.
Nánari upplýsingar gefur forstöðukona Stekkjar í
síma 96-22100 (217). Umsóknum um menntun og
fyrri störf sé skilað fyrir 2. september 1985.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Þegar bílar mætast er ekki nóg að annar víki vel út á Vegarbrún og
hægi ferð. Sá sem á móti kemur veröur að gera slíkt hið sama en not-
færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði
þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km.
„Það er alltaf leiðinlegt
að láta hafa sig að fífli“
— Harðorð bókun Ingibjargar Hafstað, fulltrúa Kvennalistans
í útvarpsráði, gegn mannaráðningum útvarpsstjóra
Á fundi útvarpsráðs fyrir helgina
urðu hvassar umræður um manna-
ráðningarnar á sjónvarpinu, þegar
útvarpsstjóri réði Hrafn Gunn-
laugsson og Ingva Hrafn Jónsson,
gegn tilmælum útvarpsráðs, sem
mælt hafði með Tage Ammendrup
og Helga Helgasyni í stöðurnar.
Viðstaddir fulltrúar meirihlutans
í þessu máli, Árni Björnsson, Ingi-
björg Hafstað og Markús Á. Ein-
arsson, létu öll bóka mótmæli gegn
mannaráðningum útvarpsstjóra, en
auk þess lét formaður útvarpsráðs,
Inga Jóna Þórðardóttir, aðstoðar-
ráðherra, bóka mótmæli gegn þeim
„dylgjum“ sem hún taldi felast í
bókun Ingibjargar.
Markús A. Einarsson kvaðst í
bókun sinni harma hvernig staðið
hefði verið að þessum mannaráðn-
ingum og Árni Björnsson kvaðst
ekki skilja hvers vegna ráðningarn-
ar væru bornar undir útvarpsráð,
þar eð ekki væri farið eftir vilja
ráðsins hvort eð væri.
Bókun Ingibjargar Hafstað var
lang ítarlegust og fer hún hér á eftir:
„I ljósi síðustu mannaráðninga
hjá Ríkisútvarpinu, vil ég lýsa því
yfir að ég er orðin þreytt á því sýnd-
arlýðræði sem viðgengst í þessu
landi. Það hefur sýnt sig að ákvarð-
anir útvarpsráðs eru einungis virtar
þegar þær þjóna flokkspólitískum
hagsmunum þeirra nranna, sem
sitja í embætti útvarpsstjóra og
menntamálaráðherra.
Þannig er þægilegt að láta ráðið
bera ábrygð á óþægilegum ákvörð-
unum, eigi málstaður sjálfstæðis-
manna þar meirihluta. Þegar hins
vegar meirihluti ráðsins kýs sér ekki
það hlutskipti að vera leiksoppur
sjálfstæðismanna, eru ákvarðanir
þeirra að engu hafðar. Þetta eru
leikreglurnar sem farið er eftir hér á
landi og menn dirfast að kalla lýð-
ræði.
Kvennalistinn lagði fram á Al-
þingi í vetur frumvarp til útvarps-
laga þar sem tilraun var gerð til að
skapa starfsmönnum Ríkisútvarps-
ins raunverulega lýðræðisleg starfs-
skilyrði. í frumvarpinu er hvorki
gert ráð fyrir útvarpsstjóra né póli-
tískt kjörnu útvarpsráði, heldur
bera starfsmenn ábyrgð á starfsemi
stofnunarinnar og fá þannig frjáls-
ar hendur til að gæta hlutleysis-
skyldu sem á stofnuriinni hvílir lög-
um samkvæmt og til að vinna að
metnaðarfullri dagskrá, en neyt-
endur veita þeim það aðhald sem
nauðsynlegt er hverju sinni.
Starfsmenn og neytendur verða
þannig í stakk búnir að hafa áhrif á
meiri háttar ákvarðanir í stað nú-
verandi ástands, þar sem síaukin
miðstýring færir völd á æ færri
hendur.
Slíkt traust á hinum almenna
borgara þykir fráleitt í hinu íslenska
þjóðfélagi.
Ég mótmæli því sýndarlýðræði
sem hér er stundað og krefst þess að
farið sé eftir þeim starfsreglum sem
í gildi eru, eða þeim sé breytt þannig
að útvarpsráð geti farið að sinna
einhverju alvöruhlutverki.
Það er nefnilega alltaf niður-
lægjandi að láta hafa sig að fíflií*
ísland í
Bandaríkjunum:
Ljós-
mynda-
sýning
Fylkisstjórinn í Minnesota Rudy
Perpich hefur boðið nokkrum ís-
lenskum fyrirtækjum að kynna
vörur sínar og þjónustu á Icelandic
Days in Minnesota 25. og 26. ágúst
næstkomandi. Á sama tíma verður
opnuð Ijósmyndasýning sem Ljós-
myndasafnið setur upp. Heiðurs-
gestur á þessum kynningum verður
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra.
Perpich fylkisstjóri kom til ís-
lands fyrir 2 árum á ferð um öll
Norðurlönd. Hann var þá nýkjör-
inn fylkisstjóri. Fylkisstjórinn sem
hefur mikinn áhuga á útflutningi
og innflutningi vöru og þjónustu
stakk upp á sérstakri íslandskynn-
ingu við forráðamenn hér. Fyrrver-
andi sendiherra Bandaríkjanna hér
á landi Marshall Brement hefur
einnig unnið að þessu máli.
Ljósmyndasafnið var fengið til
að setja upp ljósmyndasýningu sem
sýnir aðstæður á íslandi frá því fyr-
ir og um aldamótin en einmitt á
þeim tíma var straumur vesturfara
frá íslandi hvað mestur. Til saman-
burðar hefur bandarískum ljós-
nryndara, Gary Spencer að nafni,
sem tekið hefur mikið af Ijósmynd-
um á íslandi og er sjálfur frá
Minnesota, jafnframt verið boðið
að sýna nútímaljósmyndir. Ljós-
myndasýningin verður opnuð 25.
ágúst í Science-safninu í Minnea-
polis St. Paul.
Kynning á vörum og þjónustu ís-
lenskra fyrirtækja fer svo fram á
International Market Square í
Minneapolis. Þar munu Coldwater,
Iceland Seafood og Iceland Waters
Industries kynna framleiðslu sína
og standa fyrir veitingum. Álafoss
og Hilda kynna ullarvörur og halda
tískusýningar með aðstoð stórversl-
unarinnar Daytons, sem mun leggja
til sýningarstúlkur og Flugleiðir og
Ferðamálaráð kynna ísland sem
ferðamannaland, en Hafskip kynn-
ir gámaflutninga sína frá Norður-
löndum.
Nicholas Ruwe, nýskipaður sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Hann af-
henti forseta Islands trúnaðarbréf sitt á niiðvikudaginn.
Lögreglustöð í Hafnarfirði
Tilboð óskast í að fullgera húsið að Helluhrauni 2 sem
lögreglustöð. Setja þarf þak á húsið að hluta og ganga
frá því að utan sem innan og lagfæra lóð. Húsið er að
hluta á 2 hæðum, alls um 1030 fm að gólffleti. Verkinu
skal að fullu lokið 15. febrúar 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Rvík, gegn 5000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opn-
uð hjá Innkaupastofnun ríkisins, þriðjudaginn 10. sept.
1985 kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
- Borgartuni 7, simi 25844
FÉL.AGSSTARF
Alþýðuflokksfólk
Norðurlandskjördæmi eystra
Kjördæmisþing í Norðurlandskjördæmi eystra
verður haldið að Stóru-Tjarnarskóla dagana 31.
ágúst og 1. september.
Þingið hefst laugardag kl. 13.30 stundvíslega.
Mætum öli.
Stjórnin.