Alþýðublaðið - 27.08.1985, Qupperneq 7
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
7
Island—Tékkó:
Nýr viðskipta-
samningur
Hinn 22. þ. m. undirrituðu Matt-
hías Á. Mathicscn viðskiptaráð-
herra og Jaroslav Jakubec, varaut-
anríkisráðherra Tékkóslóvakíu,
nýjan viðskiptasamning milli ís-
lands og Tékkóslóvakíu sem gilda á
til ársloka 1990. Samningurinn er í
öllum meginatriðum samhljóða
gildandi viðskiptasamningi land-
anna frá 1977 en viðskiptasamning-
ar þeirra hafa á liðnum áratugum
verið endurnýjaðir með vissu milli-
bili til nokkurra ára í senn.
Viðskiptasamningurinn er
rammasamningur en samningar um
sölu einstakra vara eru gerðir milli
íslenskra og tékkneskra fyrirtækja.
í samningnum segir m. a. að stjórn-
völd í báðum löndum skuli leitast
við að auka viðskiptin milli land-
anna en þau hafa minnkað talsvert
ef litið er til lengri tíma. Þannig
voru viðskiptin um 2—3% á sjötta
áratugnum en á tíma samningsins
frá 1977 var útflutningur íslands til
Tékkóslóvakíu 0,3—1,0% af heild-
arútflutningnum en innflutningur-
inn 0,3—0,7% af heildarinnflutn-
ingnum.
Dagana 20.—21. ágúst fóru fram
almennar viðræður milli stjórn-
valda og voru skrifstofustjórar við-
skiptaráðuneyta landanna, Sveinn
Björnsson og Josef Keller, formenn
viðræðunefndanna. í sameiginlegri
fundargerð, sem formennirnir und-
irrituðu í lok viðræðnanna, kemur
m. a. fram að viðskipti landanna
jukust til muna á árinu 1984 miðað
við árið 1983. Báðir aðilar lýstu yfir
áhuga sínum á áframhaldandi við-
skiptum með hefðbundnar vörur en
auk þess viðskiptum með nýjar vör-
ur. Mælt er með því að söluaðilar
treystu tengsl sín á milli og gerðu
átak í sölumálum til að nýta mark-
aðsmöguleika í báðum löndunum.
Af íslands hálfu var lögð áhersla á
að Tékkar keyptu hefðbundnar
vörur, t. d. heilfrystan fisk og fisk-
flök, síld og síldarflök, fiskimjöl,
lagmeti og ost en einnig nýjar vörur,
svo sem þorskalýsi, gærur, lamba-
kjöt, saltsíld og grásleppuhrogn.
Tékkar lýstu sem fyrr áhuga sínum
á að selja vélar og tæki vegna bygg-
ingar orkuvera og annarra verkefna
á íslandi auk hefðbundinna vara,
m. a. dráttarvéla, fólksbíla, prent-
véla og prjónavéla.
Á árinu 1984 voru fluttar inn vör-
ur frá Tékkóslóvakíu að andvirði
104 millj. kr. eða 0,4% af heildar-
innflutningnum. Út voru fluttar
vörurfyrir 118 millj. kr. eða0,5% af
heildarútflutningnum. Mikilvæg-
asta einstaka útflutningsvaran var
loðnumjöl að verðmæti 49 millj. kr.
en verðmæti útflutts freðfisks var
jafnhátt, þar af var flutt út fryst síld
fyrir 23 millj. kr. (1.300 tonn), fryst
fiskflök fyrir 21 millj. kr. (700 tonn)
en sú vara hefur ekki verið seld til
Tékkóslóvakíu um árabil og loks
heilfrystur fiskur að verðmæti um 5
millj. kr. (um 150 tonn). Flutt var út
71 tonn af smurosti að verðmæti
um 5 millj. kr. Flutt voru út um
2.200 tonn af kísilgúr að verðmæti
12 millj. kr. en lítið sem ekkert kvað
að sölu annarra iðnaðarvara til
Tékkóslóvakíu. T. d. komst lagmeti
ekki á blað á því ári. Á árinu 1984
voru mikilvægustu innflutnings-
vörurnar frá Tékkóslóvakíu vélar
og tæki, járn- og stálvörur, dráttar-
vélar, bifreiðar og vefnaðarvörur.
Nefna má að á liðnum árum hafa
Tékkar lagt til búnað í nokkur raf-
orkuver og á árunum 1971—1984
voru fluttar inn frá Tékkóslóvakíu
yfir 2.000 dráttarvélar eða um 36%
af heildarinnflutningnum. Hæst
hefur árshlutfallið farið í 53%. Auk
þess hafa fólksbílar frá Tékkósló-
vakiu selst vel á íslandi og jafnvel
komist í fyrsta sæti miðað við
fjölda innfluttra bíla eitt árið.
Lánskjara-
vísitalan
Hækkun lánskjaravísitölunnar
síðasta mánuðinn jafngildir rúm-
lega 40% ársverðbólgu. Seðlabank-
inn hefur nú reiknað lánskjaravísi-
tölu fyrir september og reyndist
hækkunin á einum mánuði vera
2,9% sem samsvarar 41% árshækk-
un.
Undanfarið hafa verið reiknaðar
hækkanir á helstu vísitölum sem
notaðar eru í þjóðfélaginu og hafa
þær allar sýnt um eða yfir 40%
hækkun á ársgrundvelli. Verðbólg-
an virðist Jdví aftur vera að auka
hraðann. Á síðustu tólf mánuðum
hækkaði lánskjaravísitalan um
tæplega 35%.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftirtilboðum í styrkingu
Djúpvegar í Álftafirði. (Lengd 5,1 km, magn 10.000
m3).
Verki skal lokið 20. október 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
26. ágúst nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 9. september 1985.
Vegamálastjóri.
^RARIK
HHfe. N RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laus til umsókn-
ar eftirtalin störf:
1. Skrifstofumaður á bókasafn (skjalavarsla, vél-
ritun o. fI.). Laun eru samkvæmt kjarasamningi
BSRB og ríkisins.
2. Skrifstofumaður. Starfið felst að mestu leyti I
sendiferðum auk almennra skrifstofustarfa.
Þarf að hafa bílpróf. Laun eru samkvæmt kjara-
samningi BSRB og ríkisins.
3. Bókasafnsfræðing I Vá starf.
Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf
sendist deildarstjóra starfsmannahalds fyrir 30.
ágúst nk.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118_,
105 REYKJAVIK.
ST JÖSEFSSPÍTALI
Landakoti
Lausar stööur
Barnaheimili
Starfsmaður óskast á skóladagheimilið (börn 5—9 ára)
frá 1. september.
Upplýsingarveitirforstöðumaðurí síma 19600-260 milli
kl. 9—16.
Einnig óskast starfsmaöur á dagheimili fyrir börn á
aldrinum 3ja—6 ára. Upplýsingar i síma 19600-250 milli
kl. 9—16.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskastá lyflækningadeildir l-Aog
ll-A, handlækningadeildir l-B og ll-B og barnadeild.
Fastar næturvaktir koma til greina. Boöið upp á aðlög-
unarkennslu fyrstu vikgrnar.
Hjúkrunarfræðingaróskast áaukavaktir á lyflækninga-
og handlækningadeildir.
Einnig vantar skurðstofu-hjúkrunarfræðing.
Námsstaða er fyrir hendi fyrir hjúkrunarfræðing sem
vill öðlast starfsreynslu á skurðstofu.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir við eftirtaldar
deildir:
— Lyflækningadeild ll-A.
— Handlækningadeildir ll-B og lll-B.
— Bamadeild.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjórasem veitirnánari upplýsing-
ar í síma 19600 frá kl. 11—12 og 13—14 alla virka daga.
Röntgen-hjúkrunarfræðingur eða
röntgentæknir
Vantar nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur deildarstjóri röntgendeildar í síma
19600-330.
Starfsfólk
Starfsfólk (ræstingar vantar við allar deildir spítalans.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri i síma 19600-259.
Starfsmaður
Óskum að ráða starfsmann til starfa í þvottahúsi okkar
að Síðumúla 12. Upplýsingar gefur forstöðukona
þvottahússins í sima 31460.
Reykjavik, 27. ágúst 1985.
Kennaranámskeíö
í skyndihjálp
á Akureyri
og í Reykjavík
Rauði kross íslands heldur kennaranám-
skeið í skyndihjálp á Akureyri dagana 6.-
—16. september næstkomandi.
Innritun og nánari upplýsingar í síma
96-24402 virka daga frá kl. 14—17 eða
91-26722 á venjulegum skrifstofutíma.
Rauði kross íslands heldur kennaranám-
skeið í skyndihjálp i kennslusal RKÍ, Nóa-
túni 21, Reykjavík, dagana 23. september
til 4. október næstkomandi.
Innritun og nánari upplýsingar í síma
91-26722 á skrifstofutíma.
Rauði kross íslands.
I
Munió
Hjálparstarfió
Giró 90000
Rauói Kross lslands