Alþýðublaðið - 15.04.1989, Síða 6
6
Laugardagur 15. apríl 1989
ÞINGFRETTIR
Ríkisprentsmiðjan Gutenberg
Verður henni breytt í hlutafálag?
Allir nema Sjálfstœðisflokkurinn
Ein málstofa og
stjórnsýslunefnd
Páll Pétursson og þingmenn úr
öllum þingflokkum nema Sjálf-
stæðisflokknum (og nú frjáislynd-
um hægrimönnum) hafa lagt fram
frumvarp til stjórnskipunarlaga,
um að gera þá breytingu á stjórnar-
skránni að Alþingi verði ein mál-
stofa og að meðal annars verði
stofnuð stjórnsýslunefnd er ltafi
rétt til að rannsaka mál að eigin
frumkvæði.
Frumvarpið er lagt fram til að
gera alla málsmeðferð á Alþingi nú-
tímalegri og einfaldari. í öðru lagi
til að efla sjálfstæði og eftirlit
þingsins með framkvæntdavaldinu.
Að verulega leyti hefur verið höfð
hliðsjón af tillögum'stjórnarskrár-
nefndar frá því í janúár 1983.
Lagt hefur verið fram stjórnar-
frumvarp á Alþingi þar sem gert er
ráð fyrir að ríkisprentsmiðjan, Gut-
enberg verði gerð að hlutafélagi.
Ríkisstjórnin á að leggja fram
prentsmiðjuna með öllu fylgifé
hennar til hins nýja hlutafélags. Við
stofnun verða öll hlutabréfin eign
rikissjóðs en hinsvegar er heimilt
að selja prentsmiðjuna, eða ákveð-
inn fjölda hlutabréfa í hcnni, að
fenginni samþykkt Alþingis.
Hlutverk prentsmiðjunnar á eftir
sem áður að verða prentverk fyrir
Alþingi. Félaginu er hinsvegar einn-
ig leyfilegt að prenta fyrir aðra sam-
kvæmt nánari samþykktum.
Náist þetta frumvarp gegnum
þingið breytist reksturinn töluvert. í
fyrsta lagi mun ábyrgð ríkissjóðs á
rekstrinum takmarkast við hluta-
fjáreign og þar með eykst ábyrgð
stjórnenda. Fyrirtækið á ekki að
hafa neina sérstöðu fram yfir önnur
fyrirtæki í Iandinu, reksturinn verð-
ur sveigjanlegri, t.d. þarf prent-
smiðjan, ef hún verður hlutafélag,
ekki að leita heimilda fyrir fjárfest-
ingar. Skattagreiðslur myndu og
breytast því fyrirtækið þyrfti eftir-
leiðis að greiða eignarskatt, að-
stöðugjöld og væntanlega tekju-
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHÚS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1989. Umsóknir á þar til gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 21. apríl 1989.
Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum:
að Ölfusborgum
að Húsafelli í Borgarfirði
• að Svignaskarði í Borgarfirði
að lllugastöðum í Fnjóskadal
í Vatnsfirði, Barðaströnd
að Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
íbúðir á Akureyri
að Flúðum
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma-
bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir
19. maí n.k. fellur úthlutun úrgildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt
er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 6. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækj-
endur rétt til að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því ad umsóknir verda ad berast skrifstofu VR
í síöasta lagi föstudaginn 21. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti
umsóknum símleiðis.
skatt. Aðstöðugjald yrði ámóta
mikið og greitt er nú þegar. í fjórða
lagi munu málefni starfsmanna
verða með nokkuð öðrum hætti þar
eð hlutafélagið hefði meira sjálf-
ræði um ákvarðanir launa.
Kvennalistinn
Heilsufarsbók frá
frá vöggu til grafar
Guðrún Agnarsdóttir og aðrir
þingmenn Kvennalistans hafa lagt
fram þingsályktunartillögu um að
fela heilbrigðisráðherra í samráði
við landlækni að láta hanna heilsu-
farsbók sem fylgi hverjum einstakl-
ingi frá vöggu til grafar.
í heilsufarsbók þessa á að skrá
jafnóðum allar þær upplýsingar
um heilsufar einstaklingsins sem
máli skipta, svo sem sjúkdóma,
læknismeðferð og Iyfjanotkun.
Flutningsmenn telja upplýsinga-
öflun hvað þetta varðar óskipu-
lagða, sjúklingana sjálfa skorta
yfirsýn og að í þeim efnum geti
heilsufarsbók komið að góðum
notum, enda þær í framkvæmd
víða erlendis með góðum árangri.
Sauðfjárrækt tak-
mörkuð í þéttbýli
Þær Margrét Frímannsdóttir Al-
þýðubandalagi og Málmfríður Sig-
urðardóttir Kvennalista hafa lagt
frant þingsályktunartillögu þar sem
mælt er með takmörkun á sauð-
fjárbúskap í þéttbýli.
Þær stöllur leggja til að landbún-
aðarráðherra, floksbróðir Margrét-
ar, setji reglur um þetta í ljósi þess
að nú þegar samdráttur er ákveðinn
i framleiðslu á kindakjöti skuli bú-
fjáreign frístundabænda standa
óhögguð og í raun skerða mögu-
leika þeirra sem eru háðir sauðfjár-
rækt um lífsviðurværi.
Landbúnaðarráðherra
Kindur Reykjaness
í örugga vörslu!
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra hefur lagt fram
frumvarp sem lýtur að því að hólfa
sauðfé á Reykjanesskaga.
Með öðrum orðum er öllum
þeim eigendum og forráðamönnum
búfjár í landi Gullbringusýslu,
kaupstöðum innan hennar svo og í
landi Hafnarfjarðar, Garðabæjar
og Bessastaðahrepps, sem er vestan
girðingar sem lögð verður úr Höf-
uðborgargirðingu við Kaldársel um
Kleifarvatn og í sjó við Krísuvík
skylt að hafa allt búfé á þessu
svæði, sem ekki er geymt í húsum,
í öruggri vörslu á Iandi sínu eða
innan sérstakra beitarhólfa allt ár-
ið.
Brot gegn lögum þessum varða
sektum, en lögin eiga að taka gildi
um næstu áramót, ef samþykkt
verða.
Allir nema kratar
Burt með bifreiðaskoðun Islands
Pálmi Jónsson og þingmenn úr
öllum flokkum nema Alþýðu-
flokknum (og nú Borgaraflokkn-
um) leggja til með frumvarpi til
laga að ríkisjóður taki ekki þátt í
hlutafélagi sem skyldi samkvæmt
nýjum lögum taka við hlutverki
Bifreiðaeftirlits ríkisins.
Þeir vilja að ríkið dragi sinn hluta
úr fyrirtækinu, það verði lagt niður,
en að til bráðabirgða verði heimilað
að semja um kaup á þeim hluta af
eignum Bifreiðaskoðunar íslands
sem við slit þess félags mundu henta
fyrir Bifreiðaeftirlit ríkisins.
! Kvennalistakonur
Námsbækur verði söluskattsfrjálsar
Þær Danfríður Skarphéðins-
dóttir og Guðrún Agnarsdóttir
hafa lagt fram lagafrumvarp þess
efnis að námsbækur verði undan-
þegna söluskatti.
Þær telja augljóst að niðurfelling
söluskattsins muni draga verulega
úr kostnaði nemenda við kaup á
námsbókum, jafna möguleika
þeirra til náms og lækka hlut bóka-
kostnaðar við útreikninga á fram-
færslu þeirra nemenda sem njóta
námslána.