Alþýðublaðið - 07.05.1990, Page 7
Þriðjudagur 8. maí 1990
7
NÆSTA FTASTA SÍÐAN
Hér sést Dustin Hoffmann i myndinni „Ragnmaöurinn" ásamt Tom Cruise. En Hoffmann er ekki
siöri sem svidsleikari og hefur nú slegiö i gegn í leikritinu „Kaupmaðurinn i Feneyjum" eftir Shake-
speare.
Tony ad komast á kreik:
Kathleen Twner og
Dustín Hoffman útnefnd
í gær var tilkynnt í New
York hvada verk eru til-
nefnd til Tony-verðlaun-
anna svokölluðu t ár.
Tony-verðlaunin svipar til
Óskarsverðlaunanna en
Tonyínn er veittur í leik-
húsbransanum. „Grand
Hotel“, sem er söngleikur,
hlaut flestar útnefningar
eða 12 en skammt þar á
eftir kom annar söngleik-
ur „Englaborgin“ eða City
of Angel, eins og hann
heitir á frummálinu. Lr-
slitin verða tilkynnt 3.
júní.
Grand Hotel er samið af
söngleikjahöfundinum
Tommy Tune eftir skáldsögu
Glœpir í Ameríku:
Bíræfnir bófar
Það verður ekki af bófun-
um í Ameríku skafið að þeir
eru hugmyndaríkir. Bófa-
flokkur einn í San Fransisco
hellti olíu á fáfarinn veg í út-
jaðri borgarinnar. Þegar bíl-
stjórar á þessari leið misstu
stjórn á farartæki sínu mættu
kumpánarnir á staðinn með
kylfur og hótuðu að berja bíl
og bílstjóra í klessu ef hann
léti ekki aleiguna af hendi.
Lögreglan í San Fransisco
leitar nú þessa bófaflokks en
þeir rændu tíu bílstjóra um
síðustu helgi með þessari að-
ferð. Ganga þeir undir nafn-
inu „OPEC-bófarnir" þrátt
fyrir að enginn þeirra sé af ar-
abiskum uppruna.
Vicky Baum. Tune leikstýrir
og var útnefndur besti leik-
stjórinn og þar að auki voru
þau David Carroll og Liliane
Montevechi, aðalleikararnir í
stykkinu, útnefnd.
„Þrúgur reiðinnar" eftir
John Steinbeck hefur nú ver-
ið sett á svið á Broadway og
hlaut sex útnefningar. Það
gerði einnig nýjasta afurð
Andrew Loyd Webber „Til-
brigði ástarinnar'' en hann er
þekktastur fyrir söngleikina
„Jesus Christ Superstar" og
„Cats".
Leikkonan þekkta, Cathle-
en Turner, hefur vakið mikla
athygli í hinu gamalkunna
leikriti Arthurs Miller „Cat on
a hot tin roof" og var hún út-
nefnd til verðlauna.
Annar þekktur leikari,
Dustin Hoffman, er einnig í
þessum hópi en hann er í
leikriti Shakespears „Kaup-
maðurinn í Feneyjum" sem
nú er sýnt á Broadway.
DAGFINNUR
M + + 0 0 + M + Mt 0
Jvrovis/on þyoir
framtíðarsýn Evrópu
Eg sagði allan tímann að
við myndum vinna.
Konan mín var alveg klár
á því að við lentum í 16.
sætinu. Ég sagði hins vegar
að skagfirska sveiflan stæði
fyrir sínu og myndi sigra.
Énda fór svo.
Að vísu lentum við í
fjórða sætinu en allt undir
16. sæti er sigur. Fjórða
sætið er því stór sigur.
✓
Eg er auðvitað að tala um
viðburð helgarinnar: Söng-
lagakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva og lagið okkar
Eitt lag enn.
Á sama tíma var þetta
stórpólitískur sigur fyrir
rikisstjórnina.
Menn hafa kannski ekki
skilið enn hina pólitísku
túlkun á sigrinum. Leyfið
mér sem fréttaskýranda,
hugsuði og hugmynda-
fræðingi að útskýra málið.
í fyrsta lagi heitir sigur-
hljómsveitin Stjórnin. Það
var Stjórnin okkar sem
kom, sá og sigraði þessa
stórkostlegu þinglausnar-
helgi. Nú tala allir hlýlega
um Stjórnina. Stjórnin er
dáðasta og vinsælasta fyrir-
brigðið á íslandi í dag.
Leyfið mér að kafa dýpra í
sálfræði sigursins.
Við unnum í Júróvisjón-
keppninni. ítalska lagið
sem sigraði ofar okkar sigri
og varð númer eitt, fjallar
um hinn innri. sameigin-
lega markað eftir 1992. Sig-
urinn var sem sagt Evrópu-
sinnanna: Lagið sem hvet-
ur til evrópskrar samein-
ingar bar sigur úr býtum.
Núverandi ríkisstjórn og
þó einkum og sér í lagi krat-
arnir hafa barist fyrir hinu
sama. Þetta er annar sigur
ríkisstjórnarinnar.
Og leyfið mér að lokum að
benda á eftirfarandi: Hug-
ljómun um nýja Evrópu,
hin mikla Evrópusýn; hvað
er það annað en hin eina
sanna þýðing á oröinu
Eurovision?
Eurovision þýðir ekki
lengur einhver sjónvarps-
keppniu í poppi, heldur
Framtíðarsýn Évrópu!!
Stjórnin vann í Eurovisi-
on. Evrópustefna ríkis-
stjórnarinnar hefur borið
sigur úr býtum.
Það eina sem passar ekki
er að sigurlagið skuli vera
ættað úr Skagafirði.
PS . Þessi blái haus á blað-
inu var ekki jafn afleitur í
síðasta tölublaði. Er kom-
inn einhver rauður litur í
hann?
Efftft ftteð
kaffinu
Hjónin voru á bingó-
kvöldi. Eiginmaöurinn
hallaði sér yfir öxl kon-
unnar og sagöi: „Þú ert
meö fimm!"
— Já ég veit," sagöi
konan.
Talan átta var kölluð
upp. „Heyröu, þú ert
með átta," sagði maður-
inn.
— Já, ég veit, sagöi
konan. Ég sé um mitt
spjald! Af hverju fylgistu
ekki meö þínu eigin
spjaldi!?
„Ég er búinn aö leggja
yfir allar tölurnar á mínu
spjaldi!" sagöi maður-
inn.
NAMUSTYRKUR: Landsbankinn vill styðja og styrkja
ungt námsfólk í landinu og býður sérstaka þjónustu, sem
kallast Náman, fyrir námsfólk. Bankinn hefur nú afhent
við hátíðlega athöfn fimm námustyrki, 100 þús. krónur
hvern, og sjáum við unga námsfólkið á þessari mynd: Frá
vinstri Sólveig Ása Árnadóttir, Reykdælahreppi, Auður Al-
exandersdóttir, Rifi, sem tók við styrknum fyrir son sinn,
Alexander Kr. Smárason, Gísli Gylfason, Neskaupstað,
Svala Sigurðardóttir, Reykjavík, og Hlín Pétursdóttir,
Stokkseyri.
HAVANA — Stjórnvöld i Kúbu hófu aö trufla útvarpsút-
sendingar Bandarísku útvarpsstöðvarinnar Radio Marti, i
gær. Útsendingarnar sem eru á spænsku eru nú truílaðar
allan sólarhringinn. Kúba hefur átt í deilum við Banda-
ríkjamenn vegna útvarps og sjónvarpsútsendinga í rúman
mánuð og segja stjórnvöld á Kúbu útsendingarnar til þess
ætlaðar að steypa kommúnistum úr stóli.
KROSSCATAN
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.50 Syrpan 18.20 Litlir lög-
reglumenn 18.50 Táknmáls-
fréttir 18.55 Yngismær 19.20
Barði Hamar 19.50 Abbott og
Costello 20.00 Fréttir og veð-
ur 20.30 Fjör í Frans (1) 20.55
Lýðræði í ýmsum löndum
21.50 Skuggsjá 22.05 Með
IRA á hælunum 23.00 Ellefur-
fréttir 23.10 Á tónleikum með
Tom Jones 00.10 Dagskrár-
lok
Stöð 2
16.45 Santa Barbara 17.30
Krakkasport 17.45 Einherjinn
18.05 Dýralif í Afriku 18.30
Eóaltónar 19.19 19.19 20.30 A
la Carte 21.05 Leikhúsfjöl-
skyldan 22.00 Louis Riel
22.50 Tiska 01.20 Dagskrár-
lok
Bylgjon
07.00 Hallgrímur Thorsteins-
son 09.00 Fréttir 09.10 Ólafur
Már Björnsson 11.00 íþrótta-
fréttir 12.00 Hádegisfréttir
12.15 Valdís Gunnarsdóttir
15.00 Ágúst Héðinsson 16.00
íþróttafréttir 17.00 Reykjavík
síödegis 18.30 Ólafur Már
Björnsson 22.00 Haraldur
Gíslason 02.00 Freymóður T.
Sigurðsson
Forstjóri Alafoss hafnar þrálátum orörómi
Erum ekki á
leið frá Akureyri
□ 1 2 3 n 4
s □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12
CLL
„Við erum ekki að yfir-
gefa Akureyri. Það hefur
verið uppi um það þrálátur
orðrómur en hann er ein-
faldlega rangur. Hér starfa
um 200 manns við fyrir-
tækið, fólk sem hefur sýnt
okkur tryggð, skilar góðu
verki og býr yfir mikilli
þekkingu. Það er ekki á
dagskrá að flytja fyrirtæk-
ið burt frá þessu fólki.“
Þetta sagði Ólafur Ólafsson
forstjóri Álafoss í samtali við
Alþýðublaðið í gær. Hann
viðurkenndi á hinn bóginn
að erfitt hefði verið að ráða í
lausar yfirmannastöður hjá
fyrirtækinu. Stöður fjármála-
stjóra og aðalbókara eru laus-
ar. Að sögn Ólafs er erfitt að
fá hæft fólk til að flytjast til
Akureyrar.
Ólafur segir að því geti
komið til greina að einhverjir
starfsmenn verði staðsettir í
Mosfellsbæ, ef til vill 8
manns. „Við erum þá að tala
um að flytja 8 af 200 manna
starfsliði suður. Það jafngildir
því ekki að fyrirtækið flytji,"
segir Ólafur Ólafsson.
29.
Lárétt: 1 börðu, 5 inn, 6
lærði, 7 eins, 8 snurfusar, 10
eins, 11 stjaka, 12 málhelti,
13 opiö.
Lóörétt: 1 stólpi, 2 af-
kvæmi, 3 ofn, 4 auk, 5 furöa,
7 skjólan, 9 skipti, 12 eins.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 skafl, 5 slag, 6 vír,
7 tu, 8 upplag, 10 na, 11 æla,
12 æöir, 13 auðan.
Lóðrétt: 1 slíða, 2 karp, 3 ag,
4 laug, 5 svunta, 7 talin 9
læöa, 12 æö.