Alþýðublaðið - 20.06.1990, Page 7
Miðvikudagur 20. júní 1990
7
NÆSTA FTASTA SÍBAN
DAGFINNUR
Krókódillinn í kornttexpakkanum
Aðalfrétt gærdagsins var sú að
krókódíll hefði sloppið í Norð-
fjarðará.
í fyrstu hélt ég, að átt væri við
einhvern af bankastjórum lands-
ins sem komnir væru í laxveiði, en
svo reyndist ékki vera.
Það var alvörukrókódíll kominn
í Norðfjarðará.
Fréttin var einhvern veginn á þá
leið, að sjómaðursem komið hefði
með máttfarinn krókódíl í kornf-
lexpakka til landsins, hefði tekist
að ala dýrið vel upp og gera það
hálfs metra langt. Krókódíllinn og
sjómaðurinn voru vanir að fara í
kvöldgöngu og hafði Króki gaman
að því að synda og busla í ein-
hverjum hverarvilpum. En þetta
kvöldið vildi svo illa til að sjómað-
urinn var eitthvað utan við sig og
krókódílinn slapp undan og hefur
sennilega synt eftir kvíslum og
alla leið í Norðfjarðará.
Þar er aftur á móti miklu kald-
ara en í hvernum og sjómaðurinn
hefur nú talinn krókódílinn sinn
af.
Þetta voru slæmu fréttirnar, en
nú koma enn verri fréttir: Sjó-
manninum var auðvitað bannað
að flytja krókódíl í kornflexpakka
til landsins. Að vísu er það gamalt
trikk að geyma alls konar lítil
gúmmídýr í kornflexpökkum til
að örva ungviðið að kaupa
ákveðnar kornflextegundir, en
enginn hefur heyrt um lifandi
krókódíla í kornflexpökkum. Sjó-
maðurinn var því greinilega að
brjóta lög og reglugerðir. Höftin
eru einu sinni slík, að maður verð-
ur að fá leyfi til þess að flytja
krókódíla til landsins.
Yfirdýralæknir hefur farið fram
á lögreglurannsókn.
Sjómaðurinn ákvað því að breyta
vörn í sókn. í viðtali við málgagn
rándýraræktar á íslandi, Tímann,
segir hann í gær, að þetta hafi allt
saman verið gabb og grín. Krókó-
dillinn sé úr gúmmi og hann hafi
gaman að því að draga gúmmí-
krókódil að kvöldlagi i túninu
heima. Einhverjir grínistar hefðu
sagt fjölmiðlamönnum þetta og
eins og blaðamönnum er eðlilegt,
hefðu þeir blásið út fréttina.
Nú fara allir alvöru fréttamenn
að hugsa: Hvers konar maður hef-
ur gaman að því að drattast með
gúmmíkródíl í bandi um slægjurn-
ar að næturþeli?
Sjómaðurinn er því að komast í
æ verri mál. Hann gæti orðið að
sæta geðrannsókn á hvern veginn
sem málið fer. Eðlilegast hefði ver-
ið fyrir sjómanninn að segja að
hann stundaði krókódílarækt á
rannsóknarstigi, sækja um styrk í
úr rannsókna- og vísindasjóði,
heimta lán úr afurðalánasjóði, og
fá niðurgreiðslur og rekstrarbætur
úr atvinnutryggingasjóði.
Þá hefði hann verið álitinn alveg
normal og aldrei komist í kast við
lögin.
Dalai Lama trúarleiðtogi Tíbeta hefur
barist fyrir sjálfstæði þjóðar sinnar
frá Kínverjum.
Lögregla ber niður
mótmæli i Tíbet
Lögreglan í Tíbet handtók
munka og stúdenta sem höfðu
frammi mótmæli þann 8. júní
síðastliðinn.
Átta stúdentar voru handteknir
fyrir að bera fána landsins en hann
hefur verið bannaður af kínversk-
um yfirvöldum. Fáninn er tákn fyrir
sjálfstæði landsins. Herlög hafa gilt
í landinu allt frá því að mikil mót-
mæli þar sem krafist var sjálfstæðis
frá Kínverjum fóru fram árið 1989.
Saga Tíbets er um margt sérstök.
Landið liggur mjög hátt (meðalhæð
er um 4500 m.y.s.) með Himalaya-
fjöllin í suðri en Kunlun fjöllin í
norðri. Há fjallaskörð tengja landið
við Indland og Nepal en vegir liggja
til Kína. Landbúnaður í Tíbet er á
mjög frumstæðu stigi. íbúarnir eru
tæpar tvær milljónir að höfðatölu
og þar af eru Kínverjar um 500.000.
Aðrar fjórar milljónir Tíbeta eru í
meirihluta á víðáttumiklum lands-
svæðum sem lengi hafa talist til
Kína. Tíbet hefur verið undir stjórn
Kínverja allt frá 18. öld en þeir hlutu
sjálfstæði áriö 1911. Kínverjar réðust
aftur inn í landið og náðu völdum
árið 1951 og árið 1953 var sett þar á
fót kommúnistastjórn. Þetta þýddi
að hið forna búddíska embætti Lam-
ans í Tíbet var aflagt. Uppreisn Tí-
beta í Kína árið 1956 náði til Tíbet
1959. Þessari uppreisn var mætt af
mikilli hörku kínverska hersins og
Búddismi var að mestu bældur nið-
ur. Trúarleiðtogi Tíbeta, Dalai
Lama, flýði til Indlands og um
100.000 aðrir Tíbetar fylgdu hon-
um.
Athugulir lesendur næstöftustu
síðunnar muna eflaust að við sögð-
um frá því um daginn að Dalai Lama
var nýlega á ferð í Evrópu, en hann
berst enn í dag ötullega gegn stjórn
Kínverja í landinu enda er hann trú-
arleiðtogi og sjálfstæðistákn þjóðar-
innar.
Fótboltafrir staður
Eigandi kráar einnar í Bæjara-
landi hefur lýst því yfir að hún sé
fótboltafrítt svæði og sé það ætl-
að fólki sem er búið að fá nóg af
HM á Ítalíu.
Vestur-Þjóðverjar eru sem límdir
við sjónvarpsskjáina, hvort sem þeir
eru heima hjá sér, á vinnustað sín-
um eða á krám. Eigandi kráarinnar,
Weisses Kreuz eða Hvíti krossinn,
sem liggur nálægt landamærum
Austurríkis, hefur nú fengið nóg af
öllu þessu umstangi. Á matseðlin-
um er það tekið skýrt fram að eng-
inn fótbolti verði sýndur í sjónvarp-
inu. Karl Fliegenbauer, en svo heitir
eigandinn, segir að hver sá sem
verði uppvís að því að því að tala um
fótbolta fái að sjá rauða spjaldið.
Þeim sem eru svo óheppnir að fá
rauða spjaldið hjá Fliegenbauer er
bannað að sækja krána það sem eft-
ir lifir keppninnar.
Vinnusjúkir eru
varasamir
Varið ykkúr á þessum vinnu-
sömu sem þrjóskast við að taka
sér frí. Þeir gætu verið að fé-
fletta fyrirtækið!
Þetta voru þau skilaboð sem ástr-
alskir forstjórar fengu frá þekktum
glæpasérfræðingi. Bruce Swanton
heitir sá og kom þetta fram í ræðu
sem hann hélt á ráðstefnu um fjár-
svik. Hann sagði að sú hegðun
vinnusjúkra að neita öðrum að taka
af sér ábyrgð gæti bent til þess að
þeir hefðu eitthvað að fela. Þung-
lyndi, mikil drykkja, fjárhættuspil
og mikil samskipti starfsmannsins
við viðskiptavini væru einnig
hættumerki. Einnig væru hroki,
græðgi og óvild í garð yfirmanna
merki um það sama.
Bruce tók það samt skýrt fram að
flestir þeir sem sýndu þessi ein-
kenni hefðu ekkert illt í huga en, svo
notuð séu orð hans sjálfs: ,,Engu að
síður eru þessi einkenni nægileg til
að forstjórar ættu að athuga málið
með hugsanleg fjársvik starfs-
mannsins í huga.“
Fjársvik kosta ástralska ríkið rúm-
lega 180 milljarða ísl.kr. árlega.
Ekki er vitað hvað þetta er há upp-
hæð hjá áströlskum einkafyrirtækj-
um.
Ungverjar opna
hlutabréfamarkað
Tibor Novak rekur blómlegt
bakarí í Búkarest en líkt og
margir ungir Ungverjar langar
hann til að freista gæfunnar sem
hlutabréfamiðlari.
Ástæða þessa er sú að á morgun,
21. júní, verður hlutabréfamarkaður-
inn þar í landi enduropnaður eftir
rúmlega fjögurra áratuga bann
kommúnista við slíkum viðskiptum.
Novak borgaði jafngildi fjögurra
mánaðarlauna til að fara á nám-
skeið sem haldið var um hlutabréfa-
viðskipti. Eitt það fyrsta sem hann
lærði á því námskeiði var að hann
þarf að ná sérstöku prófi og vinna
svo í tvö ár í læri áður en hann fær
þann draum sinn uppfylltann að
verða hlutabréfamiðlari. Novak ætl-
ar ekki að láta þessar hindranir
koma í veg fyrir að hann nái mark-
miði sínu.
Ungverjaland er komið einna
lengst í þeim áætlunum að breyta
frá miðstýrðu hagkerfi til markaðs-
hagkerfis og talið er að hlutabréfa-
markaðurinn og aðrar breytingar
þar í landi geti orðið fyrirmynd álíka
breytinga í öðrum löndum Aust-
ur-Evrópu.
Gamla kauphöllin var í virðulegri
byggingu sem nú hýsir ungverska
sjónvarpið og eru þeir sjónvarps-
menn ekkert á þeim buxunum að
flytja. Nýja kauphöllin mun aftur á
móti hafa aðsetur í nýtískulegri
bankabyggingu í miðborg Búkarest.
Ekki er búist við því að erlend fjár-
festing í Ungverjalandi muni stór-
aukast í bráð við tilkomu hlutabréfa-
markaðarins en þeir segja að til
lengri tíma litið geti hann orðið vaki
að stórauknum markaðsbúskap.
„Ég vona að það verði eitthvert
pláss fyrir mig sem hlutabréfamiðl-
ara við kauphöllina", segir Szabolcs
Fulop, en íiann er 21 árs banka-
starfsmaður í Búkarest. „Það er
skemmtileg tilviljun að ég skuli vera
ungur maður þegar hlutabréfa-
markaðurinn er endurvakinn".
DAGSKRAIN
Sjónvarpið
17.45 Síðasta risaeðlan 18.15 Þvotta-
birnirnir 18.40 Táknmálsfréttir 18.45
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu.
Brasilía-Skotland 20.50 Fréttir og
veður 21.20 Grænir fingur 21.25
Elísabet Englandsdrottning 21.55
Tampopo 23.45 Útvarpsfréttir í
dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Fimm félagar
17.55 Albert feiti 18.20 Funi 18.45 í
sviðsljósinu 19.19 19.19 20.30
Murphy Brown 21.00 Okkar maður
21.15 Bjargvætturinn 22.00 Hættur í
himingeimnum 22.55 Umhverfis
jörðina á 15 mínútum 23.10 Áhuga-
maðurinn (The Amateur) 01.00 Dag-
skrárlok.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 í morgunsárið 09.00 Fréttir
09.03 Litli barnatíminn: Ketill Larsen
segir eigin ævintýri 09.20 Morgun-
leikfimi 09.30 Landpósturinn 10.00
Fréttir 10.03 Þjónustu- og neytenda-
hornið 10.10 Veðurfregnir 10.30 Úr
bókaskápnum 11.00 Fréttir 11.03
Samhljómur 11.53 Á dagskrá 12.00
Fréttayfirlit 12.01 Úr fuglabókinni
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veður-
fregnir. Dánarfregnir. Auglýsingar
13.00 í dagsins önn 13.30
Miðdegissagan: „Leigjandinn" eftir
Svövu Jakobsdóttur 14.00 Fréttir
14.03 Harmonikkuþáttur 15.00 Frétt-
ir 15.03 Sumarspjall 16.00 Fréttir
16.03 Að utan 16.10 Dagbókin 16.15
Veðurfregnir 16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir 17.03 Tónlist eftir César
Franck 18.00 Fréttir 18.03 Sumaraft-
ann 18.30 Tónlist 18.45 Veðurfregnir.
Auglýsingar 19.00 Kvöldfréttir 19.30
Auglýsingar 19.32 Kviksjá 20.00 Fá-
gæti 20.15 Nútímatónlist 21.00 For-
sjársviptingar 21.30 Sumarsagan:
„Viðfjarðarundrin" eftir Þórberg
Þórðarson 22.00 Fréttir 22.07 Að
utan 22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins 22.30 Birtu brugðið á samtímann
23.10 Sjónaukinn 24.00 Fréttir 00.10
Samhljómur 01.00 Veðurfregnir
01.10 Næturútvarp.
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Morgunsyrpa 11.03
Sólarsumar 12.00 Fréttayfirlit. Aug-
lýsingar 12.20 Hádegisfréttir 14.03
HM-hornið 14.10 Brot úr degi 16.03
Dagskrá 18.03 Þjóðarsálin 19.00
Kvöldfréttir 19.32 Zikk Zakk 20.30
Gullskífan 21.00 Úr smiðjunni 22.07
Landið og miðin 23.10 Fyrirmyndar-
fólk 00.10 I háttinn 01.00
Næturútvarp.
Bylgjan
07.00 Pétur Steinn Guðmundsson
og Hulda Gunnarsdóttir 09.00 Fréttir
09.10 Ólafur Már Björnsson 11.00 í
mat með Palla 13.00 Valdís Gunnars-
dóttir 15.00 Ágúst Héðinsson 17.00
Kvöldfréttir 17.15 Reykjavík síðdegis
18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson
22.00 Þorsteinn Ásgeirsson 02.00
Freymóður T. Sigurðsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 10.00 Snorri
Sturluson 13.00 Kristófer Helgason
17.00 Á bakinu með Bjarna 19.00
Darri Ólason 22.00 Ólöf Marin Úlf-
arsdóttir 24.00 Bjöm Sigurðsson.
Aðalstöðin
07.00 Á nýjum degi 10.00 Kominn
tími til 13.00 Með bros á vör 16.00 í
dag, í kvöld 19.00 Við kvöldverðar-
borðið 20.00 Á yfirborðinu 22.00 í
lifsins ólgusjó 24.00 Næturtónar.