Alþýðublaðið - 22.01.1991, Page 7
7
Þriðjudagur 22. janúar 1991
ERLEHD FRÉTTASKÝRING
Danska þingid rannsakar fyrrum dómsmálarádherra Danmerkur:
Innttvtningsbann kostaði
ttöUa Tamila lifíð
Um þessr mundir eru að koma i Ijós ffyrstu niður-
stöður þeirrar rannsóknar sem danska þingið kraffð-
ist ó meðhöndlun dómsmólaróðuneytisins á órunum
1987—1989 á umsóknum tamilskra flóttamanna
frá Sri Lanka um að heimila fjölskyldum þeirra að
fflytjast til Danmerkur.
Erik Ninn-Hansen, þingmaöur Hægriflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra Danmerkur: Saltaði i tvö ár
umsóknir tamílskra flóttamanna frá Sri Lanka um að flytjast til Danmerkur. Afleiðingin var að fólkið, m.a. kon
ur og börn, var myrt og limlest.
Allt bendir til að þáverandi
dómsmálaráðherra, íhaldsflokks-
þingmaðurinn Erik Ninn-Hansen,
og háttsettir embættismenn í
dómsmálaráðuneytinu hafi með-
vitað brotið lög og mannréttinda-
samþykktir þegar ráðuneytið að
ósk ráðherrans saltaði umsóknir
hinna örvæntingarfullu tamíla í
tæp tvö ár. Ákvörðun ráðherrans
hafði alvarlegar afleiðingar fyrir
tamíla og hinar ofsóttu fjölskyldur
þeirra á Sri Lanka; eiginkonur og
börn hafa verið myrt, konum hef-
ur verið nauðgað og fjölskyldu-
meðlimum misþyrmt. Auk þess
hafa hinir tamíisku flóttamenn í
Danmörku liðið vítiskvalir vitandi
af fjölskyldum sínum í stöðugri
hættu.
Morð og limlestingar
ó Sri Lanka_________________
Samkvæmt dönskum lögum og
samþykktum Sameinuðu þjóð-
anna hafa flóttamenn rétt á að fá
leyfi yfirvalda í því landi sem þeir
búa í að fá fjölskyldu sína til sín í
útlegðina, ef öryggi fjölskyldunn-
ar er stefnt í hættu. Þegar hinir
tamílsku flóttamenn sóttu um að
fá fjölskyldur sínar til Danmerkur
var innanríkisástandið á Sri Lanka
vægast sagt óöruggt, skv. heimild-
um Amnesty International fóru
indverskir hermenn um héruð
tamíla með morðum, limlesting-
um og nauðgunum á óbreyttum
borgurum. Þrátt fyrir hið óörugga
ástand á Sri Lanka taldi dóms-
málaráðherrann ekki ástæðu til
að taka umsóknir tamílanna til
umfjöllunar. Aðspurður lýsti hann
því yfir að ástandið á Sri Lanka
væri langt því frá að vera óöruggt.
Umsóknir tamílanna hefðu því
ekki forgang fram yfir aðrar um-
sóknir, og þar sem dómsmálaráðu-
neytið næði ekki að anna öllum
þeim verkefnum sem lægju fyrir
yrðu tamílarnir einfaldlega að
bíða.
Vaffasamur róðherra
kosinn fforseti þingsins
Ninn-Hansen hafði ekki heppn-
ina með sér. Bæði fréttamönnum
og pólitískum andstæðingum
fundust skýringar ráðherrans ansi
götóttar. Umfjöllun ráðuneytisins
á umsóknum tamílanna var kærð
til umboðsmanns þingsins sem
hóf rannsókn á málinu. Umboðs-
maðurinn varð þó að hætta rann-
sókn sinni á málinu þegar flokks-
systir Ninn-Hansens og formaður
dómsmálanefndar þingsins,
Grethe Fenger Meller, lagði fram
spurningu um tamílamálið til ráð-
herrans í dómsmálanefndinni.
Skv. reglum þingsins er umboðs-
manninum ekki heimilt að rann-
saka þau mál sem eru til umfjöll-
unar á þinginu.
Þegar staða forseta þingsins
skyndilega varð laus ákváðu
stjórnarflokkarnir í stjórn Schlut-
ers að Ninn-Hansen væri þeirra
kandidat í stöðuna. Staða forseta
þingsins telst mikil virðingarstaða
og gegna menn yfirleitt þeirri
stöðu til loka þingsetu sinnar. Þar
sem það er hefð fyrir því í danska
þinginu að velja sem forseta þings-
ins þingmann sem er virtur af
þingheimi og hefur stuðning allra
þingflokka, gerði það mikinn usla
þegar ríkisstjórnin tefldi fram
Ninn-Hansen sem kandidat sín-
um. Pólitískt mannorð hans hafði
óhreinkast illilega við tamílamálið
og fór svo að hann var kosinn for-
seti þingsins með aðeins tveggja
atkvæða mun. Um leið og Ninn-
Hansen tók við stöðu forseta
þingsins vék hann úr stöðunni
sem dómsmálaráðherra.
Ninn-Hansen var ekki lengi for-
seti þingsins. Við upphaf næsta
þings var andstaðan gegn honum
orðin svo öflug að hann var
neyddur til að segja af sér for-
mannsstarfinu. Pressan á ríkis-
stjórnina til að rannsaka tamíla-
málið niður í kjölinn jókst stöðugt
og þann 8. maí á sl. ári neyddist
Schlúter á endanum til að draga
Ninn-Hansen undan hlífiskildi sín-
um og fara fram á dómsrannsókn
á tamílamálinu. Það eru niður-
stöður þessarar rannsóknar sem
nú eru að koma í dagsljósið. Grun-
ur manna um að Ninn-Hansen hafi
eitthvað óhreint í pokahorninu
hefur verið staðfestur og vel það.
Meðvitað lögbrot
róðherrans
Vitnaleiðslur hafa leitt í ljós að
dómsmálaráðuneytið hefur reynt
að halda sannleikanum leyndum
með röngum upplýsingum og vill-
andi útskýringum. Ninn-Hansen
vildi ekki veita fjölskyldum tamil-
anna leyfi til búsetu í Danmörku,
þó svo honum væri Ijóst að fjöldi
manna og barna væru í hættu, og
hugðist ganga svo langt að vísa
tamílunum úr landi. Með því að
neita fjölskyldunum um dvalar-
leyfi í Danmörku virðist sem ráð-
herrann hafi ætlað sér að leggja
pressu á flóttamennina að snúa
aftur til Sri Lanka, þar sem ofsókn-
ir og dauði biðu þeirra. Þar sem
allt bendir til að Ninn-Hansen og
ýmsir starfsmenn dómsmálaráðu-
neytisins hafi meðvitað brotið
dönsk lög og alþjóðasamþykktir
hafa jafnaðarmenn farið fram á að
Ninn-Hansen verði kærður fyrir
ríkisrétti. Ríkisréttur hefur ekki
verið settur í Danmörku síðan
1909 þegar þingmaðurinn og fyrr-
verandi dómsmálaráðherrann,
Peter A. Alberti, var kærður fyrir
fjármálamisferli og dæmdur í átta
ára fangelsi. Ákvörðunin um
hvort ríkisréttur verði settur í máli
Ninn-Hansens verður fyrst tekin
þegar dómsrannsókninni lýkur
nk. sumar. Allt bendir þó til að til-
skilinn meirihluti sé á danska
þinginu fyrir þvi að ríkisréttur
verði settur í málinu.
Schliiffer medsekur?
Það er ekki bara Ninn-Hansen
og fyrrverandi embættismenn
hans sem komnir eru i alvarlega
klemmu. Fyrrverandi formaður
dómsmálanefndar danska þings-
ins, Grethe Fenger Moller, og for-
sætisráðherrann, Poul Schlúter,
eiga yfir höfði sér að dragast inn í
málið sem meðsek. Grethe Fenger
Moller, sem nú þegar hefur sagt af
sér sem formaður dómsmála-
nefndar þingsins, viröist hafa lagt
fram spurningu til Ninn-Hansens í
dómsmálanefndinni til þess eins
og stöðva rannsókn umboðs-
manns þingsins á tamílamálinu.
Það hafa verið lögð fram sönnun-
argögn sem sýna að það var Ninn-
Hansen og embættismenn hans
sem sömdu spurninguna og sendu
til Grethe Fenger Moller. Þaö er
snnþá óljóst hvenær Schlúter fyrst
fékk vitneskju um hvað var að ger-
ast bak við tjöldin í dómsmála-
ráðuneytinu. Komi í Ijós að Schlút-
er hafi vitað um lögleysuna frá
upphafi getur ríkisréttur dæmt
hann til allt að tveggja ára fangels-
isvistar. Staða Schlúters er allt
annað en glæsileg; hann lýsti því
yfir á sl. vori að hann og ríkis-
stjórnin hafi verið vitandi um
meðferð dómsmálaráðuneytisins
á umsóknum tamílanna og að
hann taki á sig réttarfarslega
ábyrgð á ákvörðun dómsmálaráð-
herrans.
Bjarni Þorsteinsson
skrifar frá
Kaupmannahöfn
DAGSKRAIN
Sjónvarpið
11.50 HM i alpagreinum skíðaíþrótta
17.50 Einu sinni var 18.15 íþrótta-
spegill 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Fjölskyldulíf 19.20 Brauðstrit 19.50
Jóki björn 20.00 Fréttir og veður
20.35 Tónstofan 21.00 ísland í Evr-
ópu — Hvað er framundan 23.00
Ellefufréttir 23.10 Mannvíg 00.10
Dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Maja býfluga
17.55 Fimm félagar 18.20 Eðaltónar
19.19 19:19 20.15 Neyðarlínan 21.05
Sjónaukinn 21.35 Hunter 22.25
Hundaheppni 23.15 Ég vil lifa 01.50
Dagskrárlok
Rós 1
06.45 Veðurfregnir 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur rásar 1 08.00
Fréttir og Morgunauki 08.15 Veður-
fregnir 08.30 Fréttayfirli t09.00 Frétt-
ir 09.03 Laufskálinn 09.45 Laufskála-
sagan 10.00 Fréttir 10.03 Við leik og
störf 11.00 Fréttir 11.03 Árdegistónar
11.53 Dagbókin 12.00 Fréttayfirlit á
hádegi 12.01 Endurtekinn morgun-
auki 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veð-
urfregnir 12.48 Auðlindin 12.55 Dán-
arfregnir 13.05 í dagsins önn 13.30
Hornsófinn 14.00 Fréttir 14.03 Út-
varpssagan: Konungsfórn 14.30
Miðdegistónlist 15.00 Fréttir 15.03
Kíkt út um kýraugað 16.00 Fréttir
16.05 Völuskrín 16.15 Veðurfregnir
16.20 Á förnum vegi 16.40 Ég man
þá tíð 17.00 Fréttir 17.03 Vita skaltu
17.30 Tónlist á síðdegi 18.00 Fréttir
18.03 Hér og nú 18.18 Að utan 18.30
Auglýsingar 18.45 Veðurfregnir
19.00 Kvöldfréttir 19.35 Kviksjá 19.55
Daglegt mál 20.00 í tónleikasal 21.10
Stundarkorn í dúr og moll 22.00
Fréttir 22.07 Að utan 22.15 Veður-
fregnir 22.20 Orð kvöldsins 22.30
Leikrit vikunnar 23.15 Djassþáttur
24.00 Fréttir 00.10 Miðnæturtónar
01.00 Veðurfregnir 01.10 Næturút-
varp á báðum rásum til morguns.
Rós 3
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Níufjögur 11.30 Þarfa-
þing 12.00 Fréttayfirlit og veður
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur
13.20 Vinnustaðaþrautimar þrjár
14.10 Gettu betur! 16.03 Dagskrá
18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir
19.32 Gullskífan 20.00 Lausa rásin
21.00 Á tónleikum með B.B. King
22.07 Landiðog miðin 00.10 í háttinn
01.00 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Páll Þor-
steinsson 11.00 Haraldur Gíslason
14.00 Snorri Sturluson 17.00 ísland i
dag 18.30 Kristófer Helgason 22.00
Hafþór Freyr Sigmundsson 23.00
Kvöldsögur 02.00 Þráinn Brjánsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeildin
stofa 102 12.00 Sigurður Helgi Hlöð-
versson 14.00 Sigurður Ragnarsson
17.00 Björn Sigurðsson 20.00 Jó-
hannes B. Skúlason 22.00 Ólöf Marín
Úlfarsdóttir 02.00 Næturpopp á
Stjörnunni.
Aðalstöðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Morgunverk Margrétar 09.15
Heiðar, heilsan og hamingjan 09.30
Heimilispakkinn 10.00 Hvað er
þetta? 10.30 Morgungestur 11.00
Margt er sér til gamans gert 11.30 Á
ferð og flugi 12.00 Hádegisspjall
13.00 Strætin úti að aka 13.30 Glugg-
að i síðdegisblaðið 14.00 Brugðið á
leik í dagsins önn 14.30 Saga dags-
ins 15.00 Topparnir takast á 15.30
Efst á baugi vestanhafs 16.15 Heiðar,
heilsan og hamingjan 16.30 Aka-
demían 18.30 Tónaflóð Aðalstöðvar-
innar 19.00 Sveitatónlist 22.00 Vina-
fundur 24.00 Næturtónar